Eldri færslur fyrir stikkorð » vinna «

færsla skrifuð kl. 01:11 - 24. February, 2009 | Höfundur: einir

Jæja þá er maður búinn að koma sér fyrir í höfuðborg eymdar og volæðis, nánar tiltekið á Langholtsveginum hjá Sigga bró. Hingað er ég kominn í leit að menntun, en ég hef skráð mig á tæplega fjögurra vikna námskeið í kerfisstjórnun hjá Tölvuskólanum iSoft – Þekking, svokallað grunnnám.

Fyrsti ’skóladagurinn’ er í fyrramálið klukkan 8:30 og verður skóli alla virka daga til og með 20. mars næstkomandi og þarf ég því að dúsa í Reykjavíkinni í tæpan mánuð (að einni helgi undanskilinni sem Thelma hefur heimtað að fá mig til Eyja =) Ég hef barasta góða tilfinningu fyrir þessu námskeiði og vonast til að læra alveg hreint heilan helling sem mun koma til með að nýtast mér vel hjá Samma…

Námskeiðið er þó því miður bara fyrir hádegi svo ég mun þurfa að finna mér eitthvað að gera hér eftir klukkan 12… en auðvitað tók ég með mér myndavélina svo það verður kannski ekki svo erfitt, svo var Sammi svo góður að lána mér eitt stykki ferðavél til að hafa í náminu… þar sem mín er auðvitað steindauð, og það fyrir löngu.

Jæja, best að henda sér í bólið til að vera hress fyrsta skóladaginn!

Flokkað undir: blog  | Stikkorð: , , ,  | 2 komment
færsla skrifuð kl. 22:54 - 30. January, 2009 | Höfundur: einir

Jæja ætli maður verði ekki að henda inn allavega einni færsu áður en janúar klárast. Ingólfur lille bro átti afmæli í gær og vil ég óska honum hjartanlega til hamingju með 19. árið.

Það sem meðal annars hefur á daga mína drifið í þessum blessaða janúarmánuði er aðallega vinna og aftur vinna. Mikið er nú gaman að vinna við það sem maður hefur áhuga á. Ég held ég geti sagt það í fyrsta skipti á ævinni að ég sé kominn í vinnu sem ég gæti séð mig vinna við í framtíðinni… og það er mjög stórt skref fyrir mig! Og ekki skemmir fyrir þegar yfirmaðurinn segir við mann:

“Einir við þurfum svo að setjast niður saman og finna námskeið sem þig langar á til að auka þekkingu þína á tölvum/viðgerðum/netkerfum eða bara því sem þig langar að læra meira um.”

Ég er búinn að vera að leita mér upplýsinga á netinu um svona námskeið og held ég hafi meira að segja fundið eitt bitastætt sem reyndar hefst strax í lok næsta mánaðar, spurning hvort fyrirvarinn sé nægur – en það kemur bara í ljós.

Í öðru lagi varð ég ástfanginn af nýrri myndavél ekki alls fyrir löngu, kærustunni til mikillar ánægju. Nei ég segi svona, held hún sé alveg semí sátt bara. Canon EOS 50D er á góðri leið með að verða mín ásamt nýrri EF-S 17-85mm linsu sem verður góð viðbót í safnið.

 

Canon EOS 50D

Canon EOS 50D

Annars er held ég bara allt gott að frétta, það er kominn flöskudagur – mér finnst reyndar bara alltaf vera helgi. Ég sit hérna niðrí Féló, búinn að vera í vinnu síðan 8 í morgun og ætla bara að taka því rólega í kvöld… Thelma komin með hita og svona svo ég held það sé bara vídjógláp og nammi… spara sig fyrir morgundaginn. Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra…

(Vúhú, mér tókst að blogga ekki um ástandið á Íslandi í dag! Get reyndar ekki lofað því að það næsta verði það ekki heldur… það er ýmislegt sem maður vill tjá sig um!)

Flokkað undir: blog  | Stikkorð: , , ,  | eitt komment
færsla skrifuð kl. 19:33 - 07. May, 2008 | Höfundur: einir

Já það er að koma sumar… reyndar komið samkvæmt dagatalinu en ég vil bíða aðeins lengur, allavega fram yfir próf. Það er nú þannig að ég klára próf 13. maí, nánar tiltekið á afmælisdaginn minn (tölum ekki meira um það). Svo tekur við sumarvinnan en það er nokkuð ljóst að mig mun ekki skorta atvinnu í sumar. Ég verð hjá Grími Kokk og með því mun ég svo vinna hjá Einari Birni um helgar í veislum og fleiru tilfallandi, en hann rekur núna veisluþjónustuna Einsa kalda. Þá kem ég einnig til með að vinna hjá þeim félögum á 24seven ehf, en þeir reka meðal annars frétta og umræðuvefinn eyjar.net. Þar mun ég sjá um að setja inn fréttir, taka ljósmyndir og vera með puttann á púlsinum í Eyjum í sumar. Svo er aldrei að vita nema Stefán á Café reyni að fá mann til sín svona inn á milli… þegar mest er, eins og var síðustu helgi! Það er ekki laust við að það sé komin svolítil tilhlökkun í mann, þar sem þetta er ekkert í líkingu við það sem maður hefur verið að gera síðastliðin sumur og á ég ekki von á öðru en að þetta verði skemmtileg tilbreyting.

Annars er sumarskapið að koma hægt og bítandi milli þess sem maður lærir undir lokaprófin. Við feðgarnir (ég, Ingólfur & pabbi) tókum okkur til og keyptum okkur glænýtt grill fyrir sumarið. Ég tók mér heila kvöldstund í að setja gripinn saman í gær þar sem ég var ekki að fara í próf í morgun. Þetta er ekkert smá grill, 4 undirbrennarar, einn yfirbrennari til að halda hitanum í grillinu og svo einn brennari á hliðinni. Svo er auðvitað kælibox á hinni hliðinni undir bjórinn… semsagt alvöru grill. Svo fylgir grillteinn með mótor svo hægt er að grilla læri og heila kjúklinga eins og ekkert sé. Læt hérna fylgja mynd af gripnum og ætla að kalla þetta gott… best að koma sér í lærdómsgírinn fyrir sálfræðipróf!

Grillmaster 3000

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , , ,  | 5 komment
færsla skrifuð kl. 03:29 - 07. March, 2008 | Höfundur: einir

Hrognin byrjuðHeyriði nei vaktirnar eru bara ekkert búnar. Gefinn út viðbótarkvóti daginn eftir að ég skrifaði síðustu færslu svo það er bara allt í blússandi gangi í VSV, hrognin komin á fullt og flæða um allt. Ég er að fara á vakt núna klukkan 4 svo þetta verður bara að vera stutt færsla.

Árshátíð FÍV á morgun (í kvöld réttara sagt, föstudaginn 7. mars) og allir að fara að djamma. Spurning hvort það verði vakt annað kvöld, ég vona það allavega… manni veitir ekki af peningnum!

Kem svo með myndir af snjódeginum mikla næst…

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð:  | 2 komment
færsla skrifuð kl. 02:01 - 26. February, 2008 | Höfundur: einir

Ég skellti mér á nokkrar vaktir í Vinnslustöðinni í síðustu viku, sem reyndar teygðu sig alveg fram á mánudagsmorgun núna í þessari viku. Allt í allt held ég að ég hafi nælt mér í um 10 vaktir og er ég bara nokkuð sáttur við það… allavega ef það gengur eftir sem sjávarútvegsráðherra hefur gefið út um loðnukvóta. Hefðbundnum veiðum var hætt á hádegi á föstudaginn síðasta en ég held reyndar að Kapin hafi fengið að fara út aftur á laugardagskvöld vegna þess að þeir ‘áttu inni’ óveiddan kvóta sem hafði verið gefinn út fyrir bannið. Svo nú eru nokkur skip að aðstoða hafrannsóknarskipin við loðnuleit á miðunum og heyrði ég í fréttunum í gær að þeir væru nú að finna ágætis magn af loðnu hérna aðeins austan við Eyjarnar.

Sjómenn hafa reyndar kvartað mikið undan seinagangi Hafró manna, um að þeir skili sér seint á miðin til mælinga eftir að skipstjórar hafa látið þá vita af torfum. Las reyndar helvíti góða grein frá áhöfninni á Faxa RE sem er að finna hér. Mjög fyndin og lýsir að ég held mjög vel skoðunum sjómanna á þessu loðnuveiðibanni og áliti þeirra á Hafró. Las nú samt frétt á mbl.is þar sem sagt er að loðnumælingar standi nú yfir á fullu og að ‘allt sé í sómanum’ – að sögn Sveins Sveinbjörnssonar leiðangursstjóra. Hvað maður á svo að lesa út úr þeim skilaboðum kemur vonandi í ljós fyrr en síðar, því ekki veitir manni nú af meiri pening, fátæki námsmaðurinn sjálfur. Svo er þetta líka bara svo gaman!

Jæja, ætla ekki að hafa þetta lengra. Kominn tími á svefn. Set hérna inn úrslit könnunarinnar sem ég lét fylgja með síðustu færslu… þar sem greinilega langflestir skoða mbl.is mest.

[poll=2]

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | 3 komment
færsla skrifuð kl. 20:59 - 27. August, 2007 | Höfundur: einir

Góða kvöldið, hvað segir mannskapurinn? Langt síðan síðast… allavega hérna í bloggheimum, enda hefur maður gefið sér lítinn tíma til að vera í tölvunni í sumar. Sumarið er búið að vera með eindæmum gott hérna í Eyjum og veðrið gjörsamlega verið óaðfinnanlegt. Ég vann sem flokkstjóri í vinnuskólanum í sumar og leit við og við í eldhúsið til hans Stebba á Café þegar þess þurfti. Þjóðhátíðin var snilld eins og búast mátti við, rættist heldur betur úr veðrinu þannig að ekkert hægt að kvarta undan henni.

Strax eftir Þjóðhátíð var svo gifting þar semThelma Rós stóra litla frænka játaðist honum Stymma (og auðvitað öfugt :) ) og fékk ég þann heiður að vera ljósmyndari í brúðkaupinu, sem heppnaðist svona líka bara ljómandi vel í alla staði. Enn og aftur til hamingju með þetta krakkar mínir ;)

Nú er skólinn kominn á fullt skrið og bara gaman að því. Ég verð í 16 einingum og svo vonandi að vinna eitthvað með, hvort sem það verður Féló eða eitthvað annað (vonandi samt Féló) en ætti nú að geta haldið þessari síðu gangandi þrátt fyrir að það verði mikið að gera þar sem stundataflan er eins og svissneskur gæðaostur, með tilheyrandi götum… en laus við lyktina…

Jæja, ætla ekki að hafa þetta lengra. Langaði bara að láta vita af mér, ég er kominn á ról í tölvuheimum aftur og því skuluð þið búast við því að þurfa að detta hérna inn allavega þriðju hverju viku… eða dag ;)

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , ,  | 2 komment
færsla skrifuð kl. 17:40 - 05. June, 2007 | Höfundur: einir

Þá er þessi blessaða sjómannadagshelgi yfirstaðin og auðvitað nældi ég mér í einhvern flensuviðbjóð svona í blálokin á henni. Búinn að liggja uppi í rúmi þessa 2 frídaga sem ég ætlaði að nota í e-ð skemmtilegra en það allavega. En að helginni…

Það var vel tekið á því þessa helgina eins og svo margar aðrar sjómannadagshelgar, eiginlega aðeins of vel þar sem ég var búinn að lofa mig í vinnu á Café María bæði laugardag og sunnudag. Mætti samt ferskur í vinnuna á laugardeginum, en það var annað mál með sunnudaginn. Að vinna í eldhúsi alveg draugþunnur og svona eftir á að hyggja í byrjun veikinda er eitthvað sem ég vona að enginn (eða allavega ekki þið sem ég hef gaman að) upplifi. Annars tókst þetta nú bara mjög vel miðað við aðstæður, maður var að koma þarna í vinnu í fyrsta skiptið í 2 ár. Við Sigrún fengum allavega nokkur hrós á staðnum og meira að segja á ballinu var komið og þakkað fyrir frábæran mat… bara gaman að því ;)

Annars var þetta ball alveg svona ágætis yfir heildina. Ég þakka reykingabanninu fyrir að manni sortnaði ekki fyrir augun við að labba inn í Höllina, þvílíkur fjöldi fólks sem var mættur á þetta ball. En auðvitað var ekki opið upp… þetta er alveg óþolandi. Ég legg til að Þröstur kaupi bara allt sem er þarna uppi og noti þegar hann stækkar barinn sinn… fullt af kósý sófum, flottur bar sem er opinn allan hringinn svo það auðveldar aðgengi að honum… nefni þetta við hann næst þegar ég fer á Drífó, sem ég ætla samt að vona að verði ekki næstu helgi!

Annars er ég búinn að vera fastur í þessum leik í 2 daga… einstaklega ávanabindandi leikur sem ég fann á heimasíðunni www.black.is, sem ég er víst orðinn meðlimur að! Endilega kíkið á þessa síðu sem Gulli, Siggi bróðir og Aron störtuðu, verða þarna myndir af djamminu og fleira fyndið.

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , ,  | 2 komment
færsla skrifuð kl. 14:40 - 27. October, 2006 | Höfundur: einir

Jæja þá situr maður inn í sjoppu og bloggar. Svona er tæknin nú orðin rosaleg. Ísjakafólkið er farið í skemmtiferð til Reykjavíkur, fóru í morgun með Herjólfi og ég sé um búðina á meðan ásamt Salóme frænku. Helgin leggst nú samt bara ágætlega í mig. Verslunarmannaball á morgun sem ég er nú alveg að spá í að kíkja á þótt ég sé að vinna daginn eftir. Ætla samt að vera bara rólegur í kvöld til að spara smá heilsu fyrir sunnudaginn. Það er EKKERT leiðinlegra en að vinna þunnur í sjoppu. Svo er Svala að koma til Eyja í kvöld svo maður kíkir nú á smá rúnt með kjellunni. Reyndar voru menn eitthvað að tala um að spila í kvöld… ég er alveg opinn fyrir því líka.

Annars er nú bara lítið að frétta. Var í sálfræðiprófi í gær sem var svona frekar þungt… allavega voru flestir mjög ósáttir við það. Ég vona bara að ég hafi náð. Svo er það bara vinnuhelgin framundan… Steeb ætlar að tjútta, Gvuní líka ef það verður ekki vinna (hún er orðin slorpjása), Hlynsi er mættur á svæðið og verður svartur á morgun, Svala & Karlotta munu án efa taka Sykurpabbadjammið á þetta og mun ég heiðra þær með nærveru minni og jafnvel stöku setningum á borð við “Hvað er AÐ þér” og jafnvel “Hvað er AÐ ykkur” ef ég verð í góðu skapi.

Jæja, halda áfram að vinna.
Sjáumst!

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 17:13 - 21. August, 2006 | Höfundur: einir

Jæja þá er stundataflan komin í hús. Ég ákvað að skipta yfir á Félagsfræðibraut, en ég var á Náttúrufræðibraut þegar ég byrjaði í skóla. Er reyndar á báðum áttum núna en ætla að skoða þetta allt saman betur með Helgu Kristínu á morgun. Stundataflan lítur bara ágætlega út, vantar samt eitthvað eitt fag til að fylla upp í leiðindagöt. Verð þá væntanlega með 19 einingar, svo nú tekur bara við upprifjun á því að vera í skóla :D En þetta leggst samt bara vel í mig. Á enn eftir að heyra með vinnuna hjá Sigþóru í Féló, þótt Arndís sé nú eiginlega bara búin að ákveða að ég verði þarna með henni í sumar… vona innilega að maður fái vinnu þarna, það yrði bara snilld! :)

Annars er lítið að frétta. Maður er bara að klára að undirbúa sig fyrir skólann, kaupa blöð, penna og allt auk þess sem maður þarf að taka aðeins til í ferðavélinni og gera hana klára undir skólann. Þetta er allt saman farið að taka á sig mynd og er ég bara kominn með þetta fína herbergi hérna uppi í gistingu hjá gamla settinu :)

Fór út á sjó að veiða með Árna Óla, Gaua og Bjarna í góða veðrinu í gær og tók þar nokkrar myndir. Ætla að henda Photoshop inn á þessa vél og klára myndirnar svo. Reikna með að henda nokkrum myndum inn á flickR-ið í kvöld.

Þangað til næst…

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 03:10 - 18. August, 2006 | Höfundur: einir

Já nú er búið að vera mikið að gerast síðastliðna daga. Ég er fluttur til Eyja og hef ákveðið að klára það sem ég byrjaði á 16 ára gamall og þá af engum áhuga, já ég er að tala um stúdentinn. Ég skráði mig í FÍV í vikunni og sótti um vinnu í Féló með skólanum, vonandi að ég fái hana bara. Þetta er búið að ske allt saman mjög hratt en ég er bara sáttur við að vera kominn heim á eyjuna fögru. Hótel mamma klikkar náttúrulega aldrei og auðvitað allir vinirnir… þetta er bara geggjað.

Ég sé fram á skemmtilegan vetur í FÍV þar sem ég og Arndís munum verða mamman og pabbinn þarna, en þess má til gamans geta að Ingólfur bróðir verður einmitt vígður inn í FÍV á þessari önn með tilheyrandi busaveseni… Það verður gaman að sjá :) Annars hefur maður bara verið að taka því rólega í vikunni og var ég einmitt að klára að horfa á 2 spólur með Arndísi og Ólöfu. Eða reyndar horfðu þær með mér á fyrstu og ég horfði einn á hina þar sem þær steinsváfu… félagar… :D

Búinn að fara svolítið út í góða veðrinu sem er búið að vera hér og taka myndir. Fór upp á Há í dag og tók nokkrar myndir og ætla að deila hérna nokkrum með ykkur:

Maður á eftir að gera meira af þessu… það er alveg bókað, enda eru Vestmannaeyjar gullkista fyrir ljósmyndara. Og fyrst ég er nú að þessu á annað borð er kannski kominn tími til að henda inn link á myndasafnið sem ég er að koma mér upp á netinu sem áhugaljósmyndari. Hann verður hérna til hægri en síðuna er að finna hér. Endilega skoðið myndirnar og segið hvað ykkur finnst ;)

Jæja, ég er farinn að sofa í hausinn á mér!