Eldri færslur fyrir stikkorð » útivist «

færsla skrifuð kl. 19:50 - 18. May, 2007 | Höfundur:

Jæja þá er kannski kominn tími til að láta vita af sér hérna í Frakklandinu góða. Við erum sko ekki búin að sitja auðum höndum hérna hjá henni Guðnýju, enda bara snilld að vera með svona ‘local tour guide’ sem veit um alla bestu staðina til að heimsækja og bestu strendurnar, kann að ferðast í lestunum og ég veit ekki hvað og hvað. Við fórum á fyrsta deginum til Mónakó sem var náttúrulega bara geðveiki. Sáum þar snekkjubátahöfn þar sem allir þessir frægu og ríku eiga eitt eða jafnvel tvö stykki hver, það þarf ekki að taka fram að þetta eru sjúklega flottar snekkjur allt saman. Fórum líka að skoða formúlubrautina, sem er btw bara inni í miðri borginni og þarf að loka helstu götum á meðan á keppninni stendur. Held að það verði keppt í Mónakó 26. maí en undirbúningurinn var í fullum gangi. Svo var að sjálfsögðu kíkt í casino, en þess má einmitt geta að póker atriðið í Casino Royale var tekið upp í Mónakó…

Svo fórum við 2 næstu daga á ströndina og grilluðum okkur aðeins, lékum okkur í sjónum í frisbee, beach ball og fleiri skemmtilegum leikjum. Í gær fórum við svo til Cannes þar sem kvikmyndahátíðin er í gangi núna. Vorum reyndar ekki svo heppin að hitta á einhvern frægan en sáum rauða dregilinn þar sem var verið að ryksuga hann og gera fínan fyrir kvöldið, auk þess sem við fengum okkur að borða þar og skoðuðum herlegheitin. Fólk var meira að segja farið að bíða eftir stjörnunum þarna þegar við vorum og voru þá alveg þónokkrir tímar í að þær kæmu.

Í dag fórum ég, Olga og Bjarni í næsta bæ og að sjálfsögðu beint á ströndina. Búin að vera dugleg á ströndinni hérna en í dag var aðeins “of gott” veður ef svo er hægt að segja, því við komum öll vel grilluð heim á hótel og erum núna að baða okkur upp úr after sun og grunar mig sterklega að ég muni hafa hamskipti í nótt… :o

Lofaði nokkrum myndum hérna úr ferðinni og ætla ég að leyfa þeim að eiga síðustu orðin ;)


Á lestarstöðinni á leiðinni á ströndina

Komin á ströndina… bara gott veður.


Mættur til að brenna.


Aðeins verið að ljósmyndast með nýju sólgleraugun í sandinum.


Ferðafélagarnir sáttir í Mónakó

P.S. Vil nota tækifærið hér og óska henni Arndísi Ósk Atladóttur til hamingju með afmælið… love you sæta :*

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , , ,  | eitt komment
færsla skrifuð kl. 02:03 - 09. May, 2007 | Höfundur:

Já það er verulega farið að styttast í utanlandsferðina. Ég fer til Reykjavíkur á fimmtudaginn (á morgun tæknilega séð) og svo til London á laugardaginn. Við verðum þar í 2 daga og hitti svo á að mamma og pabbi verða akkúrat í London á þessum tíma svo við munum horfa saman á Eurovision hjá Þórhalli bróður og Hrund ásamt því að ‘fagna’ 24 ára afmælinu mínu daginn eftir.

Svo verður flogið til Nice í Frakklandi á mánudagsmorgun og ætlar hún Gvuní að taka á móti okkur með alls kyns kræsingum og að sjálfsögðu lofaði hún sól og blíðu! Þar verðum við í 8 daga og fljúgum svo aftur til London. Þar eyðum við 2 síðustu dögum af fríinu á TGI Fridays, sem er einn mesti snilldar veitingastaður sem ég hef komið á (allt annað en krapið sem er í Smáralindinni)

Nú er bara að fara að kjósa á morgun, fara í klippingu og pakka niður. Er eiginlega búinn að ákveða hvað ég ætla að kjósa, og í sambandi við farangur í þetta ferðalag ætla ég bara að taka eurotrip aðferðina sem við Árni Óli tókum 2004. Hún innihélt bakpoka en ég ætla þó að fá að stækka það í litla ferðatösku. Taka eins lítið af dóti með mér af því það er óþolandi leiðinlegt að ferðast með þunga tösku, plús það að maður kaupir sér alltaf sitthvað í svona ferðum, betra að vera með pláss fyrir það :)

Já svo skellti ég mér upp á Heimaklett í fyrsta skiptið á ævinni í dag, til hamingju ég, en við fórum nokkrir vel valdir í þessa ferð og tók ég að sjálfsögðu nokkrar myndir. Flestar voru þær ekkert sérstakar þar sem það var svona gráskýjað og leiðinlegt, en ég henti samt nokkrum myndum inn á flickR-ið.

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | 8 komment
færsla skrifuð kl. 03:10 - 18. August, 2006 | Höfundur:

Já nú er búið að vera mikið að gerast síðastliðna daga. Ég er fluttur til Eyja og hef ákveðið að klára það sem ég byrjaði á 16 ára gamall og þá af engum áhuga, já ég er að tala um stúdentinn. Ég skráði mig í FÍV í vikunni og sótti um vinnu í Féló með skólanum, vonandi að ég fái hana bara. Þetta er búið að ske allt saman mjög hratt en ég er bara sáttur við að vera kominn heim á eyjuna fögru. Hótel mamma klikkar náttúrulega aldrei og auðvitað allir vinirnir… þetta er bara geggjað.

Ég sé fram á skemmtilegan vetur í FÍV þar sem ég og Arndís munum verða mamman og pabbinn þarna, en þess má til gamans geta að Ingólfur bróðir verður einmitt vígður inn í FÍV á þessari önn með tilheyrandi busaveseni… Það verður gaman að sjá :) Annars hefur maður bara verið að taka því rólega í vikunni og var ég einmitt að klára að horfa á 2 spólur með Arndísi og Ólöfu. Eða reyndar horfðu þær með mér á fyrstu og ég horfði einn á hina þar sem þær steinsváfu… félagar… :D

Búinn að fara svolítið út í góða veðrinu sem er búið að vera hér og taka myndir. Fór upp á Há í dag og tók nokkrar myndir og ætla að deila hérna nokkrum með ykkur:

Maður á eftir að gera meira af þessu… það er alveg bókað, enda eru Vestmannaeyjar gullkista fyrir ljósmyndara. Og fyrst ég er nú að þessu á annað borð er kannski kominn tími til að henda inn link á myndasafnið sem ég er að koma mér upp á netinu sem áhugaljósmyndari. Hann verður hérna til hægri en síðuna er að finna hér. Endilega skoðið myndirnar og segið hvað ykkur finnst ;)

Jæja, ég er farinn að sofa í hausinn á mér!

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , , , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 01:49 - 17. July, 2006 | Höfundur:

Ég tók mig til og verslaði mér eitt stk. Canon EOS 350D myndavél í fríhöfninni þegar við Bergdís skelltum okkur í vikuferð til Köben í ásamt og í boði tengdó. Þetta hefur alltaf verið gamall draumur að kaupa mér svona alvöru myndavél og ég sé svo sannarlega ekki eftir því að hafa keypt hana. Ég er búinn að vera að taka myndir síðan ég fékk vélina í hendurnar, eða kannski síðan ég fékk linsuna í hendurnar… þar sem ég keypti ekki standard linsuna með vélinni af því Þórhallur bróðir ætlar að vera svo góður að senda mér sína, sem hann er hættur að nota ;) Tók einmitt myndavélina með mér í brúðkaupið hjá Tómasi Inga frænda til að prófa hvernig fílingurinn er og náði nokkrum góðum myndum þar. Svo er maður auðvitað búinn að vera að lesa sig til hér og þar um hinar og þessar stillingar sem svona myndavélar bjóða upp á til að bæta gæði myndanna og hvernig maður vinnur með lýsingu og fleira og fleira. Langar að láta fylgja nokkrar myndir sem ég hef tekið á vélina hér og þar… lítið búinn að vinna með þær nema þá helst til að skerpa þær í Photoshop og skella einhverju í svarthvítt. Endilega komið með komment á kvikindin svona bara til að koma smá lífi í þessa síðu :-D

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 18:26 - 09. July, 2002 | Höfundur:

Jææææja… 14 stiga hiti úti og smá gola. Ég fór í pottana áðan og þvílíka steikin! Mar er bara kominn í Costa del Sol stuð enda ekki nema 29 dagar í að mar fari út! =)) En já, lítið að frétta af manni núna… enda bara þriðjudagur. En það er allavega byrjað að henda mannvirkjunum inní dal þannig að mann er svona líka farið að hlakka soldið til Þjóðhátíðarinnar. Verð samt að segja að eftir að hafa heyrt þetta nýja þjóðhátíðarlag þá er ég ekkert rosalega spenntur… vona samt að þetta verði líkt og í fyrra… mar venjist þessu með tímanum :) (mér fannst þjóðhátíðarlagið í fyrra skelfing þegar ég heyrði það fyrst… en svo GEÐVEIKT þegar fór að líða að þjóðhátíð og á þjóðhátíðinni =) En já, ég er farinn aftur út í sólina!
Costa del sol baby!
bæjó :P

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 17:17 - 23. June, 2002 | Höfundur:

Jæja, soldið mikið langt síðan mar uppfærði þessa blessuðu síðu sína… Málið er bara það að mar fór norður á Djúpuvík á um miðja síðustu viku og kom ekki aftur heim fyrr en á miðvikudaginn síðasta. Þá hafði mar nú nóg annað að gera en að henda einhverju hér inn. En allavega, það er NÓÓÓG að frétta og ég ætla að byrja á að segja frá ferðinni á Djúpuvík sem var bara ágætis ferð eftir allt saman. Við fórum uppá land á fimmtudaginn í þarsíðustu viku, tókum bílaleigubíl og fórum í bláa lónið í geðveiku veðri, eitt af því þægilegasta sem ég hef gert leeeeeengi. Svo fórum við bara að slæpast í Reykjavíkinni og fórum svo bara að sofa. Næsta dag var haldið til Djúpuvíkur og vorum við samferða Ellisif (frænku Sæbjargar) og kærastanum hennar, Magga. Ferðin tók tæpa 7 klukkutíma þar sem bíllinn var gjörsamlega að hrynja á leiðinni. En við komumst nú á leiðarenda að lokum. Ég bjóst nú ekki við einhverju rosalegu þar sem þetta var sextugs afmæli hjá frænda Sæbjargar… en jú, þótt það hafi tekið 6 – 7 tíma að keyra þangað á ógeðslegustu vegum landsins og ekki sést til sólar ALLAN tímann þá var mjög mikil stemmning þarna, fínt fólk og FULLT af víni… HEHE :P Við gistum í tjaldi og og komst ég að því þarna að stelpur eru plássfrekar og ræna af manni sænginni í svefni… ég vaknaði eitt skiptið að FRJÓSA úr kulda og leit við og þar var lítil Sæbjörg undir hlýju sænginni minni og leið bara vel að mér sýndist… en nóg með það svo komum við aftur til Reykjavíkur á mánudeginum og meikuðum ekki að fara aftur til Eyja fyrr en á miðvikudeginum ;) S.s. þetta var hin fínasta ferð.
En já, á þessum tíma missti maður af MIKLU í HM :( öll stærstu liðin dottin út og nú erum við komin í 4 liða úrslit og liðin sem eru eftir eru Brasilía, Tyrkland, Þýskaland og Suður Kórea. Sárast finnst mér að Spánn sé dottið út þar sem ég horfði á þann leik og maður fékk sterklega á tilfinninguna að dómurunum hafi verið mútað þar sem þeir dæmdu 2 fullkomlega lögleg mörk af Spánverjum, og endaði þannig að Suður Kóreumenn unnu í vítaspyrnukeppni… frekar sorglegt.
Svo er það djaaaaaammið… mögnuð helgi er á enda og var föstudagurinn algjör snilld. Mér og Svenna var boðið í afmæli hjá Röggu frænku hans Svenna og mættum við þangað um átta hálfníu í mat og bollu. Mar þekkti eiginlega ekki neinn þarna en það lagaðist allt þegar líða tók á kvöldið og fólkið orðið hífað :D Mjög hresst lið en svo kom að því að halda á leið í skvísusundið þar sem Jónsmessugleðin var haldin og menn í svörtum fötum spiluðu fyrir dansi. Fínasta djamm sem endaði heima í stofu fyrir framan sjónvarpið að horfa á Spánn vs. Suður Kórea ;) Minni á punktinn þar sem fullt af myndum af þessu djammi eru.
En ég kveð í bili…
Bæjó :P

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , , ,  | ekkert komment