Eldri færslur fyrir stikkorð » tv «

færsla skrifuð kl. 21:13 - 04. September, 2007 | Höfundur:

…er greinilega ekki á háu plani. Nú er Síminn er farinn í enn eina auglýsingaherferJón Gnarrðina, þar sem kostir 3. kynslóðar farsíma eru kynntir. Í auglýsingunni, sem btw hinn mikli snillingur Jón Gnarr er höfundur af, situr Jesús við kvöldverðarborð þar sem síðasta kvöldmáltíðin fer fram og sér að Júdas er ekki mættur. Hann tekur því upp 3. kynslóðar farsímann sinn og hringir í kauða sem er víst eitthvað busy við að stinga Jesú í bakið…

Þessi auglýsing fór grenilega eitthvað fyrir brjóstið á kirkjunnar mönnum þar sem biskup Íslands, sjálfur Karl Sigurbjörnsson, hefur sent frá sér yfirlýsingu í fjölmiðla þess efnis að auglýsingin sé smekklaus og hann undrist það að jafn stórt fyrirtæki og Síminn þurfi að leggjast svona lágt.

Ég veit ekki með ykkur, en mér finnst þetta nú algjör óþarfi af hálfu biskupsins. Ég hef lesið nokkur blogg við fréttina á mbl.is og sá þar að einhver naskur bloggari mundi eftir því að biskupinn hafði nefnt það í jólaræðu sinni á síðasta ári að “Guð er alveg gríðarlegur húmoristi”. Hvar sér maður það í yfirlýsingu biskups? Mér persónulega finnst að kirkjan ætti að fagna svona auglýsingum þar sem hún er hægt og bítandi að glata gildi sínu fyrir yngri kynslóðinni og allar tengingar við hana (svo lengi sem þær fara ekki yfir strikið) séu af hinu góða. Hvaða máli skiptir það hvort Jesú hafi haft samband við Júdas með 3. kynslóðar farsíma eða sent einhvern á eftir honum?

Hafirðu ekki húmor fyrir sjálfum þér, þá hefurðu ekki húmor…

Ef þið hafið ekki séð auglýsinguna, getið þið séð hana hér.

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: ,  | 12 komment
færsla skrifuð kl. 20:50 - 17. January, 2007 | Höfundur:

Haldiði að maður hafi ekki bara skellt sér á líkamsræktarkort í Nautilus (þeir sem voru að taka við líkamsræktarsalnum í Íþróttamiðstöðinni) ásamt rúmlega 500 öðrum Eyjamönnum. Fór fyrst í fyrradag og ég verð bara að segja að þessi salur er ALLT ANNAÐ en crapið sem var þarna… guð minn góður. Komin alveg GLÆný tæki og miiiiklu meira af tækjum og lóðum. Svo eru sjónvörp þarna eins og í sölunum í Reykjavík. Þó ekki eins mikil geðveiki og er í Sporthúsinu, þar sem ég var að æfa þegar ég bjó í bænum, en þar eru sjónvörp á hverju tæki fyrir sig næstum því. Þakka einmitt guði fyrir það að HM í fótbolta var í gangi þegar ég var að byrja að æfa þar og þar sem ég var ekki með Sýn í Rvk neyddist ég til að fara í ræktina til að horfa á leikina :-D

En já, bara gott að vera farinn að hreyfa sig aftur! Finn alveg hvað mér líður miklu betur… og farin að koma aðeins meiri rútína á daginn hjá mér. Sef ekki orðið á daginn og farinn að sofa snemma, ekki seinna en 23-00. Bara þægilegt. Er reyndar núna vel marineraður í harðsperrum… en það fylgir þessu :-)

Annars er lítið að frétta. Skólinn bara eins og hann er, er reyndar að fara upp á land um helgina. Elena systir og Þórir eru að fara að skíra litla töffarann. Smáááá forvitni í gangi hvað hann eigi að heita, en það er náttlega ekki séns að reyna að draga það upp úr systur minni. En jæja, ég ætla að fara að horfa á Heroes eða Prison Break, erfitt val…
Bið að heilsa ykkur…

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 00:28 - 06. February, 2006 | Höfundur:

Ég held ég hafi verið að horfa upp á mestu mistök í íslenskri sjónvarpsþáttagerð núna rétt í þessu. Kallarnir. Hahahahahahahahahahahahahahahahahaha! Þvílíka endalausa hörmungin! “Við ætlum aðeins að hressa upp á tannið á þér..” Guð minn almáttugur. Að þetta skuli hafa komist í gegn hjá stjórnendum sjónvarpsstöðvarinnar…
En nóg um það. Helgin var svona líka helvíti fín. Var rólegur á föstudaginn þar sem ég var í vinnu í gær. Tók aðeins á því í gær í afmælisfögnuði hjá Gísla Stefáns heima hjá honum og Matta… piparsveinum Íslands :-D Enduðum svo í bænum að vana og vorum við komin heim um 4 leitið sökum óhóflegrar drykkju hjá sumum :-D
Svo tóku peyjarnir sig bara til og buðu okkur í mat til sín í kvöld. Elduðu þessa dýrindis steik og var boðið upp á rauðvín og læti… já, þeir eru flottir á því piparsveinarnir ;) Svo erum við búin að ákveða það að fresta Eyjaferðinni um 2 vikur í viðbót því miður. Ætluðum að koma næstu helgi en auðvitað verður árshátíð Byko þessa helgi og ég var búinn að steingleyma því. Þannig að þið verðið að bíða aðeins lengur eftir okkur krakkar mínir… :-. Ég veit það verður erfitt en þið verðið bara að þrauka… ;)
En já… ég ætla að koma mér í háttinn…

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 00:33 - 27. January, 2006 | Höfundur:

Það er nú ekki oft sem það skeður að ég sitji heima á föstudagskveldi uppi í rúmi og hafi það gott. Nei, yfirleitt er maður nú úti á lífinu í góðra vina hópi að skemmta sér og öðrum. En kvöldið í kvöld er ein af þessum fáu undantekningum. Við skötuhjúin ákváðum að taka því bara rólega í kvöld og vera heima, horfa á sjónvarpið og hanga aðeins í tölvunni… Og þar kem ég að kjarna málsins. Hvað er eiginlega málið með sjónvarpsdagskrá á Íslandi á föstudagskvöldi? Það er nákvæmlega ekkert í þessu blessaða sjónvarpi sem vert er að horfa á. Hvað varð um bíómyndirnar sem Stöð 2 var með á föstudagskvöldum? Núna er bara endursýningar á þáttum vikunna á skjá einum, einhver HÖRMUNGAR mynd á stöð 2, stöð 1 náttúrulega bara söm við sitt og sýnir beint frá Alþingi… þótt þingmenn sofi værum blundi og svo mætti lengi telja. Þetta er náttúrulega bara til háborinnar skammar og ekki mönnum bjóðandi. Þetta er kannski búið að vera svona lengi en ég allavega er fyrst að taka eftir þessu núna. Kannski vegna þess að ég horfi lítið sem ekkert á sjónvarp… og þá sérstaklega um helgar ;)
Ég varð því miður að hætta við Eyjaferðina þessa helgi og fresta henni um 2 vikur :-( Já frekar súrt þar sem ég heyrði í nokkrum í Eyjum og er víst alveg hellingur að gerast þessa helgi. Afmælispartý og ég veit ekki hvað og hvað. En það þarf svo sem enga svoleiðis afsökun til að skella sér á tjúttið í Vestmannaeyjum. Maður stígur upp úr Herjólfi á föstudegi og áður en maður veit af situr maður inná Johnsen bar með félögunum að teiga einn kaldan :-D En svoleiðis á það líka að vera ;)

Heyriði já! Siggi bróðir var að eignast sína fyrstu íbúð, en hann var að kaupa íbúðina af Einari Jóhanni og Erlu Ásmunds og vil ég bara óska kallinum til hamingju með hana. Lét mig einmitt vita að hann fengi hana jafnvel afhenta í næstu viku og að ég væri á leiðinni að hjálpa honum að flytja… hvernig svo sem ég fer að því :) En allavega hlakka ég mikið til að koma til Eyja og sjá hann Sigurð ‘litla’ bró með sína eigin íbúð til að hugsa um og enga mömmu til að þvo af sér og þrífa… en ég hugsa að hann tækli þetta alveg kallinn ;) Til hamingju brósi!

Ætla að kalla þetta bara helvíti gott í kvöld og kannski fara að koma mér í háttinn. Bið að heilsa.

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 01:21 - 03. November, 2005 | Höfundur:

Voðalega líður tíminn orðið hratt… ég sverða mér finnst ekki meira en svona 5 dagar síðan Manchester United tapaði 4 – 1 fyrir Boro í deildinni og þeir eru aftur búnir að tapa… 1 – 0 fyrir Lille í Meistaradeildinni… HEHEHE aðeins að skjóta á Rauðu Djöflana í vinahópnum ;) En annars er það alveg satt… tíminn flýgur. Ekki nema tæpar 4 vikur í það að ég og Bergdís verðum í London hjá Þórhalli og Hrund. Vá ég get ekki beðið… ætlum að gera öll okkar jólagjafainnkaup þar auk þess sem maður kaupir kannski ‘smá’ af fötum á sjálfan sig… ekki veitir af :-D Þannig að við eigum eftir að koma vel klifjuð til Íslands aftur… ;)
Horfði á Ástarfleyið áðan. Fínasti þáttur, loksins eitthvað að fara að ske í þessu. Halli kallinn á kantinum tekur sig bara vel út á skjánum, heillar stelpurnar greinilega uppúr skónum með gítarhæfileikum sínum… og djöfull fer þessi rauðhærða í mínar allra fínustu… athyglissýkin á hæsta stigi og lætur eins og hún eigi pleisið, minnir mig á ónefnda frænku mína. Ef henni verður ekki hent frá borði í næsta þætti skal ég hundur heita! En það á víst að vera þannig í næsta þætti að stelpurnar eiga að velja 2 stráka sem eiga að yfirgefa bátinn og strákarnir að velja 2 stelpur… Og þar sem maður horfir nú á þetta á annað borð verð ég að koma með mínar tilnefningar á þeim sem ég held að munu yfirgefa fleyið í næsta þætti:

Strákarnir:
Ég hugsa að ég verði að segja að þessi svarti (er ekki kynþáttahatari btw) muni fara. Maður hefur EKKERT séð af honum í þessum þáttum og ég hafði ekki einu sinni hugmynd að hann væri í þáttunum fyrr en eina setningin sem ég hef heyrt hann segja kom út úr honum í þessum þætti, og það meikaði akkúrat ekkert sense. Hinn sem ég held að muni ganga plankann er þessi ljóshærði (ekki Halli) skuggalegi, creepy gaurinn sem er eins og ljóshærður Stulli… Vestmannaeyingar vita hvað ég meina (allavega þeir sem hafa horft á Ástarfleyið:)

Stelpurnar:
Án efa mun þessi rauðhærða fara, hún mætti ganga plankann tvisvar fyrir mér! Held að hún heiti Hafdís og tókst henni mjög vel að fara í taugarnar á mér. Hin sem ég myndi giska á er mamman í hópnum. Þrítuga konan sem ég held að sé aldursforsetinn. Fannst hún ekki alveg passa þarna inn og það sást líka eiginlega á henni.

En hvað haldið þið hin? Hverjir haldið þið að verði sendir heim í næsta þætti? Endilega komiði með ykkar spá um hverjir verða látnir taka pokann sinn. Svo getur náttlega vel verið að þetta sé bara eitthvað áhorfstrikk hjá þáttarstjórnendum til að láta fólk verða spennt og horfa pottþétt á næsta þátt… hver veit? En allavega komiði með ykkar spá ;)

Jæja… ætla að fara að kalla þetta gott, kominn tími á svefn.
Góða nótt góðir hálsar.

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 19:28 - 20. October, 2005 | Höfundur:

Þá er það bara jólfurinn á morgun. Tek seinni ferðina og missi því kannski af tónleikunum hjá strákunum, en það eru víst einhver bönd að fara að halda tónleika í Vélasalnum annað kvöld. Vonandi að ég nái Memphis því mig langar svolítið að heyra nýja efnið hjá þeim. Heyrði í Hlynsanum í dag og held að hann sé bara á leiðinni til Eyja as I blog. Veit ekki alveg hvað maður gerir annað kvöld en mig grunar allavega að það innihaldi smá mjöður ;)

Svo verður laugardagurinn tekinn með trompi þar sem lítill Hlynsalingur mun halda upp á 22 vetra áfangann. Ég efast ekki um að þetta verði magnað teiti sem mun svo enda á Sálarballi í Höllinni. Skothelt plan myndi ég segja. Ég held bara að það séu ófáir einstaklingar á leiðinni til Eyja um helgina þannig að ekki ætti að vanta fólk í Höllina, og reyndar líka af því Höllin missir bráðabirgðaleyfið sitt 1. nóvember þannig að ég býst við að sem flestir nýti sér böllin (ekki böllinn samt HEHE) sem eftir eru, en það er Sálarballið núna um helgina og svo Verslunarmannaball helgina eftir. Við Bergdís komum einmitt aftur til Eyja þá helgi en ekki til að skemmta okkur, heldur vinna fyrir minn elskulega faðir og móður þar sem þau munu halda árshátíð Ísjakans… ;)

Annars er það bara sjónvarp í kvöld. ÁSTARFLEYIÐ fer í loftið í kvöld og verður gaman að sjá Halla skransa í nokkur fjós á kjéééntinum. HAHAHAHA :-D Þetta verður snilld… ég iða alveg mig hlakkar svo til að sjá þetta. En jæja, kominn tími á kvöldmat.

Bið að heilsa ykkur heima í Eyjum og sjáumst á morgun… bið reyndar alveg líka að heilsa ykkur hinum

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 21:24 - 09. October, 2005 | Höfundur:

Tíminn flýgur… það er eitt sem víst er. Enn einn sunnudagurinn runninn upp sem er kannski bara fínt því það er farið að styttast svolítið í London ferðina okkar Bergdísar ;) En já, Aron skellti sér í borgina um helgina og fór ég með honum, Gulla og Bjarna í pool á föstudaginn og aftur í gær. Skemmst frá því að segja að ég og Bjarni rúlluðum Aroni og Gulla upp í öllum leikjunum og fórum létt með það… meira að segja þegar Aron kom með sínar leikreglur um að það mætti ekki vanda sig þar sem hann var nú búinn að fá sér vel neðan í því :-D Ég veit að Aron á eftir að neita fyrir þetta, en þar sem Bjarni var svo sniðugur að taka síðasta leikinn upp á vídjókameru eigum við sönnun fyrir þessu rústi… hahaha ;)

En já, fórum svo í bæinn og þar sem ég var svo sniðugur að týna veskinu mínu fyrir nokkru var ég ekki með skilríki og var bara happa glappa hvort maður komst inn eða ekki. Rættist ágætlega úr kvöldinu og var maður kominn heim um 4 – 5 leitið. Heilsan í dag ekki alveg búin að vera að gera sig en hún elsku Bergdís mín var svo góð að fara út í sjoppu í dag og kaupa nammi og taka spólur… l-) þannig að það verður bara legið yfir sjónvarpinu í kvöld. Hún tók Guess Who með Bernie Mac og Ashton Kutcher og Sin City, mynd sem mig hefur endalaust langað til að sjá og hef bara heyrt góða dóma um.

Jæja, þá er það bara TV, kúr & nammiát here I come ;)

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 23:57 - 30. September, 2005 | Höfundur:

Já, það er sko rólegur föstudagur… langt síðan það hefur skeð. Sit hérna í tölvunni á meðan Bergdís liggur uppi í rúmi með einhverja skíta ælupest :-( Ekki alveg nógu gott. Ég er að fara í bústað með vinnunni á morgun svo ég ætla bara að vona að hún smiti mig ekki af þessum viðbjóði… 7-9-13. Ætlaði að hitta strákana í kvöld en þar sem Bergdís veiktist var ég ekkert að fara út. Svo er líka bara um að gera að spara sig fyrir bústaðinn :-D Förum eftir hádegi á morgun og verðum eina nótt… mar tekur gítarinn með og það verður örugglega fínasta stuð.

Svo var fyrsti Idol þátturinn sýndur í kvöld og guð minn góður, er endalaust af hálfvitum á Íslandi? Þetta er 3. sería og það er ennþá að streyma inn hálfvitar sem halda virkilega að þeir geti sungið. Ok sumir eru að djóka, en aðrir eru alveg grafalvarlegir… koma þarna inn með þvílíku væntingarnar og ætla sko að vinna þetta allt saman bara í prufunum… hahaha. Meira að segja ein frá Eyjum… :-.

Og enn einn sjónvarpsþátturinn… djöfull fer Hells Kitchen í mínar allra fínustu taugar. Þessi ógeðismaður sem er yfir þarna er viðbjóðslega leiðinlegur og rakkar fólkið svo mikið niður að það mætti halda að hann væri djöfullinn sjálfur… Fer hrikalega í mig þegar menn láta svona, eins og þeir séu yfir allt og alla hafnir og bera eeeeeenga virðingu fyrir einu né neinu.

Jæja, ætla að kalla þetta gott og fara að koma mér í háttinn.
Big day ahead ;)

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 00:53 - 14. March, 2005 | Höfundur:

Mikið roooosalega var gaman um helgina… horfði á Idolið á föstudaginn hérna heima og mikið var það nú langdreginn þáttur. Hildur Vala átti án efa skilið að vinna og allt í góðu með það. Ég, Bergdís, Guðjón og Steinunn horfðum á það hérna heima ásamt Þóri og vinum hans. Svo fórum við í pool þar sem spilaðir voru nokkrir leikir ásamt því sem sötraðir voru nokkrir bjórar og spjallað. Árni Óli gerðist svo frægur að láta sjá sig í borg óttans og hélt hann uppi heiðri Vestmannaeyinga og skellti sér á Glaumbar þar sem ég hitti hann seinna um kvöldið. Snilldar kvöld sem endaði með því að ég og Árni fórum saman heim (grrrrrrr)

Svo á laugardeginum skelltum við okkur á snjóbretti… djöööööfulsins snilld ;) Ég, Árni, Grjóni & Bjöggi fórum í bláfjöll um 3 leitið og vorum til 6. Ég hef aldrei farið á bretti áður og ég verð bara að segja að þetta er eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert :D Án efa eitthvað sem ég mun gera aftur… og aftur :P Ég hef enga reynslu af svona snjóbrettum en það stoppaði Grjóna og Árna ekki í að draga mig og Bjögga nánast strax í stærstu brekkurnar… hahaha… þetta var ekkert smá gaman og gaman að segja frá því að ég vaknaði í morgun með vænan skammt af harðsperrum eftir þetta… :o Svo fórum ég og Árni heim til Bigga og Gísla Böðvars þar sem við byrjuðum að sötra bjór og spjalla við liðið… þeir voru búnir að vera fullir síðan 9 um morguninn, enda flestir frekar þreytulegir eða sofandi :D Svo skelltum ég og Árni okkur á Gaukinn ásamt Bjögga og Steingrími þar sem Mínus og Branpolice voru að spila og voru það helvíti góðir tónleikar. Djammið hélt svo áfram og hittum við Bigga og félaga á Glaumbar og var djammað langt fram á rauuuuuuuuða… ;)
Svo rakst ég á Hlynsa kaggl á emæhottornottpúnkturkomm og er kallinn bara kominn með ágætis einkunn þar. Það sést sko hverjir drekka Egils Kristal ;) Þið getið gefið honum einkunn hér

En ætla ekki að hafa þetta mikið lengra… Farinn að specca That 70′s Show ;)

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 15:04 - 21. February, 2005 | Höfundur:

Búhú… náði ekki í sofa út hópinn… ;´( Hehe… nei ég segi svona. Skráði mig í Golfherminn (með þeim félögum Stymma og Gylfa) og svo tek ég miðvikudaginn undir LAN… hugsa samt að flestir þar verði nú í að spila CS þannig að ég skelli mér bara í heimanámið eða vona að það verði einhverji sem spila heilbrigðari leiki þarna… það er vonandi ;)

Annars er Elena systir komin með bloggsíðu eins og hún hefur ætlað sér að gera síðan ég flutti hingað til Reykjavíkur… það hafðist allt saman í gær og er hún komin á fullt. Endilega kíkið á hana ;)
En ætla ekki að hafa þetta lengra í dag… spurning að henda þætti 2 af The 4400 í gang…
Hmmmm…

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: ,  | ekkert komment