Eldri færslur fyrir stikkorð » tónlist «
Já ég er ástfanginn… hún er æðisleg, frábær, yndisleg…. bara allt. Ég kem ekki orðum að því hvað ég elska hana mikið. Hún kom inn í líf mitt eins og þruma úr heiðkskýru lofti! Eins corny og þetta hljómar þá er þetta satt. Ég er gjörsamlega dolfallinn. Á bara ekki til orð til að lýsa aðdáun minni á henni! Ég hélt að þetta myndi aldrei gerast.. en jú, nýja platan frá MUSE hefur snert taugar hjá mér sem ég vissi ekki að væru til… ég fæ gææææææææææsahúð þegar ég hlusta á þessa plötu…. í hvert einasta sinn! Ég hvet ALLA sem ekki hafa hlustað á þessa snilld til að gera það nú þegar og bókstaflega FRELSAST! Ég hef alltaf fílað MUSE en þessi plata kom mér á nýtt plan. Ég er eiginlega orðinn sjúkur. En já, ætla ekki að röfla meira um þetta… klukkan að ganga 7… ég greinilega ELSKA þessa plötu =)
Næstum því jafn mikið og ég elska Gvuní og Olgu…
) <3
Þá er maður staddur á Magnavöku hérna í skólanum og ég verð að segja eins og er að ég bjóst ekki við að sjá svona marga hérna. Ég og Arndís ákváðum að skella okkur og það er talað um að það séu yfir 100 manns hérna
og þegar þau nefndu það í sjónvarpinu að það væri Magnavaka í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum hélt ég að þakið ætlaði af skólanum, þvílík og önnur eins stemmning. Fengum líka að heyra svolítið skemmtilegt þar sem Guðrún eða hvað sem hún heitir sem stjórnar Magnavökunni á Skjá Einum sagði að krakkarnir í FÍV (við) fengjum frí í fyrstu tveimur tímunum í fyrramálið. Okkur var nefninlega bara sagt að það yrði frí í fyrsta tímanum, svo auðvitað sofum við öll á okkar græna til 10 í fyrramálið vitandi það að við fáum ekki skróp.
En jæja, ætla ekki að hafa þetta lengra, MUNA AÐ KJÓSA KVIKINDIÐ!

Nú er farið að styttast allsvaðalega í stærstu skemmtun ársins, það er að segja Þjóðhátíð Vestmannaeyja og ef ég á að segja alveg eins og er þá get ég bókstaflega ekki beðið. Heimþráin er orðin það sterk að ég er búinn að biðja um að fá frí fyrr í vinnunni til að komast sem fyrst til Eyja! Enda er maður nú ekki beint mjög sjóaður í þessu, að vera burtu frá heimkynnunum og vinunum yfir sumartímann… þetta er fyrsta og vonandi síðasta skiptið…
En að þessu margumtalaða þjóðhátíðarlagi. Eftir að hafa bæði hlustað á kvikindið oft og mörgum sinnum og svo reynt það á gítarinn góða verð ég að segja að þetta lag er ekki eins slæmt og allir vilja meina. Bíðiði nú alveg með að fleima mig, ég ætla að útskýra. Lagið sjálft finnst mér vera vel samið og fínn texti (þótt ekkert sé minnst á Vestmannaeyjar, lundann, dalinn, brennuna eða peyja) og gæti alveg virkað í dalnum í annarri útgáfu en sú sem er á dalurinn.is – Það er bara í höndum gítarleikara dalsins að útfæra þetta í aðeins skemmtilegri og umfram allt lægri tóntegund en nú er í gangi, því það heyra það allir sem hafa hlustað á þetta lag að brekkan á eftir að hljóma eins og kattaslátrun ef við förum að reyna að hætta okkur í sömu hæð og þessi blessaða Hrund Ósk (heitir hún það ekki).
Og fyrst það er nú svona stutt í þjóðhátíð hefur maður verið að skoða gamlar þjóðara myndir og ég verð nú bara að skella einni eða tveimur hérna til að minna fólk á af hverju maður er að þessari vitleysu.. heehehe. Þessar myndir eru frá Þjóðhátíð 2003:







Ég veit ekki hvort maður eigi eftir að pósta einhverju hér fyrir Þjóðhátíð en ef svo verður ekki, þá vil ég bara óska öllum Gleðilegrar Þjóðhátíðar… Sjáumst í DALNUM!
Eruði að grínast með þessa hörmung? Ég var bara frekar sáttur þegar ég heyrði að Maggi Eiríks myndi sjá um lagið í ár og beið með eftirvæntingu þar sem það átti að frumflytja lagið í dag. En guð minn góður… við skulum byrja á því að lagið byrjar eins og einhver ‘slagarinn’ með Ace of Base með tilheyrandi ‘skemmtara undirspili’. Svo kem ég ekki alveg fyrir mig hver þetta er sem er að syngja, einhver stelpa allavega. Það vantar alveg þessa Þjóðhátíðarstemmningu í lagið sem ég verð að viðurkenna að Hreimur á ekki í neinum vandræðum með að ná í sínum lögum. Mér finnst þetta lag allavega vera bara eitthvað miðlungs sumarpopp með þjóðhátíðartexta. Hvað finnst ykkur? Ef þið eruð ekki búin að heyra lagið, er það að finna hér.
En auðvitað lætur maður svona lagað ekki draga sig eitthvað niður, heldur skellir bara Í dalnum disknum í tækið og á rípít þangað til maður skellir sér til Eyja, miðvikudaginn fyrir Þjóðhátíð… Yeah!
Update: Var að fá fregnir af því að þetta sé EKKI hið rétta Þjóðhátíðarlag, enda er ekki mikill Magga Eiríks bragur yfir þessu. Mikið ætla ég að vona að þetta sé rétt!

…að kjósa Magna í Rockstar Supernova!? Þetta var alveg hreint magnað hjá kappanum og bara hans besta frammistaða að mínu mati! Ég skal sko hundur heita ef hann fer ekki áfram í næstu umferð… þótt það væri nú gaman að fá hann á Þjóðhátíð. En allavega… áfram Magni!

Er það ekki orðið eitthvað skrítið þegar maður er með lag á heilanum í 3 daga? Og hvað þá Nylon lag!? Já góðir hálsar, ég er búinn að vera með Nylon lag á heilanum síðastliðna 3 daga og þakka ég henni Bergdísi minni kærlega fyrir það. Þetta lag kom í útvarpinu þegar við vorum að keyra eitthvað og það var bara ekki séns að fá að skipta, svo við hlustuðum á þetta helvítis lag og það var bara ekki aftur snúið… LOSING A FRIEND?! Ég á eftir að handrota þessar stelpur eina af annarri þegar ég hef upp á þeim…
Og já, fyrst maður er nú í þessum gírnum þá er bara best að halda áfram á þessari braut og ausa úr skálum reiði sinnar… Nei ég segi svona, en það er ýmislegt sem fer í taugarnar á manni hér og þar í hversdagsleikanum. Sumt er eitthvað sem er tengt vinnunni og þið kannski fattið ekki, það verður bara að hafa það – Here goes… það sem fer í taugarnar á mér:
- Strætógerpin í umferðinni
- Að eiga ekki fyrir íbúð
- Að vinna inni á sumrin
- Mustang flísar
- Duratex parketundirlag
- Kúnnar sem hella sér yfir mann!
- Hverfis
- Kringlan
- Smáralindin
- Súrar gúrkur
- Rasp
- Finna ekki bílastæði
- “Gaukur á stöööngin inn!” auglýsingin
- Búa ekki í Eyjum
- Vera ekki nær fjölskyldunni
- Geta ekki ferðast meira
- Vera orðinn fullorðinn
- Þurfa að taka stórar ákvarðanir
- Vita ekki hvað mig langar að verða
- Reyna að finna út hvað mig langar að verða
- Bensínverð
- Íbúðarverð á höfuðborgarsvæðinu
- Hvað ég er þrjóskur
- Að ég drattist ekki í ræktina aftur
- McDonalds & Burger King
- Hvað ég er feiminn & óákveðinn
- Hvað flugnám er dýrt
- Hvað flest nám er dýrt…
Já… þannig var nú það
Ahhhh… nú líður mér betur. Ætla ekki að hafa þetta mikið lengra… kominn tími á Jay Leno og svo svefninn. Ekki verið að sofa vel undanfarið. Maður er mikið hugsi þessa dagana og er það örugglega bara málið. Þetta fylgir því örugglega að vera að eldast… maður er jú að verða 23 ára á laugardaginn…
Já það er komið sumar, allavega samkvæmt dagatalinu. Það hefur þónokkuð á daga mína drifið síðan síðast, enda töluverður tími síðan ég bloggaði og tel ég það nú orðið svart þegar fólk eins og Gulla og Andri tvíburi eru farin að reka á eftir manni í blogginu ![]()
En já, ég skellti mér á dEUS tónleika uuuu… já einhverntíman í byrjun apríl. Þeir voru á Nasa en það var alveg hrúga af liði sem kom á þessa tónleika frá Eyjum. Hitti þarna Árna Óla & Arndísi ásamt fleiru fríðu fólki. Ég verð að játa að ég hef ekki farið á tónleika með bandi sem ég veit jafn lítið um og dEUS, enda hlustaði ég bara á gömlu vinsælustu lögin með þeim ‘in the old days’. Hins vegar var hún Olga svo elskuleg að senda mér nokkur lög af nýja disknum þeirra sem voru líka bara svona þrusugóð að ég ákvað að skella mér á tónleikana og sé akkúrat ekki rass eftir því. Þvílíkt þéttir og bara snilldar band á tónleikum! Vissi ekki hvert þakið á húsinu ætlaði þegar þeir tóku Suds&Soda.
Nóg um það… Ég og Bergdís skelltum okkur til Eyja í Páskafríinu og höfðum það bara gott. Alltaf gaman að kíkja við á hótel mömmu við og við
Fór á tónleika á Prófastinum þar sem strákarnir í Memphis komu fram ásamt The Foreign Monkeys, Andrúm & einhverju bandi sem ég man ekki hvað heitir… og auðvitað hún Arndís sæta
Þrusuflottir tónleikar sem Árni og félagar í Span sáu um. Svo eftir tónleikana tókum ég og Siggi bróðir ‘smá tjútt’ sem endaði með því að við ætluðum sko í heitan pott… sama hvað það kostaði
Og nú er bara komin enn ein helgin og kannski kominn tími á róóóólega helgi… ég held það bara svei mér þá. Pabbi er í bænum og fórum við Bergdís með honum í bíó áðan á myndina V for Vendetta. Svona öðruvísi mynd en mér fannst hún alveg mögnuð, enda alltaf þótt mikið varið í Natalie Portman…
Svo er það bara vinna kl 10 í fyrramálið, eða á eftir réttara sagt, svo það er kannski kominn tími til að koma sér í háttinn. Bið að heilsa ykkur fallega fólkinu sem nennir að lesa þetta raus í mér…
Þangað til næst…

Vá… ég ætlaði að vera geðveikt fyndinn og koma með eitthvað magnað 1. apríl gabb hérna í gær, en endaði með að hugsa svo lengi um hvað það ætti að vera að ég steinsofnaði… Ekki alveg nógu gott. En já ég er búinn að fá slæma útreið í ógeðisveikindum núna í vikunni og lá hér með hita og ælupest ásamt einhverjum öðrum viðbjóði. Tók ég þess vegna helgina bara rólega, en ég hef lúmskan grun um að þetta hafi verið kjúklingurinn sem við borðuðum þegar við unnum frameftir á fimmtudaginn í Byko. Fengum okkur KFC til tilbreytingar og til að gera langa sögu stutta eyddi ég næstu 2 dögum í nánu sambandi við klósettið… :-S
Svo er það Vestmannaeyjar næstu helgi, þótt það séu víst allir á leiðinni í borgina þá helgi þar sem Arndís Ósk mun keppa í Söngvakeppni Framhaldsskólanna fyrir hönd FÍV. En það er víst bara svona, maður getur ekki verið allsstaðar. Innflutningspartýið hans Sigga bró, sem er búið að frestast endalaust lengi verður haldið með pompi og pragt næstu helgi og ekki ætla ég sko að missa af því
Annars ætla ég bara að hafa þetta stutt og fara að koma mér í háttinn.
Góða nótt gott fólk
Djöfull var gaman að sjá video-ið við Eurovision lagið hennar Silvíu í Kastljósinu í kvöld. Aaaaaalgjör snilld verð ég að segja og djöfull tókst þeim vel til við að enska textann verð ég bara að segja. “If you mess with me, you’ll be D – E – A – D”… hahaaha
Ég er svona eiginlega farinn að halda að við komumst bara upp úr þessari undankeppni þetta árið. En þetta er það sem maður segir á hverju ári, er það ekki?
Annars ligg ég bara hérna uppí rúmi hálfslappur eitthvað, spilandi World of Warcraft á meðan Bergdís horfir á Dirty Dancing… er það nú föstudagskvöld… Annars er held ég bara allt að ske á morgun. Ég fer í vinnu í fyrramálið og svo er árshátíð hjá vinnunni hennar Bergdísar (Kópavogsbæ) annað kvöld sem fram fer í Fífunni. Reyndar verður líka karlakvöld hjá Byko sem verður víst á Oliver en ég verð að beila á því… kannski maður hitti á þá seinna um kvöldið
En já, ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra… nóg að ske í World of Warcraft ![]()
Einir out…










Síðustu komment