einir punktur komm » tónleikar

kominn heim, og það fyrir löngu…
Já við komum heim frá útlöndunum á fimmtudaginn í síðustu viku. Það hefur verið nóg að gera hjá manni eftir það að heilsa upp á fólkið, taka upp úr töskum, taka til eftir það og vinna. Svo var auðvitað Eyjafest hérna um helgina, en Árni Óli & Hjörtur tóku sig til og skipulögðu heila helgarskemmtun hérna í Eyjum þar sem þeir fengu til liðs við sig nokkrar af efnilegustu rokkhljómsveitum landsins og var þessu öllu saman troðið saman í dagskrá sem teygði sig frá föstudegi til aðfaranótt sunnudags. Þar sem ég var að vinna á föstudaginn komst ég ekki fyrr en á laugardaeginum og ekki varð maður fyrir vonbrigðum. Ég fór með Þóri (kærastanum hennar Elenu systur) og sá maður hljómsveitir á borð við Leaves, Hoffman, Brain Police og Wulfgang. Ég ætla bara að vona að hátíðin hafi gengið vel og að þetta verði gert að árlegum viðburði!

Annars er maður nú bara búinn að vera að vinna, lítið að gera reyndar í Féló þar sem krakkarnir eru nú frestir í prófum. Styttist svo í að vinnuskólinn byrji og get ég ekki beðið eftir að vera að vinna úti í sumar   Einu sinni áður verið flokkstjóri í vinnuskólanum en það var árið 2003, orðið svolítið langt síðan.

Svo er ég að fara að ræða við Helenu og Stefán á Café, þau vantar víst kokk í sumar og gæti vel verið að maður myndi næla sér í einhverja aukavinnu hjá þeim svona þegar vantar. En það kemur betur í ljós í kvöld þegar ég fer og spjalla við þau.

Já það er allt að ske hjá manni hérna í Vestmannaeyjum. Ætla samt að fara að kalla þetta gott en ætla nú ekki að gleyma að láta ykkur vita af myndunum úr ferðalaginu, þær eru komnar inn í myndaalbúmið mitt, sem eins og allir vita, ég er mjög svo duglegur að uppfæra

Myndir úr minni vél

Myndir úr Bjarna Þórs vél

gleðilegt sumar – eða eitthvað…
Já það er komið sumar, allavega samkvæmt dagatalinu. Það hefur þónokkuð á daga mína drifið síðan síðast, enda töluverður tími síðan ég bloggaði og tel ég það nú orðið svart þegar fólk eins og Gulla og Andri tvíburi eru farin að reka á eftir manni í blogginu

En já, ég skellti mér á dEUS tónleika uuuu… já einhverntíman í byrjun apríl. Þeir voru á Nasa en það var alveg hrúga af liði sem kom á þessa tónleika frá Eyjum. Hitti þarna Árna Óla & Arndísi ásamt fleiru fríðu fólki. Ég verð að játa að ég hef ekki farið á tónleika með bandi sem ég veit jafn lítið um og dEUS, enda hlustaði ég bara á gömlu vinsælustu lögin með þeim ‘in the old days’. Hins vegar var hún Olga svo elskuleg að senda mér nokkur lög af nýja disknum þeirra sem voru líka bara svona þrusugóð að ég ákvað að skella mér á tónleikana og sé akkúrat ekki rass eftir því. Þvílíkt þéttir og bara snilldar band á tónleikum! Vissi ekki hvert þakið á húsinu ætlaði þegar þeir tóku Suds&Soda.

Nóg um það… Ég og Bergdís skelltum okkur til Eyja í Páskafríinu og höfðum það bara gott. Alltaf gaman að kíkja við á hótel mömmu við og við   Fór á tónleika á Prófastinum þar sem strákarnir í Memphis komu fram ásamt The Foreign Monkeys, Andrúm & einhverju bandi sem ég man ekki hvað heitir… og auðvitað hún Arndís sæta   Þrusuflottir tónleikar sem Árni og félagar í Span sáu um. Svo eftir tónleikana tókum ég og Siggi bróðir ‘smá tjútt’ sem endaði með því að við ætluðum sko í heitan pott… sama hvað það kostaði

Og nú er bara komin enn ein helgin og kannski kominn tími á róóóólega helgi… ég held það bara svei mér þá. Pabbi er í bænum og fórum við Bergdís með honum í bíó áðan á myndina V for Vendetta. Svona öðruvísi mynd en mér fannst hún alveg mögnuð, enda alltaf þótt mikið varið í Natalie Portman…   Svo er það bara vinna kl 10 í fyrramálið, eða á eftir réttara sagt, svo það er kannski kominn tími til að koma sér í háttinn. Bið að heilsa ykkur fallega fólkinu sem nennir að lesa þetta raus í mér…

Þangað til næst…

eyjarnar handan við hornið…
Þá er það bara jólfurinn á morgun. Tek seinni ferðina og missi því kannski af tónleikunum hjá strákunum, en það eru víst einhver bönd að fara að halda tónleika í Vélasalnum annað kvöld. Vonandi að ég nái Memphis því mig langar svolítið að heyra nýja efnið hjá þeim. Heyrði í Hlynsanum í dag og held að hann sé bara á leiðinni til Eyja as I blog. Veit ekki alveg hvað maður gerir annað kvöld en mig grunar allavega að það innihaldi smá mjöður

Svo verður laugardagurinn tekinn með trompi þar sem lítill Hlynsalingur mun halda upp á 22 vetra áfangann. Ég efast ekki um að þetta verði magnað teiti sem mun svo enda á Sálarballi í Höllinni. Skothelt plan myndi ég segja. Ég held bara að það séu ófáir einstaklingar á leiðinni til Eyja um helgina þannig að ekki ætti að vanta fólk í Höllina, og reyndar líka af því Höllin missir bráðabirgðaleyfið sitt 1. nóvember þannig að ég býst við að sem flestir nýti sér böllin (ekki böllinn samt HEHE) sem eftir eru, en það er Sálarballið núna um helgina og svo Verslunarmannaball helgina eftir. Við Bergdís komum einmitt aftur til Eyja þá helgi en ekki til að skemmta okkur, heldur vinna fyrir minn elskulega faðir og móður þar sem þau munu halda árshátíð Ísjakans…

Annars er það bara sjónvarp í kvöld. ÁSTARFLEYIÐ fer í loftið í kvöld og verður gaman að sjá Halla skransa í nokkur fjós á kjéééntinum. HAHAHAHA   Þetta verður snilld… ég iða alveg mig hlakkar svo til að sjá þetta. En jæja, kominn tími á kvöldmat.

Bið að heilsa ykkur heima í Eyjum og sjáumst á morgun… bið reyndar alveg líka að heilsa ykkur hinum

vinna & lærdómur…
Já mar gerir ekki mikið annað en að vinna og læra nú þegar mar loksins fékk vinnu með skóla… sem er bara ágætt á meðan maður hefur tíma fyrir lærdóminn allavega. Var að byrja í Bónusvideo í Eddufelli hérna rétt fyrir ofan í dag og kláraði núna um 12 leitið. Fínasta vinna og frekar líkt Bónusvídeó í Eyjum sem pabbi er með nema aðeins stærri leika kannski   Auk þess sem vídjóleigur hérna í Reykjavík eru frekar strangar hvað varðar að það þarf að kvitta fyrir hverri spólu og koma með skilríki ef maður hefur ekki tekið spólu áður… ja kannski skiljanlegt miðað við fólkið sem kom þarna í þessa blessuðu sjoppu    Við erum að tala um Breiðholtið í sínu ‘fínasta’ pússi…

Svo er það sæluvika þarnæstu viku í skólanum og er það einhver voða dagskrá og þarf maður að skrá sig í 3 hópa. Mér sýnist þetta bara verða hin fínasta skemmtun því meðal þess sem boðið er upp á á þessum sæludögum er pool hópur, LAN hópur, sofa út hópur (sem btw komast bara 5 í svo mar verður að vera fljótur að skrá sig  ) og margt margt fleira skemmtilegt   svo tekur vetrarfríið við fimmtudag og föstudag… fínasta vika þar á ferð.

Annars er ég að spá í að skella mér í Fifa 2005 þar sem ég nenni hreinlega (og hef ekki efni á) að fara í bæinn… Jet Black Joe að spila á Gauknum og ekki laust við að mann langi svolítið að sjá gömlu brýnin spila þar :S en það verður að bíða betri tíma. Ég er þreyttur og langar að hanga heima í tölvunni   Eins og ég geri ekki nóg af því…   En allavega…

Bið að heilsa…

Heyrðu já… bætti líka Maríu Guðjóns á listann, hún er byrjuð að blogga aftur stelpan

helgin lent…
Helgin gengin í garð og ekkert nema gott um það að segja. Stuttur skóli hjá mér á föstudögum, búinn korter í 1… var reyndar búinn korter yfir 11 af því síðasta kennslustundin féll niður.  Annars er bara fínt að vera í þessum skóla. Og náttlega bara snilld að vera kominn með áhuga fyrir þessu aftur… maður getur ekki leikið sér endalaust   Talandi um það… þá er árshátíð Nordica Hotel  á morgun og ætlar hún Bergdís að vera svo góð að bjóða mér með sér    Ég hugsa að ég verði nú örugglega bara rólegur, því ég var eiginlega búinn að lofa sjálfum mér því og peningalega séð VERÐ ég eiginlega að gera það… en maður sér til… Heyrði í Magna áðan og var hann að spá í að kíkja í bæinn um helgina og þá verður mar nú að hitta kallinn… langt síðan við settumst niður yfir einum köldum.

Svo er náttlega leikurinn á morgun (Liverpool vs. Man Utd) og mun Morientes þá spila sinn fyrsta leik fyrir Liverpool, en hann var keyptur í fyrradag frá Real Madrid fyrir 6.3 milljónir punda. Ég bind miklar vonir við kauða og efast ekki um að hann eigi eftir að leika stórt hlutverk í þessum leik   Ég tippaði nú á jafntefli á Haltu kjafti tippinu en gæti alveg trúað að hann myndi klára þetta bara fyrir okkur

En já, nóg að gera um helgina og bara gaman að því. Svo var Sveinbjörninn minn að tala við mig áðan og segja mér frá því að þeir í hljómsveitinni More munu spila á Conero föstudaginn 28. jan næstkomandi og aldrei að vita nema maður skelli sér bara til Eyja þá helgi og hlusti á þá félaga… hver veit

Annars hugsa ég að þetta sé komið gott… bið að heilsa og hafiði það gott um helgina

Einir Jr.

airwaves & innflutningspartý…
Já nú er sko búið að vera gaman…  Airwaves í fullum gangi og fullt af liði úr Eyjum í bænum. Skellti mér eftir vinnu á fimmtudaginn með Árna Óla og Bixie á Nasa þar sem var hörkudagskrá. Þar spiluðu Botnleðja, Úlpa, Ensími og Sahara Hotnights fyrir troðfullu húsi og munaði minnstu að maður hefði ekki komist inn. Sú varð raunin með Bigga Magg þar sem hann kom of seint og fékk ekki að fara inn.. Helvíti óheppinn  því þetta voru alveg hreint rooooosalegir tónleikar. Missti reyndar af Botnleðju en strákarnir sögðu að þeir hefðu verið helvíti þéttir. Sá Úlpu sem voru nokkuð góðir og svo steig Ensími á svið og spiluðu fullt af nýju efni með gömlum slögurum á borð við Arpeggiator og Brighter inn á milli… geðveikir. Svo var komið að því sem ég held að flestir hafi verið að bíða eftir þarna… RokkGELLUNUM í Sahara Hotnights…

Ég hef verið að fylgjast með þessari grúbbu síðan snemma á þessu ári, eða þegar ég og Árni ákváðum að skella okkur á Hróarskeldu í sumar. Þær voru einmitt að spila þar og ég ákvað að ná í nokkur lög með þeim og varð strax mjög hrifinn af því sem þær eru að gera og þær voru ekkert að valda mér vonbrigðum þarna á Nasa. Svo svalar og geggjaðar á sviði að það er ekki fyndið. Við vorum alveg að missa okkur… ásamt öllum sem voru þarna. Komu mér virkilega á óvart með sviðsframkomu og trommarinn var svo svalur að við vorum bara eins og smástelpur þarna… grúppíur dauðans

En svo var voðalega lítið í gær sem freistaði manns að sjá á airwaves og plús það voru Elena og Þórir að halda innflutningspartý hér svo mar var bara heima að sötra bjór yfir idolinu og kannski eitthvað fram yfir það   Gítarinn var tekinn upp og var stöðug traffík inní herbergið mitt þar sem ég og Árni héldum uppi stuðinu… ekki það að það hafi margir komist fyrir hér í einu en þetta bjargaðist alveg. Svo eftir að nokkrir kaldir höfðu runnið mjúklega niður inní herbergi var kominn tími til að færa stemmninguna inn í stofu þar sem djammþyrstir vinir og kunningjar Elenu & Þóris biðu…  Svo þegar líða tók á nóttina fór fólkið að týnast niður í bæ en ég ákvað að vera bara eftir heima… Vaknaði eldhress að verða 12 í morgun og bara sáttur. Spurning um að fá sér smá mjöður í kvöld… einhverjir bjórar eftir og svo er ein rauðvín inní skáp    Held samt að símanum mínum hafi verið stolið í gær svo ég er ekki aaaaalveg sáttur. Vonast samt til þess að hann liggi hérna undir einhverjum bjórdósunum   Vonandi

En já.. ætla að fara að koma mér í sturtu og heyra í liðinu.

allt crazy…
Nú fara veðurguðirnir hamförum um allt Ísland og er maður að sjá mikið um þetta skrifað á fréttavefjum landsins. Til dæmis sá ég þessa frétt á mbl.is og eyjafrettir.is greindu frá því í frétt hjá sér að þakið sem fauk af IMEX húsinu hafi lent ofan á glænýjum bíl framkvæmdastjóra Ísfélagsins… Ægis Páls. En enginn hefur slasast sem betur fer.

Annars var nú bara brjáluð vinna hjá mér um helgina og er ég nú kominn inní letivikuna… vinna á miðvikudag og fimmtudag og svo helgarfrí. Jeij

Elena systir og Þórir hafa ákveðið að halda innflutningsparty hér á föstudaginn sem kemur sér mjöööög vel þar sem ég er í fríi þessa helga oooooooooog airwaves verða í fullum gangi… Byrja á miðvikudaginn og það er svooo margt sem mig langar að fara og sjá… ég verð eiginlega bara að prenta út dagskrá fyrir sjálfan mig með þeim giggum sem ég bara VERÐ að sjá. Einsog t.d. Sahara Hotnights, Hoffman, Botnleðja, Bang Gang, Dikta, Ensími, Hölt Hóra, Jan Mayen, Manhattan, Maus, Mínus OFL OFL OFL… shit sko… svo má ekki gleyma KK og Keane… þetta verður allsvakalegt myndi ég segja   Svenni og Gulla koma á fimmtudaginn og svo hvíslaði að mér lítill fugl bakkabræðurnir Aron og Gaui ætluðu að láta sjá sig enn eina ferðina í borg óttans þessa helgi   Það er vonandi… allavega þið sem ætlið að koma frá Eyjum mættuð endilega láta mig vita

Annars hef ég voðalega lítið að segja, er alltaf á leiðinni í helvítis klippingu en bara veit ekkert hvert ég á að fara… einhverjar uppastungur? Hef aldrei á ævinni verið með svona mikið hár…

Allavega… later