Eldri færslur fyrir stikkorð » sumar «

færsla skrifuð kl. 10:28 - 01. July, 2008 | Höfundur:

Ég vildi bara kasta kveðju á liðið héðan frá Marmaris í Tyrklandi þar sem hitinn ræður algjörlega ríkjum. 32C° í skugganum klukkan 10 í morgun og vel yfir 40C° undir sólinni svo maður heldur sig bara inni við á þessum tíma dags, frá svona 12 á hádegi til 15 – 16. Annars er allt gott að frétta, smá bruni hér og þar en ekkert sem ræðst ekki við… enda komum við vel undirbúin. Um daginn kviknuðu skógareldar í fjallshlíðunum hérna rétt fyrir utan bæinn og lagði mikinn reyk yfir Marmaris auk þess sem mikil aska féll hér niður. Maður hefur nú aldrei upplifað skógarelda áður svona first hand svo þetta var svolítið spennandi, þyrlur fljúgandi fram og til baka og tóku sjó rétt fyrir utan ströndina þar sem allir voru að worka tanið. Munaði ekki miklu að tvö hús sem voru þarna í hlíðinni yrðu eldinum að bráð en þeim tókst að slökkva eldinn áður en það gerðist. Enginn slasaðist svo þetta er allt í góðu, versta er að það er talað um að þetta sé af völdum sígarettu sem hefur verið kastað út úr bíl… enda kæmi það manni ekki á óvart. Allur gróður hér er svo skrælnaður að maður þorir varla að prumpa ef það er tré í nágreninu… sérstaklega ekki eftir að hafa farið á Taj Mahal, sem er geggjaður indverskur staður ;)

Jæja, ég ætla ekki að hafa þetta lengra. Bið að heilsa heim á frónið… er ekki annars bara rigning og leiðindi þar?

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: ,  | 7 komment
færsla skrifuð kl. 19:33 - 07. May, 2008 | Höfundur:

Já það er að koma sumar… reyndar komið samkvæmt dagatalinu en ég vil bíða aðeins lengur, allavega fram yfir próf. Það er nú þannig að ég klára próf 13. maí, nánar tiltekið á afmælisdaginn minn (tölum ekki meira um það). Svo tekur við sumarvinnan en það er nokkuð ljóst að mig mun ekki skorta atvinnu í sumar. Ég verð hjá Grími Kokk og með því mun ég svo vinna hjá Einari Birni um helgar í veislum og fleiru tilfallandi, en hann rekur núna veisluþjónustuna Einsa kalda. Þá kem ég einnig til með að vinna hjá þeim félögum á 24seven ehf, en þeir reka meðal annars frétta og umræðuvefinn eyjar.net. Þar mun ég sjá um að setja inn fréttir, taka ljósmyndir og vera með puttann á púlsinum í Eyjum í sumar. Svo er aldrei að vita nema Stefán á Café reyni að fá mann til sín svona inn á milli… þegar mest er, eins og var síðustu helgi! Það er ekki laust við að það sé komin svolítil tilhlökkun í mann, þar sem þetta er ekkert í líkingu við það sem maður hefur verið að gera síðastliðin sumur og á ég ekki von á öðru en að þetta verði skemmtileg tilbreyting.

Annars er sumarskapið að koma hægt og bítandi milli þess sem maður lærir undir lokaprófin. Við feðgarnir (ég, Ingólfur & pabbi) tókum okkur til og keyptum okkur glænýtt grill fyrir sumarið. Ég tók mér heila kvöldstund í að setja gripinn saman í gær þar sem ég var ekki að fara í próf í morgun. Þetta er ekkert smá grill, 4 undirbrennarar, einn yfirbrennari til að halda hitanum í grillinu og svo einn brennari á hliðinni. Svo er auðvitað kælibox á hinni hliðinni undir bjórinn… semsagt alvöru grill. Svo fylgir grillteinn með mótor svo hægt er að grilla læri og heila kjúklinga eins og ekkert sé. Læt hérna fylgja mynd af gripnum og ætla að kalla þetta gott… best að koma sér í lærdómsgírinn fyrir sálfræðipróf!

Grillmaster 3000

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , , ,  | 5 komment
færsla skrifuð kl. 12:48 - 30. May, 2007 | Höfundur:

Já við komum heim frá útlöndunum á fimmtudaginn í síðustu viku. Það hefur verið nóg að gera hjá manni eftir það að heilsa upp á fólkið, taka upp úr töskum, taka til eftir það og vinna. Svo var auðvitað Eyjafest hérna um helgina, en Árni Óli & Hjörtur tóku sig til og skipulögðu heila helgarskemmtun hérna í Eyjum þar sem þeir fengu til liðs við sig nokkrar af efnilegustu rokkhljómsveitum landsins og var þessu öllu saman troðið saman í dagskrá sem teygði sig frá föstudegi til aðfaranótt sunnudags. Þar sem ég var að vinna á föstudaginn komst ég ekki fyrr en á laugardaeginum og ekki varð maður fyrir vonbrigðum. Ég fór með Þóri (kærastanum hennar Elenu systur) og sá maður hljómsveitir á borð við Leaves, Hoffman, Brain Police og Wulfgang. Ég ætla bara að vona að hátíðin hafi gengið vel og að þetta verði gert að árlegum viðburði!

Annars er maður nú bara búinn að vera að vinna, lítið að gera reyndar í Féló þar sem krakkarnir eru nú frestir í prófum. Styttist svo í að vinnuskólinn byrji og get ég ekki beðið eftir að vera að vinna úti í sumar ;) Einu sinni áður verið flokkstjóri í vinnuskólanum en það var árið 2003, orðið svolítið langt síðan.

Svo er ég að fara að ræða við Helenu og Stefán á Café, þau vantar víst kokk í sumar og gæti vel verið að maður myndi næla sér í einhverja aukavinnu hjá þeim svona þegar vantar. En það kemur betur í ljós í kvöld þegar ég fer og spjalla við þau.

Já það er allt að ske hjá manni hérna í Vestmannaeyjum. Ætla samt að fara að kalla þetta gott en ætla nú ekki að gleyma að láta ykkur vita af myndunum úr ferðalaginu, þær eru komnar inn í myndaalbúmið mitt, sem eins og allir vita, ég er mjög svo duglegur að uppfæra :D

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 10:14 - 21. May, 2007 | Höfundur:

Þá er síðasti dagurinn okkar í Frakklandi runninn upp. Við vöknuðum aðeins fyrr en venjulega þar sem Guðný er í fríi í allan dag og það var ýmislegt sem þurfti að gera í dag. Olga er komin í feita yfirvigt og þurfti að kaupa auka tösku undir allt DRASLIÐ sitt, já ég sagði draslið ;)

Svo erum við að fara til Ítalíu núna í þessum töluðu orðum. Ég ákvað að henda inn mínum síðustu orðum í Frakklandi þar sem við höldum til London til Þórhalls og Hrundar klukkan 11 í fyrrmálið. Þar verðum við svo þangað til á fimmtudaginn, en þá fljúgum við aftur heim til Íslands.

Ég skellti mér á djammið með stelpunum í gær í fyrsta skiptið í ferðinni. Við fórum bara hérna aðeins niður í bæ og tókum stutt pöbbarölt á þetta, voðalega notalegt bara. Ég held ég geti alveg sagt það með vissu að ég er búinn að spara mér þónokkurn pening á því að chilla heima með Bjarna öll hin kvöldin ;)

Læt samt fylgja með nokkrar myndir af gærkvöldinu. Þess má geta að ég get ekki hent myndunum úr minni myndavél inn á þessa tölvu svo ég fékk þessar lánaðar hjá Gvuníju ;)


Við að webcamast


Myndavélaflipp í gangi…


Ég og G-Unit


Barþjónninn átti afmæli og bauð okkur að sjálfsögðu í glas… ;)


Svo sæt saman…


Sáttur eftir barferð :D

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , ,  | 5 komment
færsla skrifuð kl. 19:50 - 18. May, 2007 | Höfundur:

Jæja þá er kannski kominn tími til að láta vita af sér hérna í Frakklandinu góða. Við erum sko ekki búin að sitja auðum höndum hérna hjá henni Guðnýju, enda bara snilld að vera með svona ‘local tour guide’ sem veit um alla bestu staðina til að heimsækja og bestu strendurnar, kann að ferðast í lestunum og ég veit ekki hvað og hvað. Við fórum á fyrsta deginum til Mónakó sem var náttúrulega bara geðveiki. Sáum þar snekkjubátahöfn þar sem allir þessir frægu og ríku eiga eitt eða jafnvel tvö stykki hver, það þarf ekki að taka fram að þetta eru sjúklega flottar snekkjur allt saman. Fórum líka að skoða formúlubrautina, sem er btw bara inni í miðri borginni og þarf að loka helstu götum á meðan á keppninni stendur. Held að það verði keppt í Mónakó 26. maí en undirbúningurinn var í fullum gangi. Svo var að sjálfsögðu kíkt í casino, en þess má einmitt geta að póker atriðið í Casino Royale var tekið upp í Mónakó…

Svo fórum við 2 næstu daga á ströndina og grilluðum okkur aðeins, lékum okkur í sjónum í frisbee, beach ball og fleiri skemmtilegum leikjum. Í gær fórum við svo til Cannes þar sem kvikmyndahátíðin er í gangi núna. Vorum reyndar ekki svo heppin að hitta á einhvern frægan en sáum rauða dregilinn þar sem var verið að ryksuga hann og gera fínan fyrir kvöldið, auk þess sem við fengum okkur að borða þar og skoðuðum herlegheitin. Fólk var meira að segja farið að bíða eftir stjörnunum þarna þegar við vorum og voru þá alveg þónokkrir tímar í að þær kæmu.

Í dag fórum ég, Olga og Bjarni í næsta bæ og að sjálfsögðu beint á ströndina. Búin að vera dugleg á ströndinni hérna en í dag var aðeins “of gott” veður ef svo er hægt að segja, því við komum öll vel grilluð heim á hótel og erum núna að baða okkur upp úr after sun og grunar mig sterklega að ég muni hafa hamskipti í nótt… :o

Lofaði nokkrum myndum hérna úr ferðinni og ætla ég að leyfa þeim að eiga síðustu orðin ;)


Á lestarstöðinni á leiðinni á ströndina

Komin á ströndina… bara gott veður.


Mættur til að brenna.


Aðeins verið að ljósmyndast með nýju sólgleraugun í sandinum.


Ferðafélagarnir sáttir í Mónakó

P.S. Vil nota tækifærið hér og óska henni Arndísi Ósk Atladóttur til hamingju með afmælið… love you sæta :*

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , , ,  | eitt komment
færsla skrifuð kl. 23:59 - 10. April, 2007 | Höfundur:

Jæja þá eru páskarnir búnir. Auðvitað var tekið vel á því eins og alltaf um páska hérna í Eyjum, þetta er bara eins og lítil Þjóðhátíð. Djammið var fínt og gaman að hitta alla krakkana sem búa upp á landi… Nú hefst svo hið daglega líf hjá manni aftur og verður tekin smá pása frá djammi eftir þessa törn.

Ég er svolítið farinn að spá í hvað maður eigi að gera í sumar, enda ekki seinna vænna. Mér sýnist allt stefna í að maður fari í vinnuskólann hjá Sigþóru, en reyndar kom Gísli með skemmtilegan vinkil inn í þá umræðu þegar ég sat með honum að sumbli á föstudaginn langa. Hann spurði hvort við ættum ekki bara að skella okkur á sjó saman. Nú hef ég aldrei farið á sjó og aldrei svo mikið sem reynt að koma mér á sjó, en þegar hann kom með þessa hugmynd fannst mér hún bara ekkert vitlaus. Þarna eru peningarnir, og þótt þetta sé mikil vinna þá hefur maður bara gott af þessu og fínt að geta sagt hafa reynsluna af því að hafa verið á sjó :)

Svo hef ég svolítið verið að velta fyrir mér með áframhaldandi nám eftir framhaldsskóla, og bara áframhaldandi allt. Vera í Eyjum og klára skólann? Fara annað og klára í fjarnámi… til dæmis út? Margt sem er að veltast um í hausnum á mér þessa dagana, eiginlega of margt. Þess vegna er ég virkilega að elska það að það sé núna um mánuður þangað til ég skýst út til London að heimsækja Þórhall bró og Hrund & Svölu auðvitað, og svo þaðan til Nice í Frakklandi að flatmaga í sólinni með Gvuní, Olgu og Bjarna. Það verður án efa geggjuð byrjun á frábæru sumri!

Langar að enda þetta á myndbroti úr gömlu DV blaði sem ég rakst á á flakkinu um veraldarvefinn… ekki myndi ég nú vilja lenda í þessu:

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | 2 komment
færsla skrifuð kl. 02:18 - 29. March, 2007 | Höfundur:

Já ég skellti mér í hjólreiðatúr í góða veðrinu í gær. Mikið er ég nú feginn að það sé alveg að koma sumar og maður geti farið að gera meira af því að njóta þess að vera úti. Svo ég tali nú ekki um að það er hundrað sinnum skemmtilegra að taka myndir í góðu veðri en rigningu og viðbjóði. Það er einmitt það sem ég gerði í gær, ég tók myndavélina með í för og smellti af nokkrum kvikindum. Komst reyndar að því að eg þarf að fara að hreinsa allt draslið mitt, búið að safna ryki allt of lengi.

Svo er það helgin næsta. Ég tók að mér að fara með 2-3 krakka úr Féló á landsfund félagsmiðstöðva sem haldinn verður á Selfossi næsta laugardag og er svona að velta því fyrir mér hvort maður eigi að framlengja þeirri ferð og kíkja í bæinn yfir helgina. Mamma og pabbi verða einmitt í bænum svo það er spurning hvort maður breyti ekki út af vananum og kíki í bíó og kannski eitthvað út að borða og svona fínerí… en það kemur allt í ljós.

Jæja ætla að kalla þetta gott og láta fylgja eina mynd af því sem ég tók í gær, getið séð restina á flickR síðunni minni.

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | eitt komment
færsla skrifuð kl. 16:29 - 08. March, 2007 | Höfundur:

Þá er maður búinn að panta sér ferð til London þann 12. maí. Gvuní vinkona er búin að vera að hita mann allsvakalega upp að kíkja í heimsókn til hennar og þar sem maður var nú búinn að lofa henni að koma er ekki seinna vænna að panta núna fyrir sumarið, á meðan verðin eru í lágmarki. Fékk flug aðra leið til London á 6000 þúsund kjell, sem er náttúrulega ekki neitt. Ég veit ekki alveg hvenær maður kemur aftur en stefni á að vera í 2 vikur. Maður flýgur svo heim með Iceland Express þar sem maður á ferðaávísun til að borga það flug, svo í heildina verður þetta ekkert mjög dýrt ferðalag. Flugið frá London til Nice í Frakklandi fram og til baka kostar svipað og flugið með BA frá Keflavík til London, eða um 6000 kall. Svo er auðvitað frí gisting bæði í London hjá Þórhalli bró og í France hjá henni Gvuníju svo maður verður bara eins og kóngur í ríki sínu :-D

Þá er bara að bíða eftir próftöflunni og gá hvort ég endi með að þurfa að taka einhver próf fyrr, þar sem síðasti prófdagur er 15. maí, og sjúkrapróf 16. maí. Annars er nú bara þetta venjulega að frétta. Reyndar búinn að vera alltof latur við að fara í ræktina eftir að ég keypti mér þetta líkamsræktarkort í Nautilus, ætla áð skella mér á eftir og reyna að koma mér í þetta af einhverjum krafti, enda er maður farinn að safna smá vömb

Já og úrslit meistaradeildarinnar í vikunni. Liverpool sló út meistarana, Barcelona. Bara gaman að því en leikurinn var víst MJÖG erfiður að horfa á samkvæmt þeim Liverpool mönnum sem ég hef talað við. Eiður kom Barcelona í 0 – 1 þegar korter var eftir af leiknum og spiluðu þeir þá 3 – 3 – 4 eins og ég las að ég held á Fótbolta.net. Ég var eiginlega bara feginn að hafa verið í vinnu, því annars væri ég örugglega með blæðandi magasár

Annars er lítið að frétta held ég. Siggi bró ætlar að kíkja hingað um helgina og spurning hvað maður tekur sér fyrir hendur, ætli það verði ekki eitthvað bjórsötur. Býst ekki við öðru ;-)

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , ,  | eitt komment
færsla skrifuð kl. 03:10 - 18. August, 2006 | Höfundur:

Já nú er búið að vera mikið að gerast síðastliðna daga. Ég er fluttur til Eyja og hef ákveðið að klára það sem ég byrjaði á 16 ára gamall og þá af engum áhuga, já ég er að tala um stúdentinn. Ég skráði mig í FÍV í vikunni og sótti um vinnu í Féló með skólanum, vonandi að ég fái hana bara. Þetta er búið að ske allt saman mjög hratt en ég er bara sáttur við að vera kominn heim á eyjuna fögru. Hótel mamma klikkar náttúrulega aldrei og auðvitað allir vinirnir… þetta er bara geggjað.

Ég sé fram á skemmtilegan vetur í FÍV þar sem ég og Arndís munum verða mamman og pabbinn þarna, en þess má til gamans geta að Ingólfur bróðir verður einmitt vígður inn í FÍV á þessari önn með tilheyrandi busaveseni… Það verður gaman að sjá :) Annars hefur maður bara verið að taka því rólega í vikunni og var ég einmitt að klára að horfa á 2 spólur með Arndísi og Ólöfu. Eða reyndar horfðu þær með mér á fyrstu og ég horfði einn á hina þar sem þær steinsváfu… félagar… :D

Búinn að fara svolítið út í góða veðrinu sem er búið að vera hér og taka myndir. Fór upp á Há í dag og tók nokkrar myndir og ætla að deila hérna nokkrum með ykkur:

Maður á eftir að gera meira af þessu… það er alveg bókað, enda eru Vestmannaeyjar gullkista fyrir ljósmyndara. Og fyrst ég er nú að þessu á annað borð er kannski kominn tími til að henda inn link á myndasafnið sem ég er að koma mér upp á netinu sem áhugaljósmyndari. Hann verður hérna til hægri en síðuna er að finna hér. Endilega skoðið myndirnar og segið hvað ykkur finnst ;)

Jæja, ég er farinn að sofa í hausinn á mér!

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , , , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 21:04 - 12. August, 2006 | Höfundur:

Góða kvöldið gott fólk. Já, þá er heilsan svona farin að skríða aftur í sama horf eftir þessa líka roooosalegu Þjóðhátíð. Ég var svo ljómandi heppinn að næla mér í hina dæmigerði þjóðhátíðarveiki vikuna eftir hátíðina þar sem maður lá bara með hálsbólgu, kvef og hita í svitabaði. Svaf lítið sem ekkert en það er svona að mestu komið í lag núna. Það er nú bara stutt frá því að segja að þessi þjóðhátíð treður sér tvímælalaust í topp 5 og sannaði ég það fyrir sjálfum mér að maður er ekkert að verða gamall. Hérna er Þjóðhátíðin mín svona í grófum dráttum:

Þriðjudagur:
Já við byrjum Þjóðhátíðina alltaf á þriðjudegi og árið í ár er engin undantekning. Byrjuðum heima hjá Sigga bró og eftir það var haldið áleiðis á Johnsen bar. Þar var ágætis stemmning en algjört pulsupartý svo við bræðurnir fórum á Conero og þaðan fór ég bara heim á leið. Stutt og tilþrifalítið djamm en það átti eftir að borga sig daginn eftir… eða þannig.

Miðvikudagur:
Á miðvikudeginum var þessu startað á KFS leik þar sem Trausti Hjaltason fór fyrir sínum mönnum eins og herforingi. Hörku stemmning var á leiknu sem KFS menn unnu að sjálfsögðu með engan annan en Magnadona í framlínunni. Eftir leikinn var svo farið heim til Bróa sem er búinn að smíða þennan líka fína bar í stofuna hjá sér. Vorum þar eldhressir þar til kvenfólkið fór að týnast inn með Margréti í farabroddi. Hjehje… létt spaug Magga mín, hörkufjör þar sem endaði svo heima hjá Ágústu á Brimó… eða hvað? :P

Fimmtudagur:
Húkkarinn framundan. Byrjaði að sötra heima með fólkinu og tókum við aðeins fram gítarinn. Tókum Blister in the sun eins og sannir meistarar og komum okkur í gírinn á mettíma. Það varð bara til þess að mann langaði ekkert að fara en að lokum skaust ég heim til Ágústu og hitti Steingrím og Rósu, æskuvini af Búhamrinum í allsvaðalegu teiti ofar á Brimhólabrautinni. Biggi hafði ákveðið að hitta mig þar sem hann gerði, en ákvað í leiðinni að vera fyndinn og hella vatni yfir Steina sem svaraði í sömu mynt, nema með bjór. Hahahaha… við erum að tala um það að á miðju djammi þurfti lítill Einir að fara með litlum Bigga heim til ömmu hans til að fara í sturtu. En það var líka það sem drap mig. Helvítið gaf mér Jager í magic og kvöldið varð bara svartara og svartara eftir það. Endaði spúandi eins og múkki upp Heiðarveginn en komst sem betur fer heim. Fór víst á Prófastinn í millitíðinni en látum frásagnir af afrekum mínum þar í hendur einhverra annarra…. :D

Föstudagur:
Fyrsti dagur Þjóðhátíðar runninn upp og fólk virkilega komið í fílinginn (þeir sem ekki voru þunnir allavega). Maður byrjaði að sötra upp úr kvöldmat og skelltum okkur í dalinn um 9 leitið. Kíktum í tjaldið til Sigurrósar og Eyglóar frænka minna sem taka alltaf jafn vel á móti okkur (og bara öllum) með alls kyns góðlæti, og ber þar helst að nefna tartaletturnar sem eru til að drepa fyrir og samlokurnar sem þær smyrja einmitt með þessu tartalettu gumsi… namminamm! Svo var það brekkan þar til kveikt var í brennunni en eftir hana var farið og skilað myndavélinni góðu heim og svo tekið rölt í dalnum, tjaldaflakk og fleira þar til við Bergdís fórum heim um klukkan 7.

Laugardagur:
Á laugardeginum var komin svolítil þynnka í liðið sem varð til þess að við gerðum lítið sem ekkert á laugardeginum. Við fórum frekar seint í dalinn eða uppúr 10. Drösluðumst af Brimó í dalinn og komum aðeins við í tjaldinu hjá frænkunum á leiðinni upp í brekku. Svo var komið sér vel fyrir og hlustað á frábæra dagskrá þetta kvöld áður en flugeldasýningin byrjaði. Veðrið setti óneitanlega strik í reikninginn þar sem það var rigning og þoka en þá er ekkert að gera nema geyma hluta flugeldanna þar til kvöldið eftir, sem þeir líka gerðu. Bjargvættur kvöldsins var án efa regnhlífin góða frá Ísjakanum! Takk kærlega fyrir hana pabbi og mamma :D Svo var það bara sama rútínan sem tók við, tjaldaflakk, rölt um dalinn og bekkjabílarúntar. Ég reyndar endaði á Prófastinum þegar Bergdís fór heim og var þar að langt fram eftir morgni og var sko ekki á leiðinni að hætta eftir það. Við fórum nokkur í partý til Svölu uppá Höfðavegi og vorum að til 2 eða 3 að deginum :o Það voru vægast sagt óblíð augun sem ég fékk þegar ég skreið inn um dyrnar heima um það leitið… :S En þetta var samt sem áður snilld og alveg ógleymanlegur svipurinn á Nonna kærasta Svölu þegar hann kom nývaknaður upp við lætin í okkur og þá kannski sérstaklega hinn ógleymanlega frasa “Hvað er AÐ ykkur?” ;)

Sunnudagur:
Það gafst nú ekki mikill tíma til að sofa þennan daginn en það kannski bjargaði mér að vera hálf mollý þegar ég vaknaði um klukkan 7 leitið. Fór beint í bjórinn og við fórum svo stuttlega eftir það niður í dal. Hitti einhvernveginn miklu meira af fólki þetta kvöld en hin (eða var ég bara í betra ástandi… =) og ég var líka mest í tjaldinu hjá frænkunum góðu þetta kvöld. Var krýndur Vestmannaeyjameistari á hristum þetta kvöld og fékk sérstakar þakkir frá gítarleikurunum fyrir magnað og taktfast hrist. Ég verð þó að játa að án Kjartans á skeiðunum hefði mér aldrei tekist þetta… Svo var djamminu auðvitað haldið áfram eins og enginn væri morgundagurinn. Fór meira að segja á Prófastinn eftir að hafa fylgt minni elskulegu Bergdísi heim kl 6. Var að með Bigga, Gísla Böðvari ásamt því að kynnast þarna heilmörgum sem ég man nú ekki alveg hvað heita allir… man allavega eftir 3 gaurum frá Mosó og einum frá Jan Mayen! :D Svo endaði ég djammið með Svölu, Karlottu og hennar vinkonum (Sykurpabba og fleirum) og auðvitað honum Jóni, sem fyrirgaf mér alveg lætin í mér nóttina áður :D Skokkaði svo heim eldhress kl. 11 á mánudagsmorgni.

Hmm… þetta varð nú aðeins lengra en ég hélt að þetta yrði og ég einhvernveginn efast um að einhver sé að lesa lengur :D Ég vil samt þakka öllu þessu frábæra fólki sem ég upplifði þessa Þjóðhátíð með. Þetta var snilld frá A-Ö. Sjáumst öll hress sem fyrst og pottþétt aftur á Þjóðhátíð að ári liðnu ;)

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment