einir punktur komm » reykjavík

reykjavík, taka 2…
Jæja þá er maður bara fluttur aftur í borg óttans. Thelma skellti sér í næringarfræði í HÍ og ég leitaði og leitaði að vinnu hérna fyrstu 2 vikurnar… var svo boðaður í nokkur viðtöl og endaði á að fá þessa líka fínu vinnu hjá Tæknibæ (computer.is) í Skipholtinu og líkar svona líka vel. Er þar á verkstæðinu og er nóg að gera, sem er mjög gott.

Við erum búin að vera hér í tæpa 2 mánuði og líkar bara ágætlega. Thelma var ein af fáum sem fékk inn á stúdentagarðana svo við sleppum ágætlega leigulega séð. Við fengum meira að segja íbúð á jarðhæð en þetta er 6. hæða bygging sem við erum í, svo þetta hefði getað verið verra. Hins vegar er íbúðin okkar akkúrat fyrir ofan þvottahúsið (sem er í kjallaranum) og vaknar maður því stundum við fallegan hljóm þvottavéla á þeytivindunni… en sem betur fer er þvottahúsið bara “virkt” milli 9 – 22 á daginn..

Jæja ætla að kalla þetta gott og henda mér í bælið… góða nótt

fór í göngu með nýju myndavélina…
Haldiði að maður hafi ekki bara tekið sig til og farið í göngu í Elliðaárdalnum í vikunni, en tilefnið var auðvitað að Þórhallur bróðir kom með nýju Canon EOS 50D myndavélina mína til landsins um síðustu helgi. Auðvitað varð ég að prufukeyra gripinn og varð Elliðaárdalurinn fyrir valinu, þar sem hann er svona stysta leið í náttúru hér á höfuðborgarsvæðinu að ég held. Fór út á mánudagseftirmiðdegi og náði nokkrum góðum skotum, aðallega af fuglum. Mikið rosalega er hressandi að skella sér í svona smá göngu og ekki skemmdi veðrið fyrir, enda var fullt af fólki að hreyfa sig þarna. Ætla að láta fylgja með eina mynd, en restin af myndunum er inná flickR-inu mínu.

Annars er bara gott að frétta af mér héðan úr Reykjavíkinni. Námskeiðið er rúmlega hálfnað og gengur bara vel, hefði verið betra fyrir Vestmannaeyinginn mig að hafa skólann allan daginn í 2 vikur í staðinn fyrir hálfan daginn í 4 vikur en þeir eru væntanlega að hugsa um hinn vinnandi mann hér í Reykjavíkinni, þótt helmingurinn sem er með mér hérna á námskeiðinu séu atvinnulausir… Svona er bara staðan í dag, nú reyna menn að ná sér í menntun til að eiga meiri möguleika á vinnu og þá kannski betri vinnu seinna meir. Maður má eiginlega bara þakka fyrir að hafa vinnu…

Annars er ég á leiðinni heim til Eyja á morgun og get ekki beðið! Er búinn að vera í bænum í tæpar 3 vikur og það kalla ég bara nokkuð gott fyrir mig að höndla   Það er víst nóg að gera en það er bæði ball í Höllinni og eitthvað DJ kvöld á Prófastinum á laugardaginn svo það er spurning hvað maður gerir… Jæja, pásan búin – læra meira!

borg óttans…
Jæja þá er maður búinn að koma sér fyrir í höfuðborg eymdar og volæðis, nánar tiltekið á Langholtsveginum hjá Sigga bró. Hingað er ég kominn í leit að menntun, en ég hef skráð mig á tæplega fjögurra vikna námskeið í kerfisstjórnun hjá Tölvuskólanum iSoft – Þekking, svokallað grunnnám.

Fyrsti ‘skóladagurinn’ er í fyrramálið klukkan 8:30 og verður skóli alla virka daga til og með 20. mars næstkomandi og þarf ég því að dúsa í Reykjavíkinni í tæpan mánuð (að einni helgi undanskilinni sem Thelma hefur heimtað að fá mig til Eyja =) Ég hef barasta góða tilfinningu fyrir þessu námskeiði og vonast til að læra alveg hreint heilan helling sem mun koma til með að nýtast mér vel hjá Samma…

Námskeiðið er þó því miður bara fyrir hádegi svo ég mun þurfa að finna mér eitthvað að gera hér eftir klukkan 12… en auðvitað tók ég með mér myndavélina svo það verður kannski ekki svo erfitt, svo var Sammi svo góður að lána mér eitt stykki ferðavél til að hafa í náminu… þar sem mín er auðvitað steindauð, og það fyrir löngu.

Jæja, best að henda sér í bólið til að vera hress fyrsta skóladaginn!

nýtt ár…
Jæja góðan daginn, hvað segir fólkið? Langt síðan síðast eins og svo oft áður… Jólin eru búin og mikið hafði maður það nú gott. En nú er komið nýtt ár og skólinn byrjaður á ný. Ég er í 19 einingum og stefni á útskrift næstu jól, en segi það nú samt með fyrirvara um breytingar…

Ég ákvað að bregða út af vananum þennan þrettándann og skella mér til Reykjavíkur þar sem Þórir, kærastinn hennar Elenu var að halda upp á 30 ára afmælið sitt. Fínt að breyta aðeins til og var mjög gaman í þessari afmælisveislu, sem var vægast sagt vel sótt… gjörsamlega troðið heima hjá þeim. Það er naumast að maðurinn er búinn að sanka að sér mörgum vinum þessi 30 ár…

Svo er bara komið að grámygluðum hversdagsleikanum aftur, veðrið hérna í Eyjum er alveg út úr kú eins og er og það bregst ekki að alltaf á þessum tíma fer hugur manns að leita út fyrir landsteinana, í sól og sumaryl. Ég og Thelma vorum að skoða heimasíður ferðaskrifstofa í gær og var mest skoðað Tyrkland og Krít… nú er bara að sjá til hvort maður sjái fram á að geta skellt sér út næsta sumar, en til þess þarf maður að endurskipuleggja fjárhaginn… selja bílinn og síðast en ekki síst fara að hugsa út í sumarvinnu.

Og þá að aðalmálinu… haldiði að maður hafi ekki verið að eignast annan frænda í byrjun þessa mánaðar. Þau Þórhallur og Hrund eignuðust gullfallegan dreng sem átti nú reyndar ekki að líta dagsins ljós fyrr en í febrúar, en allt gekk þetta þó upp og er hann sprækur sem lækur í dag. Ég vil bara óska þeim enn og aftur til hamingju með litla kút og jafnframt láta ykkur fáu lesendur mína vita af þessu, ef þið vissuð þetta ekki nú þegar

En jæja, tíminn er búinn. Bið að heilsa ykkur…

rólegheit…
Þessi helgi var nú bara tekin rólega. Tók að mér að fara upp á Selfoss með krakkana úr Féló á landsfund félagsmiðstöðva á laugardagsmorgun og átti að koma aftur samdægurs, en ákvað að framlengja ferðina til mánudags og kíkja í bæinn. Það sem einkenndi þessa annars ágætu ferð mína til borgar ótta og volæðis var rólegheit og chill í faðmi fjölskyldunnar heima hjá Elenu systir.

Fór svo í gær með Sigga bró á TMNT eða Teenage Mutant Ninja Turtles, en við vorum forfallnir Turtles aðdáendur þegar við vorum yngri.. bara gaman að sjá þessa mynd   Skellti mér svo heim til Eyja með fyrri ferð Herjólfs í dag og er núna í vinnu uppí Féló. Páskafríið að kicka inn og fjörið sem því fylgir hérna í Vestmannaeyjum verður örugglega ekki af verri endanum frekar en vanalega… þetta er eins og hálfgerð Þjóðhátíð.

Talandi um Þjóðhátíð… djöfull er orðið stutt í hana maður lifandi! Ég þarf að fara að koma með niðurtalningu í kvikindið hérna á síðuna…

En þangað til næst…

við erum ekki einir lengur…
Búið að vera helvítis vesen á hýsingunni hjá mér. Spurning um að framlengja ekki hjá þessum álfum þegar samningurinn rennur út, Þórhallur bróðir var svo góður að bjóða mér hýsingu á servernum sem hann á… sem ég hugsa að ég þiggi með þökkum. Síðan lá niðri í einhverja 2 daga, en samt aðallega vegna þess að ég gat ekkert gert í því um helgina, og þá komum við að aðalefni þessa bloggs

Já, ég skellti mér ásamt hele familien til Reykjavíkur síðustu helgi þar sem tilefnið var skírn á litla gullmolanum hennar Elenu systur og hans Þóris mágs. Eftirvæntingin og forvitnin skein úr hverju einasta andliti í fjölskyldunni og bara spenna í loftinu þegar loksins kom að því að Þórir sagði nafnið… Aðalsteinn Einir – Ég var að taka myndir eins og óður maður í skírninni en ég datt algjörlega út eftir að hafa heyrt nafnið… ég fann svona “vááá… ég á soldið meira í honum núna”, þótt krílið sé auðvitað skírt eftir öfum sínum. Ég heiti samt líka Einir   Bara falleg athöfn í alla staði og kræsingarnar alveg að gera sig! Ég gerði kjúllaréttinn margrómaða sem svo gott sem hvarf ofan í gestina á nokkrum mínútum… ég fékk ekki einu sinni að smakka sjálfur. Annars var þetta bara ljúf og góð helgi, fór í snóker með Sigga bró, hittum þar Bigga og Gísla Böðvar. Ræðum úrslitin í tvíliðaleiknum ekkert frekar

Svo er ný skólavika bara gengin í garð og þar að auki hófst fjarnámið á mánudaginn. Byrjar bara rólega þar sem betur fer á meðan maður er að koma sér inn í þetta. Á að skila verkefni í Sögu303 næsta mánudag, kynna mér 4 ríki þar sem múslimar eru ríkjandi trúarflokkur og gera grein fyrir helstu atvinnuvegum, heilsugæslu, læsi og blablabla… Hörkuspennandi verkefni… :-.

Jæja, ætla að kalla þetta gott og skella mér í ræktina… Skelli hérna nokkrum myndum af fallegu fjölskyldunni og athöfninni:

2. sæti og reykjavíkurferð…
Jæja, þá er ég staddur í Reykjavíkinni yfir helgina þar sem ég er að sækja restina af dótinu mínu og slappa aðeins af. Reyndar er Arndís að draga mann á eitthvað skrall í kvöld svo það er spurning hvað verður úr kvöldinu í kvöld. Mig langar eiginlega líka til að sjá Pirates of the Caribbean í bíó… en það kemur í ljós hvað maður gerir.

Já svo tók ég þátt í ljósmyndakeppni á ljósmyndakeppni.is, varð í 2. sæti í keppni um að fá myndina sína birta í ágústmánuði á dagatali sem gefið verður út á næsta ári. Svona líka ljómandi sáttur við fyrstu ljósmyndakeppnina sem ég tek þátt í. Getið séð úrslitin og myndirnar hér.

En já, ætla að fara fá mér að éta… orðinn veeeeel hungraður. DJÖFULL HEF ÉG SAKNAÐ SUBWAY!

Chao.

hvað er í gangi…
Er það ekki orðið eitthvað skrítið þegar maður er með lag á heilanum í 3 daga? Og hvað þá Nylon lag!? Já góðir hálsar, ég er búinn að vera með Nylon lag á heilanum síðastliðna 3 daga og þakka ég henni Bergdísi minni kærlega fyrir það. Þetta lag kom í útvarpinu þegar við vorum að keyra eitthvað og það var bara ekki séns að fá að skipta, svo við hlustuðum á þetta helvítis lag og það var bara ekki aftur snúið… LOSING A FRIEND?! Ég á eftir að handrota þessar stelpur eina af annarri þegar ég hef upp á þeim…

Og já, fyrst maður er nú í þessum gírnum þá er bara best að halda áfram á þessari braut og ausa úr skálum reiði sinnar… Nei ég segi svona, en það er ýmislegt sem fer í taugarnar á manni hér og þar í hversdagsleikanum. Sumt er eitthvað sem er tengt vinnunni og þið kannski fattið ekki, það verður bara að hafa það – Here goes… það sem fer í taugarnar á mér:

Strætógerpin í umferðinni

Að eiga ekki fyrir íbúð

Að vinna inni á sumrin

Mustang flísar

Duratex parketundirlag

Kúnnar sem hella sér yfir mann!

Hverfis

Kringlan

Smáralindin

Súrar gúrkur

Rasp

Finna ekki bílastæði

“Gaukur á stöööngin inn!” auglýsingin

Búa ekki í Eyjum

Vera ekki nær fjölskyldunni

Geta ekki ferðast meira

Vera orðinn fullorðinn

Þurfa að taka stórar ákvarðanir

Vita ekki hvað mig langar að verða

Reyna að finna út hvað mig langar að verða

Bensínverð

Íbúðarverð á höfuðborgarsvæðinu

Hvað ég er þrjóskur

Að ég drattist ekki í ræktina aftur

McDonalds & Burger King

Hvað ég er feiminn & óákveðinn

Hvað flugnám er dýrt

Hvað flest nám er dýrt…

Já… þannig var nú það   Ahhhh… nú líður mér betur. Ætla ekki að hafa þetta mikið lengra… kominn tími á Jay Leno og svo svefninn. Ekki verið að sofa vel undanfarið. Maður er mikið hugsi þessa dagana og er það örugglega bara málið. Þetta fylgir því örugglega að vera að eldast… maður er jú að verða 23 ára á laugardaginn…

hjól & mæspeis…
Ég og Bergdís höfum ákveðið að kaupa okkur hjól fyrir sumarið, og auðvitað í Byko   Mig hefur lengi lengi langað að kaupa mér hjól eftir að ég týndi krómaða Daewoo hjólinu sem ég átti þegar ég var í 10. bekk eða eitthvað. Það er svo gaman að hjóla… sérstaklega þegar maður býr í Eyjum, veit ekki alveg hvernig þetta verður hérna í Kópavoginum. Held það jafnist ekkert á við Eyjarnar hvað náttúruna varðar. Undurfögur og ekki þarftu nú að hjóla langt til að komast í kynni við hana. Bergdís segir samt að það sé nóg að skoða hérna í Kópavoginum… ég á nú eftir að sjá það, mér finnst eins og það sé verið að reisa blokkir og hús á hverjum einasta fermetra á höfuðborgarsvæðinu! Ef allt bregst hjólum við bara útá Þingvelli…

Já og hvað er málið með þetta MySpace… maður er í mestu makindum að MSNast og skoða heimasíður þegar ónefnd Ólöf poppar upp á MSN og spyr hvort ég sé ekki kominn með mæspeis… Ég svona “Nei… er það eitthvað að gera sig?” og þá fær maður bara “OMG, þú getur alveg eins bara verið dauður og að vera ekki með mæspeis!” Svo nú er ég kominn með Myspace síðu, kann ekki rassgat á þetta og er ennþá að fatta hvernig þetta virkar… tók einhvern rúnt og nældi mér í vini hér og þar… eða sko, þau eiga eftir að samþykkja að vilja vera vinir mínir… Eins og er á ég 3 vini   Ef þú ert með svona síðu máttu endilega adda mér í vinalistann þinn… maður er víst ekkert kúl ef maður á undir 30 vini :-/ Maður kann ekkert að breyta lúkkinu eða neitt, spurning hvort þetta sé eitthvað sem maður tollir í

En já, ætla ekki að hafa þetta mikið lengra. Mamma og pabbi er komin í bæinn og verða hér fram á sunnudag svo ég sé fram á bíóhelgi og fínerí

enn ein helgin búin…
Jæja kominn tími á að maður hendi inn nokkrum línum. Nóg hefur nú drifið á daga manns síðan síðast. Jú ég fór til Eyja í afmæli til Gaua sem hann hélt á Conero. Við mættum með seinni Herjólfi á föstudagskvöld og það var ekki að spurja að því að maður var kominn í bjórinn stuttu seinna   Endaði á þessu svakalega djammi sem við slúttuðum um kl 8 heima hjá Árna Óla…

Svo kom laugardagurinn og fylgdi honum nokkur kíló af þynnku. Fórum í afmælið til Gaua á Conero sem var bara helvíti fínt. Kósí stemmning, pool og gott spjall við fólkið. Alltof langt síðan maður var þarna síðast. Var þarna síðast um áramótin… maður á minnst að fara þarna einu sinni í mánuði. Var nú kominn heim heldur fyrr en daginn áður sem var eiginlega bara fínt… Herjólfur daginn eftir í þynnkunni sem er nú ekki uppáhaldið. Vill nota tækifærið og þakka mínum frábæru vinum og kunningjum fyrir frábæra helgi og vonandi að maður komist sem fyrst aftur til Eyja

Þessi helgi var svo tekin með rólegum föstudegi, vinna á laugardeginum & svo kíktum við Bergdís yfir til Berglindar systur hennar og Elvars í smá Catan spilerí. Ég fékk mér nokkra bjóra yfir spilinu, sem ég verð víst að taka fram að Bergdís vann, og var svo haldið niður í bæ að hitta Stebba. Fórum svo í bæinn þar sem Stebbi varð frekar skrautlegur svo ekki sé minna sagt…   Hitti Önnu Dúnu frænku á Hressó… alltaf gaman að hitta ættingjana á djamminu

Í næstu viku verður elsku mamma mín fimmtug og ætlum við að skella okkur í bústað saman. Þetta verður öruggleg algjör snilld, enda ekki við öðru að búast þegar svona snillingar koma saman á einum stað…   En ég ætla að kalla þetta gott og fara að horfa á 24.

Bið að heilsa ykkur…