Eldri færslur fyrir stikkorð » nörd «

færsla skrifuð kl. 01:11 - 24. February, 2009 | Höfundur: einir

Jæja þá er maður búinn að koma sér fyrir í höfuðborg eymdar og volæðis, nánar tiltekið á Langholtsveginum hjá Sigga bró. Hingað er ég kominn í leit að menntun, en ég hef skráð mig á tæplega fjögurra vikna námskeið í kerfisstjórnun hjá Tölvuskólanum iSoft – Þekking, svokallað grunnnám.

Fyrsti ’skóladagurinn’ er í fyrramálið klukkan 8:30 og verður skóli alla virka daga til og með 20. mars næstkomandi og þarf ég því að dúsa í Reykjavíkinni í tæpan mánuð (að einni helgi undanskilinni sem Thelma hefur heimtað að fá mig til Eyja =) Ég hef barasta góða tilfinningu fyrir þessu námskeiði og vonast til að læra alveg hreint heilan helling sem mun koma til með að nýtast mér vel hjá Samma…

Námskeiðið er þó því miður bara fyrir hádegi svo ég mun þurfa að finna mér eitthvað að gera hér eftir klukkan 12… en auðvitað tók ég með mér myndavélina svo það verður kannski ekki svo erfitt, svo var Sammi svo góður að lána mér eitt stykki ferðavél til að hafa í náminu… þar sem mín er auðvitað steindauð, og það fyrir löngu.

Jæja, best að henda sér í bólið til að vera hress fyrsta skóladaginn!

Flokkað undir: blog  | Stikkorð: , , ,  | 2 komment
færsla skrifuð kl. 22:54 - 30. January, 2009 | Höfundur: einir

Jæja ætli maður verði ekki að henda inn allavega einni færsu áður en janúar klárast. Ingólfur lille bro átti afmæli í gær og vil ég óska honum hjartanlega til hamingju með 19. árið.

Það sem meðal annars hefur á daga mína drifið í þessum blessaða janúarmánuði er aðallega vinna og aftur vinna. Mikið er nú gaman að vinna við það sem maður hefur áhuga á. Ég held ég geti sagt það í fyrsta skipti á ævinni að ég sé kominn í vinnu sem ég gæti séð mig vinna við í framtíðinni… og það er mjög stórt skref fyrir mig! Og ekki skemmir fyrir þegar yfirmaðurinn segir við mann:

“Einir við þurfum svo að setjast niður saman og finna námskeið sem þig langar á til að auka þekkingu þína á tölvum/viðgerðum/netkerfum eða bara því sem þig langar að læra meira um.”

Ég er búinn að vera að leita mér upplýsinga á netinu um svona námskeið og held ég hafi meira að segja fundið eitt bitastætt sem reyndar hefst strax í lok næsta mánaðar, spurning hvort fyrirvarinn sé nægur – en það kemur bara í ljós.

Í öðru lagi varð ég ástfanginn af nýrri myndavél ekki alls fyrir löngu, kærustunni til mikillar ánægju. Nei ég segi svona, held hún sé alveg semí sátt bara. Canon EOS 50D er á góðri leið með að verða mín ásamt nýrri EF-S 17-85mm linsu sem verður góð viðbót í safnið.

 

Canon EOS 50D

Canon EOS 50D

Annars er held ég bara allt gott að frétta, það er kominn flöskudagur – mér finnst reyndar bara alltaf vera helgi. Ég sit hérna niðrí Féló, búinn að vera í vinnu síðan 8 í morgun og ætla bara að taka því rólega í kvöld… Thelma komin með hita og svona svo ég held það sé bara vídjógláp og nammi… spara sig fyrir morgundaginn. Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra…

(Vúhú, mér tókst að blogga ekki um ástandið á Íslandi í dag! Get reyndar ekki lofað því að það næsta verði það ekki heldur… það er ýmislegt sem maður vill tjá sig um!)

Flokkað undir: blog  | Stikkorð: , , ,  | eitt komment
færsla skrifuð kl. 20:52 - 11. December, 2008 | Höfundur: einir

Ég hef lengi vitað til þess að fólk í tæknigeiranum og þá kannski sérstaklega þeir sem selja þjónustu tengda honum og vörur hafa notfært sér almenna vanþekkingu almennings á þessum málum öllum saman… Til að mynda gæti góður sölumaður sannfært ‘gamlan kall’ sem ekki veit betur um að hann þurfi nauðsynlega flottasta skjákortið og dýrasta örgjörvann til að nota Skype eða MSN til að halda sambandi við börn sín eða barnabörn úti í heimi… án þess að hann greyið maðurinn hefði hugmynd um að hann gæti sloppið mun ódýrar út úr þessum pakka. Reyndar þarftu að vera svolítið mikið kvikindi til að notfæra þér vankunnáttu einhvers svona, en ég lenti í svipaðri stöðu þegar ég skrapp til Reykjavíkur síðustu helgi. Þar ætlaði ég meðal annars að kaupa mér prentara og var staddur í Elkó, hafði valið mér þennan líka fína Canon PIXMA MP620 ljósmyndaprentara með þráðlausu neti og ég veit ekki hvað og hvað…

Nema þegar ég hafði ákveðið mig fór sölumaðurinn að reyna að pranga inn á mig alls kyns drasli sem hann sagði að ég nauðsynlega þyrfti með prentaranum og meðal þess sem hann bauð mér var USB kapall og blekhylki í prentarann. Ég spurði hvort það fylgdi ekki með og sagði hann að USB kapallinn fylgdi ekki með og blekið sem kæmi með prentaranum væri bara sýnishorn,  svo ég tók kapalinn og blekið og var á leið að borga þegar ég ákvað að lesa aðeins á kassann. Þar kom glögglega fram að þessi tiltekni USB kapall fylgdi og að blekhylkin væru í fullri stærð, þ.e.a.s. eins og þau sem þú kaupir. Þarna sparaði ég mér hátt í 10.000 krónur og þó ég viti til þess að ég þurfi að kaupa blek seinna meir þá hef ég ekkert með blek að gera fyrr en það sem ég hef klárast. Þetta finnst mér afar vafasöm vinnubrögð hjá svona stóru fyrirtæki sem gerir út á að hafa kúnnann ánægðan (sbr. verðvernd, auglýsingavernd og 30 daga skilaréttur).

Hins vegar sló botninn úr þegar ég heyrði af markaðsherferð TALs, en þeir eru nú að herja á Vestmannaeyjar símleiðis og bjóða fólki ódýrari síma og net. Það væri þó ekki frásögu færandi nema fyrir það markhópurinn er víst eldra fólk og kynna þeir sig sem starfsmenn Símanns og bjóða betri díl í þeirra nafni. Það er klárlega brot á lögum og ef þetta er satt hljóta Símamenn að gera eitthvað í þessu…

Pabbi var einn þeirra sem ‘gekk í gildruna’ hjá TAL og tók þessu tilboði, en þeim láðist að segja honum frá því að þetta væri 6 mánaða bindandi samningur sem kostar 8000 krónur að rifta, og að flutningsgjald á ADSLi og síma til þeirra kosti um 4000 krónur á hvert númer/tengingu. Auk þess erum við búin að bíða núna í fjóra daga eftir að fá netið inn, en það var að detta inn núna – nema það að við fengum notaðan router og þráðlausa netið rétt dregur 1-2 metra frá routernum… í guðanna bænum ekki fá ykkur TAL.

Flokkað undir: Daglegt líf  | Stikkorð: ,  | eitt komment
færsla skrifuð kl. 17:10 - 03. December, 2008 | Höfundur: einir

Ég verð nú bara að segja alveg eins og er að miðað við fréttaflutning fjölmiðla af ástandinu sem við Íslendingar stöndum í að ég held ég sé bara bærilega staddur. Ég er engan veginn að gera lítið úr þessu skítaástandi sem er hér á landi og þá sérstaklega í höfuðborginni, heldur kannski meira að benda á það eru sem betur fer ekki allir að missa vinnuna, húsið, bílinn og jafnvel bara allt sitt.

Ég til að mynda hef aldrei fengið fleiri atvinnutilboð og á síðastliðnu hálfu ári og er ég sem stendur í svo mikið sem fjórum vinnum, tveimur föstum og tveimur lausastörfum. Ég var einmitt í dag að hætta hjá Grím tengdó og byrja hjá Samma tölvukalli í fyrirtækinu hans Örveri ehf. Örver er lítið fyrirtæki hér í Eyjum sem sér um alls kyns tölvuviðgerðir, uppsetningu internets, síma og sjónvarps fyrir Símann auk þess sem það þjónustar mörg fyrirtæki í bænum með tölvur og alls kyns tölvutengt dót. Fyrsti dagurinn lagðist bara þrælvel í mig og held ég að framhaldið sé bara bjart enda alltaf þörf fyrir svona þjónustu á þessari tækniöld.

Hins vegar er ömurlegt að heyra fréttirnar af síldarvertíðinni. Sjávarútvegsráðherra búinn að banna veiðar vegna sýkils sem fundist hefur í síldinni og því allt stopp í dag. Vertíð sem útlit var fyrir að entist fram að jólum og jafnvel eitthvað lengur hefur nánast verið blásin af. Mun minna verð fæst fyrir brædda síld en síld til manneldis og því ljóst að gríðarlegar gjaldeyristekjur tapast þar svo ekki sé minnst á laun sem fólkið verður af.

En svona til að létta mönnum lífið langar mig að benda á enn einn froðubloggarann sem var að prumpa yfir okkur Vestmannaeyinga fyrir að vilja nýjan Herjólf… þetta er eiginlega bara fyndið.

Flokkað undir: Vangaveltur  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 17:14 - 24. October, 2008 | Höfundur: einir

Ég ætla bara að byrja þessa færslu á því að sleppa því að reyna að finna ástæður fyrir bloggleysinu síðastliðna mánuði, já ég sagði mánuði! Síðasta færsla var skrifuð í Tyrklandi í sumar og í sjálfu sér lítið merkilegt búið að ske síðan þá og nenni ég engan veginn að fara að tíunda það hér núna.

Hins vegar er gaman að segja frá því að ég skellti mér í að finna nýtt útlit á síðuna og hefur það nú litið dagsins ljós. Ég kem að sjálfsögðu hvergi nærri því að hanna eða smíða þetta útlit, heldur ræni því bara og nota eins og mér sýnist… Ég fór einnig í það að íslenska kerfið sem ég er að nota og er ég svolítið villtur í þessu blessaða íslenska kerfi þessa stundina. Orð eins og hliðarstika, íbætur og uppnýja skrá er eitthvað sem maður er engan veginn vanur því að sjá og þyrfti ég helst að hafa Má nokkurn Jónsson mér við hlið svona á meðan ég er að venjast þessu allavega…

Ég nenni engan veginn að skrifa um kreppuna sem tröllríður öllum fjölmiðlum og bloggum eins og er… ég vil bara segja að sjaldan hef ég verið jafn feginn að eiga engan sparnað í sjóðum eða hlutabréfum eins og komst í tísku fyrir nokkrum árum. Hins vegar sit ég uppi með bíl á myntkörfuláni að hálfu… sem ég er allt annað en sáttur við, þakka bara guði fyrir að hafa ekki farið út í íbúðarkaup eins og ég ætlaði mér fyrr á þessu ári. En nóg um það… ég er kominn aftur, með nýtt andlit (look) og munu skrif hér því að öllum líkindum verða tíðari en síðustu mánuði, enda væri annað erfitt.

Flokkað undir: Daglegt líf  | Stikkorð: ,  | 5 komment
færsla skrifuð kl. 15:40 - 01. April, 2008 | Höfundur: einir

Já… það er komið að því. Eftir mikla umhugsun (og enn meiri leti) hef ég ákveðið að leggja lyklaborðið á hilluna og hætta þessari vitleysu. Bloggfærslunum hefur fækkað með hverjum mánuðinum núna undanfarið og því kannski kominn tími til að slútta þessu. Þetta er bara tímaþjófur og ætla ég hér eftir að nota tíma minn í eitthvað nytsamlegra…

Ég mun að öllum líkindum koma til með að nota þessa síðu undir myndasafnið mitt helst og aldrei að vita nema ég skelli nokkrum línum endrum og einu sinni inn með :)

Annars þakka ég bara samfylgdina og vonandi lifiði heil… þótt ég sé hættur ;)
- Einir

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | 7 komment
færsla skrifuð kl. 17:40 - 05. June, 2007 | Höfundur: einir

Þá er þessi blessaða sjómannadagshelgi yfirstaðin og auðvitað nældi ég mér í einhvern flensuviðbjóð svona í blálokin á henni. Búinn að liggja uppi í rúmi þessa 2 frídaga sem ég ætlaði að nota í e-ð skemmtilegra en það allavega. En að helginni…

Það var vel tekið á því þessa helgina eins og svo margar aðrar sjómannadagshelgar, eiginlega aðeins of vel þar sem ég var búinn að lofa mig í vinnu á Café María bæði laugardag og sunnudag. Mætti samt ferskur í vinnuna á laugardeginum, en það var annað mál með sunnudaginn. Að vinna í eldhúsi alveg draugþunnur og svona eftir á að hyggja í byrjun veikinda er eitthvað sem ég vona að enginn (eða allavega ekki þið sem ég hef gaman að) upplifi. Annars tókst þetta nú bara mjög vel miðað við aðstæður, maður var að koma þarna í vinnu í fyrsta skiptið í 2 ár. Við Sigrún fengum allavega nokkur hrós á staðnum og meira að segja á ballinu var komið og þakkað fyrir frábæran mat… bara gaman að því ;)

Annars var þetta ball alveg svona ágætis yfir heildina. Ég þakka reykingabanninu fyrir að manni sortnaði ekki fyrir augun við að labba inn í Höllina, þvílíkur fjöldi fólks sem var mættur á þetta ball. En auðvitað var ekki opið upp… þetta er alveg óþolandi. Ég legg til að Þröstur kaupi bara allt sem er þarna uppi og noti þegar hann stækkar barinn sinn… fullt af kósý sófum, flottur bar sem er opinn allan hringinn svo það auðveldar aðgengi að honum… nefni þetta við hann næst þegar ég fer á Drífó, sem ég ætla samt að vona að verði ekki næstu helgi!

Annars er ég búinn að vera fastur í þessum leik í 2 daga… einstaklega ávanabindandi leikur sem ég fann á heimasíðunni www.black.is, sem ég er víst orðinn meðlimur að! Endilega kíkið á þessa síðu sem Gulli, Siggi bróðir og Aron störtuðu, verða þarna myndir af djamminu og fleira fyndið.

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , ,  | 2 komment
færsla skrifuð kl. 04:19 - 04. May, 2007 | Höfundur: einir

Fann look sem ég er að fíla soldið betur en hitt, þar sem mér fannst linkarnir til hægri allt of plássfrekir. Flokkaði líka öll bloggin eftir innihaldi eins og sést hérna til hægri þannig að auðveldara er að skoða gamlar færslur með tilliti til innihalds.

more…

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | 5 komment
færsla skrifuð kl. 04:01 - 26. March, 2007 | Höfundur: einir

Jæja, þá er maður búinn að skipta um kerfi hérna á síðunni auk þess sem ég fór í að skipta um útlit bara í leiðinni. Skipti yfir í aðeins skemmtilegra bloggkerfi sem heldur betur utan um færslurnar og er mun stöðugra. Er búinn að sitja sveittur fyrir framan tölvuna og henda öllum bloggfærslunum á milli kerfanna, en ég þarf einmitt að gera það færslu fyrir færslu… ekki alveg það skemmtilegasta. Nú á ég bara eftir að henda inn bloggi frá 2002-2004, en þann tíma notaðist ég við blogger.com.

Maður skellti sér svo á Hippaball í gær og ég verð bara að segja það að það kom mér á óvart hvað það var gaman. Fékk lánuð föt hjá Stebba, en þess má til gamans geta að ég var í fötum af systur hans og móður. Hahaha. En já, bara gaman og fullt af skemmtilegu liði sem maður hitti þarna. Endaði svo í partýi hjá Haffa litla eins og svo oft áður í Gimla, og svo skutlaði hún Ragnheiður Lind mér heim að lúlla. Bara skemmtilegt kvöld.

Ætla nú ekki að hafa þetta lengra, löngu kominn tími á að fara að sofa. Endilega komiði með komment á nýju síðuna…

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | 2 komment
færsla skrifuð kl. 22:24 - 05. March, 2007 | Höfundur: einir

Ok, það er bara kominn mánuður síðan síðast. Það náttúrulega verður að takast með í reikninginn að ég grillaði móðurborðið í tölvunni minni í febrúar og það tók sinn tíma að drulla nýju kvikindi frá Reykjavík til Eyja. Ég var alveg að verða geðveikur svona tölvulaus. Ferðatölvan náttúrulega búin að vera í viðgerð í tæpa 3 mánuði í London hjá Þórhalli. En það hafðist fyrir rest og ég setti kvikindið upp, skellti meira að segja Windows Vista í hana og ég verð bara að segja að það lofar andskoti góðu. Lookið er bara geðveikt… en öryggið er líka orðið eiginlega of mikið, eins og ykkur sé ekki drullusama =)

Annars fór maður í borgina um helgina þar sem Samfés (ball og söngvakeppni félagsmiðstöðvanna) var haldið. Við fórum með 35 krakkagemlinga héðan úr Eyjum sem voru alveg til fyrirmyndar alla helgina, ekkert hægt að kvarta undan þessum snillingum. Tók reyndar eftir einu á ballinu sem sló mig (og fleiri fararstjóra sem ég talaði við þarna) soldið, en það var klæðnaðurinn á stelpunum þarna! Guð minn almáttugur… þetta eru krakkar úr 8-10. bekk grunnskóla og stelpurnar eru alveg stífmálaðar og ekki nóg með það heldur eru þær í svo stuttum pilsum að ég veit ekki hvort hægt sé að kalla þetta pils lengur. Held ég taki nú bara í sama streng og Sigþóra, sem segir að þetta séu ennisbönd úr gallaefni… hahahahaha :-D

Annars er nú lítið að frétta af manni. Fæ ferðatölvuna á morgun… þannig að maður ætti að geta farið að taka sig á í skólanum, þar sem maður er nú kominn soldið eftir á þar. Maður rífur sig upp úr þessu eins og maður er vanur að gera.

Mig langar svo að enda þetta á því sem hefur farið í pirrurnar á mér síðastliðna daga… bara svona til að let it all out:

  • Póstur sem stílaður er á “Eyni Eynisson”
  • Fólk á sunnudagsrúntinum á öðrum vikudögum!
  • Umferðin í borg viðbjóðs
  • Stressið í borg viðbjóðs
  • Borg viðbjóðs
  • Þráðlausa netið hjá mér…
  • Óvissa með hitt og þetta
  • Hvað ég er gleyminn
  • Hvað ég er latur við að taka ljósmyndir
  • Hvað ég er latur við að blogga :D
  • Hvað ég er latur við að spila á gítarinn…

Þá er það komið… =) Ætla að kalla þetta gott í bili, kem svo með mynd af nýjasta fjölskyldumeðlimnum þegar hann kemur í hús á morgun! Hann er víst voðalega sprækur og ég get bara ekki beðið eftir að sjá’ann :-D

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment