Eldri færslur fyrir stikkorð » matur «

færsla skrifuð kl. 19:33 - 07. May, 2008 | Höfundur:

Já það er að koma sumar… reyndar komið samkvæmt dagatalinu en ég vil bíða aðeins lengur, allavega fram yfir próf. Það er nú þannig að ég klára próf 13. maí, nánar tiltekið á afmælisdaginn minn (tölum ekki meira um það). Svo tekur við sumarvinnan en það er nokkuð ljóst að mig mun ekki skorta atvinnu í sumar. Ég verð hjá Grími Kokk og með því mun ég svo vinna hjá Einari Birni um helgar í veislum og fleiru tilfallandi, en hann rekur núna veisluþjónustuna Einsa kalda. Þá kem ég einnig til með að vinna hjá þeim félögum á 24seven ehf, en þeir reka meðal annars frétta og umræðuvefinn eyjar.net. Þar mun ég sjá um að setja inn fréttir, taka ljósmyndir og vera með puttann á púlsinum í Eyjum í sumar. Svo er aldrei að vita nema Stefán á Café reyni að fá mann til sín svona inn á milli… þegar mest er, eins og var síðustu helgi! Það er ekki laust við að það sé komin svolítil tilhlökkun í mann, þar sem þetta er ekkert í líkingu við það sem maður hefur verið að gera síðastliðin sumur og á ég ekki von á öðru en að þetta verði skemmtileg tilbreyting.

Annars er sumarskapið að koma hægt og bítandi milli þess sem maður lærir undir lokaprófin. Við feðgarnir (ég, Ingólfur & pabbi) tókum okkur til og keyptum okkur glænýtt grill fyrir sumarið. Ég tók mér heila kvöldstund í að setja gripinn saman í gær þar sem ég var ekki að fara í próf í morgun. Þetta er ekkert smá grill, 4 undirbrennarar, einn yfirbrennari til að halda hitanum í grillinu og svo einn brennari á hliðinni. Svo er auðvitað kælibox á hinni hliðinni undir bjórinn… semsagt alvöru grill. Svo fylgir grillteinn með mótor svo hægt er að grilla læri og heila kjúklinga eins og ekkert sé. Læt hérna fylgja mynd af gripnum og ætla að kalla þetta gott… best að koma sér í lærdómsgírinn fyrir sálfræðipróf!

Grillmaster 3000

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , , ,  | 5 komment
færsla skrifuð kl. 14:29 - 16. February, 2006 | Höfundur:

Nú styttist orðið allsvakalega í helgina og fjörið sem henni fylgir. Piparsveinar Íslands voru nefninlega svo sætir að bjóða okkur Bergdísi (og nokkrum öðrum sem bæst hafa í hópinn) í mat á laugardagskvöldið :-D Það er nú samt eiginlega búið að breytast í svona nokkurskonar matarveislu… Við verðum örugglega 7 – 8 manns þarna og ætla ég og Bergdís að elda hinn margrómaða kjúklingarétt auk þess sem Gísli ætlar að töfra fram einhverja steikina. Þetta verður alveg magnað án efa, rauðvín og fínerí ;) Svo eftir matinn og smá spjall ætlum við að gerast svolítið menningarleg og kíkja á kaffihús… framhaldið mun svo bara ráðast þar en ég get næstum fullyrt að það innihaldi nokkurn bjór og jafnvel gin&tónik ef maður verður í góðu skapi :-)

En að allt öðru. Ég og Gísli skelltum okkur á uppistand á Nasa í gærkvöldi. Þar komu fram allnokkrir skemmtarar, sumir fyndnir, aðrir ekki. Ágætis kvöld svosem en það sem fór mest í pirrurnar á mér var að við þurftum að standa allan tímann. Komum reyndar heldur seint, eða korter í 8, en uppistandið var auglýst klukkan 8. Við biðum hinsvegar til að verða 9 og þá steig loksins Sylvía Nótt á sviðið, en hún átti að vera kynnirinn á þessu kvöldi. Eins og mér fannst hún viðbjóðslega leiðinleg er ég eiginlega farinn að fíla hana svolítið… :-) En svo kom maðurinn sem skemmdi kvöldið, ógeðisgaurinn sem er að dansa með henni í Eurovision laginu hennar. Var í ógeðis-outfittinu úr laginu og henti Sylvíu af sviði sem kom svo bara ekkert meira við sögu þetta kvöld. Heldur sá viðbjóðsmaðurinn um að kynna eftir þetta og var alltaf ‘púað’ á hann þegar hann steig upp á svið og fólk vildi fá Sylvíu Nótt. Enginn hló að honum þegar hann reyndi að vera fyndinn og þá tók hann upp á því að rakka fólk úr salnum niður… hahaha… þvílíkur api. Það voru nokkur atriði sem stóðu uppúr en í heildina held ég að Elísabet úr Stelpunum hafi verið með besta showið. Talaði um kynlíf og barneignir af stakri snilld :’-D

Jæja ætla að kalla þetta gott, bið að heilsa ykkur (h)

PS. Langar svo að vekja athygli á því sem Sæþór skellti í gestabókina… endilega leggið leið ykkar hingað og hjálpið til við að koma Hoffman á Skelduna með því að setja þá í Nordic band nr. 1 ;)

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 10:03 - 27. November, 2005 | Höfundur:

Hvað er betra en að skella sér í matarboð hjá fjölskyldu kærustunnar eftir djamm alla liðlanga nóttina með félögunum? Sést alveg í kílómetra radíus hvað maður aðhafðist kvöldið/nóttina áður. Ég var einmitt að koma úr einu slíku með Bergdísi eftir að hafa verið á feiknarlegu djammi með Gaua & Aroni sem létu sjá sig í borg óttans um helgina þar sem þeir eru að fara á Sigur Rósar tónleika í kvöld. Auk þeirra var ég með Gísla Stefáns, Gísla Böðvari, Jónasi og Bigga. Helvíti fínt bara og var maður kominn heim rúmlega 5 og var svo vaknað í hádeginu til að fara í þetta blessaða matarboð. Var vægast sagt helvíti tussulegur.

Svo er það bara London baby á þriðjudaginn (já, þið fáið að heyra þetta allavega einu sinni enn áður en ég fer út… og svo nokkrum sinnum eftir að ég kem heim ;) ). Maður er kominn með nettann fiðring í magann og farinn að hlakka svolítið til. Bergdís með þetta allt skipulagt hvað skal gera áður en við förum út og liggur við byrjuð að pakka niður. Þetta kvenfólk… Hvar væri maður samt án ykkar :-D
Jæja, ætla að taka sunnudaginn á þetta og gera barasta ekki rass í bala…

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 21:15 - 07. November, 2004 | Höfundur:

Já nú er helgin liðin með tilheyrandi djammi og látum. Fór í afmæli til Guðjóns á föstudaginn en kallinn varð 22 ára þann 6. nóv. Til hamingju með það enn og aftur ;) En já kvöldið byrjaði með kvöldmat a la Guðjón þar sem hann eldaði kjúlla og humar ofan í okkur… fínasti matur. Svo var byrjað að sötra og skellt sér í bæinn stuttu seinna þar sem maður fékk sér 1 – 2 kalda og fór svo heim… hahaha.. ég vildi að ég hefði gert það… neinei… lítill Einir fékk sér þónokkuð meira en 1 – 2 og fór ekki heim fyrr en seint og síðar meir. Varð aaaaaðeins of drukkinn enda var heilsan á laugardeginum ekki uppá sitt besta… Það stoppaði mig nú samt ekki í að taka á því aftur um kvöldið. Hitti Gísla Stefáns og við skelltum okkur í pool og svo niður í bæ. Maður var aðeins rólegri sem betur fer og kominn heim um 5 leitið…

En já… gengin í garð ný vinnuvika og lítið planað að gera í þessari viku. Jú kaupa eitt stykki afmælisgjöf þar sem Bergdís verður nú 19 ára á miðvikudaginn ;) Spurning hvað maður á að gefa henni. Það lemur í kjós :P Svo fer að líða að Eyjaferðinni mögnuðu en ég hef planað að skella mér í víking til Eyja 19. nóv þar sem til stóð að fara á Sálarball sem átti að vera í Höllinni 20. nóv en búið að færa til 27. nóv… það verður bara að hafa það. Alltaf hægt að finna sér eitthvað að gera í Eyjum og aldrei að vita nema maður nái að plata eins og einn eða tvo aðila í smá bjórsötur… ;)

Annars er eiginlega ekkert að frétta og lítið á döfinni hjá mér… nema þá helst að hlakka til Eyjaferðarinnar ;) en ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra og fara og njóta þynnkunnar yfir Shawshank Redemption eða Shrek 2… get ekki alveg ákveðið mig :D
laters…

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 16:24 - 07. July, 2002 | Höfundur:

Hmmm… helgin fór ekki alveg einsog var planað :) Við slepptum því að fara í Húsafell vegna dræmrar þátttöku. Ákváðum bara að vera í Eyjum og var fengið sér í glas bæði í gærkvöldi (þá var goslokahátíðin ógurlega niðrí Skvísusundi með Eygló, Lalla og Sigurrós á gítar… hörkustuð!) og á föstudaginn þar sem við grilluðum heima hjá Hlynsa kalli. Rauðvínsleginn svínahnakki… jummí :D Þar vorum það ég, Hlynur, Sæbjörg, Hildur Dögg, Viktor Smári og svo bættist Stebbi við aðeins seinna um kvöldið. Svo var það bara chill yfir góðri tónlist með bjór í hönd og ákvað liðið svo að fara í partí til Hlyns tigers. Þá fór Einir bara heim að sofa til að hvíla sig fyrir morgundaginn en aðalástæðan fyrir því var skortur á áfengi þetta kvöld ;)

En já, þetta var fínasta helgi og nú er það bara að halda sér á mottunni fram að Þjóðhátíð… sem er já btw bara 25 dagar í !!!
En ég er farinn út í góða veðrið…
Bæjó

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 19:49 - 20. May, 2002 | Höfundur:

Jæja, svo þið segið það já… 3 daga frí frá vinnu á enda og lítið sem mar gerði. Á föstudaginn gerði mar akkúrat ekki rass… sótti reyndar Ólöfu vinkonu í Herjólf sem er núna komin til að vera yfir sumarið, JEIJ! ;o) En já, svo á laugardeginum var eitthvað minniháttar fyllerí á vinahópnum heima hjá Gullu vinkonu sem var ein heima. Vorum bara svona milli 5 og 8 allan tímann og hlustað á allskyns tónlist, talað saman og spilað smá á gítar. Ágætis kvöld sem endaði um kl hálf 6 heima sofandi (allavega ég ;) Svo í gær var bara rúntað til miðnættis eða svo og svo tókum ég og Sæbjörg spólu, Corky Romano sem ég verð að segja að er algjör snilld… hélt ég myndi ekki hætta að hlæja… Hahahahaha. En allavega, svo er kominn mánudagur núna, Sæbjörg fór í vinnu kl. 6 þannig að ég tók mig til og sló blettinn fyrir mömmu og pabba, svo er pabbi að grilla núna svín og kartöflugratínið er að verða tilbúið inní ofni :D Þannig að ég ætla að fara að drulla mér að éta áður en þau klára þetta…
Bið að heilsa ykkur…!

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 18:48 - 16. May, 2002 | Höfundur:

Ok, ég er orðinn 19 ára… shit. Varð 19 ára þann 13. maí síðastliðinn. Hef ekki postað í allan þennan tíma því ég er enn að ná því að ég er orðinn 19 ára… HEHE ;) nei ég segi bara svona, en vá… mér finnst ég vera orðinn gamall. En hvað með það, lítið búið að vera að ske frekar en vanalega hjá mér… bara vinna og svona leiðindi. En það er að koma helgi og ÁMS að spila í Höllinni á morgun ;) Svo frí á mánudaginn þannig að þessi helgi boðar ekki gott :D Arndís og Sara eru að koma með Herjólfi í kvöld um 10 leitið og mar verður þar að taka á móti þeim. Arndís á svo afmæli á laugardaginn og þá verður sko fengið sér heldur betur neðan í því =)
En nú ætla ég að fara að drulla mér út að borða í boði Sveinbjörns í tilefni þess að ég átti afmæli á mánudaginn :D
Yfir og út.

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 17:32 - 01. May, 2002 | Höfundur:

Jæja, þá er frídagur verkamanna genginn í garð ásamt besta mánuði ársins… Maí! :D Allavega, fyrst það var nú frí hjá manni í dag ákvað maður að skella einsog nokkrum bjórum framan í sig í gær þannig að við fórum heim til Önnu vinkonu og djúsuðum eitthvað smá þar. Alveg merkilegt hvað þessir drykkjuleikir ætla að lifa… þetta er alveg skelfilega leiðinlegt… sitja við borð og draga einhver spil blablabla. Þá styð ég nú frekar að sitja bara öll í hring og þegja. En nóg um það, þetta var bara eitt af þessum *hefekkertbetraaðgera* fylleríum. En já, ég tók mig til og grillaði rétt í þessu. Þessar líka fínu rauðvínslegnu svínasteikur… svo náttúrulega kartöflugratín og piparsósu með. NAMM! Ég grillaði 6 steikur og það urðu 3 afgangs þar sem helmingurinn af fólkinu sem átti að vera í mat mætti ekki, þannig að ef þið eruð svöng þarna hinum megin við skjáinn þá eru 3 girnilegar svínasteikur ásamt einum bakka af kartöflugratíni á boðstólnum á Brimhólabraut 1, bara fyrir þig. Úrslitin úr þessari skoðanakönnum sem ég setti hérna upp urðu sú að flestum hefur aldrei verið meira saman á ævinni hvort þetta samræmda stærðfræðipróf verði kært eður ei. En jæja, best að fara að gera eitthvað af viti.
Veriði sæl.

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment