Eldri færslur fyrir stikkorð » london «

færsla skrifuð kl. 19:15 - 12. November, 2007 | Höfundur:

Það er aldeilis sem þessi blessaði tími líður. Nóvember er um það bil hálfnaður og það þýðir bara eitt, jólin eru á næsta leiti. Það er nú reyndar alveg einn og hálfur mánuður síðan maður sá fyrstu jóla auglýsinguna, þar sem Garðlist eða hvaða fyrirtæki það var auglýsti í gríð og erg jólaskreytingaþjónustu og að fólk ætti að panta tímanlega fyrir jólin. Mér hefur reyndar alltaf þótt hund leiðinlegt að jólaskreyta en kommon… ráða menn í vinnu við að skreyta húsið sitt? Ég hugsa allavega að það væri eitt af því síðasta sem mér dytti í hug… alveg sama hversu stressaður og í mikilli tímaþröng maður væri.

Nú eru hins vegar allflest fyrirtækin sem auglýsa af einhverju viti í sjónvarpi komnar með jóla-auglýsingarnar í gang. Margir tala um að verið sé að fyrirtæki séu að reyna að teygja ‘jóla törnina’ til þess að græða sem mest. Ég veit ekki með ykkur en þótt ég sjái jólaauglýsingu eða skraut í október kemst ég ekkert fyrr í jólaskapið góða. Jólin eru hátíð fjölskyldunnar og er það algjörlega undir minni fjölskyldu komið hvenær ég kemst í jólaskap. Þegar mamma setur jóladisk í spilarann og byrjar að skreyta heima fyrir og þegar fólkið byrjar að tala um hvað það eigi eiginlega að gefa hinum og þessum í jólagjöf.

Það er að skapast nokkur hefð fyrir því hjá mér að skreppa til Þórhalls bró og Hrundar í London fyrir jólin og ætla ég að sjálfsögðu ekki að bregða út af vananum þessi jólin. Ég, Thelma, Ingólfur bró og Kristrún ætlum að skella okkur til þeirra strax eftir próf, eða 13. des og verðum við í jólagjafainnkaupum og fleiru til 17. des. Algjör snilld að klára jólagjafakaupin í London… ódýrara & aaaaaðeins fjölbreyttara úrval. Mæli með þessu!

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , , ,  | 14 komment
færsla skrifuð kl. 00:00 - 13. May, 2007 | Höfundur:

Þá situr maður í mestu makindum heima hjá Þórhalli & Hrund og horfir á sjónvarpið. Við lentum í London kl 3 að staðartíma og týndum því einum klukkutíma frá því á Íslandi, þar sem Bretland er einum klukkutíma á undan okkur heima. Við komum öllu draslinu heim til Þórhalls milli 5 og 6 í dag og skelltum okkur svo í bæinn að versla. Þess má geta að Olga missti sig eins og sönnum kvenmanni sæmir í H&M og komum við svo heim til Þórhalls að horfa á Eurovision.

Svo verður morgundagurinn tekinn snemma, en við ætlum í bæinn með mömmu, pabba, Þórhalli og Hrund. Þar verður verslað og skoðað sig um, en Bjarni hefur aldrei komið hingað áður. Við komum örugglega til með að fara snemma í háttinn þar sem við eigum svo flug til Nice kl 6:10 á mánudagsmorgun :o

Þetta er búinn að vera fínn dagur þrátt fyrir smá ferðaþreytu í liðinu og verður væntanlega meira fjör á okkur á “morgun”… á afmælisdaginn minn… kallinn orðinn 24. ára. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir ;)

Þangað til næst…

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , ,  | 6 komment
færsla skrifuð kl. 04:40 - 16. December, 2006 | Höfundur:

Nýýýkominn heim af djamminu! Ókei, það eru ekki jafn ljótar stelpur og ég hélt hérna, eða bara að ég er orðinn soldið drukkinn! HEHE. En allavega. Arndís verslaði af sér rasssssssssssssssssssssinn í dag og ég iPoddaðist eins og moðerfokker… kominn með græjurnar til að hjóla og alles með kvikindið. Fórum á TGI Fridays áðan og drukkum kokteila frá HELVÍTI á meðan helvítis barþjónninn (Miller, hann heitir það án djóks) henti í okkur staupum eins og hann fengi borgað fyrir það… sem hann auðvitað fær, en rukkaði okkur ekkert….

MAKING FRIENDS WITH THE MILLENATOR… :-D

Við ætlum að kíkja á hann auðvitað aftur á morgun, en ekki hvað? Förum út að borða með Þórhalli og Hrund á morgun. Það verður snilld, endum á Friday’s hjá Miller í kokteilum dauðans. Djæsus… Ætla að henda mér í bólið… hittumst hress á mánudaginn, ef ég reporta ekki inn fyrrr ;-)

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 00:54 - 14. December, 2006 | Höfundur:

London baby!
Jæja, þá erum við Arndís barasta stungin af til London! Fljúgum í hádeginu á morgun (fimmtudag) og komum aftur á mánudagsmorgun… Þetta verður án efa algjör snilldar ferð, enda ekki við öðru að búast þegar 2 meistarar á borð við okkur skella sér út fyrir landsteinana. Við hittumst svo bara hress og kát á tjúttinu í Eyjum milli jóla og nýárs… eða bara fyrr?
Allavega, hafiði það gott á meðan við erum í burtu og í guðanna bænum hagiði ykkur.
Later!

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 16:17 - 07. December, 2005 | Höfundur:

Þessi Lundúnaferð var í einu orði sagt algjör-argasta-snilld. Maður er örlítið þreyttur eftir allt þetta blessaða labb… eltandi Bergdísi inn í hverja búðina á fætur annarri… Nei ég segi svona. Við vorum bæði mjög dugleg í að versla, bæði á okkur og jólagjafirnar! Ég held ég hafi aldrei á ævinni byrjað svona snemma á jólagjafainnkaupum. Við kláruðum næstum því allar jólagjafirnar og geri aðrir betur. Það þýðir bara það að ég verð að finna mér eitthvað annað til að hafa áhyggjur af fram að jólum (ekki það að ég hafi haft einhverjar áhyggjur yfir jólagjafainnkaupum síðastliðin ár, enda Vestmannaeyingur í húð og hár með mottóið “Þetta reeeeeddast” þótt komið sé fram á Þorláksmessukvöld og ekki ein gjöf komin í hús :-D ). Kannski að ég hafi áhyggjur af fríi yfir hátíðarnar, þar sem það lítur út fyrir að ég þurfi að koma upp á land og vinna milli jóla og nýárs. Reyndar þarfnast maður alveg peningsins eftir Londonferðina þar sem maður missti sig aðeins í H&M og fleiri óóóódýrum búðum. Ég og Bergdís þurfum einmitt að fara með 3 poka af fötum í Rauða Krosinn svo við komum þessu fyrir ;)
En við tekur hversdagslífið, sem er frekar súrt eftir ljúfa lífið með Þórhalli bróður og Hrund í London. Jólatörnin að byrja í vinnunni og nóg sem bíður eftir fríið góða. Og strax er ég farinn að hugsa um jólafríið (sem verður kannski ekkert af þar sem jólin og áramót hitta akkúrat á helgi… sem er ööööömurlegt!). Keypti mér einmitt ferðatölvu í London ;) Sem kemur sér mjög vel ef ég fæ frí milli jóla og nýárs, þar sem nokkrir vel valdir nördar ætla að halda jólalan… svona upp á gömlu tímana :-D
Já og svo ætla ég að slútta þessu á enn einu kítlinu, Elena systir er mikill kítlari og nýðist á litla bró… here goes

  • Núverandi föt: Kvartbuxur og háskólabolur
  • Núverandi Skap: Svona helvíti góður
  • Núverandi hár: Tussulegt
  • Núverandi Pirringur: Langar í jólafrí
  • Núverandi lykt: Between Sheets
  • Núverandi hlutur sem þú ættir að vera að gera: Vera í London
  • Núverandi skartgripir:
  • Núverandi áhyggjur: Jólafrí…
  • Núverandi löngun: Að vita hvað mig langar að verða…
  • Núverandi ósk: Að Man Utd komist ekki áfram í Meistaradeildinni
  • Núverandi farði: Mætti halda að stelpa hafi búið þennan lista til… :-P
  • Núverandi eftirsjá: Að vera ekki búinn að ákveða hvað mig langar að verða…
  • Núverandi vonbrigði: Að hafa þurft að fara frá London :-(
  • Núverandi skemmtun: Jailbreak
  • Núverandi ást: Bergdísin mín
  • Núverandi staður: Kópavogurinn
  • Núverandi bók: Er það eitthvað á brauð eða?
  • Núverandi bíómynd: Man ekkert hvað ég horfði á síðast…
  • Núverandi íþrótt: Fótbolti
  • Núverandi tónlist: Jólalög
  • Núverandi lag á heilanum: Ekkert
  • Núverandi blótsyrði: wtf
  • Núverandi MSN manneskjur: gulli svaka
  • Núverandi Desktop mynd: Lindsay Lohan áður en hún varð viðbjóðslega mjó
  • Núverandi áætlanir fyrir kvöldið: Taka til bæði í herberginu og tölvunum :-.
  • Núverandi manneskja sem ég forðast: Enginn
  • Núverandi dót á veggnum: Hillur & myndir

Magnað alveg hreint og greinilegt að þetta kítl er ekkert á leiðinni að hætta. Ég ætla að kalla þetta gott og fara að gera eitthvað af viti. Hendi inn myndum frá London í lok vikunnar ;) Chiao bella…

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 12:46 - 28. November, 2005 | Höfundur:

…sem er að fara til London á morgun!

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 10:03 - 27. November, 2005 | Höfundur:

Hvað er betra en að skella sér í matarboð hjá fjölskyldu kærustunnar eftir djamm alla liðlanga nóttina með félögunum? Sést alveg í kílómetra radíus hvað maður aðhafðist kvöldið/nóttina áður. Ég var einmitt að koma úr einu slíku með Bergdísi eftir að hafa verið á feiknarlegu djammi með Gaua & Aroni sem létu sjá sig í borg óttans um helgina þar sem þeir eru að fara á Sigur Rósar tónleika í kvöld. Auk þeirra var ég með Gísla Stefáns, Gísla Böðvari, Jónasi og Bigga. Helvíti fínt bara og var maður kominn heim rúmlega 5 og var svo vaknað í hádeginu til að fara í þetta blessaða matarboð. Var vægast sagt helvíti tussulegur.

Svo er það bara London baby á þriðjudaginn (já, þið fáið að heyra þetta allavega einu sinni enn áður en ég fer út… og svo nokkrum sinnum eftir að ég kem heim ;) ). Maður er kominn með nettann fiðring í magann og farinn að hlakka svolítið til. Bergdís með þetta allt skipulagt hvað skal gera áður en við förum út og liggur við byrjuð að pakka niður. Þetta kvenfólk… Hvar væri maður samt án ykkar :-D
Jæja, ætla að taka sunnudaginn á þetta og gera barasta ekki rass í bala…

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 00:30 - 24. November, 2005 | Höfundur:

Nú eru liðnar nákvæmlega 2 vikur síðan ég bloggaði síðast og auðvitað fagna ég því með því að skella inn eins og einu bloggi eða svo. Lítið að frétta af mér hér í borg óttans nema hvað að nú fer alveg að koma að því sem annar hver íslendingur hefur beðið með mikilli eftirvæntingu… Ég og Bergdís förum til London á þriðjudaginn og komum ekki aftur fyrr en mánudaginn 5. des, flestum til mikillar ánægju :-D Djöfull er mann farið að hlakka til. Helgin er að renna í hlað og fékk ég þær fréttir frá Söngdísinni minni að Árni, Gaui, Aron og hugsanlega einhverjir fleiri ætli að leggja leið sína í bæinn. Ekkert nema gott um það að segja og löngu kominn tími til… látið sjá ykkur allt of sjaldan hérna… Svo má auðvitað ekki gleyma að Arndís sæta kemur auðvitað líka ;)

En já, Elena systir kitlaði mig víst… ég fann reyndar ekki fyrir neinu en ætla nú ekki að skemma keðjuna :-P

Hlutir sem ég ætla gera áður en ég dey:

1. Ferðast eins mikið og ég mögulega get.
2. Stofna fjölskyldu.
3. Finna út hvað mig langar að verða.
4. Flytja út á einhverjum tímapunkti
5. Finna mér framtíðarstarf sem ég er ánægður í

Hlutir sem ég get ekki gert:

1. Flogið
2. Gleymt Vestmannaeyjum
3. Verið án vinanna
4. Talað mandarín
5. Verið án internetsins

Hlutir sem ég get gert:

1. Hangið í tölvunni daginn út og inn
2. Borðað Subway í öll mál
3. Misst mig í FIFA
4. Horft á 24 & Prison Break
5. SOFIÐ

Hlutir sem heilla mig við hitt kynið:

1. Fallegt bros
2. Góður persónuleiki
3. Húmorinn verður að vera í lagi
4. Rassinn auðvitað
5. Og brjóstin ;)

Frægt kvenfólk sem heilla mig:

1. Natalie Portman
2. Elisha Cuthbert
3. Halle Berry
4. Lacey Chabert
5. Jessica Simpson

Orð sem ég segi oft:

1. Hæ
2. What the f*ck
3. HEHE
4. Sko
5. Jeje…

Hlutir sem ég sé akkurat núna:

1. Videoflakkarann
2. Vekjaraklukku
3. Myndavél
4. Geisladiska
5. Netkort
Ætla að kalla þetta gott og koma mér í háttinn. Ætla mér að ‘kitla’ Árna Óla, Jónas (sem var einmitt að byrja að blogga!), Gullu, Ólöfu & Hjört Nistelrooy ;)

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 01:21 - 03. November, 2005 | Höfundur:

Voðalega líður tíminn orðið hratt… ég sverða mér finnst ekki meira en svona 5 dagar síðan Manchester United tapaði 4 – 1 fyrir Boro í deildinni og þeir eru aftur búnir að tapa… 1 – 0 fyrir Lille í Meistaradeildinni… HEHEHE aðeins að skjóta á Rauðu Djöflana í vinahópnum ;) En annars er það alveg satt… tíminn flýgur. Ekki nema tæpar 4 vikur í það að ég og Bergdís verðum í London hjá Þórhalli og Hrund. Vá ég get ekki beðið… ætlum að gera öll okkar jólagjafainnkaup þar auk þess sem maður kaupir kannski ‘smá’ af fötum á sjálfan sig… ekki veitir af :-D Þannig að við eigum eftir að koma vel klifjuð til Íslands aftur… ;)
Horfði á Ástarfleyið áðan. Fínasti þáttur, loksins eitthvað að fara að ske í þessu. Halli kallinn á kantinum tekur sig bara vel út á skjánum, heillar stelpurnar greinilega uppúr skónum með gítarhæfileikum sínum… og djöfull fer þessi rauðhærða í mínar allra fínustu… athyglissýkin á hæsta stigi og lætur eins og hún eigi pleisið, minnir mig á ónefnda frænku mína. Ef henni verður ekki hent frá borði í næsta þætti skal ég hundur heita! En það á víst að vera þannig í næsta þætti að stelpurnar eiga að velja 2 stráka sem eiga að yfirgefa bátinn og strákarnir að velja 2 stelpur… Og þar sem maður horfir nú á þetta á annað borð verð ég að koma með mínar tilnefningar á þeim sem ég held að munu yfirgefa fleyið í næsta þætti:

Strákarnir:
Ég hugsa að ég verði að segja að þessi svarti (er ekki kynþáttahatari btw) muni fara. Maður hefur EKKERT séð af honum í þessum þáttum og ég hafði ekki einu sinni hugmynd að hann væri í þáttunum fyrr en eina setningin sem ég hef heyrt hann segja kom út úr honum í þessum þætti, og það meikaði akkúrat ekkert sense. Hinn sem ég held að muni ganga plankann er þessi ljóshærði (ekki Halli) skuggalegi, creepy gaurinn sem er eins og ljóshærður Stulli… Vestmannaeyingar vita hvað ég meina (allavega þeir sem hafa horft á Ástarfleyið:)

Stelpurnar:
Án efa mun þessi rauðhærða fara, hún mætti ganga plankann tvisvar fyrir mér! Held að hún heiti Hafdís og tókst henni mjög vel að fara í taugarnar á mér. Hin sem ég myndi giska á er mamman í hópnum. Þrítuga konan sem ég held að sé aldursforsetinn. Fannst hún ekki alveg passa þarna inn og það sást líka eiginlega á henni.

En hvað haldið þið hin? Hverjir haldið þið að verði sendir heim í næsta þætti? Endilega komiði með ykkar spá um hverjir verða látnir taka pokann sinn. Svo getur náttlega vel verið að þetta sé bara eitthvað áhorfstrikk hjá þáttarstjórnendum til að láta fólk verða spennt og horfa pottþétt á næsta þátt… hver veit? En allavega komiði með ykkar spá ;)

Jæja… ætla að fara að kalla þetta gott, kominn tími á svefn.
Góða nótt góðir hálsar.

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 01:24 - 11. October, 2005 | Höfundur:

Já við skelltum okkur í sund í kvöld. Fórum eftir kvöldmat og var þetta bara fínasta fínt. Slaka á í pottunum eftir vægast sagt erfiðan dag. Skelltum okkur í Árbæjarlaugina og höfðum það gott í pottunum þar í dágóða stund, eða þangað til við vorum orðin eins og sveskjur (aðallega ég þó) og ákváðum að fara uppúr og skella okkur í ísbúðina niðrí Skeifu til að fá okkur kjöööööörís ;) Komst að því að það er kominn banana og mokkaís úr vél… smakkaði bananaísinn og hann er bara helvíti góður.

Rakst á skemmtilega síðu þar sem settar eru fram 10 fáránlegustu vörur framtíðarinnar… margar hverjar helvíti skondnar og verð ég nú að segja að þessi í 1. sæti sé gott skot á Apple, þar sem þeir hafa verið iðnir við að koma með nýja og nýja gerð af iPod :-D

En jæja… löngu kominn tími á svefn hjá manni, styttist óðum í Eyjaferðina þarnæstu helgi og svo auðvitað LONDON BABY..
Jæja farinn að sofa, góða nótt.

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment