Eldri færslur fyrir stikkorð » ljósmyndun «

færsla skrifuð kl. 11:00 - 12. March, 2009 | Höfundur: einir

Haldiði að maður hafi ekki bara tekið sig til og farið í göngu í Elliðaárdalnum í vikunni, en tilefnið var auðvitað að Þórhallur bróðir kom með nýju Canon EOS 50D myndavélina mína til landsins um síðustu helgi. Auðvitað varð ég að prufukeyra gripinn og varð Elliðaárdalurinn fyrir valinu, þar sem hann er svona stysta leið í náttúru hér á höfuðborgarsvæðinu að ég held. Fór út á mánudagseftirmiðdegi og náði nokkrum góðum skotum, aðallega af fuglum. Mikið rosalega er hressandi að skella sér í svona smá göngu og ekki skemmdi veðrið fyrir, enda var fullt af fólki að hreyfa sig þarna. Ætla að láta fylgja með eina mynd, en restin af myndunum er inná flickR-inu mínu.

Taking a swim

Annars er bara gott að frétta af mér héðan úr Reykjavíkinni. Námskeiðið er rúmlega hálfnað og gengur bara vel, hefði verið betra fyrir Vestmannaeyinginn mig að hafa skólann allan daginn í 2 vikur í staðinn fyrir hálfan daginn í 4 vikur en þeir eru væntanlega að hugsa um hinn vinnandi mann hér í Reykjavíkinni, þótt helmingurinn sem er með mér hérna á námskeiðinu séu atvinnulausir… Svona er bara staðan í dag, nú reyna menn að ná sér í menntun til að eiga meiri möguleika á vinnu og þá kannski betri vinnu seinna meir. Maður má eiginlega bara þakka fyrir að hafa vinnu…

Annars er ég á leiðinni heim til Eyja á morgun og get ekki beðið! Er búinn að vera í bænum í tæpar 3 vikur og það kalla ég bara nokkuð gott fyrir mig að höndla :-) Það er víst nóg að gera en það er bæði ball í Höllinni og eitthvað DJ kvöld á Prófastinum á laugardaginn svo það er spurning hvað maður gerir… Jæja, pásan búin – læra meira!

Flokkað undir: Daglegt líf  | Stikkorð: , ,  | 2 komment
færsla skrifuð kl. 22:54 - 30. January, 2009 | Höfundur: einir

Jæja ætli maður verði ekki að henda inn allavega einni færsu áður en janúar klárast. Ingólfur lille bro átti afmæli í gær og vil ég óska honum hjartanlega til hamingju með 19. árið.

Það sem meðal annars hefur á daga mína drifið í þessum blessaða janúarmánuði er aðallega vinna og aftur vinna. Mikið er nú gaman að vinna við það sem maður hefur áhuga á. Ég held ég geti sagt það í fyrsta skipti á ævinni að ég sé kominn í vinnu sem ég gæti séð mig vinna við í framtíðinni… og það er mjög stórt skref fyrir mig! Og ekki skemmir fyrir þegar yfirmaðurinn segir við mann:

“Einir við þurfum svo að setjast niður saman og finna námskeið sem þig langar á til að auka þekkingu þína á tölvum/viðgerðum/netkerfum eða bara því sem þig langar að læra meira um.”

Ég er búinn að vera að leita mér upplýsinga á netinu um svona námskeið og held ég hafi meira að segja fundið eitt bitastætt sem reyndar hefst strax í lok næsta mánaðar, spurning hvort fyrirvarinn sé nægur – en það kemur bara í ljós.

Í öðru lagi varð ég ástfanginn af nýrri myndavél ekki alls fyrir löngu, kærustunni til mikillar ánægju. Nei ég segi svona, held hún sé alveg semí sátt bara. Canon EOS 50D er á góðri leið með að verða mín ásamt nýrri EF-S 17-85mm linsu sem verður góð viðbót í safnið.

 

Canon EOS 50D

Canon EOS 50D

Annars er held ég bara allt gott að frétta, það er kominn flöskudagur – mér finnst reyndar bara alltaf vera helgi. Ég sit hérna niðrí Féló, búinn að vera í vinnu síðan 8 í morgun og ætla bara að taka því rólega í kvöld… Thelma komin með hita og svona svo ég held það sé bara vídjógláp og nammi… spara sig fyrir morgundaginn. Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra…

(Vúhú, mér tókst að blogga ekki um ástandið á Íslandi í dag! Get reyndar ekki lofað því að það næsta verði það ekki heldur… það er ýmislegt sem maður vill tjá sig um!)

Flokkað undir: blog  | Stikkorð: , , ,  | eitt komment
færsla skrifuð kl. 22:59 - 13. November, 2008 | Höfundur: einir

Ég skellti mér upp á land síðustu helgi með Féló (já, ég er byrjaður að vinna þar aftur =), nánar tiltekið á Selfoss þar sem okkar maður Sindri Freyr Guðjónsson tók þátt fyrir hönd Féló í Samstuð – söngvakeppni félagsmiðstöðva á Suðurlandi og er þetta svona eiginleg undankeppni fyrir söngkeppni Samfés sem haldin verður í lok febrúar á næsta ári. Fimm keppendur af 16 komust áfram í lokakeppnina og gerði Sindri sér lítið fyrir og nældi sér í miða á úrslitakvöldið, glæsilegt hjá honum.

Það var samt ekki það sem ég ætlaði að tala um hér heldur fyrirlestur sem ég, Sigþóra og að ég held allir krakkarnir frá Eyjum skelltu sér á. Þetta var fyrirlestur um tilvist geimvera og að sjálfsögðu var Magnús nokkur Skarphéðinsson (bróðir Össurar) fenginn til að kynna þetta efni fyrir áhugasömum unglingum, og okkur Sigþóru. Ég ætla að byrja á að segja að ég hef ávallt verið mjög skeptískur á tilvist geimvera, en jafnframt ekki gert mikið í því að fræðast um þetta ‘fyrirbæri’ af einhverri alvöru. Það er lítið fjallað um þessi mál og fólk sem segist hafa séð fljúgandi furðuhluti almennt talið geðbilað. Magnús kom nú samt með nokkur dæmi sem sönnun á tilvist geimvera og eiga Bandaríkjamenn víst að hafa í vörslu sinni einhverja 9 fljúgandi diska sem hafa brotlent þar, en neita því alfarið.

Hann sagði okkur einni frá einhverjum bónda í Sviss sem á fleiri tugi þúsunda ljósmynda af fljúgandi furðuhlutum sem reglulega komu í heimsókn til hans og tóku hann meðal annars með sér á sína plánetu, man ekki alveg hvað hann sagði að sú pláneta héti. Það sem mér fannst kannski undarlegast var að geimverurnar leyfðu honum að taka myndir af fljúgandi diskunum sínum en aldrei af sjálfum geimverunum og ekki heldur af plánetunni þeirra. Frekar gruggugt en þetta var nógu spennandi til að halda krökkunum við efnið, enda hef ég sjaldan séð unglinga hlusta á fyrirlestur með jafn miklum áhuga… meira að segja ég er farinn að lesa mig til um þetta á netinu…

En jæja, ætla að kalla þetta gott. Læt fylgja með myndir sem ég tók núna á sunnudaginn hérna í Eyjum annars vegar af sólarlagi vestur á hamri og hins vegar haustmynd dauðans. Njótið vel…

Flokkað undir: Daglegt líf  | Stikkorð: , ,  | 3 komment
færsla skrifuð kl. 02:03 - 09. May, 2007 | Höfundur: einir

Já það er verulega farið að styttast í utanlandsferðina. Ég fer til Reykjavíkur á fimmtudaginn (á morgun tæknilega séð) og svo til London á laugardaginn. Við verðum þar í 2 daga og hitti svo á að mamma og pabbi verða akkúrat í London á þessum tíma svo við munum horfa saman á Eurovision hjá Þórhalli bróður og Hrund ásamt því að ‘fagna’ 24 ára afmælinu mínu daginn eftir.

Svo verður flogið til Nice í Frakklandi á mánudagsmorgun og ætlar hún Gvuní að taka á móti okkur með alls kyns kræsingum og að sjálfsögðu lofaði hún sól og blíðu! Þar verðum við í 8 daga og fljúgum svo aftur til London. Þar eyðum við 2 síðustu dögum af fríinu á TGI Fridays, sem er einn mesti snilldar veitingastaður sem ég hef komið á (allt annað en krapið sem er í Smáralindinni)

Nú er bara að fara að kjósa á morgun, fara í klippingu og pakka niður. Er eiginlega búinn að ákveða hvað ég ætla að kjósa, og í sambandi við farangur í þetta ferðalag ætla ég bara að taka eurotrip aðferðina sem við Árni Óli tókum 2004. Hún innihélt bakpoka en ég ætla þó að fá að stækka það í litla ferðatösku. Taka eins lítið af dóti með mér af því það er óþolandi leiðinlegt að ferðast með þunga tösku, plús það að maður kaupir sér alltaf sitthvað í svona ferðum, betra að vera með pláss fyrir það :)

Já svo skellti ég mér upp á Heimaklett í fyrsta skiptið á ævinni í dag, til hamingju ég, en við fórum nokkrir vel valdir í þessa ferð og tók ég að sjálfsögðu nokkrar myndir. Flestar voru þær ekkert sérstakar þar sem það var svona gráskýjað og leiðinlegt, en ég henti samt nokkrum myndum inn á flickR-ið.

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | 8 komment
færsla skrifuð kl. 02:18 - 29. March, 2007 | Höfundur: einir

Já ég skellti mér í hjólreiðatúr í góða veðrinu í gær. Mikið er ég nú feginn að það sé alveg að koma sumar og maður geti farið að gera meira af því að njóta þess að vera úti. Svo ég tali nú ekki um að það er hundrað sinnum skemmtilegra að taka myndir í góðu veðri en rigningu og viðbjóði. Það er einmitt það sem ég gerði í gær, ég tók myndavélina með í för og smellti af nokkrum kvikindum. Komst reyndar að því að eg þarf að fara að hreinsa allt draslið mitt, búið að safna ryki allt of lengi.

Svo er það helgin næsta. Ég tók að mér að fara með 2-3 krakka úr Féló á landsfund félagsmiðstöðva sem haldinn verður á Selfossi næsta laugardag og er svona að velta því fyrir mér hvort maður eigi að framlengja þeirri ferð og kíkja í bæinn yfir helgina. Mamma og pabbi verða einmitt í bænum svo það er spurning hvort maður breyti ekki út af vananum og kíki í bíó og kannski eitthvað út að borða og svona fínerí… en það kemur allt í ljós.

Jæja ætla að kalla þetta gott og láta fylgja eina mynd af því sem ég tók í gær, getið séð restina á flickR síðunni minni.

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | eitt komment
færsla skrifuð kl. 18:33 - 12. October, 2006 | Höfundur: einir

Jæja, ég er búinn að henda saman nokkrum tvennum eftir ykkar ábendingum og mínum hugmyndum. Það sem þið sjáið eru heldur smækkaðar útgáfur af myndunum en ætti samt að vera nokkuð auðvelt að dæma út frá þessu. Svarti bakgrunnurinn er s.s. blaðsíðurnar í bókinni, en umbrotið á bókinni er 1:1 (ferningslaga) og þar sem flestar myndavélar taka í 2:3 (10×15cm t.d.) þá verða sumar myndirnar með svolítið autt pláss bæði fyrir ofan og neðan. Klippti reyndar þær myndir sem ég gat til svo þær pössuðu betur. En here goes:

1. Smábátahöfn & smáeyjar

2. Smáeyjar 1 & 2

3. Kristján Ingi & Adrian Snær

4. Traktor & pallbíll

5. Fiðrildi & blóm

6. Dalfjall og smáeyjar

7. 13. flöt & smáeyjar

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 23:32 - 11. October, 2006 | Höfundur: einir

Nú verð ég að hryggja ykkur kæru lesendur þar sem þessi færsla mun ekki innihalda annan hluta ferðasögunnar miku norður yfir heiðar. Nei, nú verð ég að biðja ykkur um allsvakalega aðstoð þar sem ég var búinn að steingleyma að ég hafði skráð mig til þátttöku í Ljósári – árbók áhugaljósmyndara á Íslandi. En þannig standa nú mál að ég á að vera búinn að velja mér 2 myndir til að setja í þessa blessuðu bók en hef ekki enn náð að ákveða mig, þess vegna bið ég ykkur vinsamlegast að hendast inn á flickR síðuna mína og skoða kvikindin sem ég er búinn að setja þangað. Ætla mér að henda fleirum þangað inn í kvöld til að fá meira úrval en ég er svona nokkurnveginn kominn með allavega eina mynd sem ég ætla mér að setja. Ætla ekki að segja hvaða mynd það er heldur vil ég fá sem flestar ábendingar frá ykkur! Það er nokkuð sem þarf að hafa í huga þar sem þetta verða 2 myndir hlið við hlið (semsagt ein opna í bókinni):

  • Myndirnar verða að “passa saman” (ekki t.d. mynd af rós og svo mynd af flugvél)
  • Myndirnar verða að hafa svipað litaþema
  • Svarthvítt og litur passa ekki saman (ekki það að ég sé með svarthvítar myndir =)

Endilega skoðiði myndirnar og komiði með tillögur! Helst 2 eða bara eina ef þið finnið enga aðra.. =)
Með fyrirfram þökk!
Einir hinn örvæntingafulli…

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð:  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 19:22 - 09. September, 2006 | Höfundur: einir

Jæja, þá er ég staddur í Reykjavíkinni yfir helgina þar sem ég er að sækja restina af dótinu mínu og slappa aðeins af. Reyndar er Arndís að draga mann á eitthvað skrall í kvöld svo það er spurning hvað verður úr kvöldinu í kvöld. Mig langar eiginlega líka til að sjá Pirates of the Caribbean í bíó… en það kemur í ljós hvað maður gerir.

Já svo tók ég þátt í ljósmyndakeppni á ljósmyndakeppni.is, varð í 2. sæti í keppni um að fá myndina sína birta í ágústmánuði á dagatali sem gefið verður út á næsta ári. Svona líka ljómandi sáttur við fyrstu ljósmyndakeppnina sem ég tek þátt í. Getið séð úrslitin og myndirnar hér.

En já, ætla að fara fá mér að éta… orðinn veeeeel hungraður. DJÖFULL HEF ÉG SAKNAÐ SUBWAY!
Chao.

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 17:13 - 21. August, 2006 | Höfundur: einir

Jæja þá er stundataflan komin í hús. Ég ákvað að skipta yfir á Félagsfræðibraut, en ég var á Náttúrufræðibraut þegar ég byrjaði í skóla. Er reyndar á báðum áttum núna en ætla að skoða þetta allt saman betur með Helgu Kristínu á morgun. Stundataflan lítur bara ágætlega út, vantar samt eitthvað eitt fag til að fylla upp í leiðindagöt. Verð þá væntanlega með 19 einingar, svo nú tekur bara við upprifjun á því að vera í skóla :D En þetta leggst samt bara vel í mig. Á enn eftir að heyra með vinnuna hjá Sigþóru í Féló, þótt Arndís sé nú eiginlega bara búin að ákveða að ég verði þarna með henni í sumar… vona innilega að maður fái vinnu þarna, það yrði bara snilld! :)

Annars er lítið að frétta. Maður er bara að klára að undirbúa sig fyrir skólann, kaupa blöð, penna og allt auk þess sem maður þarf að taka aðeins til í ferðavélinni og gera hana klára undir skólann. Þetta er allt saman farið að taka á sig mynd og er ég bara kominn með þetta fína herbergi hérna uppi í gistingu hjá gamla settinu :)

Fór út á sjó að veiða með Árna Óla, Gaua og Bjarna í góða veðrinu í gær og tók þar nokkrar myndir. Ætla að henda Photoshop inn á þessa vél og klára myndirnar svo. Reikna með að henda nokkrum myndum inn á flickR-ið í kvöld.

Þangað til næst…

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 03:10 - 18. August, 2006 | Höfundur: einir

Já nú er búið að vera mikið að gerast síðastliðna daga. Ég er fluttur til Eyja og hef ákveðið að klára það sem ég byrjaði á 16 ára gamall og þá af engum áhuga, já ég er að tala um stúdentinn. Ég skráði mig í FÍV í vikunni og sótti um vinnu í Féló með skólanum, vonandi að ég fái hana bara. Þetta er búið að ske allt saman mjög hratt en ég er bara sáttur við að vera kominn heim á eyjuna fögru. Hótel mamma klikkar náttúrulega aldrei og auðvitað allir vinirnir… þetta er bara geggjað.

Ég sé fram á skemmtilegan vetur í FÍV þar sem ég og Arndís munum verða mamman og pabbinn þarna, en þess má til gamans geta að Ingólfur bróðir verður einmitt vígður inn í FÍV á þessari önn með tilheyrandi busaveseni… Það verður gaman að sjá :) Annars hefur maður bara verið að taka því rólega í vikunni og var ég einmitt að klára að horfa á 2 spólur með Arndísi og Ólöfu. Eða reyndar horfðu þær með mér á fyrstu og ég horfði einn á hina þar sem þær steinsváfu… félagar… :D

Búinn að fara svolítið út í góða veðrinu sem er búið að vera hér og taka myndir. Fór upp á Há í dag og tók nokkrar myndir og ætla að deila hérna nokkrum með ykkur:

Maður á eftir að gera meira af þessu… það er alveg bókað, enda eru Vestmannaeyjar gullkista fyrir ljósmyndara. Og fyrst ég er nú að þessu á annað borð er kannski kominn tími til að henda inn link á myndasafnið sem ég er að koma mér upp á netinu sem áhugaljósmyndari. Hann verður hérna til hægri en síðuna er að finna hér. Endilega skoðið myndirnar og segið hvað ykkur finnst ;)

Jæja, ég er farinn að sofa í hausinn á mér!