Eldri færslur fyrir stikkorð » liverpool «

Ég var ekki langt frá því að hlaupa út á lóð með Liverpool treyjuna mína og bera að henni eld eftir leikinn í kvöld. West Ham 1 – 0 Liverpool. Ég píndi augun til að horfa á þessa skelfingu alveg til enda, eða þangað til West Ham fengu vítaspyrnuna og ég þoldi ekki meir. En svona fór nú það og spurning hvort við náum 4. sætinu í deildinni… Svo verður líka spennandi að sjá hvernig málin þróast í bækistöðvum Liverpool. Mun Benitez fjúka? Munu eigendurnir yfirgefa félagið? Eða kannski bara eitthvað allt annað… eitthvað þarf allavega að gerast, það er nokkuð ljóst.
En að öðru. Ég er tveimur áföngum í skólanum þessa önnina sem skera sig svolítið út úr þeirri flóru áfanga sem ég hef tekið í gegnum tíðina. Þetta eru áfangar sem heita Rekstrarhagfræði 103, sem kemur að almennum rekstri og umsjón fyrirtækja og stofnana, og Viðskiptafræði 113, sem er markaðsfræðiáfangi og hefur komið mér mikið á óvart. Ég hef aldrei lært neitt þessu tengdu áður og verð ég að segja að þetta sýnist nokkuð spennandi, allavega svona í byrjun annarinnar. Í Viðskiptafræðinni erum við að byrja á verkefni þar sem okkur var skipt niður í hópa, 2 og 2 saman í hóp. Hver hópur finnur sér viðfangsefni til að markaðssetja, má vera hvað sem er… fyrirtæki, vara eða þjónusta en það er eitt skilyrði, þetta þarf að vera fyrirtæki, vara eða þjónusta í Vestmannaeyjum.
Ég og Randver skelltum okkur saman í hóp og byrjuðum að brainstorma um hvað við ættum hugsanlega að reyna að markaðssetja í Vestmannaeyjum. Upp úr því komu nokkrar hugmyndir sem við eigum svo eftir að fínpússa, eins og t.d. Saltverksmiðja, Rauða lónið, endurmarkaðssetja Höllina sálugu og fleira og fleira. En ég verð að segja alveg eins og er… þetta er örugglega einn skemmtilegasti áfangi sem ég hef farið í… gæti ég hugsanlega verið búinn að finna eitthvað sem ég væri til í að vinna við í framtíðinni? Eða er þetta bara það að ég er að prófa eitthvað nýtt…?
Jæja… það kemur bara í ljós.
…bara unnið undir pressu? Djöfull að hafa ekki séð leikinn samt!
Það hlaut að koma að því að maður myndi prófa “nýja” MySpace-ið, en það er Feisbúkkið sem hefur verið að gera garðinn frægann. Ég man að Þórhallur og Hrund voru að ota þessu að mér fyrir einhverju vegna þess að þeim fannst MySpace of flókið… ég hélt nú ekki þar sem mér fannst í rauninni FaceBook miklu flóknara… Skráði mig nú samt á það fyrir nokkrum vikum eða mánuðum og skoðaði. Mér leist nú ekkert svakalega vel á þetta svona í fyrstu, en er búinn að vera að skoða þetta betur í dag og komist að því að þetta er mun skemmtilegri vettvangur en MySpace og hvet ykkur sem hafið gaman af svona síðum að skrá ykkur þarna
En að öðru, hvað er málið með Benitez? Hann er ekki viss um að hann hafi Torres í byrjunarliði Liverpool a morgun… Hvað þarf drengurinn að gera til að fá að byrja leik? Skora 10 mörk í leik? 27 milljón punda leikmaður, dýrasti leikmaður í sögu Liverpool og hann hefur komið inná sem varamaður í tveimur deildarleikjum sem hafa báðir farið 0 – 0! Skoraði þrennu í síðasta leik gegn Reading í bikarnum… hvernig er ekki hægt að setja hann í byrjunarliðið? Ég verð geðveikur ef við vinnum ekki Wigan um helgina…
Svo er bara komin enn ein helgin. Allt að ske í 1. deildinni í fótboltanum þar sem ÍBV á mjöööög svo veika von um að komast upp í efstu deild, en þar voru leikir að byrja núna klukkan 17:15. ÍBV á heimaleik við Fjölnismenn, en til þess að komast upp um deild verðum við að vinna þann leik ooooog hér kemur kickerinn… við verðum að treysta á að Reynir Sandgerði vinni Þrótt… eins og ég sagði, frekar veik von
Ætla að kalla þetta gott og koma mér í vinnu niðrá Café… sé ykkur vonandi sem flest á Lundaballi á morgun!
PS. Vil nota tækifærið og óska Sigga Ara til hamingju með afmælið í gær!
Já nú er poolarinn sáttur. Í gær komust mínir menn í úrslit Meistaradeildarinn með góðum sigri á Chelsea á Anfield. Daniel Agger skoraði eina mark leiksins eftir snilldarlega útfærða aukaspyrnu frá Gerrard. Leikurinn var vægast sagt ROSALEGUR þótt mörkin hafi ekki verið fleiri og Liverpool mun sterkari aðilinn. Leikurinn fór í framlengingu þar sem við töpuðum fyrri leiknum 1 – 0 á Stamford Bridge. Ekkert var skorað í framlengingunni svo við tók vítaspyrnukeppni og taugarnar hjá mínum voru ekki að höndla það, en þar var það Reina sem var hetja liðsins þar sem hann tók sig til og varði 2 spyrnur frá Chelsea! LIVERPOOL KOMNIR Í ÚRSLITIN!
Svo var annar leikur AC Milan og Man Utd í kvöld, en þar tóku Milan menn sig til og völtuðu yfir Man Utd. Ég reyndar horfði bara á fyrri hálfleikinn þar sem ég þurfti svo að fara í vinnu, en í þeim hálfleik var aðeins eitt lið á vellinum. Kaká kom Milan mönnum yfir strax á 11. mínútu og Seedorf skoraði annað markið á 30. mínútu. Gilardino gulltryggði svo sigur Milan á 78. mínútu þegar hann sendi boltann framhjá Van der Saar.
Ég verð að viðurkenna að þessi úrslit komu mér svolítið á óvart, en það sem kom mér meira á óvart var hversu slakir Man Utd menn voru. Það var bara ekkert í gangi hjá þeim. Ronaldo sást ekki, hvað þá Giggs og Rooney svona þeirra skástur. Vörnin var hriplek og það var ekki að sjá meistarabraginn yfir þessu liði sem maður hefur séð hingað til.
En svona til að nudda nú ekki salti í sár Man Utd manna lengur ætla ég bara að slútta umfjöllun minni um þennan leik í kvöld og FAGNA ÞVÍ AÐ LIVERPOOL SÉ KOMIÐ Í ÚRSLITIN!
Vil svo einnig minna á blogg sem ég hef mikið vitnað í í sambandi við hverjir myndu lenda saman í úrslitum meistaradeildarinnar… en það er að finna hér. Þetta er náttúrulega bara á kristaltæru!
Langar að enda þetta á copy/paste af spjallborðinu á ManUtd.is, en ég er búinn að liggja grenjandi úr hlátri yfir þessum kommentum þar!
“AUMINGJASKAPUR!!!! Mér leið einsog ég væri að horfa á Milan – 3 flokkur kvennaliðs Aftureldingar…”
“Vona bara að Ferguson taki leikmennina hvern fyrir sig og berji þá, þeir eiga ekkert betra skilið eftir svona frammistöðu.”
“Það er hræðilegt að horfa uppá þetta, Milan er mörgum klössum fyrir ofan okkur.
Liðið fer í mesta lagi á pæjumótið í Eyjum með þessari spilamennsku.”
Bara fyndið að lesa svona frá aðdáendum Man Utd, en þeir viðurkenna þó að þeir hafi verið að spila illa. Annað en vælukjóinn hann Mourinhio sem sagði að hans lið hafi verið betri aðilinn í leiknum í gær og að andrúmsloftið á Anfield hafi ekki verið neitt “sérstakt”. Cry me a river… dickf…
Þá er maður búinn að panta sér ferð til London þann 12. maí. Gvuní vinkona er búin að vera að hita mann allsvakalega upp að kíkja í heimsókn til hennar og þar sem maður var nú búinn að lofa henni að koma er ekki seinna vænna að panta núna fyrir sumarið, á meðan verðin eru í lágmarki. Fékk flug aðra leið til London á 6000 þúsund kjell, sem er náttúrulega ekki neitt. Ég veit ekki alveg hvenær maður kemur aftur en stefni á að vera í 2 vikur. Maður flýgur svo heim með Iceland Express þar sem maður á ferðaávísun til að borga það flug, svo í heildina verður þetta ekkert mjög dýrt ferðalag. Flugið frá London til Nice í Frakklandi fram og til baka kostar svipað og flugið með BA frá Keflavík til London, eða um 6000 kall. Svo er auðvitað frí gisting bæði í London hjá Þórhalli bró og í France hjá henni Gvuníju svo maður verður bara eins og kóngur í ríki sínu
Þá er bara að bíða eftir próftöflunni og gá hvort ég endi með að þurfa að taka einhver próf fyrr, þar sem síðasti prófdagur er 15. maí, og sjúkrapróf 16. maí. Annars er nú bara þetta venjulega að frétta. Reyndar búinn að vera alltof latur við að fara í ræktina eftir að ég keypti mér þetta líkamsræktarkort í Nautilus, ætla áð skella mér á eftir og reyna að koma mér í þetta af einhverjum krafti, enda er maður farinn að safna smá vömb
Já og úrslit meistaradeildarinnar í vikunni. Liverpool sló út meistarana, Barcelona. Bara gaman að því en leikurinn var víst MJÖG erfiður að horfa á samkvæmt þeim Liverpool mönnum sem ég hef talað við. Eiður kom Barcelona í 0 – 1 þegar korter var eftir af leiknum og spiluðu þeir þá 3 – 3 – 4 eins og ég las að ég held á Fótbolta.net. Ég var eiginlega bara feginn að hafa verið í vinnu, því annars væri ég örugglega með blæðandi magasár
Annars er lítið að frétta held ég. Siggi bró ætlar að kíkja hingað um helgina og spurning hvað maður tekur sér fyrir hendur, ætli það verði ekki eitthvað bjórsötur. Býst ekki við öðru










Síðustu komment