Eldri færslur fyrir stikkorð » hjólreiðar «

færsla skrifuð kl. 02:18 - 29. March, 2007 | Höfundur:

Já ég skellti mér í hjólreiðatúr í góða veðrinu í gær. Mikið er ég nú feginn að það sé alveg að koma sumar og maður geti farið að gera meira af því að njóta þess að vera úti. Svo ég tali nú ekki um að það er hundrað sinnum skemmtilegra að taka myndir í góðu veðri en rigningu og viðbjóði. Það er einmitt það sem ég gerði í gær, ég tók myndavélina með í för og smellti af nokkrum kvikindum. Komst reyndar að því að eg þarf að fara að hreinsa allt draslið mitt, búið að safna ryki allt of lengi.

Svo er það helgin næsta. Ég tók að mér að fara með 2-3 krakka úr Féló á landsfund félagsmiðstöðva sem haldinn verður á Selfossi næsta laugardag og er svona að velta því fyrir mér hvort maður eigi að framlengja þeirri ferð og kíkja í bæinn yfir helgina. Mamma og pabbi verða einmitt í bænum svo það er spurning hvort maður breyti ekki út af vananum og kíki í bíó og kannski eitthvað út að borða og svona fínerí… en það kemur allt í ljós.

Jæja ætla að kalla þetta gott og láta fylgja eina mynd af því sem ég tók í gær, getið séð restina á flickR síðunni minni.

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | eitt komment
færsla skrifuð kl. 21:46 - 04. May, 2006 | Höfundur:

Ég og Bergdís höfum ákveðið að kaupa okkur hjól fyrir sumarið, og auðvitað í Byko ;) Mig hefur lengi lengi langað að kaupa mér hjól eftir að ég týndi krómaða Daewoo hjólinu sem ég átti þegar ég var í 10. bekk eða eitthvað. Það er svo gaman að hjóla… sérstaklega þegar maður býr í Eyjum, veit ekki alveg hvernig þetta verður hérna í Kópavoginum. Held það jafnist ekkert á við Eyjarnar hvað náttúruna varðar. Undurfögur og ekki þarftu nú að hjóla langt til að komast í kynni við hana. Bergdís segir samt að það sé nóg að skoða hérna í Kópavoginum… ég á nú eftir að sjá það, mér finnst eins og það sé verið að reisa blokkir og hús á hverjum einasta fermetra á höfuðborgarsvæðinu! Ef allt bregst hjólum við bara útá Þingvelli… :-D
Já og hvað er málið með þetta MySpace… maður er í mestu makindum að MSNast og skoða heimasíður þegar ónefnd Ólöf poppar upp á MSN og spyr hvort ég sé ekki kominn með mæspeis… Ég svona “Nei… er það eitthvað að gera sig?” og þá fær maður bara “OMG, þú getur alveg eins bara verið dauður og að vera ekki með mæspeis!” Svo nú er ég kominn með Myspace síðu, kann ekki rassgat á þetta og er ennþá að fatta hvernig þetta virkar… tók einhvern rúnt og nældi mér í vini hér og þar… eða sko, þau eiga eftir að samþykkja að vilja vera vinir mínir… Eins og er á ég 3 vini :-D Ef þú ert með svona síðu máttu endilega adda mér í vinalistann þinn… maður er víst ekkert kúl ef maður á undir 30 vini :-/ Maður kann ekkert að breyta lúkkinu eða neitt, spurning hvort þetta sé eitthvað sem maður tollir í :-P

En já, ætla ekki að hafa þetta mikið lengra. Mamma og pabbi er komin í bæinn og verða hér fram á sunnudag svo ég sé fram á bíóhelgi og fínerí ;)

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment