Eldri færslur fyrir stikkorð » handbolti «

færsla skrifuð kl. 21:25 - 17. January, 2008 | Höfundur:

Djöfull getur maður orðið ógeðslega pirraður þegar maður horfir á íslenska landsliðið í handbolta spila. Alltaf dettur maður í þá gryfju að gera sér vonir um að þeir hysji upp um sig buxurnar í þetta skiptið og nái að snúa við blaðinu á ‘þessu móti’. Ég veit að maður á ekki að vera að gera sér of miklar vonir en maður gerir það nú samt og verður svo viðbjóðs pirraður það sem eftir lifir kvölds, og jafnvel bloggar um það í reiði sinni. Ég er viss um að nú streymir inn á moggabloggið ‘pirrbloggum’ frá hinum og þessum misgáfuðum manninum (og konunum, ef það skyldu einhverjir feministar vera að lesa :) )

mbl.is

Einstaklega fagleg vinnubrögð á mbl.is – fyrirsögnin komin áður en leikurinn kláraðist (kannski skiljanlegt í þessum leik reyndar)

En jæja, ætla að hætta  að velta mér upp úr þessu… nú fer maður allavega ekki fullur eftirvæntingar í næstu leiki. 

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: ,  | 4 komment
færsla skrifuð kl. 09:43 - 01. May, 2006 | Höfundur:

Mikið er nú gaman að kíkja á Eyjafréttir og lesa svona skemmtilega frétt:

Sigurður Ari í liði ársins

besta skyttan hægra megin í norska boltanum

Eyjamaðurinn Sigurður Ari Stefánsson er í liði ársins í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Sigurður, sem gekk í raðir Elverum frá ÍBV síðastliðið haust, var útnefndur besta skyttan hægra megin, fékk 27,4% atkvæðanna, en Sigurður varð sjöundi markahæsti leikmaður deildarinnar með 118 mörk.

Þá var Sigurður valinn annar besti nýliðinn í deildinni en það voru leikmenn í úrvalsdeildinni sem stóðu að kjörinu í samvinnu við norska handknattleikssambandið Geir Jomaas, Sandefjord, var útnefndur besti leikmaður deildarinnar.

Til hamingju með þetta Siggi minn… gaman að sjá að þú sért að blómstra þarna. Maður verður nú að fara að gera sér ferð til ykkar og kíkja í smá heimsókn… :-P

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð:  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 16:24 - 02. February, 2006 | Höfundur:

Það er ekki við öðru að búast þegar íslenska landsliðið í handbolta er annars vegar að þeir fá mann alltaf til að hafa trú á sér til að byrja með og krapa svo duglega í buxurnar þegar lengra dregur í keppninni. Og auðvitað þurftu þeir að tapa með 3 mörkum á móti frændum okkar í Noregi og Strand með 19 helvítis mörk… hvað er málið? Þetta er alveg óþolandi… En maður gerir sig nú samt sekann um að búast alltaf við of miklu af þessu liði… svona eins og þetta ‘hljóti að ganga í þetta skiptið’
En nóg um það… helgin nálgast og ekkert nema gott um það að segja. Gísli Stefáns ætlar að halda lítið teiti á laugardaginn þar sem stráksi var nú að nálgast þrítugsaldurinn enn meir… orðinn 22 ára peyjinn ;) maður verður nú léttur þá… Verð rólegur á morgun þar sem ég fer í vinnu á laugardagsmorgun… svo er það bara Eyjar þarnæstu helgi. Siggi bróðir er víst búinn að fá íbúðina og er að flytja inn örugglega bara as I write… Ætli hann haldi ekki smá innflutningsteiti þá helgi og svo sagði Stefán mér að síðasta ballið í Höllinni í langann tíma verði þarnæstu helgi, þar sem Greifarnir koma til með að trylla lýðinn. Spurning hvort maður reyni ekki að komast með fyrri ferðinni.

Annars ætla ég að kalla þetta gott og biðja ykkur sem ekki eruð búin að skrifa í gestabókina að skrifa það… já, þessi sama gamla klisja ;) en maður er nú svolítið forvitinn um hverjir eru að skoða síðuna :-D
Chao!

PS. Heimasíða ’83 árgangsins fer að líta dagsins ljós, en þá ættum við að geta farið að skapa almennilegar umræður um þetta árgangsmót sem verður á næsta ári ;)

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , , ,  | ekkert komment