
Mikið elska ég nú að fótboltasumarið sé byrjað. Fyrsti leikur ÍBV í Pepsi-deildinni var í kvöld á Hásteinsvelli þar sem liðið tók á móti Fram. Þetta er þriðja árið í röð sem ÍBV og Fram mætast í fyrstu umferð Íslandsmótsins en fyrstu tvö skiptin mættust liðin á Laugardalsvelli þar sem Fram hafði betur í báðum leikjum. Það var þó ekki það sama uppi á teningnum í kvöld sem betur fer en mikið rok hefur verið í Eyjum í dag sem setti svolítið strik í gæðareikning fótboltans.
ÍBV spilaði undan vindi í fyrri hálfleik og voru mun meira með boltann án þess þó að skapa sér mikið af hættulegum færum. Framarar spiluðu skynsamlega og vörðust vel auk þess sem tafir af þeirra hálfu voru nokkrar. Mínir menn náðu ekki að gera sér mat úr meðvindinum og í hálfleik var staðan 0 – 0.
Í síðari hálfleik bjóst maður við að þetta snerist við en Framarar náðu aldrei að nýta sér vindinn neitt að ráði auk þess sem ÍBV mættu mun hungraðri í seinni hálfleikinn og ætluðu greinilega ekki að gefa tommu eftir. Það var ekki að sjá að Framarar væru að spila með vindi því sóknartækifærin skiptust að ég held bara nokkuð jafnt á milli liðanna í seinni hálfleiknum (ekki búinn að sjá neina tölfræði samt). Þegar aðeins átti eftir að spila uppbótartíma (sem var að minnsta kosti 3 mínútur) var staðan enn 0 – 0 og allt stefndi í steindautt jafntefli… en þá tók (að mínu mati) maður leiksins, Þórarinn Ingi Valdimarsson sig til og reif sig upp vinstri kantinn átti og átti gott skot á markið sem markvörður Fram nær að verja út í teig, þar sem enginn annar en TG9 (Tryggvi Guðmundsson) nær að fylgja eftir og setur boltann í stöng og inn! Markið er skorað á 93. mínútu og leikurinn flautaður af um leið og miðjan hafði verið tekin. Sætara verður það ekki!
Svo er næsti leikur á móti Fylki hérna heima á laugardaginn kl 14:00 – ÁFRAM ÍBV!


Vá hvað ég hlýt að vera ómissandi partur í lífi hennar
enski boltinn & meistaradeildin sem er komið á fullt, heldur erum við peyjarnir loksins búnir að redda okkur tíma til að sprikla í fótbolta uppi í Íþróttahúsi, og það tvisvar í viku! Byrjuðum núna á mánudaginn og mættu 10 kvikindi tilbúin til að svitna aðeins. Það er alveg nauðsynlegt að hreyfa sig reglulega og maður finnur það eftir að maður byrjaði í skólanum að 2 tímar í íþróttum er bara ekki nóg, plús það að maður er nú ekki alveg nógu duglegur að fara í ræktina…
Já nú er poolarinn sáttur. Í gær komust mínir menn í úrslit Meistaradeildarinn með góðum sigri á Chelsea á Anfield. Daniel Agger skoraði eina mark leiksins eftir snilldarlega útfærða aukaspyrnu frá Gerrard. Leikurinn var vægast sagt ROSALEGUR þótt mörkin hafi ekki verið fleiri og Liverpool mun sterkari aðilinn. Leikurinn fór í framlengingu þar sem við töpuðum fyrri leiknum 1 – 0 á Stamford Bridge. Ekkert var skorað í framlengingunni svo við tók vítaspyrnukeppni og taugarnar hjá mínum voru ekki að höndla það, en þar var það Reina sem var hetja liðsins þar sem hann tók sig til og varði 2 spyrnur frá Chelsea! LIVERPOOL KOMNIR Í ÚRSLITIN!








Síðustu komment