Eldri færslur fyrir stikkorð » fjölskyldan «

færsla skrifuð kl. 14:51 - 14. January, 2008 | Höfundur:

Jæja góðan daginn, hvað segir fólkið? Langt síðan síðast eins og svo oft áður… Jólin eru búin og mikið hafði maður það nú gott. En nú er komið nýtt ár og skólinn byrjaður á ný. Ég er í 19 einingum og stefni á útskrift næstu jól, en segi það nú samt með fyrirvara um breytingar… :P  

Ég ákvað að bregða út af vananum þennan þrettándann og skella mér til Reykjavíkur þar sem Þórir, kærastinn hennar Elenu var að halda upp á 30 ára afmælið sitt. Fínt að breyta aðeins til og var mjög gaman í þessari afmælisveislu, sem var vægast sagt vel sótt… gjörsamlega troðið heima hjá þeim. Það er naumast að maðurinn er búinn að sanka að sér mörgum vinum þessi 30 ár… :)

Svo er bara komið að grámygluðum hversdagsleikanum aftur, veðrið hérna í Eyjum er alveg út úr kú eins og er og það bregst ekki að alltaf á þessum tíma fer hugur manns að leita út fyrir landsteinana, í sól og sumaryl. Ég og Thelma vorum að skoða heimasíður ferðaskrifstofa í gær og var mest skoðað Tyrkland og Krít… nú er bara að sjá til hvort maður sjái fram á að geta skellt sér út næsta sumar, en til þess þarf maður að endurskipuleggja fjárhaginn… selja bílinn og síðast en ekki síst fara að hugsa út í sumarvinnu.

Og þá að aðalmálinu… haldiði að maður hafi ekki verið að eignast annan frænda í byrjun þessa mánaðar. Þau Þórhallur og Hrund eignuðust gullfallegan dreng sem átti nú reyndar ekki að líta dagsins ljós fyrr en í febrúar, en allt gekk þetta þó upp og er hann sprækur sem lækur í dag. Ég vil bara óska þeim enn og aftur til hamingju með litla kút og jafnframt láta ykkur fáu lesendur mína vita af þessu, ef þið vissuð þetta ekki nú þegar ;)

En jæja, tíminn er búinn. Bið að heilsa ykkur…

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | 5 komment
færsla skrifuð kl. 19:15 - 12. November, 2007 | Höfundur:

Það er aldeilis sem þessi blessaði tími líður. Nóvember er um það bil hálfnaður og það þýðir bara eitt, jólin eru á næsta leiti. Það er nú reyndar alveg einn og hálfur mánuður síðan maður sá fyrstu jóla auglýsinguna, þar sem Garðlist eða hvaða fyrirtæki það var auglýsti í gríð og erg jólaskreytingaþjónustu og að fólk ætti að panta tímanlega fyrir jólin. Mér hefur reyndar alltaf þótt hund leiðinlegt að jólaskreyta en kommon… ráða menn í vinnu við að skreyta húsið sitt? Ég hugsa allavega að það væri eitt af því síðasta sem mér dytti í hug… alveg sama hversu stressaður og í mikilli tímaþröng maður væri.

Nú eru hins vegar allflest fyrirtækin sem auglýsa af einhverju viti í sjónvarpi komnar með jóla-auglýsingarnar í gang. Margir tala um að verið sé að fyrirtæki séu að reyna að teygja ‘jóla törnina’ til þess að græða sem mest. Ég veit ekki með ykkur en þótt ég sjái jólaauglýsingu eða skraut í október kemst ég ekkert fyrr í jólaskapið góða. Jólin eru hátíð fjölskyldunnar og er það algjörlega undir minni fjölskyldu komið hvenær ég kemst í jólaskap. Þegar mamma setur jóladisk í spilarann og byrjar að skreyta heima fyrir og þegar fólkið byrjar að tala um hvað það eigi eiginlega að gefa hinum og þessum í jólagjöf.

Það er að skapast nokkur hefð fyrir því hjá mér að skreppa til Þórhalls bró og Hrundar í London fyrir jólin og ætla ég að sjálfsögðu ekki að bregða út af vananum þessi jólin. Ég, Thelma, Ingólfur bró og Kristrún ætlum að skella okkur til þeirra strax eftir próf, eða 13. des og verðum við í jólagjafainnkaupum og fleiru til 17. des. Algjör snilld að klára jólagjafakaupin í London… ódýrara & aaaaaðeins fjölbreyttara úrval. Mæli með þessu!

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , , ,  | 14 komment
færsla skrifuð kl. 02:07 - 27. October, 2007 | Höfundur:

Það hefur verið mjög sérstakt andrúmsloft á Brimhólabraut 1 þessa dagana, þar sem mamma er búin að vera á fullu í að sortera gamlar myndir sem hún var búin að ‘týna’ og koma þeim í albúm. Ég hef gefið mér smá tíma til að skoða eitthvað af þessu ógrynni sem hún móðir mín hefur tekið af myndum í gegnum tíðina, og þá aðallega frá því þegar við bjuggum á Búhamrinum góða. Ég verð nú bara að segja það að ef ríkidæmi væri metið í minningum á borð við ljósmyndir og alls kyns dót og drasl sem við krakkarnir höfum komið með heim úr skólanum og gefið okkar ástkæru foreldrum, þá bara Björgólfur hvað – Sigga Þórhalls væri nafnið sem væri á allra vörum í dag. Ég er ekkert viss um að Britney Spears sé mest ljósmyndaðasta manneskjan í heiminum… Þegar myndavélin var/er komin á loft hjá mömmu þá er ekki aftur snúið, það er enginn óhultur. Ég er alls ekki að segja að þetta sé slæmt, þvert á móti þegar maður gefur sér tíma til að setjast niður og skoða þetta allt saman. Ég man að ég var ekkert allt of spenntur fyrir myndatökurnar hjá mömmu, enda sést það mætavel á svona 2/3 af myndunum.

Það er einmitt á svona tímum sem maður sér hvað það er mikilvægt að eiga myndirnar sínar í albúmi, ekki bara á stafrænu formi í tölvunni. Ég veit ekki hvað ég á mikið af myndum í tölvunni sem ég bara hef ekki hugmynd um, þar sem ég nenni voðalega lítið að skoða allar þessar myndir á tölvuskjánum. Það er miklu meiri fílingur að fletta í gegnum albúmin.

Albúmin sem ég hef verið að skoða eru mestmegnis úr afmælum okkar bræðranna (míns, Sigga og Ingólfs) nú eða bara þegar mömmu hefur fundist ástæða til að smella af nokkrum myndum heima fyrir. Ég ákvað nú bara svona til að leyfa ykkur fá smjörþefinn af þessari skemmtun minni að skanna inn eins og 2 – 3 myndir, eina úr afmæli, eina úr tindátaleik úti í garði og svo eina sem ég sá á fermingarskeyti hjá Elenu systur, en það er greinilega mjög gömul mynd af Landakirkju með rautt þak, menntavegurinn góði áður en hann varð bara fyrir gangandi vegfarendur (hmmmm) og svo verið að byggja við Barnaskólann. Helvíti skemmtilegar myndir allt saman.

Þekkir fólk krakkana á þessum myndum? :D

Landakirkja  Tindátaleikur  Afmæli á Búhamri 12

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , , ,  | 10 komment
færsla skrifuð kl. 00:45 - 06. December, 2006 | Höfundur:

Jæja, kominn tími á færslu segiði? Já, kannski… Það hefur nú nokkuð drifið á daga mína síðan síðast. Ég eignaðist lítinn sætan frænda, en það var Elena systir sem varð fyrst af systkinunum að færa mömmu og pabba sitt langþráða barnabarn. Hann kom í heiminn 21. nóvember og allt gekk eins og í sögu. Vil ég bara enn og aftur óska Elenu og Þóri til hamingju með litla gullið og get ég ekki beðið eftir að kíkja á þau og knúsa litla guttann ;)

Svo er maður nú í miðju prófafjöri. Búinn að fara 2 próf, Íslensku 403 og Sálfræði 103… Gekk bara svona ágætlega í báðum prófum, en svo á ég 4 kvikindi eftir. Fer i Ensku 503 á morgun, Sögu 203 á laugardaginn, Landafræði 103 á mánudaginn og svo loksins Félagsfræði 203 á miðvikudaginn. Próflokum verður svo fagnað með ferð til London þann 14. des ásamt Arndísi skvísu, en við munum gista hjá Þórhalli bró & Hrund í miklu yfirlæti eins og vaninn er á þeim bænum. Þar hef ég ákveðið að kaupa mér loksins iPod, og held ég að blár 4gb iPod Nano verði fyrir valinu… jafnvel grænn, en það kemur allt í ljós.

Svo er það planið eftir áramót, ég ætla að halda áfram í FÍV en minnka aðeins við mig og vera bara fyrir hádegi þar. Ég hef verið að skoða fjarnámið hjá hinum ýmsu skólum og hér um bil búinn að ákveða að taka 2 áfanga í fjarnámi í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ. Þannig að þetta verður svona smá blanda hjá manni. Ég vonast líka eftir því að geta með því skellt mér á eitt stykki loðnuvertíð svona aðeins til að fríska upp á “sérhæfða fiskvinnslumanninn” og auðvitað bankabókina líka :D

Annað sem hefur óneitanlega vakið athygli mína, (og greinilega annarra sem þekkja mig) er að nú hafa matvöruverslanir tekið sig til og skellt okkur “Einirunum” á sölu hér og þar við litla hrifningu okkar þar sem við erum klárlega í útrýmingarhættu, teljum ekki nema tæplega 40 manns hér á landi sé millinafnið tekið með. Að þessu tilefni höfum við sem ekki þegar höfum verið seldir ákveðið að efna til háværra mótmæla fyrir utan Krónuna í Vestmannaeyjum á föstudaginn klukkan 15 og er búist við metmætingu! Styðjið okkur í GUÐANNA BÆNUM

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 12:36 - 16. March, 2006 | Höfundur:

Fallegast, flottasta, skemmtilegasta, yndislegasta, frábærasta og síðast en ekki síst æðislegasta mamma í heimi á afmæli í dag. Já, hún Sigríður F. Þórhallsdóttir er búin að krækja í fimmta tuginn í safnið, en miðað við útlit og anda má alveg deila í þá tölu með 2 ;)

 

 

Til hamingju með afmælið mamma mín
Þinn sonur, Einir

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 00:33 - 27. January, 2006 | Höfundur:

Það er nú ekki oft sem það skeður að ég sitji heima á föstudagskveldi uppi í rúmi og hafi það gott. Nei, yfirleitt er maður nú úti á lífinu í góðra vina hópi að skemmta sér og öðrum. En kvöldið í kvöld er ein af þessum fáu undantekningum. Við skötuhjúin ákváðum að taka því bara rólega í kvöld og vera heima, horfa á sjónvarpið og hanga aðeins í tölvunni… Og þar kem ég að kjarna málsins. Hvað er eiginlega málið með sjónvarpsdagskrá á Íslandi á föstudagskvöldi? Það er nákvæmlega ekkert í þessu blessaða sjónvarpi sem vert er að horfa á. Hvað varð um bíómyndirnar sem Stöð 2 var með á föstudagskvöldum? Núna er bara endursýningar á þáttum vikunna á skjá einum, einhver HÖRMUNGAR mynd á stöð 2, stöð 1 náttúrulega bara söm við sitt og sýnir beint frá Alþingi… þótt þingmenn sofi værum blundi og svo mætti lengi telja. Þetta er náttúrulega bara til háborinnar skammar og ekki mönnum bjóðandi. Þetta er kannski búið að vera svona lengi en ég allavega er fyrst að taka eftir þessu núna. Kannski vegna þess að ég horfi lítið sem ekkert á sjónvarp… og þá sérstaklega um helgar ;)
Ég varð því miður að hætta við Eyjaferðina þessa helgi og fresta henni um 2 vikur :-( Já frekar súrt þar sem ég heyrði í nokkrum í Eyjum og er víst alveg hellingur að gerast þessa helgi. Afmælispartý og ég veit ekki hvað og hvað. En það þarf svo sem enga svoleiðis afsökun til að skella sér á tjúttið í Vestmannaeyjum. Maður stígur upp úr Herjólfi á föstudegi og áður en maður veit af situr maður inná Johnsen bar með félögunum að teiga einn kaldan :-D En svoleiðis á það líka að vera ;)

Heyriði já! Siggi bróðir var að eignast sína fyrstu íbúð, en hann var að kaupa íbúðina af Einari Jóhanni og Erlu Ásmunds og vil ég bara óska kallinum til hamingju með hana. Lét mig einmitt vita að hann fengi hana jafnvel afhenta í næstu viku og að ég væri á leiðinni að hjálpa honum að flytja… hvernig svo sem ég fer að því :) En allavega hlakka ég mikið til að koma til Eyja og sjá hann Sigurð ‘litla’ bró með sína eigin íbúð til að hugsa um og enga mömmu til að þvo af sér og þrífa… en ég hugsa að hann tækli þetta alveg kallinn ;) Til hamingju brósi!

Ætla að kalla þetta bara helvíti gott í kvöld og kannski fara að koma mér í háttinn. Bið að heilsa.

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 00:28 - 15. October, 2005 | Höfundur:

Þessi helgi fer nú á spjöld sögunnar í mínum bókum, þar sem ég er örugglega að setja persónulegt met í fáum bjórum innbyrgt yfir heila helgi. Það hafa svo mikið sem 2 bjórar runnið ljúflega niður þessa helgi og býst ég fastlega við að þeir verði ekki fleiri… :-P
Mamma og pabbi eru búin að vera í bænum núna frá því á fimmtudaginn og eru eitthvað að stússast í eldhúsinnréttingum og tækjum, þar sem þau eru nú að byrja á að gera upp eldhúsið á Brimhólabraut 1. Ég og Bergdís erum búin að fara tvisvar út að borða með þeim, ásamt Elenu og Þóri, og svo tvisvar í bíó með þeim á myndirnar Cinderella Man & Flightplan. Cinderella Man kom mér virkilega á óvart þar sem ég var búinn að heyra sama og ekkert um þessa mynd. Russel Crowe er rosalegur í þessari mynd og eins pirrandi leikkona og mér finnst René Zellweger vera stóð hún sig bara vel í þessari ræmu. Aftur á móti var það Flightplan sem stóðst ekki alveg mínar væntingar. Maður hafði séð hana auglýsta hvað eftir annað bæði í bíóum og í sjónvarpinu og trailerinn var bara nokkuð ‘catchy’ – ég var staðráðinn í að fara á þessa mynd í bíó. Svo einhvernveginn fannst mér, án þess að ætla að skemma þessa mynd fyrir neinum, að hún skilaði sér ekki nógu vel. Er ekki að segja að hún sé léleg, bara hefði getað verið gerð betur. Mitt álit ;)

Svo styttist óðum í Eyjaferðina ógurlegu: Operation Hlynsatjútt er bara handan hornsins, en eins og allir með greindarvísitölu yfir frostmarki vita varð lítill akureyskur háskóla-Hlynur 22 ára þann 3. október síðastliðinn og mun fagna þeim merka áfanga næstu helgi í Eyjum. Ég býst við alveg rosalegri helgi og ætla ég mér að reyna að ná fyrri ferð á föstudeginum, s.s. kyssa nokkra rassa í vinnunni

Ég hef ákveðið að kaupa mér ferðatölvu í London! Þessar blessuðu ferðavélar eru orðnar svo helvíti öflugar. Maður getur spilað alla leiki í þeim og skjáirnir orðnir rosalegir, svo ekki sé nú minnst á hvað þetta er MIKLU fyrirferðaminna en PC tölva. Er búinn að vera að skoða svolítið af tölvum og er ekki alveg búinn að ákveða hvernig vél ég kaupi og mun örugglega bara ákveða það með Þórhalli í London… ég get ekki beðið! :-D

En jæja, ætla að kalla þetta gott og horfa aðeins á telly’ið, fara kannski að sofa fyrr en vanalega á laugardegi og taka eins og einn sunnudag á ævinni snemma

P.S Ég vil óska Óla og Sunnu innilega til hamingju með frumburðinn, yndislega fallega stúlku sem kom í heiminn fimmtudaginn síðastliðinn. Allar mínar hamingjuóskir fá þessir nýkrýndu foreldrar sem ég veit að er hamingjusamast fólk í heimi þessa dagana

færsla skrifuð kl. 14:30 - 17. February, 2005 | Höfundur:

Enn ein vikan að líða og bara ekkert nema gott um það að segja. Mamma og pabbi eru í bænum þar sem pabbi var í uppskurði á öxlinni.. þau verða hérna allavega fram á laugardag sem er bara besta mál ;) Ég, Bergdís og mamma fórum í bíó í gær á myndina White Noise sem var nú öðruvísi en ég bjóst við en samt sem áður fínasta mynd. Gerir mikið út á bregðuatriði, sem varð til þess að allar helvítis gelgjurnar sem voru í salnum voru öskrandi hægri vinstri og vorum við svo heppin að vera með eitt gelgjutríó í næstu röð fyrir aftan og djöööööööfull fer svona helvíti í mig… Keaton (aðalleikarinn) mátti ekki drekka vatnsglas og þær voru komnar á það allra hæsta C sem ég hef á ævinni heyrt… var næstum búinn að teygja mig þarna yfir og handrota þær… en já þetta bjargaðist og fínasta mynd ;)

Annars er lítið að frétta… fór í fyrsta skiptið í vinnu á þriðjudaginn síðasta og er að fara aftur í kvöld niður á vöruhótel Eimskips… helvíti fín vinna með skóla og flottur félagsskapur. Er þarna að vinna með Stymma sem er með Thelmu frænku og Elmari. Henti einmitt link inn á bloggið hans Stymma en þar eru þeir félagar Stymmi og Tommi (sem er með Bjarný) að blogga. Fann svo þar annan link á Dramadrottningarnar, en þar eru þær Bjarný, Thelma Rós, Dagný og einhverjar vinkonur að tjá sig… alltaf gaman að finna svona nýja bloggara sem maður þekkir ;)
Ætla ekki að hafa þetta mikið lengra… vinna eftir smá.
Chao bella

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 16:06 - 23. December, 2004 | Höfundur:

Jæja þá er fjölskyldan bara komin til London. Lentum í fyrradag á Stansted flugvelli og þar tóku Þórhallur og Gústi meðleigjandi hans á móti okkur. Svo erum við eiginlega bara búin að vera að versla eins og okkur sé borgað fyrir það… enda útsölur og læti hérna. Þótt að peningastaðan sé nú ekki mikil hér kemur Siggi ríki bró og hjálpar manni ;) Svo fórum við út að borða og læti í gær þar sem pabbi gamli varð fimmtugur… (vá :o ) Fórum á T.G.I Fridays og það var algjör snilld. Góður matur og snilldarþjónusta. Þótt það hefði verið GEÐVEIKI að gera. En já… erum að fara á vaxmyndasafnið núna svo ég verð að hafa þetta stutt.. hendi kannski meiru inn í kvöld. Annars á morgun… ;)

Bið að heilsa ykkur öllum heim og hafiði það nú sem best… og ef ég verð fullur og vitlaus þangað til ég kem heim, verð ég að óska ykkur gleðilegra jóla… ;)
Býst samt við að henda einhverju hér inn á morgun… En já… vaxmyndasafnið bíður.
Bæjó…

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 22:51 - 22. November, 2004 | Höfundur:

Jæja þá er maður kominn aftur í borg óttans eftir þessa líka snilldar Eyjaferðina. Fínasta ‘afslöppun’ sem maður fékk þarna ;) En já, það þurfti ekki að spurja að því… ég ætlaði að vera voðalega bjartsýnn og djamma bara annaðhvort á föstudegi eða laugardegi… Krakkarnir hlógu nú bara að mér, enda féll sú yfirlýsing hratt og örugglega á laugardagskvöldinu. Skemmti mér samt sem áður alveg frábærlega vel bæði kvöldin… þó sérstaklega laugardagskvöldið, þar sem djammið ætlaði bara ekki að taka enda… Byrjuðum hjá Aroni.. fórum þaðan til Yerni fucks, þaðan á Conero og svo enduðum við á Lundanum þar sem DJ Ófi tryllti lýðinn.

Langar að þakka öllum sem ég hitti fyrir frábæra helgi og fjölskyldunni minni fyrir að vera frábær ;) Það var yndislegt að koma svona heim og alveg það sem mann vantaði eftir að þetta skammdegi hér í borginni skall á. Hótel Mamma sá vel um mig og Bergdísi á meðan við vorum þarna og passaði að maður hefði alltaf nóg af öllu ;) Veit ekki hvað ég gerði án mömmu minnar… (og pabba :)

En já, maður er kominn aftur í borgina og farinn að vinna aftur. Soldið að gera í dag og verður aftur á morgun… Svo frí miðvikudag og fimmtudag sem maður notar í eitthvað mis viturlegt… :P Langar að kíkja í sund (pottana) og já ég verð að koma mér upp svona To Do lista á heimasíðuna þar sem ég skrifa inn það sem ég þyrfti eiginlega að fara að gera við sjálfan mig… Er alltaf á leiðinni til læknis t.d. að láta kíkja á axlirnar á mér… eins að reyna að drullast til að byrja í badminton… hætta að borða nammi nema á laugardögum… borða hollari mat (vá erfitt í minni vinnu) og margt margt fleira sem ég myndi kannski koma í verk ef ég hefði þetta fyrir framan nefið á mér allan daginn… :D
En já… ætla ekki að hafa þetta lengra.. en minni enn og aftur á Haltu Kjafti!… the place to be ;)
laters…

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , , ,  | ekkert komment