Jæja þá er kannski kominn tími til að láta vita af sér hérna í Frakklandinu góða. Við erum sko ekki búin að sitja auðum höndum hérna hjá henni Guðnýju, enda bara snilld að vera með svona ‘local tour guide’ sem veit um alla bestu staðina til að heimsækja og bestu strendurnar, kann að ferðast í lestunum og ég veit ekki hvað og hvað. Við fórum á fyrsta deginum til Mónakó sem var náttúrulega bara geðveiki. Sáum þar snekkjubátahöfn þar sem allir þessir frægu og ríku eiga eitt eða jafnvel tvö stykki hver, það þarf ekki að taka fram að þetta eru sjúklega flottar snekkjur allt saman. Fórum líka að skoða formúlubrautina, sem er btw bara inni í miðri borginni og þarf að loka helstu götum á meðan á keppninni stendur. Held að það verði keppt í Mónakó 26. maí en undirbúningurinn var í fullum gangi. Svo var að sjálfsögðu kíkt í casino, en þess má einmitt geta að póker atriðið í Casino Royale var tekið upp í Mónakó…
Svo fórum við 2 næstu daga á ströndina og grilluðum okkur aðeins, lékum okkur í sjónum í frisbee, beach ball og fleiri skemmtilegum leikjum. Í gær fórum við svo til Cannes þar sem kvikmyndahátíðin er í gangi núna. Vorum reyndar ekki svo heppin að hitta á einhvern frægan en sáum rauða dregilinn þar sem var verið að ryksuga hann og gera fínan fyrir kvöldið, auk þess sem við fengum okkur að borða þar og skoðuðum herlegheitin. Fólk var meira að segja farið að bíða eftir stjörnunum þarna þegar við vorum og voru þá alveg þónokkrir tímar í að þær kæmu.
Í dag fórum ég, Olga og Bjarni í næsta bæ og að sjálfsögðu beint á ströndina. Búin að vera dugleg á ströndinni hérna en í dag var aðeins “of gott” veður ef svo er hægt að segja, því við komum öll vel grilluð heim á hótel og erum núna að baða okkur upp úr after sun og grunar mig sterklega að ég muni hafa hamskipti í nótt…
Lofaði nokkrum myndum hérna úr ferðinni og ætla ég að leyfa þeim að eiga síðustu orðin

Á lestarstöðinni á leiðinni á ströndina

Komin á ströndina… bara gott veður.

Mættur til að brenna.

Aðeins verið að ljósmyndast með nýju sólgleraugun í sandinum.

Ferðafélagarnir sáttir í Mónakó
P.S. Vil nota tækifærið hér og óska henni Arndísi Ósk Atladóttur til hamingju með afmælið… love you sæta :*

Við skelltum okkur fersk að vanda í fyrri ferð Herjólfs á föstudagsmorgun og brunað í bæinn. Þar snæddum við á Subway að sjálfsögðu og tókum bensín og ég veit ekki hvað og hvað. Svo var lagt af stað norður og fengu lög eins og Starman með Davíð Boga og Ring of Fire með Jóni Reiðufé umtalsverða athygli okkar manna á þessari leið og var sungið hástöfum með. Að stuttu stoppi á Blönduósi undanskildu var brunað beinustu leið í höfuðborg Norðursins til að hitta þar fyrir hæsta mann sunnan Kolbeinseyjar, engan annan en Hlyn nokkurn Herjólfsson. Þegar þangað var komið bauð hann okkur í íbúðina sína meðan hann kláraði að dorga með nördavinum sínum úr Háskólanum (ég veit, ekki spurja mig…).
Við vorum ekki lengi að þiggja boðið enda orðin leið á að hanga í bíl eftir 10 tíma ferðalag! Þar var opnaður fyrsti bjórinn og ekki var hann nú lengi að renna niður… maður ætlaði nú samt ekki að þora að setja bjórinn sinn inn í ísskáp hjá Norðlendingnum þar sem kjellinn var með KINDAHJÖRTU fyrir allan peninginn inni í honum. En maður lét sig hafa það, það sem drepur þig ekki styrkir þig! Svo mætti lítill Hlynsalingur í teitið sem þremenningarnir fræknu störtuðu þarna á Klettastígnum ef ég man rétt, og þá var nú ekki aftur snúið. Gleðin tók öll völd og ölið rann vel niður. Merkilegt hvað hægt er að spjalla um akkúrat ekki neitt í fleiri fleiri tíma og hafa gaman að.
Svo þegar farið var að síga á áfengisbirgðir föstudagskvöldsins var ákveðið að kíkja í Háskólapartý, og ég auðvitað ímyndaði mér eins og maður sér þetta á netinu; þvílíku gellurnar berar að ofan, olíubornar og til í allt. Neinei, það kom sko allt annað upp á bátinn. Við lentum í partýi þar sem þorri fólkins hafði lent frekar aftarlega í röðinni (ef þið vitið hvað ég meina), reyndar fyrir utan eina… auk þess sem þarna voru 3 finnskir skiptinemar. Vá hvað við áttum eftir að skemmta okkur yfir þeim þetta kvöld… því sjálfkrýndur brandakall ferðarinnar, enginn annar en ég kom með hittara á borð við ‘við þurfum að fara að finna þessa Finna áður en þeir fara að finna á sér!’ og ‘finnum Finnana áður en Finnur finnur á sér’… Hahahahaha… ég hlæ ennþá að þessu
En já Stefán sá svo um að halda fólkinu heitu með gítarglamri og munnhörpugauli þangað til við gleymdum næstum því að fara á ballið, stelpurnar í partýinu voru svo heillaðar af Stebbanum að maður varð að passa sig á að stíga ekki á tungurnar á þeim þegar maður labbaði um gólfin… Ég fór reyndar þarna í millitíðinni á smá rúnt með Svölu og Söndru vinkonu hennar (sem er btw geðveik!), en mikið djöfull hló ég nú að rúntinum á Akureyri! Ok, that’s it… það verður ekki hlegið meira að rúntinum hérna í Eyjum. HAHAHAHAHA Þvílík og önnur eins HÖRMUNG… það actually komast færri að en vilja á þennan blessaða rúnt, þetta er rúntur í kringum EITT hús liggur við. Ég hélt ég yrði ekki eldri.
En já, svo skutluðu þær stöllur okkur á Sjallann þar sem Dr. Mister & Mr. Handsome voru að spila og Guðný bókstaflega hélt ekki vatni yfir þessu. En jújú, maður skemmti sér svosem ágætlega… Gaman að spjalla við Akureyringa og enn skemmtilegra að biðja um djúpsteiktan Akureyring í nætursölunni eftir djammið… Hahahaha… En við vorum þarna dansandi við einhverja moldleiðinlega músík drekkandi gin í tonik og ég veit ekki hvað og hvað… sátum og spjölluðum við kreisí háskólakrakka og bara alla krakka eiginlega…
En svo þegar hiti fór að færast í leikinn hjá sumum (Hlyn & Stefáni!) ákvað minn að nú væri komið nóg og við skyldum fá okkur feita samloku og franskar fyrir svefninn og tölta svo heim til Hlynsans. Fórum reyndar smá leynileið sem ég fann heim til hans í gegnum skóg og runna og ég veit ekki hvað og hvað. En allavega, heim komumst við og þar hafði ég pantað mér dýnu til að sofa á og ætlaði mér sko að ná henni! Og gerði það reyndar að lokum… en þó ekki eins og ég hafði ætlað mér… á meðan fólkið fór að ‘mönnsa’ eitthvað fyrir svefninn dró ég út stóru dýnuna og faaaaðmaði
hana að mér og það mátti sko enginn annar vera á henni nema ég. Samt var ég ekki alveg á dýnunni. Þetta var allt saman útpælt hjá mér því ég vissi að Guðný myndi ræna stæði á dýnunni og hún fengi aukasængina frá Hlynsa þar sem það var bara ein aukasæng. Svo seinna um nóttina rændi ég auðvitað sænginni af tjéddlingunni og svaf eins og engill. Mjög svo skemmtilegur endir á SNILLDAR kvöldi. Og þetta er sko bara föstudagurinn… ég veit að þið munuð bíða spennt eftir laugardagshlutanum og þar sem ég er á leiðinni til Reykjavíkur um helgina með Féló get ég ekki lofað ykkur henni fyrr en einhverntíman eftir helgi… Bíðiði bara róleg og reyniði að þrauka þetta…



Síðustu komment