Eldri færslur fyrir stikkorð » djamm «

færsla skrifuð kl. 17:18 - 28. September, 2007 | Höfundur:

Það hlaut að koma að því að maður myndi prófa “nýja” MySpace-ið, en það er Feisbúkkið sem hefur verið að gera garðinn frægann. Ég man að Þórhallur og Hrund voru að ota þessu að mér fyrir einhverju vegna þess að þeim fannst MySpace of flókið… ég hélt nú ekki þar sem mér fannst í rauninni FaceBook miklu flóknara… Skráði mig nú samt á það fyrir nokkrum vikum eða mánuðum og skoðaði. Mér leist nú ekkert svakalega vel á þetta svona í fyrstu, en er búinn að vera að skoða þetta betur í dag og komist að því að þetta er mun skemmtilegri vettvangur en MySpace og hvet ykkur sem hafið gaman af svona síðum að skrá ykkur þarna ;)

En að öðru, hvað er málið með Benitez? Hann er ekki viss um að hann hafi Torres í byrjunarliði Liverpool a morgun… Hvað þarf drengurinn að gera til að fá að byrja leik? Skora 10 mörk í leik? 27 milljón punda leikmaður, dýrasti leikmaður í sögu Liverpool og hann hefur komið inná sem varamaður í tveimur deildarleikjum sem hafa báðir farið 0 – 0! Skoraði þrennu í síðasta leik gegn Reading í bikarnum… hvernig er ekki hægt að setja hann í byrjunarliðið? Ég verð geðveikur ef við vinnum ekki Wigan um helgina…

Svo er bara komin enn ein helgin. Allt að ske í 1. deildinni í fótboltanum þar sem ÍBV á mjöööög svo veika von um að komast upp í efstu deild, en þar voru leikir að byrja núna klukkan 17:15. ÍBV á heimaleik við Fjölnismenn, en til þess að komast upp um deild verðum við að vinna þann leik ooooog hér kemur kickerinn… við verðum að treysta á að Reynir Sandgerði vinni Þrótt… eins og ég sagði, frekar veik von :)

Ætla að kalla þetta gott og koma mér í vinnu niðrá Café… sé ykkur vonandi sem flest á Lundaballi á morgun!

PS. Vil nota tækifærið og óska Sigga Ara til hamingju með afmælið í gær!

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , , ,  | 3 komment
færsla skrifuð kl. 11:31 - 13. September, 2007 | Höfundur:

Nú tók í gildi í sumar, nánar tiltekið 1. júní, reykingabann hér á landi sem kveður á um að reykingar séu með öllu óheimilar á veitingahúsum og skemmtistöðum. Til að hafa þetta svolítið háfleygt og flott ætla ég að vitna í fyrstu málsgrein “reykingalaganna” svokölluðu

Tóbaksreykingar eru óheimilar í þjónusturými stofnana, fyrirtækja og félagasamtaka, svo sem á veitinga- og skemmtistöðum og þar sem menningar- og félagsstarfsemi fer fram, þ.m.t. íþrótta- og tómstundastarf. Sama er um þjónustusvæði utan húss séu þau undir föstu eða færanlegu þaki og meira en að hálfu leyti umlukin veggjum eða sambærilegum mannvirkjum.

Nú hefur maður kíkt einu sinni og kannski tvisvar á pöbbann hérna í Eyjum og ekki get ég sagt að þessu reykingabanni sé mikið fylgt eftir þar á bæ (að undanskildum Drífanda). Þá vaknar sú spurning í valdi hvers það er að framfylgja þessum lögum. Ég hefði haldið að það væri lögreglan, en lenti svo á spjalli við einstakling sem vinnur á skemmtistað og sagði hann að það væri ekki lögreglunnar að framfylgja þessum lögum, heldur væri það í höndum heilbrigðisyfirvalda.

Ég hélt einmitt að allt sem væri sett í lög á Alþingi væri lögreglunnar að framfylgja. Ég hef ekki mikið séð starfsmann frá heilbrigðisyfirvöldum taka pöbbaröltið hér í Eyjum til að skoða ástandið. Það er tvennt ólíkt að labba inn á stað þar sem reykingabannið er virt en stað sem það er ekki virt. Mér persónulega finnst að það eigi að vera í höndum lögreglu að gera eitthvað í þessu því annars mun þetta detta upp fyrir sig og reykingar leyfðar á öllum þessum stöðum, því auðvitað tapar þessi eini staður sem er virkilega að framfylgja reykingabanninu á því að hinir staðirnir skuli leyfa reykingar.

En í framhaldi af þessu langar mig til að spyrja hvort einhver viti hvort það sé lögreglunnar að framfylgja þessu eða ekki? Ég hélt það væru einhverjar himinháar sektir ef einhver yrði gripinn við reykingar inná staðnum… varla fer heilbrigðiseftirlitið að sekta? Og kannski eitt enn, hvað finnst fólki um þetta reykingabann?

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | 12 komment
færsla skrifuð kl. 17:40 - 05. June, 2007 | Höfundur:

Þá er þessi blessaða sjómannadagshelgi yfirstaðin og auðvitað nældi ég mér í einhvern flensuviðbjóð svona í blálokin á henni. Búinn að liggja uppi í rúmi þessa 2 frídaga sem ég ætlaði að nota í e-ð skemmtilegra en það allavega. En að helginni…

Það var vel tekið á því þessa helgina eins og svo margar aðrar sjómannadagshelgar, eiginlega aðeins of vel þar sem ég var búinn að lofa mig í vinnu á Café María bæði laugardag og sunnudag. Mætti samt ferskur í vinnuna á laugardeginum, en það var annað mál með sunnudaginn. Að vinna í eldhúsi alveg draugþunnur og svona eftir á að hyggja í byrjun veikinda er eitthvað sem ég vona að enginn (eða allavega ekki þið sem ég hef gaman að) upplifi. Annars tókst þetta nú bara mjög vel miðað við aðstæður, maður var að koma þarna í vinnu í fyrsta skiptið í 2 ár. Við Sigrún fengum allavega nokkur hrós á staðnum og meira að segja á ballinu var komið og þakkað fyrir frábæran mat… bara gaman að því ;)

Annars var þetta ball alveg svona ágætis yfir heildina. Ég þakka reykingabanninu fyrir að manni sortnaði ekki fyrir augun við að labba inn í Höllina, þvílíkur fjöldi fólks sem var mættur á þetta ball. En auðvitað var ekki opið upp… þetta er alveg óþolandi. Ég legg til að Þröstur kaupi bara allt sem er þarna uppi og noti þegar hann stækkar barinn sinn… fullt af kósý sófum, flottur bar sem er opinn allan hringinn svo það auðveldar aðgengi að honum… nefni þetta við hann næst þegar ég fer á Drífó, sem ég ætla samt að vona að verði ekki næstu helgi!

Annars er ég búinn að vera fastur í þessum leik í 2 daga… einstaklega ávanabindandi leikur sem ég fann á heimasíðunni www.black.is, sem ég er víst orðinn meðlimur að! Endilega kíkið á þessa síðu sem Gulli, Siggi bróðir og Aron störtuðu, verða þarna myndir af djamminu og fleira fyndið.

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , ,  | 2 komment
færsla skrifuð kl. 12:48 - 30. May, 2007 | Höfundur:

Já við komum heim frá útlöndunum á fimmtudaginn í síðustu viku. Það hefur verið nóg að gera hjá manni eftir það að heilsa upp á fólkið, taka upp úr töskum, taka til eftir það og vinna. Svo var auðvitað Eyjafest hérna um helgina, en Árni Óli & Hjörtur tóku sig til og skipulögðu heila helgarskemmtun hérna í Eyjum þar sem þeir fengu til liðs við sig nokkrar af efnilegustu rokkhljómsveitum landsins og var þessu öllu saman troðið saman í dagskrá sem teygði sig frá föstudegi til aðfaranótt sunnudags. Þar sem ég var að vinna á föstudaginn komst ég ekki fyrr en á laugardaeginum og ekki varð maður fyrir vonbrigðum. Ég fór með Þóri (kærastanum hennar Elenu systur) og sá maður hljómsveitir á borð við Leaves, Hoffman, Brain Police og Wulfgang. Ég ætla bara að vona að hátíðin hafi gengið vel og að þetta verði gert að árlegum viðburði!

Annars er maður nú bara búinn að vera að vinna, lítið að gera reyndar í Féló þar sem krakkarnir eru nú frestir í prófum. Styttist svo í að vinnuskólinn byrji og get ég ekki beðið eftir að vera að vinna úti í sumar ;) Einu sinni áður verið flokkstjóri í vinnuskólanum en það var árið 2003, orðið svolítið langt síðan.

Svo er ég að fara að ræða við Helenu og Stefán á Café, þau vantar víst kokk í sumar og gæti vel verið að maður myndi næla sér í einhverja aukavinnu hjá þeim svona þegar vantar. En það kemur betur í ljós í kvöld þegar ég fer og spjalla við þau.

Já það er allt að ske hjá manni hérna í Vestmannaeyjum. Ætla samt að fara að kalla þetta gott en ætla nú ekki að gleyma að láta ykkur vita af myndunum úr ferðalaginu, þær eru komnar inn í myndaalbúmið mitt, sem eins og allir vita, ég er mjög svo duglegur að uppfæra :D

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 10:14 - 21. May, 2007 | Höfundur:

Þá er síðasti dagurinn okkar í Frakklandi runninn upp. Við vöknuðum aðeins fyrr en venjulega þar sem Guðný er í fríi í allan dag og það var ýmislegt sem þurfti að gera í dag. Olga er komin í feita yfirvigt og þurfti að kaupa auka tösku undir allt DRASLIÐ sitt, já ég sagði draslið ;)

Svo erum við að fara til Ítalíu núna í þessum töluðu orðum. Ég ákvað að henda inn mínum síðustu orðum í Frakklandi þar sem við höldum til London til Þórhalls og Hrundar klukkan 11 í fyrrmálið. Þar verðum við svo þangað til á fimmtudaginn, en þá fljúgum við aftur heim til Íslands.

Ég skellti mér á djammið með stelpunum í gær í fyrsta skiptið í ferðinni. Við fórum bara hérna aðeins niður í bæ og tókum stutt pöbbarölt á þetta, voðalega notalegt bara. Ég held ég geti alveg sagt það með vissu að ég er búinn að spara mér þónokkurn pening á því að chilla heima með Bjarna öll hin kvöldin ;)

Læt samt fylgja með nokkrar myndir af gærkvöldinu. Þess má geta að ég get ekki hent myndunum úr minni myndavél inn á þessa tölvu svo ég fékk þessar lánaðar hjá Gvuníju ;)


Við að webcamast


Myndavélaflipp í gangi…


Ég og G-Unit


Barþjónninn átti afmæli og bauð okkur að sjálfsögðu í glas… ;)


Svo sæt saman…


Sáttur eftir barferð :D

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , ,  | 5 komment
færsla skrifuð kl. 03:34 - 26. April, 2007 | Höfundur:

Jæja þá er helgin liðin, og mikið var nú gaman. Mikið var um að vera þar sem Toyota hélt hér bílasýningu á öllum sínum glæsilegustu kerrum og bauð svo á ball í Týsheimilinu á laugardagskvöldið með Eyja-hljómsveitinni Dansi á Rósum. Það þarf ekki að segja manni tvisvar að þegar manni er boðið á ball, þá mætir maður ;)

Við byrjuðum þrír heima hjá Svenna en það vorum ég, Svenni og Steeb. Sötruðum og spjölluðum milli þess sem gripið var í gítarinn og jafnvel stöku sinnum í taflborðið… dúndrandi stemmning auðvitað þangað til við ákváðum að henda upp á Conero og fá okkur eins og einn Irish til að starta fjörinu nú almennilega. Eftir það var farið heim til Sigga bró þar sem fyrirpartý var í gangi og tókum við félagarnir nokkra pool leiki milli þess sem við spjölluðum við liðið sem þar var.

Þá var röðin komin að ballinu, en við vorum svolítið snemma í’ðí og því ekki margt um manninn þegar við komum. Við létum það ekki á okkur fá og skunduðum að sjálfsögðu á barinn… sem var nú meiri hel#”!#$ okurands$$#”!… lítill, og þá meina ég sko eiginlega extra lítill bjór var á 600 kall. Hann var afgreiddur í litlum plastglösum og hellt úr hálfs líters dósum, og ég efast ekki um að þær hafi náð að kreista 3 glös úr hverri dós. En eftir að hafa bölvað verðlaginu í sand og ösku var kominn tími til að skemmta sér svolítið svo við settumst niður til að spjalla við eitthvað vel valið lið… og eftir því sem drykkirnir urðu fleiri fór maður að spá minna í verðinu á bardjöflinum svo manni tókst að skemmta sér smávegis þangað til hent var út.

Þá kom að sjálfsögðu ekki til greina að hætta svo við Stefán húkkuðum okkur far niðrá Drífanda og vorum greinilega með þeim fyrstu af ballinu því þar var enginn. Þar myndaðist þessi venjulega stemmning, en eftir það kíktum við aftur heim til Sigga bró í eftirpartý. Það má segja að það hafi verið skemmtilegasti partur þessa kvölds þar sem gítarinn var rauðglóandi, húfan mín sungin á báðum hæðum (tölum ekki meira um það :) og allt sem áfengt var, var klárað í húsinu.

Svo fórum við bræður, þegar partýinu lauk, heim í Ísjakann og elduðum okkur kjúkling og franskar, sem við átum með bestu lyst klukkan 7 um morguninn… ;)

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð:  | eitt komment
færsla skrifuð kl. 23:59 - 10. April, 2007 | Höfundur:

Jæja þá eru páskarnir búnir. Auðvitað var tekið vel á því eins og alltaf um páska hérna í Eyjum, þetta er bara eins og lítil Þjóðhátíð. Djammið var fínt og gaman að hitta alla krakkana sem búa upp á landi… Nú hefst svo hið daglega líf hjá manni aftur og verður tekin smá pása frá djammi eftir þessa törn.

Ég er svolítið farinn að spá í hvað maður eigi að gera í sumar, enda ekki seinna vænna. Mér sýnist allt stefna í að maður fari í vinnuskólann hjá Sigþóru, en reyndar kom Gísli með skemmtilegan vinkil inn í þá umræðu þegar ég sat með honum að sumbli á föstudaginn langa. Hann spurði hvort við ættum ekki bara að skella okkur á sjó saman. Nú hef ég aldrei farið á sjó og aldrei svo mikið sem reynt að koma mér á sjó, en þegar hann kom með þessa hugmynd fannst mér hún bara ekkert vitlaus. Þarna eru peningarnir, og þótt þetta sé mikil vinna þá hefur maður bara gott af þessu og fínt að geta sagt hafa reynsluna af því að hafa verið á sjó :)

Svo hef ég svolítið verið að velta fyrir mér með áframhaldandi nám eftir framhaldsskóla, og bara áframhaldandi allt. Vera í Eyjum og klára skólann? Fara annað og klára í fjarnámi… til dæmis út? Margt sem er að veltast um í hausnum á mér þessa dagana, eiginlega of margt. Þess vegna er ég virkilega að elska það að það sé núna um mánuður þangað til ég skýst út til London að heimsækja Þórhall bró og Hrund & Svölu auðvitað, og svo þaðan til Nice í Frakklandi að flatmaga í sólinni með Gvuní, Olgu og Bjarna. Það verður án efa geggjuð byrjun á frábæru sumri!

Langar að enda þetta á myndbroti úr gömlu DV blaði sem ég rakst á á flakkinu um veraldarvefinn… ekki myndi ég nú vilja lenda í þessu:

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | 2 komment
færsla skrifuð kl. 04:01 - 26. March, 2007 | Höfundur:

Jæja, þá er maður búinn að skipta um kerfi hérna á síðunni auk þess sem ég fór í að skipta um útlit bara í leiðinni. Skipti yfir í aðeins skemmtilegra bloggkerfi sem heldur betur utan um færslurnar og er mun stöðugra. Er búinn að sitja sveittur fyrir framan tölvuna og henda öllum bloggfærslunum á milli kerfanna, en ég þarf einmitt að gera það færslu fyrir færslu… ekki alveg það skemmtilegasta. Nú á ég bara eftir að henda inn bloggi frá 2002-2004, en þann tíma notaðist ég við blogger.com.

Maður skellti sér svo á Hippaball í gær og ég verð bara að segja það að það kom mér á óvart hvað það var gaman. Fékk lánuð föt hjá Stebba, en þess má til gamans geta að ég var í fötum af systur hans og móður. Hahaha. En já, bara gaman og fullt af skemmtilegu liði sem maður hitti þarna. Endaði svo í partýi hjá Haffa litla eins og svo oft áður í Gimla, og svo skutlaði hún Ragnheiður Lind mér heim að lúlla. Bara skemmtilegt kvöld.

Ætla nú ekki að hafa þetta lengra, löngu kominn tími á að fara að sofa. Endilega komiði með komment á nýju síðuna…

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | 2 komment
færsla skrifuð kl. 23:21 - 01. February, 2007 | Höfundur:

Þessi tími er orðinn skuggalega fljótur að líða. Ein helgin er ekki fyrr búin en sú næsta bankar uppá. Síðasta helgi var nú svolítið skrítin hjá manni. Það var Nótt í Féló á föstudeginum sem var auðvitað ekkert nema snilld, 50 krakkar í fullu fjöri eftir að hafa byrgt sig vel upp af orkudrykkjum til að halda út nóttina. Við tókum okkur til og horfðum á velflesta Heroes þættina sem eru komnir á netið auk þess sem var horft á hryllingsmyndir, poolmót, kappát og ég veit ekki hvað og hvað. Maður var að skríða uppí rúm heima hjá sér rúmlega 10 á laugardagsmorgun, og svaf ég eins og steinn til sjö um kvöldið.

Þá var komið að því að búa sig fyrir afmælið hennar Olgu, en hún varð 19 ára á mánudaginn síðastliðinn! Til hamingju með það sweetypie :* Maður var kominn í afmælið um 9 leitið og auðvitað var opnaður bjór í tilefni þess. Helvíti hressir krakkar mættir þarna og mikið gaman, mikið fjör. Svo fer nú allsvakalega að halla undan mínu minni, væntanlega sökum þreytu… :o En já, ég fór víst á Drífanda og Lundann og kom við í partýi hjá Sigga bró áður en ég drattaðist loksins heim. Það er eiginlega freeeekar langt síðan ég hef lent í blackouti og ekki get ég sagt að það sé nú eitthvað til að hrópa húrra fyrir. Greinilegt að drykkjupása 2 helgar í röð hefur ekki góð áhrif á næsta fyllerí… :-D

Annars er maður að fara á Vík í Mýrdal á morgun. Já, þið lásuð rétt… Vík í Mýrdal! Þar verður söngvakeppni félagsmiðstöðva á Suðurlandi haldin og förum ég, Sigþóra & Arndís með nokkra krakka úr Féló og verður þetta örugglega mjög skemmtilegt. Búið að skipuleggja fullt af hlutum sem hægt er að gera þarna, svosem fótboltamót, golf-drive keppni og ég veit ekki hvað og hvað… Svo komum við aftur heim á sunnudaginn…

Jæja, best að fara að pakka niður einhverju drasli og koma sér í háttinn.

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 02:00 - 04. January, 2007 | Höfundur:

Jújú, það er barasta komið 2007. Eigum við að ræða það hvað þessi tími er farinn að líða hratt? 24. aldursárið farið að hellast allsvakalega yfir mann og árgangsmót á leiðinni næsta sumar! Var einmitt hittingur hjá árgangnum milli jóla og nýárs og mættu um 30 manns á Conero til að spjalla um ákvarðanir og skipa í nefndir. Niðurstöður þessa fundar má sjá á heimasíðu árgangsins http://83.einir.com.

Annars er voðalega lítið að frétta. Nóg búið að vera um að vera í djamminu þessi jólin eins og vanalega. Auðvitað hefur maður líka spilað svolítið með familíunni og spilin sem staðið hafa uppúr þessi jólin eru nýja trivial (sem er bara ekkert sérstakt..), sequence & auðvitað catan ;)

Tók svo þessi líka snilldar áramót með Sigga Ara, Theo, Bixie og fleirum þar sem mér var gjörsamlega rústað í Buzz og ég sleppti við að borga fokking 2500 kall inn á áramótaball í Höllinni og láta svo okra á mér á ógeðisbarnum þar… WÚHÚ! Fólk var eldhresst á Drífanda og auðvitað fór maður þaðan út með öskubökkunum eins og vanalega… þaðan var haldið heim til Árna Óla þar sem var bókstaflega ENGINN. Gerðum okkur heimakomin í stofunni hjá honum til svona 9-10 þegar maður ákvað að koma sér heiiiim. Skál allir og takk fyrir frábær áramót!

GLEÐILEGT NÝTT ÁR !

Annars er bara skólasetning með öllu tilheyrandi á morgun og skólinn byrjar bara á föstudaginn… sjitturinn titturinn. Ætla að taka 2 fög í fjarnámi í FG nema að FÍV bjóði mér betur :-D

Jæja… þangað til næst…

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment