Eldri færslur fyrir stikkorð » danmörk «

færsla skrifuð kl. 01:49 - 17. July, 2006 | Höfundur:

Ég tók mig til og verslaði mér eitt stk. Canon EOS 350D myndavél í fríhöfninni þegar við Bergdís skelltum okkur í vikuferð til Köben í ásamt og í boði tengdó. Þetta hefur alltaf verið gamall draumur að kaupa mér svona alvöru myndavél og ég sé svo sannarlega ekki eftir því að hafa keypt hana. Ég er búinn að vera að taka myndir síðan ég fékk vélina í hendurnar, eða kannski síðan ég fékk linsuna í hendurnar… þar sem ég keypti ekki standard linsuna með vélinni af því Þórhallur bróðir ætlar að vera svo góður að senda mér sína, sem hann er hættur að nota ;) Tók einmitt myndavélina með mér í brúðkaupið hjá Tómasi Inga frænda til að prófa hvernig fílingurinn er og náði nokkrum góðum myndum þar. Svo er maður auðvitað búinn að vera að lesa sig til hér og þar um hinar og þessar stillingar sem svona myndavélar bjóða upp á til að bæta gæði myndanna og hvernig maður vinnur með lýsingu og fleira og fleira. Langar að láta fylgja nokkrar myndir sem ég hef tekið á vélina hér og þar… lítið búinn að vinna með þær nema þá helst til að skerpa þær í Photoshop og skella einhverju í svarthvítt. Endilega komið með komment á kvikindin svona bara til að koma smá lífi í þessa síðu :-D

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 23:40 - 04. April, 2006 | Höfundur:

Mikið er nú gott að setjast niður með lappann í fanginu og opna sér einn ískaldann mjöður eftir langan vinnudag. Maður róast svo niður og fer að hugsa um allt og ekkert. Mér varð hugsað til Þjóðhátíðar, fór inn á dalurinn.is, og viti menn… það er búið að ráða 2 aðal hljómsveitirnar og greinilega allt að ske í þeim málum! ;-) Í Svörtum Fötum & Á Móti Sól verða 2 af þrem stóru hljómsveitunum þetta árið, en þeir eiga eftir að finna/semja við þá þriðju sem mun einnig spila á Húkkaranum. Vá hvað mig er farið að hlakka til..
Svo er annað mál… nú er komin upp sú staða hjá mér að það virðist sem ég sé á leiðinni á skelduna, eða svona næstum því eiginlega. Tengdó bauð de hele familien út til Danmerkur í enda júní, en það vill svo heppilega til að við verðum úti í viku og þá akkúrat yfir Hróaskelduhelgina :-D Og það eru að mér sýnist þónokkrir á leiðinni á skelduna úr mínum vinahóp svo það er aldrei að vita nema maður fái leyfi til að skjótast á Skelduna á sunnudeginum þar sem þeir eru nú svo sniðugir þarna að selja inn á sunnudaginn sér. Fær maður að sjá soldið af þessum snilldar böndum sem eru komin og svo auðvitað hitta allt fallega fólkið sem maður þekkir ;)

Annars er þessi hugmynd nú bara ennþá á teikniborðinu, en þetta yrði góð viðbót við snilldar sumar sem maður er farinn að sjá fram á.