Eldri færslur fyrir stikkorð » þjóðhátíð «

færsla skrifuð kl. 19:31 - 02. April, 2007 | Höfundur:

Þessi helgi var nú bara tekin rólega. Tók að mér að fara upp á Selfoss með krakkana úr Féló á landsfund félagsmiðstöðva á laugardagsmorgun og átti að koma aftur samdægurs, en ákvað að framlengja ferðina til mánudags og kíkja í bæinn. Það sem einkenndi þessa annars ágætu ferð mína til borgar ótta og volæðis var rólegheit og chill í faðmi fjölskyldunnar heima hjá Elenu systir.

Fór svo í gær með Sigga bró á TMNT eða Teenage Mutant Ninja Turtles, en við vorum forfallnir Turtles aðdáendur þegar við vorum yngri.. bara gaman að sjá þessa mynd :) Skellti mér svo heim til Eyja með fyrri ferð Herjólfs í dag og er núna í vinnu uppí Féló. Páskafríið að kicka inn og fjörið sem því fylgir hérna í Vestmannaeyjum verður örugglega ekki af verri endanum frekar en vanalega… þetta er eins og hálfgerð Þjóðhátíð.

Talandi um Þjóðhátíð… djöfull er orðið stutt í hana maður lifandi! Ég þarf að fara að koma með niðurtalningu í kvikindið hérna á síðuna…

En þangað til næst…

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 21:04 - 12. August, 2006 | Höfundur:

Góða kvöldið gott fólk. Já, þá er heilsan svona farin að skríða aftur í sama horf eftir þessa líka roooosalegu Þjóðhátíð. Ég var svo ljómandi heppinn að næla mér í hina dæmigerði þjóðhátíðarveiki vikuna eftir hátíðina þar sem maður lá bara með hálsbólgu, kvef og hita í svitabaði. Svaf lítið sem ekkert en það er svona að mestu komið í lag núna. Það er nú bara stutt frá því að segja að þessi þjóðhátíð treður sér tvímælalaust í topp 5 og sannaði ég það fyrir sjálfum mér að maður er ekkert að verða gamall. Hérna er Þjóðhátíðin mín svona í grófum dráttum:

Þriðjudagur:
Já við byrjum Þjóðhátíðina alltaf á þriðjudegi og árið í ár er engin undantekning. Byrjuðum heima hjá Sigga bró og eftir það var haldið áleiðis á Johnsen bar. Þar var ágætis stemmning en algjört pulsupartý svo við bræðurnir fórum á Conero og þaðan fór ég bara heim á leið. Stutt og tilþrifalítið djamm en það átti eftir að borga sig daginn eftir… eða þannig.

Miðvikudagur:
Á miðvikudeginum var þessu startað á KFS leik þar sem Trausti Hjaltason fór fyrir sínum mönnum eins og herforingi. Hörku stemmning var á leiknu sem KFS menn unnu að sjálfsögðu með engan annan en Magnadona í framlínunni. Eftir leikinn var svo farið heim til Bróa sem er búinn að smíða þennan líka fína bar í stofuna hjá sér. Vorum þar eldhressir þar til kvenfólkið fór að týnast inn með Margréti í farabroddi. Hjehje… létt spaug Magga mín, hörkufjör þar sem endaði svo heima hjá Ágústu á Brimó… eða hvað? :P

Fimmtudagur:
Húkkarinn framundan. Byrjaði að sötra heima með fólkinu og tókum við aðeins fram gítarinn. Tókum Blister in the sun eins og sannir meistarar og komum okkur í gírinn á mettíma. Það varð bara til þess að mann langaði ekkert að fara en að lokum skaust ég heim til Ágústu og hitti Steingrím og Rósu, æskuvini af Búhamrinum í allsvaðalegu teiti ofar á Brimhólabrautinni. Biggi hafði ákveðið að hitta mig þar sem hann gerði, en ákvað í leiðinni að vera fyndinn og hella vatni yfir Steina sem svaraði í sömu mynt, nema með bjór. Hahahaha… við erum að tala um það að á miðju djammi þurfti lítill Einir að fara með litlum Bigga heim til ömmu hans til að fara í sturtu. En það var líka það sem drap mig. Helvítið gaf mér Jager í magic og kvöldið varð bara svartara og svartara eftir það. Endaði spúandi eins og múkki upp Heiðarveginn en komst sem betur fer heim. Fór víst á Prófastinn í millitíðinni en látum frásagnir af afrekum mínum þar í hendur einhverra annarra…. :D

Föstudagur:
Fyrsti dagur Þjóðhátíðar runninn upp og fólk virkilega komið í fílinginn (þeir sem ekki voru þunnir allavega). Maður byrjaði að sötra upp úr kvöldmat og skelltum okkur í dalinn um 9 leitið. Kíktum í tjaldið til Sigurrósar og Eyglóar frænka minna sem taka alltaf jafn vel á móti okkur (og bara öllum) með alls kyns góðlæti, og ber þar helst að nefna tartaletturnar sem eru til að drepa fyrir og samlokurnar sem þær smyrja einmitt með þessu tartalettu gumsi… namminamm! Svo var það brekkan þar til kveikt var í brennunni en eftir hana var farið og skilað myndavélinni góðu heim og svo tekið rölt í dalnum, tjaldaflakk og fleira þar til við Bergdís fórum heim um klukkan 7.

Laugardagur:
Á laugardeginum var komin svolítil þynnka í liðið sem varð til þess að við gerðum lítið sem ekkert á laugardeginum. Við fórum frekar seint í dalinn eða uppúr 10. Drösluðumst af Brimó í dalinn og komum aðeins við í tjaldinu hjá frænkunum á leiðinni upp í brekku. Svo var komið sér vel fyrir og hlustað á frábæra dagskrá þetta kvöld áður en flugeldasýningin byrjaði. Veðrið setti óneitanlega strik í reikninginn þar sem það var rigning og þoka en þá er ekkert að gera nema geyma hluta flugeldanna þar til kvöldið eftir, sem þeir líka gerðu. Bjargvættur kvöldsins var án efa regnhlífin góða frá Ísjakanum! Takk kærlega fyrir hana pabbi og mamma :D Svo var það bara sama rútínan sem tók við, tjaldaflakk, rölt um dalinn og bekkjabílarúntar. Ég reyndar endaði á Prófastinum þegar Bergdís fór heim og var þar að langt fram eftir morgni og var sko ekki á leiðinni að hætta eftir það. Við fórum nokkur í partý til Svölu uppá Höfðavegi og vorum að til 2 eða 3 að deginum :o Það voru vægast sagt óblíð augun sem ég fékk þegar ég skreið inn um dyrnar heima um það leitið… :S En þetta var samt sem áður snilld og alveg ógleymanlegur svipurinn á Nonna kærasta Svölu þegar hann kom nývaknaður upp við lætin í okkur og þá kannski sérstaklega hinn ógleymanlega frasa “Hvað er AÐ ykkur?” ;)

Sunnudagur:
Það gafst nú ekki mikill tíma til að sofa þennan daginn en það kannski bjargaði mér að vera hálf mollý þegar ég vaknaði um klukkan 7 leitið. Fór beint í bjórinn og við fórum svo stuttlega eftir það niður í dal. Hitti einhvernveginn miklu meira af fólki þetta kvöld en hin (eða var ég bara í betra ástandi… =) og ég var líka mest í tjaldinu hjá frænkunum góðu þetta kvöld. Var krýndur Vestmannaeyjameistari á hristum þetta kvöld og fékk sérstakar þakkir frá gítarleikurunum fyrir magnað og taktfast hrist. Ég verð þó að játa að án Kjartans á skeiðunum hefði mér aldrei tekist þetta… Svo var djamminu auðvitað haldið áfram eins og enginn væri morgundagurinn. Fór meira að segja á Prófastinn eftir að hafa fylgt minni elskulegu Bergdísi heim kl 6. Var að með Bigga, Gísla Böðvari ásamt því að kynnast þarna heilmörgum sem ég man nú ekki alveg hvað heita allir… man allavega eftir 3 gaurum frá Mosó og einum frá Jan Mayen! :D Svo endaði ég djammið með Svölu, Karlottu og hennar vinkonum (Sykurpabba og fleirum) og auðvitað honum Jóni, sem fyrirgaf mér alveg lætin í mér nóttina áður :D Skokkaði svo heim eldhress kl. 11 á mánudagsmorgni.

Hmm… þetta varð nú aðeins lengra en ég hélt að þetta yrði og ég einhvernveginn efast um að einhver sé að lesa lengur :D Ég vil samt þakka öllu þessu frábæra fólki sem ég upplifði þessa Þjóðhátíð með. Þetta var snilld frá A-Ö. Sjáumst öll hress sem fyrst og pottþétt aftur á Þjóðhátíð að ári liðnu ;)

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 21:01 - 26. July, 2006 | Höfundur:

Nú er farið að styttast allsvaðalega í stærstu skemmtun ársins, það er að segja Þjóðhátíð Vestmannaeyja og ef ég á að segja alveg eins og er þá get ég bókstaflega ekki beðið. Heimþráin er orðin það sterk að ég er búinn að biðja um að fá frí fyrr í vinnunni til að komast sem fyrst til Eyja! Enda er maður nú ekki beint mjög sjóaður í þessu, að vera burtu frá heimkynnunum og vinunum yfir sumartímann… þetta er fyrsta og vonandi síðasta skiptið…

En að þessu margumtalaða þjóðhátíðarlagi. Eftir að hafa bæði hlustað á kvikindið oft og mörgum sinnum og svo reynt það á gítarinn góða verð ég að segja að þetta lag er ekki eins slæmt og allir vilja meina. Bíðiði nú alveg með að fleima mig, ég ætla að útskýra. Lagið sjálft finnst mér vera vel samið og fínn texti (þótt ekkert sé minnst á Vestmannaeyjar, lundann, dalinn, brennuna eða peyja) og gæti alveg virkað í dalnum í annarri útgáfu en sú sem er á dalurinn.is – Það er bara í höndum gítarleikara dalsins að útfæra þetta í aðeins skemmtilegri og umfram allt lægri tóntegund en nú er í gangi, því það heyra það allir sem hafa hlustað á þetta lag að brekkan á eftir að hljóma eins og kattaslátrun ef við förum að reyna að hætta okkur í sömu hæð og þessi blessaða Hrund Ósk (heitir hún það ekki).

Og fyrst það er nú svona stutt í þjóðhátíð hefur maður verið að skoða gamlar þjóðara myndir og ég verð nú bara að skella einni eða tveimur hérna til að minna fólk á af hverju maður er að þessari vitleysu.. heehehe. Þessar myndir eru frá Þjóðhátíð 2003:

Ég veit ekki hvort maður eigi eftir að pósta einhverju hér fyrir Þjóðhátíð en ef svo verður ekki, þá vil ég bara óska öllum Gleðilegrar Þjóðhátíðar… Sjáumst í DALNUM!

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 14:30 - 21. July, 2006 | Höfundur:

Eruði að grínast með þessa hörmung? Ég var bara frekar sáttur þegar ég heyrði að Maggi Eiríks myndi sjá um lagið í ár og beið með eftirvæntingu þar sem það átti að frumflytja lagið í dag. En guð minn góður… við skulum byrja á því að lagið byrjar eins og einhver ‘slagarinn’ með Ace of Base með tilheyrandi ‘skemmtara undirspili’. Svo kem ég ekki alveg fyrir mig hver þetta er sem er að syngja, einhver stelpa allavega. Það vantar alveg þessa Þjóðhátíðarstemmningu í lagið sem ég verð að viðurkenna að Hreimur á ekki í neinum vandræðum með að ná í sínum lögum. Mér finnst þetta lag allavega vera bara eitthvað miðlungs sumarpopp með þjóðhátíðartexta. Hvað finnst ykkur? Ef þið eruð ekki búin að heyra lagið, er það að finna hér.

En auðvitað lætur maður svona lagað ekki draga sig eitthvað niður, heldur skellir bara Í dalnum disknum í tækið og á rípít þangað til maður skellir sér til Eyja, miðvikudaginn fyrir Þjóðhátíð… Yeah!

Update: Var að fá fregnir af því að þetta sé EKKI hið rétta Þjóðhátíðarlag, enda er ekki mikill Magga Eiríks bragur yfir þessu. Mikið ætla ég að vona að þetta sé rétt!

Ef þetta er ekki þjóðari...!

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 02:23 - 19. July, 2006 | Höfundur:

…að kjósa Magna í Rockstar Supernova!? Þetta var alveg hreint magnað hjá kappanum og bara hans besta frammistaða að mínu mati! Ég skal sko hundur heita ef hann fer ekki áfram í næstu umferð… þótt það væri nú gaman að fá hann á Þjóðhátíð. En allavega… áfram Magni!

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 22:21 - 28. April, 2006 | Höfundur:

Já svei mér ef það er ekki farið að votta fyrir smá spenningi fyrir Þjóðaranum í ár… Kíkti á dalurinn.is og haldiði ekki að Todmobile sé ekki búin að boða komu sína á hátíðina í ár. Bara gaman að því, sérstaklega þar sem ég fór á mitt fyrsta ball með þeim í Eyjum um daginn og skemmti mér líka svona ljómandi vel. Sat lengi vel bara og hlustaði á tónlistina, ekki oft sem það gerist á balli… allavega ekki hjá mér :-) En já, það eru víst 97 dagar í herlegheitin og hef ég komið upp niðurtalningu hérna til vinstri… segiði svo að ég sé latur! ;) Niðurtalningin er sett á föstudag þjóðhátíðar en að sjálfsögðu má reikna með að djammið byrji 2 – 3 dögum fyrr :-P

En já, það er komin enn ein helgin og djöfull er farið að styttast í afmæli hjá kjellinum… Ekki alveg að meika það. Siggi bróðir hringdi í mig rétt áðan og spurði mig hvort ég yrði upptekinn þarnæstu helgi. Ég svona… hmmm… tékkaði á dagatalinu og svona… “uhhh, það er vinnuhelgi… og jú, ég á afmæli!” hann alveg, “Já, ég veit… ég ætla að bjóða þér og Bergdísi til Eyja og við höldum upp á þetta heima hjá mér…” Og það var ekki séns að fá hann ofan af þessu svo við erum bara á leiðinni til Eyja afmælishelgina mína, en það vill svo skemmtilega til að afmælið mitt ber upp á laugardegi ;) Mikið er nú gaman að eiga svona góðan stóran litlabróður :-D
Djöfull er nú samt mikið að gerast í þessum blessaða maímánuði… bara fleirihundruð og fimmtíu afmæli… reyndar á meirihlutinn af tengdafjölskyldunni afmæli í maí, en þessi mánuður útleggst einhvernveginn svona…

  • 3. maí – Ásdís, systir Bergdísar
  • 13. maí – Ég
  • 21. maí – Berglind, systir Bergdísar
  • 22. maí – Heiðdís, systir Bergdísar
  • 31. maí – Geir tengdó

Svo má auðvitað ekki gleyma gömlu bekkjar/skólafélögunum sem eiga afmæli í maí, en það eru þau Sindri Ólafs (19), Valur Valtýs (21), Rakel Rut (27) & Guðrún Helga (31). Guð má vita hvernig maður man svona lagað en þetta er einhvernveginn bara fast í hausnum á manni… enda er maí besti mánuðurinn, ekki satt? :-)

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 23:40 - 04. April, 2006 | Höfundur:

Mikið er nú gott að setjast niður með lappann í fanginu og opna sér einn ískaldann mjöður eftir langan vinnudag. Maður róast svo niður og fer að hugsa um allt og ekkert. Mér varð hugsað til Þjóðhátíðar, fór inn á dalurinn.is, og viti menn… það er búið að ráða 2 aðal hljómsveitirnar og greinilega allt að ske í þeim málum! ;-) Í Svörtum Fötum & Á Móti Sól verða 2 af þrem stóru hljómsveitunum þetta árið, en þeir eiga eftir að finna/semja við þá þriðju sem mun einnig spila á Húkkaranum. Vá hvað mig er farið að hlakka til..
Svo er annað mál… nú er komin upp sú staða hjá mér að það virðist sem ég sé á leiðinni á skelduna, eða svona næstum því eiginlega. Tengdó bauð de hele familien út til Danmerkur í enda júní, en það vill svo heppilega til að við verðum úti í viku og þá akkúrat yfir Hróaskelduhelgina :-D Og það eru að mér sýnist þónokkrir á leiðinni á skelduna úr mínum vinahóp svo það er aldrei að vita nema maður fái leyfi til að skjótast á Skelduna á sunnudeginum þar sem þeir eru nú svo sniðugir þarna að selja inn á sunnudaginn sér. Fær maður að sjá soldið af þessum snilldar böndum sem eru komin og svo auðvitað hitta allt fallega fólkið sem maður þekkir ;)

Annars er þessi hugmynd nú bara ennþá á teikniborðinu, en þetta yrði góð viðbót við snilldar sumar sem maður er farinn að sjá fram á.

færsla skrifuð kl. 16:59 - 06. August, 2005 | Höfundur:

Þá er þessi dæmigerða dauða helgi runnin upp. Alltaf eins helgin eftir þjóðhátíð, mætti gjörsamlega heyra saumnál detta í bænum á kvöldin… kannski fyrir utan landsliðið þegar það leitar sér að partýi eftir Lundann. Annars er ég að vinna um helgina bara. Skellti mér eftir vinnu heim til Stebba í gær og þar var verið að sötra smá bjór og spila, svo voru þau að fara að horfa á spólu þegar ég og Árni ákváðum að skella okkur á smá LAN… já það er orðið langt síðan lítill Einir lanaði og ég verð bara að segja að þetta er algjör snilld svona við og við… ekki kannski eins miklar öfgar og hérna fyrir nokkrum árum… en samt algjör snilld ;)
Svo er það bara vinnan í kvöld, heyrðist samt á liðinu í gær að þau ætluðu að fá sér í glas í kvöld. Hugsa að það verði eitthvað aðeins líflegra í bænum í kvöld en var í gær. Einhver ættarmót víst, afmæli og eitthvað… maður sér til hvort maður fái sér nú ekki 1 – 2 kalda eftir vinnu, þar sem maður á nú tæpan kassa eftir af þjóðhátíðarvíninu sökum veikinda og viðbjóðs

En já, Andri er búinn að henda sínum myndum frá Þjóðhátíðinni upp og er gaman að skoða þær. Texti við hverja mynd sem er bara gaman að lesa… fyrir utan að hann lætur mig líta út fyrir að hafa alltaf verið fyrsti maðurinn úr dalnum… En endilega kíkið á myndirnar hans… auk þessara í færslunni hér að neðan, ekkert nema snilld að skoða myndir frá Þjóðhátíð.
Nú fer að styttast í að maður flytji aftur í bæinn, en ég og Bergdís gerum ráð fyrir að fara frá Eyjum 20. ágúst nk. Ekki laust við að manni langi bara að drullast aftur í skólann hér í Eyjum og klára þennan ógeðisstúdent hér… en í bænum tekur svo við að flytja á nýtt heimili, því við erum að fara að flytja heim til Bergdísar í Kópavoginn, þannig að ég þarf ekki að sofa með byssu undir koddanum eins og áður í Breiðholtinu…

En jæja, ætla að kalla þetta gott… farinn í vinnu

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 18:59 - 03. August, 2005 | Höfundur:

Ég var að skoða hvaðan ég væri að fá alla þessa rosalegu aðsókn á síðuna upp á síðkastið og kom í ljós að þetta er mest allt fólk sem er að leita sér að myndum til að skoða frá Þjóðhátíðinni sem var að líða. Google og Yahoo virðast einhverra hluta vegna setja mig ofarlega á lista þegar fólk slær inn t.d. “þjóðhátíð 2005 myndir” eða “eyjar 2005 myndir”, kannski vegna þess að hef minnst svolítið á Þjóðhátíðina í síðastliðnum færslum ;)

En vegna þess hve lítið ég tók af myndum hef ég ákveðið að taka saman nokkra aðila sem gerðu meira af því og benda ykkur sem hingað komið af google og yahoo á þá, en það eru (í engri sérstakri röð):

Þetta eru þær myndir sem ég veit að eru komnar á netið frá hátíðinni í ár, ef þið vitið um fleiri þá endilega hendið þeim í comment… því það virðast allir vera að leita af myndum

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 18:58 - 02. August, 2005 | Höfundur:

Já henni er nú lokið Þjóðhátíð Vestmannaeyja 2005. Fínasta hátíð heyrir maður frá flestum þrátt fyrir þráláta rigningu og leiðindi á laugardeginum. Ég tók mig til og náði mér í einhvern veikindaskít á þeim degi og átti ekki viðreisnar von það sem eftir leið. Kominn heim eldsnemma á laugardeginum og ætlaði að hvíla mig fyrir sunnudagskvöldið þar sem ég ætlaði nú að taka svolítið á því. Það endaði náttúrulega alveg eins, hélt engu niðri, þó aðallega ekki mat sem var engan veginn nógu gott. Það varð úr að eini dagurinn sem ég djammaði eitthvað almennilega var föstudagurinn og var hann líka alveg geeeeðveikur.

Bergdís tók nokkrar myndir sem ég er búinn að henda inní myndaalbúmið. En jæja, ég ætla að fara að horfa á Liverpool leikinn niðri á Conero. Takk fyrir alveg ágætis Þjóðhátíð ‘allir’ sem ég hitti og ég lofa því hér með að ef ég veikist aftur á Þjóðhátíð mun ég baaaara sleppa henni ;)

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment