Eldri færslur fyrir flokkinn » Daglegt líf «

færsla skrifuð kl. 11:00 - 12. March, 2009 | Höfundur: einir

Haldiði að maður hafi ekki bara tekið sig til og farið í göngu í Elliðaárdalnum í vikunni, en tilefnið var auðvitað að Þórhallur bróðir kom með nýju Canon EOS 50D myndavélina mína til landsins um síðustu helgi. Auðvitað varð ég að prufukeyra gripinn og varð Elliðaárdalurinn fyrir valinu, þar sem hann er svona stysta leið í náttúru hér á höfuðborgarsvæðinu að ég held. Fór út á mánudagseftirmiðdegi og náði nokkrum góðum skotum, aðallega af fuglum. Mikið rosalega er hressandi að skella sér í svona smá göngu og ekki skemmdi veðrið fyrir, enda var fullt af fólki að hreyfa sig þarna. Ætla að láta fylgja með eina mynd, en restin af myndunum er inná flickR-inu mínu.

Taking a swim

Annars er bara gott að frétta af mér héðan úr Reykjavíkinni. Námskeiðið er rúmlega hálfnað og gengur bara vel, hefði verið betra fyrir Vestmannaeyinginn mig að hafa skólann allan daginn í 2 vikur í staðinn fyrir hálfan daginn í 4 vikur en þeir eru væntanlega að hugsa um hinn vinnandi mann hér í Reykjavíkinni, þótt helmingurinn sem er með mér hérna á námskeiðinu séu atvinnulausir… Svona er bara staðan í dag, nú reyna menn að ná sér í menntun til að eiga meiri möguleika á vinnu og þá kannski betri vinnu seinna meir. Maður má eiginlega bara þakka fyrir að hafa vinnu…

Annars er ég á leiðinni heim til Eyja á morgun og get ekki beðið! Er búinn að vera í bænum í tæpar 3 vikur og það kalla ég bara nokkuð gott fyrir mig að höndla :-) Það er víst nóg að gera en það er bæði ball í Höllinni og eitthvað DJ kvöld á Prófastinum á laugardaginn svo það er spurning hvað maður gerir… Jæja, pásan búin – læra meira!

Flokkað undir: Daglegt líf  | Stikkorð: , ,  | 2 komment
færsla skrifuð kl. 20:52 - 11. December, 2008 | Höfundur: einir

Ég hef lengi vitað til þess að fólk í tæknigeiranum og þá kannski sérstaklega þeir sem selja þjónustu tengda honum og vörur hafa notfært sér almenna vanþekkingu almennings á þessum málum öllum saman… Til að mynda gæti góður sölumaður sannfært ‘gamlan kall’ sem ekki veit betur um að hann þurfi nauðsynlega flottasta skjákortið og dýrasta örgjörvann til að nota Skype eða MSN til að halda sambandi við börn sín eða barnabörn úti í heimi… án þess að hann greyið maðurinn hefði hugmynd um að hann gæti sloppið mun ódýrar út úr þessum pakka. Reyndar þarftu að vera svolítið mikið kvikindi til að notfæra þér vankunnáttu einhvers svona, en ég lenti í svipaðri stöðu þegar ég skrapp til Reykjavíkur síðustu helgi. Þar ætlaði ég meðal annars að kaupa mér prentara og var staddur í Elkó, hafði valið mér þennan líka fína Canon PIXMA MP620 ljósmyndaprentara með þráðlausu neti og ég veit ekki hvað og hvað…

Nema þegar ég hafði ákveðið mig fór sölumaðurinn að reyna að pranga inn á mig alls kyns drasli sem hann sagði að ég nauðsynlega þyrfti með prentaranum og meðal þess sem hann bauð mér var USB kapall og blekhylki í prentarann. Ég spurði hvort það fylgdi ekki með og sagði hann að USB kapallinn fylgdi ekki með og blekið sem kæmi með prentaranum væri bara sýnishorn,  svo ég tók kapalinn og blekið og var á leið að borga þegar ég ákvað að lesa aðeins á kassann. Þar kom glögglega fram að þessi tiltekni USB kapall fylgdi og að blekhylkin væru í fullri stærð, þ.e.a.s. eins og þau sem þú kaupir. Þarna sparaði ég mér hátt í 10.000 krónur og þó ég viti til þess að ég þurfi að kaupa blek seinna meir þá hef ég ekkert með blek að gera fyrr en það sem ég hef klárast. Þetta finnst mér afar vafasöm vinnubrögð hjá svona stóru fyrirtæki sem gerir út á að hafa kúnnann ánægðan (sbr. verðvernd, auglýsingavernd og 30 daga skilaréttur).

Hins vegar sló botninn úr þegar ég heyrði af markaðsherferð TALs, en þeir eru nú að herja á Vestmannaeyjar símleiðis og bjóða fólki ódýrari síma og net. Það væri þó ekki frásögu færandi nema fyrir það markhópurinn er víst eldra fólk og kynna þeir sig sem starfsmenn Símanns og bjóða betri díl í þeirra nafni. Það er klárlega brot á lögum og ef þetta er satt hljóta Símamenn að gera eitthvað í þessu…

Pabbi var einn þeirra sem ‘gekk í gildruna’ hjá TAL og tók þessu tilboði, en þeim láðist að segja honum frá því að þetta væri 6 mánaða bindandi samningur sem kostar 8000 krónur að rifta, og að flutningsgjald á ADSLi og síma til þeirra kosti um 4000 krónur á hvert númer/tengingu. Auk þess erum við búin að bíða núna í fjóra daga eftir að fá netið inn, en það var að detta inn núna – nema það að við fengum notaðan router og þráðlausa netið rétt dregur 1-2 metra frá routernum… í guðanna bænum ekki fá ykkur TAL.

Flokkað undir: Daglegt líf  | Stikkorð: ,  | eitt komment
færsla skrifuð kl. 22:59 - 13. November, 2008 | Höfundur: einir

Ég skellti mér upp á land síðustu helgi með Féló (já, ég er byrjaður að vinna þar aftur =), nánar tiltekið á Selfoss þar sem okkar maður Sindri Freyr Guðjónsson tók þátt fyrir hönd Féló í Samstuð – söngvakeppni félagsmiðstöðva á Suðurlandi og er þetta svona eiginleg undankeppni fyrir söngkeppni Samfés sem haldin verður í lok febrúar á næsta ári. Fimm keppendur af 16 komust áfram í lokakeppnina og gerði Sindri sér lítið fyrir og nældi sér í miða á úrslitakvöldið, glæsilegt hjá honum.

Það var samt ekki það sem ég ætlaði að tala um hér heldur fyrirlestur sem ég, Sigþóra og að ég held allir krakkarnir frá Eyjum skelltu sér á. Þetta var fyrirlestur um tilvist geimvera og að sjálfsögðu var Magnús nokkur Skarphéðinsson (bróðir Össurar) fenginn til að kynna þetta efni fyrir áhugasömum unglingum, og okkur Sigþóru. Ég ætla að byrja á að segja að ég hef ávallt verið mjög skeptískur á tilvist geimvera, en jafnframt ekki gert mikið í því að fræðast um þetta ‘fyrirbæri’ af einhverri alvöru. Það er lítið fjallað um þessi mál og fólk sem segist hafa séð fljúgandi furðuhluti almennt talið geðbilað. Magnús kom nú samt með nokkur dæmi sem sönnun á tilvist geimvera og eiga Bandaríkjamenn víst að hafa í vörslu sinni einhverja 9 fljúgandi diska sem hafa brotlent þar, en neita því alfarið.

Hann sagði okkur einni frá einhverjum bónda í Sviss sem á fleiri tugi þúsunda ljósmynda af fljúgandi furðuhlutum sem reglulega komu í heimsókn til hans og tóku hann meðal annars með sér á sína plánetu, man ekki alveg hvað hann sagði að sú pláneta héti. Það sem mér fannst kannski undarlegast var að geimverurnar leyfðu honum að taka myndir af fljúgandi diskunum sínum en aldrei af sjálfum geimverunum og ekki heldur af plánetunni þeirra. Frekar gruggugt en þetta var nógu spennandi til að halda krökkunum við efnið, enda hef ég sjaldan séð unglinga hlusta á fyrirlestur með jafn miklum áhuga… meira að segja ég er farinn að lesa mig til um þetta á netinu…

En jæja, ætla að kalla þetta gott. Læt fylgja með myndir sem ég tók núna á sunnudaginn hérna í Eyjum annars vegar af sólarlagi vestur á hamri og hins vegar haustmynd dauðans. Njótið vel…

Flokkað undir: Daglegt líf  | Stikkorð: , ,  | 3 komment
færsla skrifuð kl. 17:14 - 24. October, 2008 | Höfundur: einir

Ég ætla bara að byrja þessa færslu á því að sleppa því að reyna að finna ástæður fyrir bloggleysinu síðastliðna mánuði, já ég sagði mánuði! Síðasta færsla var skrifuð í Tyrklandi í sumar og í sjálfu sér lítið merkilegt búið að ske síðan þá og nenni ég engan veginn að fara að tíunda það hér núna.

Hins vegar er gaman að segja frá því að ég skellti mér í að finna nýtt útlit á síðuna og hefur það nú litið dagsins ljós. Ég kem að sjálfsögðu hvergi nærri því að hanna eða smíða þetta útlit, heldur ræni því bara og nota eins og mér sýnist… Ég fór einnig í það að íslenska kerfið sem ég er að nota og er ég svolítið villtur í þessu blessaða íslenska kerfi þessa stundina. Orð eins og hliðarstika, íbætur og uppnýja skrá er eitthvað sem maður er engan veginn vanur því að sjá og þyrfti ég helst að hafa Má nokkurn Jónsson mér við hlið svona á meðan ég er að venjast þessu allavega…

Ég nenni engan veginn að skrifa um kreppuna sem tröllríður öllum fjölmiðlum og bloggum eins og er… ég vil bara segja að sjaldan hef ég verið jafn feginn að eiga engan sparnað í sjóðum eða hlutabréfum eins og komst í tísku fyrir nokkrum árum. Hins vegar sit ég uppi með bíl á myntkörfuláni að hálfu… sem ég er allt annað en sáttur við, þakka bara guði fyrir að hafa ekki farið út í íbúðarkaup eins og ég ætlaði mér fyrr á þessu ári. En nóg um það… ég er kominn aftur, með nýtt andlit (look) og munu skrif hér því að öllum líkindum verða tíðari en síðustu mánuði, enda væri annað erfitt.

Flokkað undir: Daglegt líf  | Stikkorð: ,  | 5 komment