Eldri færslur fyrir » December, 2008 «

færsla skrifuð kl. 02:36 - 24. December, 2008 | Höfundur:

Jólakort

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð:  | eitt komment
færsla skrifuð kl. 00:33 - 15. December, 2008 | Höfundur:

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: ,  | 3 komment
færsla skrifuð kl. 20:52 - 11. December, 2008 | Höfundur:

Ég hef lengi vitað til þess að fólk í tæknigeiranum og þá kannski sérstaklega þeir sem selja þjónustu tengda honum og vörur hafa notfært sér almenna vanþekkingu almennings á þessum málum öllum saman… Til að mynda gæti góður sölumaður sannfært ‘gamlan kall’ sem ekki veit betur um að hann þurfi nauðsynlega flottasta skjákortið og dýrasta örgjörvann til að nota Skype eða MSN til að halda sambandi við börn sín eða barnabörn úti í heimi… án þess að hann greyið maðurinn hefði hugmynd um að hann gæti sloppið mun ódýrar út úr þessum pakka. Reyndar þarftu að vera svolítið mikið kvikindi til að notfæra þér vankunnáttu einhvers svona, en ég lenti í svipaðri stöðu þegar ég skrapp til Reykjavíkur síðustu helgi. Þar ætlaði ég meðal annars að kaupa mér prentara og var staddur í Elkó, hafði valið mér þennan líka fína Canon PIXMA MP620 ljósmyndaprentara með þráðlausu neti og ég veit ekki hvað og hvað…

Nema þegar ég hafði ákveðið mig fór sölumaðurinn að reyna að pranga inn á mig alls kyns drasli sem hann sagði að ég nauðsynlega þyrfti með prentaranum og meðal þess sem hann bauð mér var USB kapall og blekhylki í prentarann. Ég spurði hvort það fylgdi ekki með og sagði hann að USB kapallinn fylgdi ekki með og blekið sem kæmi með prentaranum væri bara sýnishorn,  svo ég tók kapalinn og blekið og var á leið að borga þegar ég ákvað að lesa aðeins á kassann. Þar kom glögglega fram að þessi tiltekni USB kapall fylgdi og að blekhylkin væru í fullri stærð, þ.e.a.s. eins og þau sem þú kaupir. Þarna sparaði ég mér hátt í 10.000 krónur og þó ég viti til þess að ég þurfi að kaupa blek seinna meir þá hef ég ekkert með blek að gera fyrr en það sem ég hef klárast. Þetta finnst mér afar vafasöm vinnubrögð hjá svona stóru fyrirtæki sem gerir út á að hafa kúnnann ánægðan (sbr. verðvernd, auglýsingavernd og 30 daga skilaréttur).

Hins vegar sló botninn úr þegar ég heyrði af markaðsherferð TALs, en þeir eru nú að herja á Vestmannaeyjar símleiðis og bjóða fólki ódýrari síma og net. Það væri þó ekki frásögu færandi nema fyrir það markhópurinn er víst eldra fólk og kynna þeir sig sem starfsmenn Símanns og bjóða betri díl í þeirra nafni. Það er klárlega brot á lögum og ef þetta er satt hljóta Símamenn að gera eitthvað í þessu…

Pabbi var einn þeirra sem ‘gekk í gildruna’ hjá TAL og tók þessu tilboði, en þeim láðist að segja honum frá því að þetta væri 6 mánaða bindandi samningur sem kostar 8000 krónur að rifta, og að flutningsgjald á ADSLi og síma til þeirra kosti um 4000 krónur á hvert númer/tengingu. Auk þess erum við búin að bíða núna í fjóra daga eftir að fá netið inn, en það var að detta inn núna – nema það að við fengum notaðan router og þráðlausa netið rétt dregur 1-2 metra frá routernum… í guðanna bænum ekki fá ykkur TAL.

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: ,  | eitt komment
færsla skrifuð kl. 17:02 - 10. December, 2008 | Höfundur:

Ég get ekki að því gert en mér finnst þessi frétt alveg einstaklega fyndin. Þessi maður fær alveg pottþétt frumleika verðlaunin á árshátíð peningaplokkara. Hins vegar nær hugsunin ekki mikið lengra en það þar sem auðvitað þeir sem myndu ætla að gefa styrktarfé eru nánir ættingjar og vinir þess “látna” sem auðvitað vita betur, eða ég vona það.

Hitt er annað mál að mér finnst hneykslanlegt hvað Mogginn er að rukka fyrir birtingu á dánartilkynningu… þrettán þúsund krónur takk fyrir! Hvað kostar þá að senda inn minningargrein? Ef ekki hefði verið búið að finna upp máltækið ‘eins manns dauði er annars brauð’ hefði það svo sannarlega komið upp í hausnum á mér núna…

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 17:10 - 03. December, 2008 | Höfundur:

Ég verð nú bara að segja alveg eins og er að miðað við fréttaflutning fjölmiðla af ástandinu sem við Íslendingar stöndum í að ég held ég sé bara bærilega staddur. Ég er engan veginn að gera lítið úr þessu skítaástandi sem er hér á landi og þá sérstaklega í höfuðborginni, heldur kannski meira að benda á það eru sem betur fer ekki allir að missa vinnuna, húsið, bílinn og jafnvel bara allt sitt.

Ég til að mynda hef aldrei fengið fleiri atvinnutilboð og á síðastliðnu hálfu ári og er ég sem stendur í svo mikið sem fjórum vinnum, tveimur föstum og tveimur lausastörfum. Ég var einmitt í dag að hætta hjá Grím tengdó og byrja hjá Samma tölvukalli í fyrirtækinu hans Örveri ehf. Örver er lítið fyrirtæki hér í Eyjum sem sér um alls kyns tölvuviðgerðir, uppsetningu internets, síma og sjónvarps fyrir Símann auk þess sem það þjónustar mörg fyrirtæki í bænum með tölvur og alls kyns tölvutengt dót. Fyrsti dagurinn lagðist bara þrælvel í mig og held ég að framhaldið sé bara bjart enda alltaf þörf fyrir svona þjónustu á þessari tækniöld.

Hins vegar er ömurlegt að heyra fréttirnar af síldarvertíðinni. Sjávarútvegsráðherra búinn að banna veiðar vegna sýkils sem fundist hefur í síldinni og því allt stopp í dag. Vertíð sem útlit var fyrir að entist fram að jólum og jafnvel eitthvað lengur hefur nánast verið blásin af. Mun minna verð fæst fyrir brædda síld en síld til manneldis og því ljóst að gríðarlegar gjaldeyristekjur tapast þar svo ekki sé minnst á laun sem fólkið verður af.

En svona til að létta mönnum lífið langar mig að benda á enn einn froðubloggarann sem var að prumpa yfir okkur Vestmannaeyinga fyrir að vilja nýjan Herjólf… þetta er eiginlega bara fyndið.

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment