Eldri færslur fyrir » February, 2008 «

færsla skrifuð kl. 02:01 - 26. February, 2008 | Höfundur: einir

Ég skellti mér á nokkrar vaktir í Vinnslustöðinni í síðustu viku, sem reyndar teygðu sig alveg fram á mánudagsmorgun núna í þessari viku. Allt í allt held ég að ég hafi nælt mér í um 10 vaktir og er ég bara nokkuð sáttur við það… allavega ef það gengur eftir sem sjávarútvegsráðherra hefur gefið út um loðnukvóta. Hefðbundnum veiðum var hætt á hádegi á föstudaginn síðasta en ég held reyndar að Kapin hafi fengið að fara út aftur á laugardagskvöld vegna þess að þeir ‘áttu inni’ óveiddan kvóta sem hafði verið gefinn út fyrir bannið. Svo nú eru nokkur skip að aðstoða hafrannsóknarskipin við loðnuleit á miðunum og heyrði ég í fréttunum í gær að þeir væru nú að finna ágætis magn af loðnu hérna aðeins austan við Eyjarnar.

Sjómenn hafa reyndar kvartað mikið undan seinagangi Hafró manna, um að þeir skili sér seint á miðin til mælinga eftir að skipstjórar hafa látið þá vita af torfum. Las reyndar helvíti góða grein frá áhöfninni á Faxa RE sem er að finna hér. Mjög fyndin og lýsir að ég held mjög vel skoðunum sjómanna á þessu loðnuveiðibanni og áliti þeirra á Hafró. Las nú samt frétt á mbl.is þar sem sagt er að loðnumælingar standi nú yfir á fullu og að ‘allt sé í sómanum’ – að sögn Sveins Sveinbjörnssonar leiðangursstjóra. Hvað maður á svo að lesa út úr þeim skilaboðum kemur vonandi í ljós fyrr en síðar, því ekki veitir manni nú af meiri pening, fátæki námsmaðurinn sjálfur. Svo er þetta líka bara svo gaman!

Jæja, ætla ekki að hafa þetta lengra. Kominn tími á svefn. Set hérna inn úrslit könnunarinnar sem ég lét fylgja með síðustu færslu… þar sem greinilega langflestir skoða mbl.is mest.

[poll=2]

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | 3 komment
færsla skrifuð kl. 21:19 - 14. February, 2008 | Höfundur: einir

mbl.is vs. vísir.isÉg hef velt því svolítið fyrir mér uppá síðkastið hvaða net-fréttamiðil fólk sé aðallega að nota hérna á Íslandi. Ég sjálfur hef hingað til langmest notað mbl.is og talið þá síðu vera eiginlega ‘mömmu’ íslenskra net-fréttamiðla. Það var svo núna þegar ég byrjaði í stjórnmálafræði í skólanum að ég fór að spá meira í þessu og þá sérstaklega hverjir það séu sem eiga þessa fréttamiðla og hvort þeir með einhverjum hætti stjórni því hvað sé birt og hvað ekki. Strax var byrjað að tala um Moggann sem ‘blátt’ blað og að ‘bláa höndin’ ráði þar ríkjum. Ég hafði í sjálfu sér aldrei spáð í því hvort menn gerðu þetta, keyptu sér fjölmiðil með það að markmiði að hafa áhrif á fréttaflutninginn með beinum eða óbeinum hætti. Ástæðan fyrir því að ég valdi mbl.is fram yfir visir.is var sú að ég tengdi síðarnefndu síðuna alltaf við DV, sem er eitt mesta ruslblað sem ég hef augum litið, en það er víst liðin tíð og nú er þetta netmiðill Stöðvar 2 sem er í eigu 365 með meiru.

Það er auðvitað grafalvarlegt mál ef eigendur fjölmiðla ætla sér að hafa áhrif á eða jafnvel banna fréttaflutning af ákveðnum ‘viðkvæmum’ málefnum. Ég ákvað því að bera þessa tvo stærstu net-fréttamiðla íslands saman á einn einfaldan hátt. Nú er Mogginn sagður fréttamiðill sjálfstæðismanna svo ég prófaði að skoða fréttaflutning síðanna tveggja af aðalmálinu í pólitíkinni þessa dagana sem snertir Sjálfstæðisflokkinn vissulega. Við skulum hafa það á hreinu að ég er óflokksbundinn og þetta gerði ég einungis fyrir forvitnissakir. Ég skoðaði fréttaflutning beggja fréttavefja um Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson og hans ævintýri í borgarstjórn Reykjavíkur frá því að upp komst um REI-málið.

Til þess að gera langa sögu stutta komst ég að því að mbl.is fer mun vægar í allar ásakanir og reynir frekar að koma fréttum að sem vekja samúð með Vilhjálmi. Vísir.is er hins vegar mun meira ásakandi í sínum fréttum og þar er eins og meira sé um æsifréttamennsku. Til dæmis er ein mest lesna fréttin á vísi.is núna fréttin um að Jóhanna Vilhjálmsdóttir (dóttir Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar) sé hætt í Kastljósinu og voru Vísis menn greinilega að reyna að tengja brotthvarf hennar þaðan við það að hart hefur verið hamrað á Vilhjálmi Þ. í Kastljósinu undanfarið. Enn fremur komst ég að því þegar ég fór að skoða síðurnar betur að á forsíðu mbl.is er auglýsing frá Sjálfstæðisflokknum, en þar eru þeir að auglýsa einhvern stjórnmálaskóla (sem ég vissi nú ekki að væri til, ætli það sé kennt manni að setja X við D þar? :) .

Ég er þó næstum viss um að hægt sé að finna eitthvað sem Vísir.is ákveður að ‘tala minna um’ en er svo háværara á mbl.is, þar sem eigendur Vísis.is er 365 fjölmiðlar, sem er svo að stærstum hluta til í eigu Baugs Group. Baugsfeðgar og Davíð Oddsson hafa sjaldan verið taldir góðir vinir og spurning hvort þessir aðilar beiti völdum sínum til að hafa áhrif á fréttaflutning ’sinna fjölmiðla’ (ef Sjálfstæðisflokkurinn er við stjórnvölinn í Mogganum eins og menn segja).

Þá er það líka stóra spurningin, er það rétt að hluthafar beiti þrýstingi og ‘ritskoði’ þannig hvað sé birt á fjölmiðli í þeirra eigu? Ég hugsa að flestir með eitthvað á milli eyrnanna svari þessari spurningu neitandi, en er þetta ekki samt að gerast? Fjölmiðlar leika stórt hlutverk í okkar daglega lífi og eiga að mér finnst að vera algjörlega óháðir í öllum fréttaflutningi. Ég er ekki að segja að fjölmiðlar á Íslandi séu það ekki, en ég mun hins vegar héðan í frá leggja leið mína lengra en einungis á mbl.is þegar ég skoða fréttir á netinu.

Svona til að fylgja þessari færslu eftir ákvað ég að setja upp litla könnun og sjá hvaða fréttasíður fólk er mest að nota, og þá er ég að tala um íslenskar fréttasíður. Endilega takið þátt í þessari könnun til að svala forvitni minni…

Lifið heil.

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | 9 komment
færsla skrifuð kl. 22:31 - 04. February, 2008 | Höfundur: einir

…að læra undir sálfræðipróf núna en eins og svo oft áður leitar hugurinn eitthvað allt annað. Ég er náttúrulega evrópumeistari í að finna mér eitthvað annað, mjög svo tilgangslaust að gera í staðinn fyrir jafn yndislegan hlut og að læra undir próf! Í þessu tilfelli er það MSN og að slæpast á veraldarvefnum…

En í dag er bolludagur og ég var að fatta það að ég hef ekki innbyrt eina einustu bollu… og mér er eiginlega bara alveg sama. Hef yfirleitt skellt einu stykki framan í mig eða svo bara svona til að vera með, en ekki í dag. Það er kannski bara fínt, allavega miðað við ‘næringargildið’ í þessum kvikindum…

Svo var Slingerinn að tilkynna mér það að ég hafi verið tilnefndur í könnun á síðunni hans. Kíkti þangað og kom í ljós að ég hef verið tilnefndur í tveimur mjög svo mismunandi flokkum, annars vegar sem bloggari ársins 2007 – og hins vegar sem versta bloggsíðan árið 2007. Ég veit ekki hvora tilnefninguna ég er ánægðari með… ef ég myndi vinna bloggara ársins yrði sett pressa á mig sem ég yrði að standa undir um að blogga reglulega og þá um eitthvað af viti. Það vita það allir sem mig þekkja að ég er bara ekki þannig. Hins vegar ef ég myndi vinna verstu bloggsíðuna væri engin pressa, “já þetta var kosin versta bloggsíðan 2007… hann má þetta alveg”. Það væri kannski meira minn kaffibolli… en allavega, skellið ykkur endilega yfir til Slingersins og kjósið í þessum mjög svo skemmtilegu könnunum… :)

Ég ætla að fara að koma mér í lærdómsstuð… ekki veitir af

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | 4 komment