færsla skrifuð kl. 21:25 - 17. January, 2008 | Höfundur:

Djöfull getur maður orðið ógeðslega pirraður þegar maður horfir á íslenska landsliðið í handbolta spila. Alltaf dettur maður í þá gryfju að gera sér vonir um að þeir hysji upp um sig buxurnar í þetta skiptið og nái að snúa við blaðinu á ‘þessu móti’. Ég veit að maður á ekki að vera að gera sér of miklar vonir en maður gerir það nú samt og verður svo viðbjóðs pirraður það sem eftir lifir kvölds, og jafnvel bloggar um það í reiði sinni. Ég er viss um að nú streymir inn á moggabloggið ‘pirrbloggum’ frá hinum og þessum misgáfuðum manninum (og konunum, ef það skyldu einhverjir feministar vera að lesa :) )

mbl.is

Einstaklega fagleg vinnubrögð á mbl.is – fyrirsögnin komin áður en leikurinn kláraðist (kannski skiljanlegt í þessum leik reyndar)

En jæja, ætla að hætta  að velta mér upp úr þessu… nú fer maður allavega ekki fullur eftirvæntingar í næstu leiki. 

Stikkorð: ,
Flokkað undir: Almennt
Þú getur fylgst með kommentum við þessa færslu í gegnum RSS 2.0.

4 komment

  1. 1
    Ólöf Ragnars 

    í blíðu og stríðu Einir minn

  2. 2
    einir 

    Já ég veit það… en ekki segja mér að þú hafir ekki orðið pirruð Ólöf! ;)

  3. 3
    Ólöf Ragnars 

    Jú ég verð að viðurkenna ég var það. En ekki í dag :D

  4. 4
    magni 

    þeta eru aumingjar allt saman

Kommentaðu...