Eldri færslur fyrir » January, 2008 «

færsla skrifuð kl. 23:05 - 30. January, 2008 | Höfundur: einir

Ég var ekki langt frá  því að hlaupa út á lóð með Liverpool treyjuna mína og bera að henni eld eftir leikinn í kvöld. West Ham 1 – 0 Liverpool. Ég píndi augun til að horfa á þessa skelfingu alveg til enda, eða þangað til West Ham fengu vítaspyrnuna og ég þoldi ekki meir. En svona fór nú það og spurning hvort við náum 4. sætinu í deildinni… Svo verður líka spennandi að sjá hvernig málin þróast í bækistöðvum Liverpool. Mun Benitez fjúka? Munu eigendurnir yfirgefa félagið? Eða kannski bara eitthvað allt annað… eitthvað þarf allavega að gerast, það er nokkuð ljóst.

En að öðru. Ég er tveimur áföngum í skólanum þessa önnina sem skera sig svolítið út úr þeirri flóru áfanga sem ég hef tekið í gegnum tíðina. Þetta eru áfangar sem heita Rekstrarhagfræði 103, sem kemur að almennum rekstri og umsjón fyrirtækja og stofnana,  og Viðskiptafræði 113, sem er markaðsfræðiáfangi og hefur komið mér mikið á óvart. Ég hef aldrei lært neitt þessu tengdu áður og verð ég að segja að þetta sýnist nokkuð spennandi, allavega svona í byrjun annarinnar. Í Viðskiptafræðinni erum við að byrja á verkefni þar sem okkur var skipt niður í hópa, 2 og 2 saman í hóp. Hver hópur finnur sér viðfangsefni til að markaðssetja, má vera hvað sem er… fyrirtæki, vara eða þjónusta en það er eitt skilyrði, þetta þarf að vera fyrirtæki, vara eða þjónusta í Vestmannaeyjum.

Ég og Randver skelltum okkur saman í hóp og byrjuðum að brainstorma um hvað við ættum hugsanlega að reyna að markaðssetja í Vestmannaeyjum. Upp úr því komu nokkrar hugmyndir sem við eigum svo eftir að fínpússa, eins og t.d. Saltverksmiðja, Rauða lónið, endurmarkaðssetja Höllina sálugu og fleira og fleira. En ég verð að segja alveg eins og er… þetta er örugglega einn skemmtilegasti áfangi sem ég hef farið í… gæti ég hugsanlega verið búinn að finna eitthvað sem ég væri til í að vinna við í framtíðinni? Eða er þetta bara það að ég er að prófa eitthvað nýtt…?

Jæja… það kemur bara í ljós. :)

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , ,  | 4 komment
færsla skrifuð kl. 21:25 - 17. January, 2008 | Höfundur: einir

Djöfull getur maður orðið ógeðslega pirraður þegar maður horfir á íslenska landsliðið í handbolta spila. Alltaf dettur maður í þá gryfju að gera sér vonir um að þeir hysji upp um sig buxurnar í þetta skiptið og nái að snúa við blaðinu á ‘þessu móti’. Ég veit að maður á ekki að vera að gera sér of miklar vonir en maður gerir það nú samt og verður svo viðbjóðs pirraður það sem eftir lifir kvölds, og jafnvel bloggar um það í reiði sinni. Ég er viss um að nú streymir inn á moggabloggið ‘pirrbloggum’ frá hinum og þessum misgáfuðum manninum (og konunum, ef það skyldu einhverjir feministar vera að lesa :) )

mbl.is

Einstaklega fagleg vinnubrögð á mbl.is – fyrirsögnin komin áður en leikurinn kláraðist (kannski skiljanlegt í þessum leik reyndar)

En jæja, ætla að hætta  að velta mér upp úr þessu… nú fer maður allavega ekki fullur eftirvæntingar í næstu leiki. 

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | 4 komment
færsla skrifuð kl. 14:51 - 14. January, 2008 | Höfundur: einir

Jæja góðan daginn, hvað segir fólkið? Langt síðan síðast eins og svo oft áður… Jólin eru búin og mikið hafði maður það nú gott. En nú er komið nýtt ár og skólinn byrjaður á ný. Ég er í 19 einingum og stefni á útskrift næstu jól, en segi það nú samt með fyrirvara um breytingar… :P  

Ég ákvað að bregða út af vananum þennan þrettándann og skella mér til Reykjavíkur þar sem Þórir, kærastinn hennar Elenu var að halda upp á 30 ára afmælið sitt. Fínt að breyta aðeins til og var mjög gaman í þessari afmælisveislu, sem var vægast sagt vel sótt… gjörsamlega troðið heima hjá þeim. Það er naumast að maðurinn er búinn að sanka að sér mörgum vinum þessi 30 ár… :)

Svo er bara komið að grámygluðum hversdagsleikanum aftur, veðrið hérna í Eyjum er alveg út úr kú eins og er og það bregst ekki að alltaf á þessum tíma fer hugur manns að leita út fyrir landsteinana, í sól og sumaryl. Ég og Thelma vorum að skoða heimasíður ferðaskrifstofa í gær og var mest skoðað Tyrkland og Krít… nú er bara að sjá til hvort maður sjái fram á að geta skellt sér út næsta sumar, en til þess þarf maður að endurskipuleggja fjárhaginn… selja bílinn og síðast en ekki síst fara að hugsa út í sumarvinnu.

Og þá að aðalmálinu… haldiði að maður hafi ekki verið að eignast annan frænda í byrjun þessa mánaðar. Þau Þórhallur og Hrund eignuðust gullfallegan dreng sem átti nú reyndar ekki að líta dagsins ljós fyrr en í febrúar, en allt gekk þetta þó upp og er hann sprækur sem lækur í dag. Ég vil bara óska þeim enn og aftur til hamingju með litla kút og jafnframt láta ykkur fáu lesendur mína vita af þessu, ef þið vissuð þetta ekki nú þegar ;)

En jæja, tíminn er búinn. Bið að heilsa ykkur…

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | 5 komment