Það er ekki bara
enski boltinn & meistaradeildin sem er komið á fullt, heldur erum við peyjarnir loksins búnir að redda okkur tíma til að sprikla í fótbolta uppi í Íþróttahúsi, og það tvisvar í viku! Byrjuðum núna á mánudaginn og mættu 10 kvikindi tilbúin til að svitna aðeins. Það er alveg nauðsynlegt að hreyfa sig reglulega og maður finnur það eftir að maður byrjaði í skólanum að 2 tímar í íþróttum er bara ekki nóg, plús það að maður er nú ekki alveg nógu duglegur að fara í ræktina…
Við eigum tíma á mánudögum kl. 21:00 og föstudögum kl. 20:30. Fínir tímar og kostar ekki nema 500 kall á kjaft hver tími, 4000 kall á mánuði sem er náttúrulega ekki rass fyrir fótbolta tvisvar í viku!
Svo fara fram 8 leikir í riðlakeppni Meistaradeildarinnar klukkan 19 í kvöld og ætla ég að gerast svo góður að spá fyrir um úrslit kvöldsins.
- Besiktas – Porto 0 – 2
- Liverpool – Marseille 1 – 0
- Rosenborg – Schalke 1 -2
- Valencia – Chelsea 1 – 0
- Lazio – Real Madrid 1 – 2
- Werder Bremen – Olympiakos 1 – 1
- Benfica – Shakhtar Donetsk 2 – 0
- Celtic – AC Milan 1 – 3










Og er þetta einmitt ástæðan fyrir því að ég læt það vera að tippa
Heheh
En hérna hvað er Liverpool eigninlega? Ég er búin að gleyma því…
Veistu ég bara hef ekki hugmynd um það lengur… en á meðan stjórinn gerir bara endalausar breytingar á liðinu sama hvernig leikmenn standa sig gefur það augaleið að liðið nær aldrei saman. 57 breytingar í 11 leikjum… las ég það ekki einhversstaðar?
Já djíses og hvað er í gangi með Gerrard? Það er eitthvað mikið að á þeim bæ. Ég vil alfarið kenna kellingunni hans um þetta. Og hvenær á að selja Crouch?? Ég þoli hann ekki!!!
p.s. ég hefði án gríns gert meira gagn en Sissoko
sælir, hva, afhverju eru ekki neinar myndir af bleikum píkum að láta hlaða í sig á þessari glötuð heimasíðu…
nei nei smá grín..
alltaf gaman að sja svona úrslit með livrapollinn.. enda a bara að nota torres í deildarbikarnum
Love you man! later..
Hva, af hverju eru ekki neinar myndir af bleikum pjöllum að láta hlaða í sig á þessari glötuðu síðu.
neinei bara smá grín
kem 13 okt.. bara minna á mig kall..
SÉÐIGGGGG!
sorrý 2.sinnum í röð.. eg er kominn smá í skál.. cheers m8
helvitis poooolara djöflar
Meira meira meira