Já það er verulega farið að styttast í utanlandsferðina. Ég fer til Reykjavíkur á fimmtudaginn (á morgun tæknilega séð) og svo til London á laugardaginn. Við verðum þar í 2 daga og hitti svo á að mamma og pabbi verða akkúrat í London á þessum tíma svo við munum horfa saman á Eurovision hjá Þórhalli bróður og Hrund ásamt því að ‘fagna’ 24 ára afmælinu mínu daginn eftir.
Svo verður flogið til Nice í Frakklandi á mánudagsmorgun og ætlar hún Gvuní að taka á móti okkur með alls kyns kræsingum og að sjálfsögðu lofaði hún sól og blíðu! Þar verðum við í 8 daga og fljúgum svo aftur til London. Þar eyðum við 2 síðustu dögum af fríinu á TGI Fridays, sem er einn mesti snilldar veitingastaður sem ég hef komið á (allt annað en krapið sem er í Smáralindinni)
Nú er bara að fara að kjósa á morgun, fara í klippingu og pakka niður. Er eiginlega búinn að ákveða hvað ég ætla að kjósa, og í sambandi við farangur í þetta ferðalag ætla ég bara að taka eurotrip aðferðina sem við Árni Óli tókum 2004. Hún innihélt bakpoka en ég ætla þó að fá að stækka það í litla ferðatösku. Taka eins lítið af dóti með mér af því það er óþolandi leiðinlegt að ferðast með þunga tösku, plús það að maður kaupir sér alltaf sitthvað í svona ferðum, betra að vera með pláss fyrir það
Já svo skellti ég mér upp á Heimaklett í fyrsta skiptið á ævinni í dag, til hamingju ég, en við fórum nokkrir vel valdir í þessa ferð og tók ég að sjálfsögðu nokkrar myndir. Flestar voru þær ekkert sérstakar þar sem það var svona gráskýjað og leiðinlegt, en ég henti samt nokkrum myndum inn á flickR-ið.










TGI fridays omg það voru svo góðir kotelar ,þú fær þér allavega tvo fyir mig .
Er ekki bara málið að vorkenna Ómari og kjósa hann……… eða ekki en allavega 2 dagar í mína ferð
Congrat með Heimaklettinn…
Congrat með að vera búinn að ákveða hvert atkvæðið þitt fer…
Og góða ferð til útlandanna!
Ég öfunda þig svo að fara til London
Þú verður að kaupa eitthvað heví breskt handa mér.. heheh
Já ef þú fýlar ítalskan mat þá mæli ég eindregið með því að þig kíkið á veitingastað sem heitir Strada. Heimasíðan er http://www.strada.co.uk. Vægast sagt gjeeeðveikt gott að borða þar!! Allavega vona að allt gangi vel og bara bið að heilsa
Já sammála Ólöfu, Strada veitingastaðurinn er algjör snilld, fór einmitt þangað um daginn, þú verður bara að fara á hann:)
Góða ferð til útlanda og skemmtu þér rosalega vel:)
hahaha gamli kall!
En allavega, skemmtið ykkur vel úti !
Góða ferð og góða skemmtun, og hafðu það ógó gott í útlöndunum
Knús frá DK
Takk fyrir það allir
Ég á eftir að skemmta mér konunglega og kem vonandi með sólina til baka