færsla skrifuð kl. 10:14 - 21. May, 2007 | Höfundur:

Þá er síðasti dagurinn okkar í Frakklandi runninn upp. Við vöknuðum aðeins fyrr en venjulega þar sem Guðný er í fríi í allan dag og það var ýmislegt sem þurfti að gera í dag. Olga er komin í feita yfirvigt og þurfti að kaupa auka tösku undir allt DRASLIÐ sitt, já ég sagði draslið ;)

Svo erum við að fara til Ítalíu núna í þessum töluðu orðum. Ég ákvað að henda inn mínum síðustu orðum í Frakklandi þar sem við höldum til London til Þórhalls og Hrundar klukkan 11 í fyrrmálið. Þar verðum við svo þangað til á fimmtudaginn, en þá fljúgum við aftur heim til Íslands.

Ég skellti mér á djammið með stelpunum í gær í fyrsta skiptið í ferðinni. Við fórum bara hérna aðeins niður í bæ og tókum stutt pöbbarölt á þetta, voðalega notalegt bara. Ég held ég geti alveg sagt það með vissu að ég er búinn að spara mér þónokkurn pening á því að chilla heima með Bjarna öll hin kvöldin ;)

Læt samt fylgja með nokkrar myndir af gærkvöldinu. Þess má geta að ég get ekki hent myndunum úr minni myndavél inn á þessa tölvu svo ég fékk þessar lánaðar hjá Gvuníju ;)


Við að webcamast


Myndavélaflipp í gangi…


Ég og G-Unit


Barþjónninn átti afmæli og bauð okkur að sjálfsögðu í glas… ;)


Svo sæt saman…


Sáttur eftir barferð :D

Flokkað undir: Almennt
Þú getur fylgst með kommentum við þessa færslu í gegnum RSS 2.0. You can leave a response, or trackback from your own site.

5 komment

  1. Munur að vera svona ungur og sætur strákur, leikandi sér um allar trissur :P

    Bið að heilsa öllum og hlakka til að sjá þig kútur.

  2. Sko Einir ef Liverpool tapar á morgun þá er það þér að kenna!!!!

  3. 3
    einir jr. 

    Hvaða vitleysa Ólöf! Við erum ekkert að fara að tapa…

  4. 4
    gvuní sem elskar þig 

    sko. þetta er svo tómlegt hérna. HVERNIG Á ÉG AÐ GETA SOFIÐ NÚNA……

    eníveis… love u einir- þið eruð BEST

    OG ÞÚ OG ÉG ERUM BEST Í SEXYDANS OG LÍKA Í AÐ TAKA MYNDIR AF OKKUR SJÁLF

  5. 5
    Olga 

    Sko Einir TAKK fyrir mestu snilldar ferð EVER!!

    Við gerum þetta klárlega aftur takk fyrir ;)

    -Olga
    XXXX

Kommentaðu...