Eldri færslur fyrir » May, 2007 «

færsla skrifuð kl. 12:48 - 30. May, 2007 | Höfundur:

Já við komum heim frá útlöndunum á fimmtudaginn í síðustu viku. Það hefur verið nóg að gera hjá manni eftir það að heilsa upp á fólkið, taka upp úr töskum, taka til eftir það og vinna. Svo var auðvitað Eyjafest hérna um helgina, en Árni Óli & Hjörtur tóku sig til og skipulögðu heila helgarskemmtun hérna í Eyjum þar sem þeir fengu til liðs við sig nokkrar af efnilegustu rokkhljómsveitum landsins og var þessu öllu saman troðið saman í dagskrá sem teygði sig frá föstudegi til aðfaranótt sunnudags. Þar sem ég var að vinna á föstudaginn komst ég ekki fyrr en á laugardaeginum og ekki varð maður fyrir vonbrigðum. Ég fór með Þóri (kærastanum hennar Elenu systur) og sá maður hljómsveitir á borð við Leaves, Hoffman, Brain Police og Wulfgang. Ég ætla bara að vona að hátíðin hafi gengið vel og að þetta verði gert að árlegum viðburði!

Annars er maður nú bara búinn að vera að vinna, lítið að gera reyndar í Féló þar sem krakkarnir eru nú frestir í prófum. Styttist svo í að vinnuskólinn byrji og get ég ekki beðið eftir að vera að vinna úti í sumar ;) Einu sinni áður verið flokkstjóri í vinnuskólanum en það var árið 2003, orðið svolítið langt síðan.

Svo er ég að fara að ræða við Helenu og Stefán á Café, þau vantar víst kokk í sumar og gæti vel verið að maður myndi næla sér í einhverja aukavinnu hjá þeim svona þegar vantar. En það kemur betur í ljós í kvöld þegar ég fer og spjalla við þau.

Já það er allt að ske hjá manni hérna í Vestmannaeyjum. Ætla samt að fara að kalla þetta gott en ætla nú ekki að gleyma að láta ykkur vita af myndunum úr ferðalaginu, þær eru komnar inn í myndaalbúmið mitt, sem eins og allir vita, ég er mjög svo duglegur að uppfæra :D

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 10:14 - 21. May, 2007 | Höfundur:

Þá er síðasti dagurinn okkar í Frakklandi runninn upp. Við vöknuðum aðeins fyrr en venjulega þar sem Guðný er í fríi í allan dag og það var ýmislegt sem þurfti að gera í dag. Olga er komin í feita yfirvigt og þurfti að kaupa auka tösku undir allt DRASLIÐ sitt, já ég sagði draslið ;)

Svo erum við að fara til Ítalíu núna í þessum töluðu orðum. Ég ákvað að henda inn mínum síðustu orðum í Frakklandi þar sem við höldum til London til Þórhalls og Hrundar klukkan 11 í fyrrmálið. Þar verðum við svo þangað til á fimmtudaginn, en þá fljúgum við aftur heim til Íslands.

Ég skellti mér á djammið með stelpunum í gær í fyrsta skiptið í ferðinni. Við fórum bara hérna aðeins niður í bæ og tókum stutt pöbbarölt á þetta, voðalega notalegt bara. Ég held ég geti alveg sagt það með vissu að ég er búinn að spara mér þónokkurn pening á því að chilla heima með Bjarna öll hin kvöldin ;)

Læt samt fylgja með nokkrar myndir af gærkvöldinu. Þess má geta að ég get ekki hent myndunum úr minni myndavél inn á þessa tölvu svo ég fékk þessar lánaðar hjá Gvuníju ;)


Við að webcamast


Myndavélaflipp í gangi…


Ég og G-Unit


Barþjónninn átti afmæli og bauð okkur að sjálfsögðu í glas… ;)


Svo sæt saman…


Sáttur eftir barferð :D

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , ,  | 5 komment
færsla skrifuð kl. 19:50 - 18. May, 2007 | Höfundur:

Jæja þá er kannski kominn tími til að láta vita af sér hérna í Frakklandinu góða. Við erum sko ekki búin að sitja auðum höndum hérna hjá henni Guðnýju, enda bara snilld að vera með svona ‘local tour guide’ sem veit um alla bestu staðina til að heimsækja og bestu strendurnar, kann að ferðast í lestunum og ég veit ekki hvað og hvað. Við fórum á fyrsta deginum til Mónakó sem var náttúrulega bara geðveiki. Sáum þar snekkjubátahöfn þar sem allir þessir frægu og ríku eiga eitt eða jafnvel tvö stykki hver, það þarf ekki að taka fram að þetta eru sjúklega flottar snekkjur allt saman. Fórum líka að skoða formúlubrautina, sem er btw bara inni í miðri borginni og þarf að loka helstu götum á meðan á keppninni stendur. Held að það verði keppt í Mónakó 26. maí en undirbúningurinn var í fullum gangi. Svo var að sjálfsögðu kíkt í casino, en þess má einmitt geta að póker atriðið í Casino Royale var tekið upp í Mónakó…

Svo fórum við 2 næstu daga á ströndina og grilluðum okkur aðeins, lékum okkur í sjónum í frisbee, beach ball og fleiri skemmtilegum leikjum. Í gær fórum við svo til Cannes þar sem kvikmyndahátíðin er í gangi núna. Vorum reyndar ekki svo heppin að hitta á einhvern frægan en sáum rauða dregilinn þar sem var verið að ryksuga hann og gera fínan fyrir kvöldið, auk þess sem við fengum okkur að borða þar og skoðuðum herlegheitin. Fólk var meira að segja farið að bíða eftir stjörnunum þarna þegar við vorum og voru þá alveg þónokkrir tímar í að þær kæmu.

Í dag fórum ég, Olga og Bjarni í næsta bæ og að sjálfsögðu beint á ströndina. Búin að vera dugleg á ströndinni hérna en í dag var aðeins “of gott” veður ef svo er hægt að segja, því við komum öll vel grilluð heim á hótel og erum núna að baða okkur upp úr after sun og grunar mig sterklega að ég muni hafa hamskipti í nótt… :o

Lofaði nokkrum myndum hérna úr ferðinni og ætla ég að leyfa þeim að eiga síðustu orðin ;)


Á lestarstöðinni á leiðinni á ströndina

Komin á ströndina… bara gott veður.


Mættur til að brenna.


Aðeins verið að ljósmyndast með nýju sólgleraugun í sandinum.


Ferðafélagarnir sáttir í Mónakó

P.S. Vil nota tækifærið hér og óska henni Arndísi Ósk Atladóttur til hamingju með afmælið… love you sæta :*

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , , ,  | eitt komment
færsla skrifuð kl. 00:00 - 13. May, 2007 | Höfundur:

Þá situr maður í mestu makindum heima hjá Þórhalli & Hrund og horfir á sjónvarpið. Við lentum í London kl 3 að staðartíma og týndum því einum klukkutíma frá því á Íslandi, þar sem Bretland er einum klukkutíma á undan okkur heima. Við komum öllu draslinu heim til Þórhalls milli 5 og 6 í dag og skelltum okkur svo í bæinn að versla. Þess má geta að Olga missti sig eins og sönnum kvenmanni sæmir í H&M og komum við svo heim til Þórhalls að horfa á Eurovision.

Svo verður morgundagurinn tekinn snemma, en við ætlum í bæinn með mömmu, pabba, Þórhalli og Hrund. Þar verður verslað og skoðað sig um, en Bjarni hefur aldrei komið hingað áður. Við komum örugglega til með að fara snemma í háttinn þar sem við eigum svo flug til Nice kl 6:10 á mánudagsmorgun :o

Þetta er búinn að vera fínn dagur þrátt fyrir smá ferðaþreytu í liðinu og verður væntanlega meira fjör á okkur á “morgun”… á afmælisdaginn minn… kallinn orðinn 24. ára. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir ;)

Þangað til næst…

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , ,  | 6 komment
færsla skrifuð kl. 02:03 - 09. May, 2007 | Höfundur:

Já það er verulega farið að styttast í utanlandsferðina. Ég fer til Reykjavíkur á fimmtudaginn (á morgun tæknilega séð) og svo til London á laugardaginn. Við verðum þar í 2 daga og hitti svo á að mamma og pabbi verða akkúrat í London á þessum tíma svo við munum horfa saman á Eurovision hjá Þórhalli bróður og Hrund ásamt því að ‘fagna’ 24 ára afmælinu mínu daginn eftir.

Svo verður flogið til Nice í Frakklandi á mánudagsmorgun og ætlar hún Gvuní að taka á móti okkur með alls kyns kræsingum og að sjálfsögðu lofaði hún sól og blíðu! Þar verðum við í 8 daga og fljúgum svo aftur til London. Þar eyðum við 2 síðustu dögum af fríinu á TGI Fridays, sem er einn mesti snilldar veitingastaður sem ég hef komið á (allt annað en krapið sem er í Smáralindinni)

Nú er bara að fara að kjósa á morgun, fara í klippingu og pakka niður. Er eiginlega búinn að ákveða hvað ég ætla að kjósa, og í sambandi við farangur í þetta ferðalag ætla ég bara að taka eurotrip aðferðina sem við Árni Óli tókum 2004. Hún innihélt bakpoka en ég ætla þó að fá að stækka það í litla ferðatösku. Taka eins lítið af dóti með mér af því það er óþolandi leiðinlegt að ferðast með þunga tösku, plús það að maður kaupir sér alltaf sitthvað í svona ferðum, betra að vera með pláss fyrir það :)

Já svo skellti ég mér upp á Heimaklett í fyrsta skiptið á ævinni í dag, til hamingju ég, en við fórum nokkrir vel valdir í þessa ferð og tók ég að sjálfsögðu nokkrar myndir. Flestar voru þær ekkert sérstakar þar sem það var svona gráskýjað og leiðinlegt, en ég henti samt nokkrum myndum inn á flickR-ið.

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | 8 komment
færsla skrifuð kl. 19:27 - 04. May, 2007 | Höfundur:

Hvað á maður að kjósa?Já, það er að gerast. Ég ætla að blogga um stjórnmál, eitthvað sem ég hélt ég myndi aldrei gera. En allavega það sem hefur verið mér hugfangið þessa dagana eru þessar blessuðu alþingiskosningar. Gengið verður til kosninga þann 12. maí og ég veit bara ekkert hvað maður á að kjósa!

Þegar ég hugsa út í það hvað það er sem ég vil að flokkurinn sem ég kjósi hafi á sinni stefnuskrá er aðallega þetta:

  • Stórbættar samgöngur milli lands og Eyja, ég vil óháða úttekt á kostnaði við göng áður en farið verður út í Bakkafjöru, en á meðan á því stendur þarf að fá stærra skip til að sigla hérna á milli. (sem mér skilst að allir flokkar í suðurkjördæmi séu með á oddinum nema Samfylkingin)
  • Bætt kjör fyrir fólkið sem átti þátt í því að gera Ísland að því sem það er í dag. Já ég er að tala um eldri borgara, það er skammarlegt hvernig er komið fyrir mörgum hverjum, 3 – 4 og jafnvel fleiri saman í herbergi. Hjónum stíað í sundur og ég veit ekki hvað og hvað.
  • Tvöföldun Suðurlandsvegar þarf að byrja helst í gær, hvað þurfa margir að deyja þarna eða lenda í alvarlegum slysum svo eitthvað sé gert í málunum.
  • Tryggja sjávarútvegi á landsbyggðinni örugga starfsemi, en eftir því sem ég get best séð af vafri mínu um síður flokkanna (sem eru mis auðveldar í leit að upplýsingum um stefnumál) er að Frjálslyndi flokkurinn sé sá flokkur sem ætli að beita sér fyrir hruni byggðarlaga úti á landi og fækkun íbúa.

Þetta er svona það sem er efst á baugi hjá mér þegar ég hugsa til þessara kosninga og nú er bara að leggja höfuðið í bleyti því ég þarf að kjósa utankjörstaðar í næstu viku. Kallinn er náttúrulega að fara til London 12. maí ;)

En eru ekki fleiri í sömu sporum og ég? Eða eruði öll harðákveðin?

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | 13 komment
færsla skrifuð kl. 04:19 - 04. May, 2007 | Höfundur:

Fann look sem ég er að fíla soldið betur en hitt, þar sem mér fannst linkarnir til hægri allt of plássfrekir. Flokkaði líka öll bloggin eftir innihaldi eins og sést hérna til hægri þannig að auðveldara er að skoða gamlar færslur með tilliti til innihalds.

more…

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: ,  | 5 komment
færsla skrifuð kl. 23:07 - 02. May, 2007 | Höfundur:

LFCJá nú er poolarinn sáttur. Í gær komust mínir menn í úrslit Meistaradeildarinn með góðum sigri á Chelsea á Anfield. Daniel Agger skoraði eina mark leiksins eftir snilldarlega útfærða aukaspyrnu frá Gerrard. Leikurinn var vægast sagt ROSALEGUR þótt mörkin hafi ekki verið fleiri og Liverpool mun sterkari aðilinn. Leikurinn fór í framlengingu þar sem við töpuðum fyrri leiknum 1 – 0 á Stamford Bridge. Ekkert var skorað í framlengingunni svo við tók vítaspyrnukeppni og taugarnar hjá mínum voru ekki að höndla það, en þar var það Reina sem var hetja liðsins þar sem hann tók sig til og varði 2 spyrnur frá Chelsea! LIVERPOOL KOMNIR Í ÚRSLITIN!

Svo var annar leikur AC Milan og Man Utd í kvöld, en þar tóku Milan menn sig til og völtuðu yfir Man Utd. Ég reyndar horfði bara á fyrri hálfleikinn þar sem ég þurfti svo að fara í vinnu, en í þeim hálfleik var aðeins eitt lið á vellinum. Kaká kom Milan mönnum yfir strax á 11. mínútu og Seedorf skoraði annað markið á 30. mínútu. Gilardino gulltryggði svo sigur Milan á 78. mínútu þegar hann sendi boltann framhjá Van der Saar.

Ég verð að viðurkenna að þessi úrslit komu mér svolítið á óvart, en það sem kom mér meira á óvart var hversu slakir Man Utd menn voru. Það var bara ekkert í gangi hjá þeim. Ronaldo sást ekki, hvað þá Giggs og Rooney svona þeirra skástur. Vörnin var hriplek og það var ekki að sjá meistarabraginn yfir þessu liði sem maður hefur séð hingað til.

En svona til að nudda nú ekki salti í sár Man Utd manna lengur ætla ég bara að slútta umfjöllun minni um þennan leik í kvöld og FAGNA ÞVÍ AÐ LIVERPOOL SÉ KOMIÐ Í ÚRSLITIN! ;)

Vil svo einnig minna á blogg sem ég hef mikið vitnað í í sambandi við hverjir myndu lenda saman í úrslitum meistaradeildarinnar… en það er að finna hér. Þetta er náttúrulega bara á kristaltæru!

Langar að enda þetta á copy/paste af spjallborðinu á ManUtd.is, en ég er búinn að liggja grenjandi úr hlátri yfir þessum kommentum þar!

AUMINGJASKAPUR!!!! Mér leið einsog ég væri að horfa á Milan – 3 flokkur kvennaliðs Aftureldingar…”

Vona bara að Ferguson taki leikmennina hvern fyrir sig og berji þá, þeir eiga ekkert betra skilið eftir svona frammistöðu.”

Það er hræðilegt að horfa uppá þetta, Milan er mörgum klössum fyrir ofan okkur.
Liðið fer í mesta lagi á pæjumótið í Eyjum með þessari spilamennsku.”

Bara fyndið að lesa svona frá aðdáendum Man Utd, en þeir viðurkenna þó að þeir hafi verið að spila illa. Annað en vælukjóinn hann Mourinhio sem sagði að hans lið hafi verið betri aðilinn í leiknum í gær og að andrúmsloftið á Anfield hafi ekki verið neitt “sérstakt”. Cry me a river… dickf…

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: ,  | 3 komment