Þessi helgi var nú bara tekin rólega. Tók að mér að fara upp á Selfoss með krakkana úr Féló á landsfund félagsmiðstöðva á laugardagsmorgun og átti að koma aftur samdægurs, en ákvað að framlengja ferðina til mánudags og kíkja í bæinn. Það sem einkenndi þessa annars ágætu ferð mína til borgar ótta og volæðis var rólegheit og chill í faðmi fjölskyldunnar heima hjá Elenu systir.
Fór svo í gær með Sigga bró á TMNT eða Teenage Mutant Ninja Turtles, en við vorum forfallnir Turtles aðdáendur þegar við vorum yngri.. bara gaman að sjá þessa mynd
Skellti mér svo heim til Eyja með fyrri ferð Herjólfs í dag og er núna í vinnu uppí Féló. Páskafríið að kicka inn og fjörið sem því fylgir hérna í Vestmannaeyjum verður örugglega ekki af verri endanum frekar en vanalega… þetta er eins og hálfgerð Þjóðhátíð.
Talandi um Þjóðhátíð… djöfull er orðið stutt í hana maður lifandi! Ég þarf að fara að koma með niðurtalningu í kvikindið hérna á síðuna…
En þangað til næst…





Síðustu komment