Eldri færslur fyrir » April, 2007 «

færsla skrifuð kl. 03:52 - 27. April, 2007 | Höfundur: einir

Hahaha.. ég bara verð að deila með ykkur þessari snilld sem ég var að finna. Þannig er mál með vexti að ég var að taka til á vefþjóninum hjá mér og rakst ég á þessa mynd sem ég skellti upp sem index síðu þegar ég var að skipta um lúkk að mig minnir sumarið 2005, svona líkt og þessari sem ég skellti upp núna af dömunni í sturtunni þegar ég skipti um útlit á vefnum um daginn.

Þessi er reyndar af mér sjálfum, photoshoppaði sjálfan mig á Terminator plakat og kom það einhvern veginn svona út…

The Eininator!
Sjáiði hvað maður er harður :D

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | 4 komment
færsla skrifuð kl. 03:34 - 26. April, 2007 | Höfundur: einir

Jæja þá er helgin liðin, og mikið var nú gaman. Mikið var um að vera þar sem Toyota hélt hér bílasýningu á öllum sínum glæsilegustu kerrum og bauð svo á ball í Týsheimilinu á laugardagskvöldið með Eyja-hljómsveitinni Dansi á Rósum. Það þarf ekki að segja manni tvisvar að þegar manni er boðið á ball, þá mætir maður ;)

Við byrjuðum þrír heima hjá Svenna en það vorum ég, Svenni og Steeb. Sötruðum og spjölluðum milli þess sem gripið var í gítarinn og jafnvel stöku sinnum í taflborðið… dúndrandi stemmning auðvitað þangað til við ákváðum að henda upp á Conero og fá okkur eins og einn Irish til að starta fjörinu nú almennilega. Eftir það var farið heim til Sigga bró þar sem fyrirpartý var í gangi og tókum við félagarnir nokkra pool leiki milli þess sem við spjölluðum við liðið sem þar var.

Þá var röðin komin að ballinu, en við vorum svolítið snemma í’ðí og því ekki margt um manninn þegar við komum. Við létum það ekki á okkur fá og skunduðum að sjálfsögðu á barinn… sem var nú meiri hel#”!#$ okurands$$#”!… lítill, og þá meina ég sko eiginlega extra lítill bjór var á 600 kall. Hann var afgreiddur í litlum plastglösum og hellt úr hálfs líters dósum, og ég efast ekki um að þær hafi náð að kreista 3 glös úr hverri dós. En eftir að hafa bölvað verðlaginu í sand og ösku var kominn tími til að skemmta sér svolítið svo við settumst niður til að spjalla við eitthvað vel valið lið… og eftir því sem drykkirnir urðu fleiri fór maður að spá minna í verðinu á bardjöflinum svo manni tókst að skemmta sér smávegis þangað til hent var út.

Þá kom að sjálfsögðu ekki til greina að hætta svo við Stefán húkkuðum okkur far niðrá Drífanda og vorum greinilega með þeim fyrstu af ballinu því þar var enginn. Þar myndaðist þessi venjulega stemmning, en eftir það kíktum við aftur heim til Sigga bró í eftirpartý. Það má segja að það hafi verið skemmtilegasti partur þessa kvölds þar sem gítarinn var rauðglóandi, húfan mín sungin á báðum hæðum (tölum ekki meira um það :) og allt sem áfengt var, var klárað í húsinu.

Svo fórum við bræður, þegar partýinu lauk, heim í Ísjakann og elduðum okkur kjúkling og franskar, sem við átum með bestu lyst klukkan 7 um morguninn… ;)

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð:  | eitt komment
færsla skrifuð kl. 23:49 - 16. April, 2007 | Höfundur: einir

Ég hef oft pælt í því hvað draumar eru merkilegt fyrirbæri. Ekki það að ég trúi á það að eitthvað sé hægt að lesa úr draumunum heldur meira af hverju dreymir mann? Nú er ég reyndar þannig að ég man yfirleitt aldrei eftir draumum sem mig dreymir, en það kemur þó fyrir að ég muni einn og einn, og þá helst ef það er einhver spenna í þeim. Eins og núna um daginn dreymdi mig að ég væri að taka þátt í vestmannaeysku Amazing Race… Allt í lagi með það og ég var að sjálfsögðu langfyrstur í þrautunum, sem voru meðal annars að borða líter af ís úr Ísjakanum og drekka kók með, hlaupa svo niður í bæ og taka kollhnísa niður Stakkó, þaðan átti að fara upp í Breiðablik (húsið sem mamma og pabbi Gullu eiga) og fara upp á efstu hæð, út á þak og síga niður.

Eftir það fór ég (langfyrstur auðvitað) niður í Akóges þar sem voru fyrir handlóð sem ég átti að lyfta nokkrum sinnum, man ekki alveg… Svo þegar þrautirnar eru að klárast og ég alveg langfyrstur er að koma í mark fer ég allt í einu að hlaupa geðveikt hægt! Og alveg sama hvað ég reyni, ég hleyp bara alltaf hægar og hægar… það verður auðvitað til þess að allir ná mér og fara frammúr mér!!

Ég bara spyr, hvað í fjandanum er málið með þetta í draumum? Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem svona lagað kemur fyrir mig… Oft dreymir mig t.d. að ég sé að flýja eitthvað og næ ekkert að hlaupa hratt. Algjörlega óþolandi, og að vakna eftir það að hafa tapað í Amazing Race var alls ekki að gera sig… þetta skemmdi daginn fyrir mér!

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð:  | 5 komment
færsla skrifuð kl. 23:59 - 10. April, 2007 | Höfundur: einir

Jæja þá eru páskarnir búnir. Auðvitað var tekið vel á því eins og alltaf um páska hérna í Eyjum, þetta er bara eins og lítil Þjóðhátíð. Djammið var fínt og gaman að hitta alla krakkana sem búa upp á landi… Nú hefst svo hið daglega líf hjá manni aftur og verður tekin smá pása frá djammi eftir þessa törn.

Ég er svolítið farinn að spá í hvað maður eigi að gera í sumar, enda ekki seinna vænna. Mér sýnist allt stefna í að maður fari í vinnuskólann hjá Sigþóru, en reyndar kom Gísli með skemmtilegan vinkil inn í þá umræðu þegar ég sat með honum að sumbli á föstudaginn langa. Hann spurði hvort við ættum ekki bara að skella okkur á sjó saman. Nú hef ég aldrei farið á sjó og aldrei svo mikið sem reynt að koma mér á sjó, en þegar hann kom með þessa hugmynd fannst mér hún bara ekkert vitlaus. Þarna eru peningarnir, og þótt þetta sé mikil vinna þá hefur maður bara gott af þessu og fínt að geta sagt hafa reynsluna af því að hafa verið á sjó :)

Svo hef ég svolítið verið að velta fyrir mér með áframhaldandi nám eftir framhaldsskóla, og bara áframhaldandi allt. Vera í Eyjum og klára skólann? Fara annað og klára í fjarnámi… til dæmis út? Margt sem er að veltast um í hausnum á mér þessa dagana, eiginlega of margt. Þess vegna er ég virkilega að elska það að það sé núna um mánuður þangað til ég skýst út til London að heimsækja Þórhall bró og Hrund & Svölu auðvitað, og svo þaðan til Nice í Frakklandi að flatmaga í sólinni með Gvuní, Olgu og Bjarna. Það verður án efa geggjuð byrjun á frábæru sumri!

Langar að enda þetta á myndbroti úr gömlu DV blaði sem ég rakst á á flakkinu um veraldarvefinn… ekki myndi ég nú vilja lenda í þessu:

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | 2 komment
færsla skrifuð kl. 18:05 - 03. April, 2007 | Höfundur: einir

…getur ekki verið svona gott veður hérna? :(

Sumarblíða á austurlandi

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð:  | eitt komment
færsla skrifuð kl. 19:31 - 02. April, 2007 | Höfundur: einir

Þessi helgi var nú bara tekin rólega. Tók að mér að fara upp á Selfoss með krakkana úr Féló á landsfund félagsmiðstöðva á laugardagsmorgun og átti að koma aftur samdægurs, en ákvað að framlengja ferðina til mánudags og kíkja í bæinn. Það sem einkenndi þessa annars ágætu ferð mína til borgar ótta og volæðis var rólegheit og chill í faðmi fjölskyldunnar heima hjá Elenu systir.

Fór svo í gær með Sigga bró á TMNT eða Teenage Mutant Ninja Turtles, en við vorum forfallnir Turtles aðdáendur þegar við vorum yngri.. bara gaman að sjá þessa mynd :) Skellti mér svo heim til Eyja með fyrri ferð Herjólfs í dag og er núna í vinnu uppí Féló. Páskafríið að kicka inn og fjörið sem því fylgir hérna í Vestmannaeyjum verður örugglega ekki af verri endanum frekar en vanalega… þetta er eins og hálfgerð Þjóðhátíð.

Talandi um Þjóðhátíð… djöfull er orðið stutt í hana maður lifandi! Ég þarf að fara að koma með niðurtalningu í kvikindið hérna á síðuna…

En þangað til næst…

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment