Eldri færslur fyrir » January, 2007 «

færsla skrifuð kl. 10:10 - 24. January, 2007 | Höfundur:

Búið að vera helvítis vesen á hýsingunni hjá mér. Spurning um að framlengja ekki hjá þessum álfum þegar samningurinn rennur út, Þórhallur bróðir var svo góður að bjóða mér hýsingu á servernum sem hann á… sem ég hugsa að ég þiggi með þökkum. Síðan lá niðri í einhverja 2 daga, en samt aðallega vegna þess að ég gat ekkert gert í því um helgina, og þá komum við að aðalefni þessa bloggs ;-)

Já, ég skellti mér ásamt hele familien til Reykjavíkur síðustu helgi þar sem tilefnið var skírn á litla gullmolanum hennar Elenu systur og hans Þóris mágs. Eftirvæntingin og forvitnin skein úr hverju einasta andliti í fjölskyldunni og bara spenna í loftinu þegar loksins kom að því að Þórir sagði nafnið… Aðalsteinn Einir – Ég var að taka myndir eins og óður maður í skírninni en ég datt algjörlega út eftir að hafa heyrt nafnið… ég fann svona “vááá… ég á soldið meira í honum núna”, þótt krílið sé auðvitað skírt eftir öfum sínum. Ég heiti samt líka Einir :-D Bara falleg athöfn í alla staði og kræsingarnar alveg að gera sig! Ég gerði kjúllaréttinn margrómaða sem svo gott sem hvarf ofan í gestina á nokkrum mínútum… ég fékk ekki einu sinni að smakka sjálfur. Annars var þetta bara ljúf og góð helgi, fór í snóker með Sigga bró, hittum þar Bigga og Gísla Böðvar. Ræðum úrslitin í tvíliðaleiknum ekkert frekar :-)

Svo er ný skólavika bara gengin í garð og þar að auki hófst fjarnámið á mánudaginn. Byrjar bara rólega þar sem betur fer á meðan maður er að koma sér inn í þetta. Á að skila verkefni í Sögu303 næsta mánudag, kynna mér 4 ríki þar sem múslimar eru ríkjandi trúarflokkur og gera grein fyrir helstu atvinnuvegum, heilsugæslu, læsi og blablabla… Hörkuspennandi verkefni… :-.

Jæja, ætla að kalla þetta gott og skella mér í ræktina… Skelli hérna nokkrum myndum af fallegu fjölskyldunni og athöfninni:







Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 20:50 - 17. January, 2007 | Höfundur:

Haldiði að maður hafi ekki bara skellt sér á líkamsræktarkort í Nautilus (þeir sem voru að taka við líkamsræktarsalnum í Íþróttamiðstöðinni) ásamt rúmlega 500 öðrum Eyjamönnum. Fór fyrst í fyrradag og ég verð bara að segja að þessi salur er ALLT ANNAÐ en crapið sem var þarna… guð minn góður. Komin alveg GLÆný tæki og miiiiklu meira af tækjum og lóðum. Svo eru sjónvörp þarna eins og í sölunum í Reykjavík. Þó ekki eins mikil geðveiki og er í Sporthúsinu, þar sem ég var að æfa þegar ég bjó í bænum, en þar eru sjónvörp á hverju tæki fyrir sig næstum því. Þakka einmitt guði fyrir það að HM í fótbolta var í gangi þegar ég var að byrja að æfa þar og þar sem ég var ekki með Sýn í Rvk neyddist ég til að fara í ræktina til að horfa á leikina :-D

En já, bara gott að vera farinn að hreyfa sig aftur! Finn alveg hvað mér líður miklu betur… og farin að koma aðeins meiri rútína á daginn hjá mér. Sef ekki orðið á daginn og farinn að sofa snemma, ekki seinna en 23-00. Bara þægilegt. Er reyndar núna vel marineraður í harðsperrum… en það fylgir þessu :-)

Annars er lítið að frétta. Skólinn bara eins og hann er, er reyndar að fara upp á land um helgina. Elena systir og Þórir eru að fara að skíra litla töffarann. Smáááá forvitni í gangi hvað hann eigi að heita, en það er náttlega ekki séns að reyna að draga það upp úr systur minni. En jæja, ég ætla að fara að horfa á Heroes eða Prison Break, erfitt val…
Bið að heilsa ykkur…

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 21:05 - 14. January, 2007 | Höfundur:

Það hlaut að koma að því… Haltu Kjafti er risið upp frá dauðum eftir frekar leiðinlegan og langdreginn dauðdaga. En já, Andri er búinn að setja upp splunkunýtt spjallkerfi og allt saman komið á fleygiferð þar. Mæli með að þeir sem hafa gaman af að spjalla um allt og ekkert skelli sér þangað, skrái sig og taki þátt í umræðunum. Þarna er rætt um hin ýmsu málefni og þótt uppistaðan af spjallverjum þarna séu Vestmannaeyingar eru auðvitað allir velkomnir!

Og í guðanna bænum ekki misskilja titilinn á þessu spjalli. Ekki bara skrá ykkur og halda svo kjafti ;-)

http://haltukjafti.vinirketils.com

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð:  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 02:00 - 04. January, 2007 | Höfundur:

Jújú, það er barasta komið 2007. Eigum við að ræða það hvað þessi tími er farinn að líða hratt? 24. aldursárið farið að hellast allsvakalega yfir mann og árgangsmót á leiðinni næsta sumar! Var einmitt hittingur hjá árgangnum milli jóla og nýárs og mættu um 30 manns á Conero til að spjalla um ákvarðanir og skipa í nefndir. Niðurstöður þessa fundar má sjá á heimasíðu árgangsins http://83.einir.com.

Annars er voðalega lítið að frétta. Nóg búið að vera um að vera í djamminu þessi jólin eins og vanalega. Auðvitað hefur maður líka spilað svolítið með familíunni og spilin sem staðið hafa uppúr þessi jólin eru nýja trivial (sem er bara ekkert sérstakt..), sequence & auðvitað catan ;)

Tók svo þessi líka snilldar áramót með Sigga Ara, Theo, Bixie og fleirum þar sem mér var gjörsamlega rústað í Buzz og ég sleppti við að borga fokking 2500 kall inn á áramótaball í Höllinni og láta svo okra á mér á ógeðisbarnum þar… WÚHÚ! Fólk var eldhresst á Drífanda og auðvitað fór maður þaðan út með öskubökkunum eins og vanalega… þaðan var haldið heim til Árna Óla þar sem var bókstaflega ENGINN. Gerðum okkur heimakomin í stofunni hjá honum til svona 9-10 þegar maður ákvað að koma sér heiiiim. Skál allir og takk fyrir frábær áramót!

GLEÐILEGT NÝTT ÁR !

Annars er bara skólasetning með öllu tilheyrandi á morgun og skólinn byrjar bara á föstudaginn… sjitturinn titturinn. Ætla að taka 2 fög í fjarnámi í FG nema að FÍV bjóði mér betur :-D

Jæja… þangað til næst…

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment