færsla skrifuð kl. 02:19 - 05. September, 2006 | Höfundur:

Jæja kallinn skellti sér bara á eitt stykki bíl í síðustu viku. Já, ég keypti rassa-renaultinn (Renault Megané) hans Smára á föstudaginn og er bara alveg helvíti ánægður með kaupin. Frekar fyndið hvernig þetta gerðist þar sem ég var engan veginn að leita mér að bíl. Við erum saman í sögu í skólanum og ég sé að Smári er að skoða bílasölur á netinu og spyr hann í algjöru sakleysi hvort hann sé að selja bílinn sinn. Hann vindur sér að mér og bara “Já… vantar þig bíl?” – Ég svona hugsaði mig aðeins um og sagði “Veistu já… ég er ekki frá því” Stutt frá því að segja að daginn eftir (föstudaginn síðasta) var ég kominn með bílinn í hendurnar…

En já, ætla að fara að koma mér í háttinn, læt hérna fylgja nokkrar myndir af kvikindinu:

Vúppídú… til hamingju ég :P
Góða nótt!

Stikkorð: , ,
Flokkað undir: Almennt
Þú getur fylgst með kommentum við þessa færslu í gegnum RSS 2.0. You can leave a response, or trackback from your own site.
Kommentaðu...