Eldri færslur fyrir » September, 2006 «

færsla skrifuð kl. 19:43 - 28. September, 2006 | Höfundur: einir

Jæja þar sem maður er búinn að vera undir stöðugri pressu um að drita frá sér eins og einum pistli eftir þessa snilldarferð norður get ég nú ekki dregið þetta lengur. En eins og ég sagði hérna áður fórum við 3 frækin í heljarinnar reisu norður yfir heiðar síðustu helgi sem tókst svona líka bara ljómandi vel. Ég hef ákveðið, þar sem það er af svo miklu að taka og mig langar alltaf að hafa myndir með svona ferðasögum að skipta þessu kvikindi niður í 2 hluta allavega, og sá fyrsti lítur hér dagsins ljós:
Föstudagurinn 22. september

Við skelltum okkur fersk að vanda í fyrri ferð Herjólfs á föstudagsmorgun og brunað í bæinn. Þar snæddum við á Subway að sjálfsögðu og tókum bensín og ég veit ekki hvað og hvað. Svo var lagt af stað norður og fengu lög eins og Starman með Davíð Boga og Ring of Fire með Jóni Reiðufé umtalsverða athygli okkar manna á þessari leið og var sungið hástöfum með. Að stuttu stoppi á Blönduósi undanskildu var brunað beinustu leið í höfuðborg Norðursins til að hitta þar fyrir hæsta mann sunnan Kolbeinseyjar, engan annan en Hlyn nokkurn Herjólfsson. Þegar þangað var komið bauð hann okkur í íbúðina sína meðan hann kláraði að dorga með nördavinum sínum úr Háskólanum (ég veit, ekki spurja mig…). Við vorum ekki lengi að þiggja boðið enda orðin leið á að hanga í bíl eftir 10 tíma ferðalag! Þar var opnaður fyrsti bjórinn og ekki var hann nú lengi að renna niður… maður ætlaði nú samt ekki að þora að setja bjórinn sinn inn í ísskáp hjá Norðlendingnum þar sem kjellinn var með KINDAHJÖRTU fyrir allan peninginn inni í honum. En maður lét sig hafa það, það sem drepur þig ekki styrkir þig! Svo mætti lítill Hlynsalingur í teitið sem þremenningarnir fræknu störtuðu þarna á Klettastígnum ef ég man rétt, og þá var nú ekki aftur snúið. Gleðin tók öll völd og ölið rann vel niður. Merkilegt hvað hægt er að spjalla um akkúrat ekki neitt í fleiri fleiri tíma og hafa gaman að. Svo þegar farið var að síga á áfengisbirgðir föstudagskvöldsins var ákveðið að kíkja í Háskólapartý, og ég auðvitað ímyndaði mér eins og maður sér þetta á netinu; þvílíku gellurnar berar að ofan, olíubornar og til í allt. Neinei, það kom sko allt annað upp á bátinn. Við lentum í partýi þar sem þorri fólkins hafði lent frekar aftarlega í röðinni (ef þið vitið hvað ég meina), reyndar fyrir utan eina… auk þess sem þarna voru 3 finnskir skiptinemar. Vá hvað við áttum eftir að skemmta okkur yfir þeim þetta kvöld… því sjálfkrýndur brandakall ferðarinnar, enginn annar en ég kom með hittara á borð við ‘við þurfum að fara að finna þessa Finna áður en þeir fara að finna á sér!’ og ‘finnum Finnana áður en Finnur finnur á sér’… Hahahahaha… ég hlæ ennþá að þessu :D En já Stefán sá svo um að halda fólkinu heitu með gítarglamri og munnhörpugauli þangað til við gleymdum næstum því að fara á ballið, stelpurnar í partýinu voru svo heillaðar af Stebbanum að maður varð að passa sig á að stíga ekki á tungurnar á þeim þegar maður labbaði um gólfin… Ég fór reyndar þarna í millitíðinni á smá rúnt með Svölu og Söndru vinkonu hennar (sem er btw geðveik!), en mikið djöfull hló ég nú að rúntinum á Akureyri! Ok, that’s it… það verður ekki hlegið meira að rúntinum hérna í Eyjum. HAHAHAHAHA Þvílík og önnur eins HÖRMUNG… það actually komast færri að en vilja á þennan blessaða rúnt, þetta er rúntur í kringum EITT hús liggur við. Ég hélt ég yrði ekki eldri. En já, svo skutluðu þær stöllur okkur á Sjallann þar sem Dr. Mister & Mr. Handsome voru að spila og Guðný bókstaflega hélt ekki vatni yfir þessu. En jújú, maður skemmti sér svosem ágætlega… Gaman að spjalla við Akureyringa og enn skemmtilegra að biðja um djúpsteiktan Akureyring í nætursölunni eftir djammið… Hahahaha… En við vorum þarna dansandi við einhverja moldleiðinlega músík drekkandi gin í tonik og ég veit ekki hvað og hvað… sátum og spjölluðum við kreisí háskólakrakka og bara alla krakka eiginlega… En svo þegar hiti fór að færast í leikinn hjá sumum (Hlyn & Stefáni!) ákvað minn að nú væri komið nóg og við skyldum fá okkur feita samloku og franskar fyrir svefninn og tölta svo heim til Hlynsans. Fórum reyndar smá leynileið sem ég fann heim til hans í gegnum skóg og runna og ég veit ekki hvað og hvað. En allavega, heim komumst við og þar hafði ég pantað mér dýnu til að sofa á og ætlaði mér sko að ná henni! Og gerði það reyndar að lokum… en þó ekki eins og ég hafði ætlað mér… á meðan fólkið fór að ‘mönnsa’ eitthvað fyrir svefninn dró ég út stóru dýnuna og faaaaðmaði hana að mér og það mátti sko enginn annar vera á henni nema ég. Samt var ég ekki alveg á dýnunni. Þetta var allt saman útpælt hjá mér því ég vissi að Guðný myndi ræna stæði á dýnunni og hún fengi aukasængina frá Hlynsa þar sem það var bara ein aukasæng. Svo seinna um nóttina rændi ég auðvitað sænginni af tjéddlingunni og svaf eins og engill. Mjög svo skemmtilegur endir á SNILLDAR kvöldi. Og þetta er sko bara föstudagurinn… ég veit að þið munuð bíða spennt eftir laugardagshlutanum og þar sem ég er á leiðinni til Reykjavíkur um helgina með Féló get ég ekki lofað ykkur henni fyrr en einhverntíman eftir helgi… Bíðiði bara róleg og reyniði að þrauka þetta…
Já og ég er auðvitað búinn að henda inn HELLING af myndum af þessu öllu saman!

Þangað til næst…

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 12:25 - 21. September, 2006 | Höfundur: einir

Þá er það komið á hreint. Ég og Steebman (og vonandi Guðný líka) ætlum að skella okkur á smá roadtrip norður yfir heiðar um helgina. Það verður Herjólfur í fyrramálið og brunað svo beint til Akureyrar (með kannski smá Subway stoppi í bænum ;) . Ætlum að krassa hjá Hlynsa eða Svölu á föstudagskvöldinu en svo á laugardeginum ætlum við að skella okkur á ball á Ólafsfirði… já, ég sagði Ólafsfirði :D Þetta verður án efa eðal ródtripp og djöfull hlakkar mig til (já, ég segi MIG hlakkar til Ólöf!)

Annars lítið að frétta. Skólalífið gengur sinn vanagang, var í prófi í Íslandsklukkunni í morgun… gekk svona bara ágætlega, bjóst allavega við því verra þar sem maður hefur nú heyrt misfagrar sögurnar um prófin hjá Berthu. Mér fannst þetta allavega sanngjarnt. Vinnan er náttúrulega bara snilld! Gerðum brjóstsykur á mánudaginn var og djöfulsins snilld er það! Svo er ég að fara næstu helgi með Sigþóru og unglingaráðinu á landsmót Samfés þar sem öll unglingaráðin hittast og voða fjör… örugglega mjög gaman ;)

En já, ætla ekki að hafa þetta lengra…
Akureyri… watch out! =)

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 02:24 - 14. September, 2006 | Höfundur: einir

…hvern vitleysingarnir í Supernova völdu?

Ég sá þetta fyrir bara í fyrra held ég… enda kannski ekki að vænta þess að það komi eitthvað af viti upp úr þessum mönnum þarna að Jason Newsted undanskyldum… jahérna…

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð:  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 16:23 - 13. September, 2006 | Höfundur: einir

Við erum að tala um það að tjéddlinn er að fara að LANA í Diablo II bara eins og hérna back in the days. Ég, Árni Óli, Víðir og gott ef ekki Bjarni Þór bara líka ætlum að rifja upp gamla tíma og skella okkur í smá upprifjun í þessum annars ágæta leik, sem ég hef nú ekki farið í í laaaaaangan langan tíma. Já það verður NÖRD 103 heima hjá Árna næstu dagana :D

Annars er nú lítið að frétta… er alltaf á leiðinni að henda nýjum myndum inn á flickR-ið en einhvernveginn gefst aldrei tími í það… hmmm, þarf að fara að skipuleggja mig betur! Svo er það Sálarball á laugardaginn og ég held svei mér þá að öll eyjan verði hauslaus um helgina útaf þessu balli. Fólk er ekki að halda vatni yfir þessu blessaða balli… maður á eflaust eftir að skella sér og það er eins gott að þessir hestar hafi opið upp! Annars handrota ég einhvern…

Jæja, er að spá í að kalla þetta gott.
Farinn á LAN

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 19:22 - 09. September, 2006 | Höfundur: einir

Jæja, þá er ég staddur í Reykjavíkinni yfir helgina þar sem ég er að sækja restina af dótinu mínu og slappa aðeins af. Reyndar er Arndís að draga mann á eitthvað skrall í kvöld svo það er spurning hvað verður úr kvöldinu í kvöld. Mig langar eiginlega líka til að sjá Pirates of the Caribbean í bíó… en það kemur í ljós hvað maður gerir.

Já svo tók ég þátt í ljósmyndakeppni á ljósmyndakeppni.is, varð í 2. sæti í keppni um að fá myndina sína birta í ágústmánuði á dagatali sem gefið verður út á næsta ári. Svona líka ljómandi sáttur við fyrstu ljósmyndakeppnina sem ég tek þátt í. Getið séð úrslitin og myndirnar hér.

En já, ætla að fara fá mér að éta… orðinn veeeeel hungraður. DJÖFULL HEF ÉG SAKNAÐ SUBWAY!
Chao.

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 00:21 - 06. September, 2006 | Höfundur: einir

Þá er maður staddur á Magnavöku hérna í skólanum og ég verð að segja eins og er að ég bjóst ekki við að sjá svona marga hérna. Ég og Arndís ákváðum að skella okkur og það er talað um að það séu yfir 100 manns hérna :) og þegar þau nefndu það í sjónvarpinu að það væri Magnavaka í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum hélt ég að þakið ætlaði af skólanum, þvílík og önnur eins stemmning. Fengum líka að heyra svolítið skemmtilegt þar sem Guðrún eða hvað sem hún heitir sem stjórnar Magnavökunni á Skjá Einum sagði að krakkarnir í FÍV (við) fengjum frí í fyrstu tveimur tímunum í fyrramálið. Okkur var nefninlega bara sagt að það yrði frí í fyrsta tímanum, svo auðvitað sofum við öll á okkar græna til 10 í fyrramálið vitandi það að við fáum ekki skróp.

En jæja, ætla ekki að hafa þetta lengra, MUNA AÐ KJÓSA KVIKINDIÐ!

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 02:19 - 05. September, 2006 | Höfundur: einir

Jæja kallinn skellti sér bara á eitt stykki bíl í síðustu viku. Já, ég keypti rassa-renaultinn (Renault Megané) hans Smára á föstudaginn og er bara alveg helvíti ánægður með kaupin. Frekar fyndið hvernig þetta gerðist þar sem ég var engan veginn að leita mér að bíl. Við erum saman í sögu í skólanum og ég sé að Smári er að skoða bílasölur á netinu og spyr hann í algjöru sakleysi hvort hann sé að selja bílinn sinn. Hann vindur sér að mér og bara “Já… vantar þig bíl?” – Ég svona hugsaði mig aðeins um og sagði “Veistu já… ég er ekki frá því” Stutt frá því að segja að daginn eftir (föstudaginn síðasta) var ég kominn með bílinn í hendurnar…

En já, ætla að fara að koma mér í háttinn, læt hérna fylgja nokkrar myndir af kvikindinu:

Vúppídú… til hamingju ég :P
Góða nótt!

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment