Jæja þá er stundataflan komin í hús. Ég ákvað að skipta yfir á Félagsfræðibraut, en ég var á Náttúrufræðibraut þegar ég byrjaði í skóla. Er reyndar á báðum áttum núna en ætla að skoða þetta allt saman betur með Helgu Kristínu á morgun. Stundataflan lítur bara ágætlega út, vantar samt eitthvað eitt fag til að fylla upp í leiðindagöt. Verð þá væntanlega með 19 einingar, svo nú tekur bara við upprifjun á því að vera í skóla
En þetta leggst samt bara vel í mig. Á enn eftir að heyra með vinnuna hjá Sigþóru í Féló, þótt Arndís sé nú eiginlega bara búin að ákveða að ég verði þarna með henni í sumar… vona innilega að maður fái vinnu þarna, það yrði bara snilld!
Annars er lítið að frétta. Maður er bara að klára að undirbúa sig fyrir skólann, kaupa blöð, penna og allt auk þess sem maður þarf að taka aðeins til í ferðavélinni og gera hana klára undir skólann. Þetta er allt saman farið að taka á sig mynd og er ég bara kominn með þetta fína herbergi hérna uppi í gistingu hjá gamla settinu
Fór út á sjó að veiða með Árna Óla, Gaua og Bjarna í góða veðrinu í gær og tók þar nokkrar myndir. Ætla að henda Photoshop inn á þessa vél og klára myndirnar svo. Reikna með að henda nokkrum myndum inn á flickR-ið í kvöld.
Þangað til næst…





Síðustu komment