Eldri færslur fyrir » July, 2006 «

færsla skrifuð kl. 21:01 - 26. July, 2006 | Höfundur: einir

Nú er farið að styttast allsvaðalega í stærstu skemmtun ársins, það er að segja Þjóðhátíð Vestmannaeyja og ef ég á að segja alveg eins og er þá get ég bókstaflega ekki beðið. Heimþráin er orðin það sterk að ég er búinn að biðja um að fá frí fyrr í vinnunni til að komast sem fyrst til Eyja! Enda er maður nú ekki beint mjög sjóaður í þessu, að vera burtu frá heimkynnunum og vinunum yfir sumartímann… þetta er fyrsta og vonandi síðasta skiptið…

En að þessu margumtalaða þjóðhátíðarlagi. Eftir að hafa bæði hlustað á kvikindið oft og mörgum sinnum og svo reynt það á gítarinn góða verð ég að segja að þetta lag er ekki eins slæmt og allir vilja meina. Bíðiði nú alveg með að fleima mig, ég ætla að útskýra. Lagið sjálft finnst mér vera vel samið og fínn texti (þótt ekkert sé minnst á Vestmannaeyjar, lundann, dalinn, brennuna eða peyja) og gæti alveg virkað í dalnum í annarri útgáfu en sú sem er á dalurinn.is – Það er bara í höndum gítarleikara dalsins að útfæra þetta í aðeins skemmtilegri og umfram allt lægri tóntegund en nú er í gangi, því það heyra það allir sem hafa hlustað á þetta lag að brekkan á eftir að hljóma eins og kattaslátrun ef við förum að reyna að hætta okkur í sömu hæð og þessi blessaða Hrund Ósk (heitir hún það ekki).

Og fyrst það er nú svona stutt í þjóðhátíð hefur maður verið að skoða gamlar þjóðara myndir og ég verð nú bara að skella einni eða tveimur hérna til að minna fólk á af hverju maður er að þessari vitleysu.. heehehe. Þessar myndir eru frá Þjóðhátíð 2003:

Ég veit ekki hvort maður eigi eftir að pósta einhverju hér fyrir Þjóðhátíð en ef svo verður ekki, þá vil ég bara óska öllum Gleðilegrar Þjóðhátíðar… Sjáumst í DALNUM!

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 14:30 - 21. July, 2006 | Höfundur: einir

Eruði að grínast með þessa hörmung? Ég var bara frekar sáttur þegar ég heyrði að Maggi Eiríks myndi sjá um lagið í ár og beið með eftirvæntingu þar sem það átti að frumflytja lagið í dag. En guð minn góður… við skulum byrja á því að lagið byrjar eins og einhver ’slagarinn’ með Ace of Base með tilheyrandi ’skemmtara undirspili’. Svo kem ég ekki alveg fyrir mig hver þetta er sem er að syngja, einhver stelpa allavega. Það vantar alveg þessa Þjóðhátíðarstemmningu í lagið sem ég verð að viðurkenna að Hreimur á ekki í neinum vandræðum með að ná í sínum lögum. Mér finnst þetta lag allavega vera bara eitthvað miðlungs sumarpopp með þjóðhátíðartexta. Hvað finnst ykkur? Ef þið eruð ekki búin að heyra lagið, er það að finna hér.

En auðvitað lætur maður svona lagað ekki draga sig eitthvað niður, heldur skellir bara Í dalnum disknum í tækið og á rípít þangað til maður skellir sér til Eyja, miðvikudaginn fyrir Þjóðhátíð… Yeah!

Update: Var að fá fregnir af því að þetta sé EKKI hið rétta Þjóðhátíðarlag, enda er ekki mikill Magga Eiríks bragur yfir þessu. Mikið ætla ég að vona að þetta sé rétt!

Ef þetta er ekki þjóðari...!

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 02:23 - 19. July, 2006 | Höfundur: einir

…að kjósa Magna í Rockstar Supernova!? Þetta var alveg hreint magnað hjá kappanum og bara hans besta frammistaða að mínu mati! Ég skal sko hundur heita ef hann fer ekki áfram í næstu umferð… þótt það væri nú gaman að fá hann á Þjóðhátíð. En allavega… áfram Magni!

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 01:49 - 17. July, 2006 | Höfundur: einir

Ég tók mig til og verslaði mér eitt stk. Canon EOS 350D myndavél í fríhöfninni þegar við Bergdís skelltum okkur í vikuferð til Köben í ásamt og í boði tengdó. Þetta hefur alltaf verið gamall draumur að kaupa mér svona alvöru myndavél og ég sé svo sannarlega ekki eftir því að hafa keypt hana. Ég er búinn að vera að taka myndir síðan ég fékk vélina í hendurnar, eða kannski síðan ég fékk linsuna í hendurnar… þar sem ég keypti ekki standard linsuna með vélinni af því Þórhallur bróðir ætlar að vera svo góður að senda mér sína, sem hann er hættur að nota ;) Tók einmitt myndavélina með mér í brúðkaupið hjá Tómasi Inga frænda til að prófa hvernig fílingurinn er og náði nokkrum góðum myndum þar. Svo er maður auðvitað búinn að vera að lesa sig til hér og þar um hinar og þessar stillingar sem svona myndavélar bjóða upp á til að bæta gæði myndanna og hvernig maður vinnur með lýsingu og fleira og fleira. Langar að láta fylgja nokkrar myndir sem ég hef tekið á vélina hér og þar… lítið búinn að vinna með þær nema þá helst til að skerpa þær í Photoshop og skella einhverju í svarthvítt. Endilega komið með komment á kvikindin svona bara til að koma smá lífi í þessa síðu :-D

færsla skrifuð kl. 12:48 - 14. July, 2006 | Höfundur: einir

Jæja þá er þetta allt saman komið á bullandi skrið og þið getið búist við hverri færslunni á fætur annarri á næstu dögum og vikum þar sem ég kom mér í það að skipta um útlit og get þess vegna farið að heimsækja síðuna mína sjálfur aftur… :-D

En allavega þangað til næst…
Góða nótt

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð:  | ekkert komment