Mikið er nú gott að setjast niður með lappann í fanginu og opna sér einn ískaldann mjöður eftir langan vinnudag. Maður róast svo niður og fer að hugsa um allt og ekkert. Mér varð hugsað til Þjóðhátíðar, fór inn á dalurinn.is, og viti menn… það er búið að ráða 2 aðal hljómsveitirnar og greinilega allt að ske í þeim málum!
Í Svörtum Fötum & Á Móti Sól verða 2 af þrem stóru hljómsveitunum þetta árið, en þeir eiga eftir að finna/semja við þá þriðju sem mun einnig spila á Húkkaranum. Vá hvað mig er farið að hlakka til..
Svo er annað mál… nú er komin upp sú staða hjá mér að það virðist sem ég sé á leiðinni á skelduna, eða svona næstum því eiginlega. Tengdó bauð de hele familien út til Danmerkur í enda júní, en það vill svo heppilega til að við verðum úti í viku og þá akkúrat yfir Hróaskelduhelgina
Og það eru að mér sýnist þónokkrir á leiðinni á skelduna úr mínum vinahóp svo það er aldrei að vita nema maður fái leyfi til að skjótast á Skelduna á sunnudeginum þar sem þeir eru nú svo sniðugir þarna að selja inn á sunnudaginn sér. Fær maður að sjá soldið af þessum snilldar böndum sem eru komin og svo auðvitað hitta allt fallega fólkið sem maður þekkir
Annars er þessi hugmynd nú bara ennþá á teikniborðinu, en þetta yrði góð viðbót við snilldar sumar sem maður er farinn að sjá fram á.










Síðustu komment