Eldri færslur fyrir » April, 2006 «

færsla skrifuð kl. 22:21 - 28. April, 2006 | Höfundur: einir

Já svei mér ef það er ekki farið að votta fyrir smá spenningi fyrir Þjóðaranum í ár… Kíkti á dalurinn.is og haldiði ekki að Todmobile sé ekki búin að boða komu sína á hátíðina í ár. Bara gaman að því, sérstaklega þar sem ég fór á mitt fyrsta ball með þeim í Eyjum um daginn og skemmti mér líka svona ljómandi vel. Sat lengi vel bara og hlustaði á tónlistina, ekki oft sem það gerist á balli… allavega ekki hjá mér :-) En já, það eru víst 97 dagar í herlegheitin og hef ég komið upp niðurtalningu hérna til vinstri… segiði svo að ég sé latur! ;) Niðurtalningin er sett á föstudag þjóðhátíðar en að sjálfsögðu má reikna með að djammið byrji 2 – 3 dögum fyrr :-P

En já, það er komin enn ein helgin og djöfull er farið að styttast í afmæli hjá kjellinum… Ekki alveg að meika það. Siggi bróðir hringdi í mig rétt áðan og spurði mig hvort ég yrði upptekinn þarnæstu helgi. Ég svona… hmmm… tékkaði á dagatalinu og svona… “uhhh, það er vinnuhelgi… og jú, ég á afmæli!” hann alveg, “Já, ég veit… ég ætla að bjóða þér og Bergdísi til Eyja og við höldum upp á þetta heima hjá mér…” Og það var ekki séns að fá hann ofan af þessu svo við erum bara á leiðinni til Eyja afmælishelgina mína, en það vill svo skemmtilega til að afmælið mitt ber upp á laugardegi ;) Mikið er nú gaman að eiga svona góðan stóran litlabróður :-D
Djöfull er nú samt mikið að gerast í þessum blessaða maímánuði… bara fleirihundruð og fimmtíu afmæli… reyndar á meirihlutinn af tengdafjölskyldunni afmæli í maí, en þessi mánuður útleggst einhvernveginn svona…

  • 3. maí – Ásdís, systir Bergdísar
  • 13. maí – Ég
  • 21. maí – Berglind, systir Bergdísar
  • 22. maí – Heiðdís, systir Bergdísar
  • 31. maí – Geir tengdó

Svo má auðvitað ekki gleyma gömlu bekkjar/skólafélögunum sem eiga afmæli í maí, en það eru þau Sindri Ólafs (19), Valur Valtýs (21), Rakel Rut (27) & Guðrún Helga (31). Guð má vita hvernig maður man svona lagað en þetta er einhvernveginn bara fast í hausnum á manni… enda er maí besti mánuðurinn, ekki satt? :-)

færsla skrifuð kl. 22:41 - 22. April, 2006 | Höfundur: einir

Já það er komið sumar, allavega samkvæmt dagatalinu. Það hefur þónokkuð á daga mína drifið síðan síðast, enda töluverður tími síðan ég bloggaði og tel ég það nú orðið svart þegar fólk eins og Gulla og Andri tvíburi eru farin að reka á eftir manni í blogginu :-D
En já, ég skellti mér á dEUS tónleika uuuu… já einhverntíman í byrjun apríl. Þeir voru á Nasa en það var alveg hrúga af liði sem kom á þessa tónleika frá Eyjum. Hitti þarna Árna Óla & Arndísi ásamt fleiru fríðu fólki. Ég verð að játa að ég hef ekki farið á tónleika með bandi sem ég veit jafn lítið um og dEUS, enda hlustaði ég bara á gömlu vinsælustu lögin með þeim ‘in the old days’. Hins vegar var hún Olga svo elskuleg að senda mér nokkur lög af nýja disknum þeirra sem voru líka bara svona þrusugóð að ég ákvað að skella mér á tónleikana og sé akkúrat ekki rass eftir því. Þvílíkt þéttir og bara snilldar band á tónleikum! Vissi ekki hvert þakið á húsinu ætlaði þegar þeir tóku Suds&Soda.

Nóg um það… Ég og Bergdís skelltum okkur til Eyja í Páskafríinu og höfðum það bara gott. Alltaf gaman að kíkja við á hótel mömmu við og við ;) Fór á tónleika á Prófastinum þar sem strákarnir í Memphis komu fram ásamt The Foreign Monkeys, Andrúm & einhverju bandi sem ég man ekki hvað heitir… og auðvitað hún Arndís sæta :-) Þrusuflottir tónleikar sem Árni og félagar í Span sáu um. Svo eftir tónleikana tókum ég og Siggi bróðir ’smá tjútt’ sem endaði með því að við ætluðum sko í heitan pott… sama hvað það kostaði :-D

Og nú er bara komin enn ein helgin og kannski kominn tími á róóóólega helgi… ég held það bara svei mér þá. Pabbi er í bænum og fórum við Bergdís með honum í bíó áðan á myndina V for Vendetta. Svona öðruvísi mynd en mér fannst hún alveg mögnuð, enda alltaf þótt mikið varið í Natalie Portman… :-P Svo er það bara vinna kl 10 í fyrramálið, eða á eftir réttara sagt, svo það er kannski kominn tími til að koma sér í háttinn. Bið að heilsa ykkur fallega fólkinu sem nennir að lesa þetta raus í mér…

Þangað til næst…
Jackið lifir...

færsla skrifuð kl. 23:40 - 04. April, 2006 | Höfundur: einir

Mikið er nú gott að setjast niður með lappann í fanginu og opna sér einn ískaldann mjöður eftir langan vinnudag. Maður róast svo niður og fer að hugsa um allt og ekkert. Mér varð hugsað til Þjóðhátíðar, fór inn á dalurinn.is, og viti menn… það er búið að ráða 2 aðal hljómsveitirnar og greinilega allt að ske í þeim málum! ;-) Í Svörtum Fötum & Á Móti Sól verða 2 af þrem stóru hljómsveitunum þetta árið, en þeir eiga eftir að finna/semja við þá þriðju sem mun einnig spila á Húkkaranum. Vá hvað mig er farið að hlakka til..
Svo er annað mál… nú er komin upp sú staða hjá mér að það virðist sem ég sé á leiðinni á skelduna, eða svona næstum því eiginlega. Tengdó bauð de hele familien út til Danmerkur í enda júní, en það vill svo heppilega til að við verðum úti í viku og þá akkúrat yfir Hróaskelduhelgina :-D Og það eru að mér sýnist þónokkrir á leiðinni á skelduna úr mínum vinahóp svo það er aldrei að vita nema maður fái leyfi til að skjótast á Skelduna á sunnudeginum þar sem þeir eru nú svo sniðugir þarna að selja inn á sunnudaginn sér. Fær maður að sjá soldið af þessum snilldar böndum sem eru komin og svo auðvitað hitta allt fallega fólkið sem maður þekkir ;)

Annars er þessi hugmynd nú bara ennþá á teikniborðinu, en þetta yrði góð viðbót við snilldar sumar sem maður er farinn að sjá fram á.

færsla skrifuð kl. 00:38 - 03. April, 2006 | Höfundur: einir

Vá… ég ætlaði að vera geðveikt fyndinn og koma með eitthvað magnað 1. apríl gabb hérna í gær, en endaði með að hugsa svo lengi um hvað það ætti að vera að ég steinsofnaði… Ekki alveg nógu gott. En já ég er búinn að fá slæma útreið í ógeðisveikindum núna í vikunni og lá hér með hita og ælupest ásamt einhverjum öðrum viðbjóði. Tók ég þess vegna helgina bara rólega, en ég hef lúmskan grun um að þetta hafi verið kjúklingurinn sem við borðuðum þegar við unnum frameftir á fimmtudaginn í Byko. Fengum okkur KFC til tilbreytingar og til að gera langa sögu stutta eyddi ég næstu 2 dögum í nánu sambandi við klósettið… :-S
Svo er það Vestmannaeyjar næstu helgi, þótt það séu víst allir á leiðinni í borgina þá helgi þar sem Arndís Ósk mun keppa í Söngvakeppni Framhaldsskólanna fyrir hönd FÍV. En það er víst bara svona, maður getur ekki verið allsstaðar. Innflutningspartýið hans Sigga bró, sem er búið að frestast endalaust lengi verður haldið með pompi og pragt næstu helgi og ekki ætla ég sko að missa af því ;-)

Annars ætla ég bara að hafa þetta stutt og fara að koma mér í háttinn.
Góða nótt gott fólk

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment