Jæja kominn tími á að maður hendi inn nokkrum línum. Nóg hefur nú drifið á daga manns síðan síðast. Jú ég fór til Eyja í afmæli til Gaua sem hann hélt á Conero. Við mættum með seinni Herjólfi á föstudagskvöld og það var ekki að spurja að því að maður var kominn í bjórinn stuttu seinna
Endaði á þessu svakalega djammi sem við slúttuðum um kl 8 heima hjá Árna Óla… ![]()
Svo kom laugardagurinn og fylgdi honum nokkur kíló af þynnku. Fórum í afmælið til Gaua á Conero sem var bara helvíti fínt. Kósí stemmning, pool og gott spjall við fólkið. Alltof langt síðan maður var þarna síðast. Var þarna síðast um áramótin… maður á minnst að fara þarna einu sinni í mánuði. Var nú kominn heim heldur fyrr en daginn áður sem var eiginlega bara fínt… Herjólfur daginn eftir í þynnkunni sem er nú ekki uppáhaldið. Vill nota tækifærið og þakka mínum frábæru vinum og kunningjum fyrir frábæra helgi og vonandi að maður komist sem fyrst aftur til Eyja
Þessi helgi var svo tekin með rólegum föstudegi, vinna á laugardeginum & svo kíktum við Bergdís yfir til Berglindar systur hennar og Elvars í smá Catan spilerí. Ég fékk mér nokkra bjóra yfir spilinu, sem ég verð víst að taka fram að Bergdís vann, og var svo haldið niður í bæ að hitta Stebba. Fórum svo í bæinn þar sem Stebbi varð frekar skrautlegur svo ekki sé minna sagt…
Hitti Önnu Dúnu frænku á Hressó… alltaf gaman að hitta ættingjana á djamminu
Í næstu viku verður elsku mamma mín fimmtug og ætlum við að skella okkur í bústað saman. Þetta verður öruggleg algjör snilld, enda ekki við öðru að búast þegar svona snillingar koma saman á einum stað…
En ég ætla að kalla þetta gott og fara að horfa á 24.
Bið að heilsa ykkur…





Síðustu komment