Eldri færslur fyrir » March, 2006 «

færsla skrifuð kl. 00:37 - 25. March, 2006 | Höfundur:

Djöfull var gaman að sjá video-ið við Eurovision lagið hennar Silvíu í Kastljósinu í kvöld. Aaaaaalgjör snilld verð ég að segja og djöfull tókst þeim vel til við að enska textann verð ég bara að segja. “If you mess with me, you’ll be D – E – A – D”… hahaaha :-D Ég er svona eiginlega farinn að halda að við komumst bara upp úr þessari undankeppni þetta árið. En þetta er það sem maður segir á hverju ári, er það ekki?

Annars ligg ég bara hérna uppí rúmi hálfslappur eitthvað, spilandi World of Warcraft á meðan Bergdís horfir á Dirty Dancing… er það nú föstudagskvöld… Annars er held ég bara allt að ske á morgun. Ég fer í vinnu í fyrramálið og svo er árshátíð hjá vinnunni hennar Bergdísar (Kópavogsbæ) annað kvöld sem fram fer í Fífunni. Reyndar verður líka karlakvöld hjá Byko sem verður víst á Oliver en ég verð að beila á því… kannski maður hitti á þá seinna um kvöldið ;)

En já, ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra… nóg að ske í World of Warcraft :-)
Einir out…

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 12:36 - 16. March, 2006 | Höfundur:

Fallegast, flottasta, skemmtilegasta, yndislegasta, frábærasta og síðast en ekki síst æðislegasta mamma í heimi á afmæli í dag. Já, hún Sigríður F. Þórhallsdóttir er búin að krækja í fimmta tuginn í safnið, en miðað við útlit og anda má alveg deila í þá tölu með 2 ;)

 

 

Til hamingju með afmælið mamma mín
Þinn sonur, Einir

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 23:35 - 14. March, 2006 | Höfundur:

Þetta finnst mér gjörsamlega eitt það heimskulegasta og tilgangslausasta sem fólk getur tekið upp á að gera. Ok, ég veit að stundum hafði maður lítið að gera þegar ég bjó í Eyjum en kommon?! “Vá hvað mér leiðist… jæja, best að skjótast niðrá Skans og brjóta nokkur ljós eða skemma eitthvað annað…” Hálfvitar. Skanssvæðið er eitthvað best heppnaða svæði sem tekið hefur verið í gegn í Vestmannaeyjum. Hvað í fandanum fá þessi fífl út úr því að skemma það? Maður skilur þetta ekki alveg…
En að allt öðru. Djöfull er ég ánægður hvað þeir í Google eru duglegir að ranka heimasíðuna mína ofarlega á lista hjá sér yfir fáránlegustu leitarorð. Sá í síðustu tilvísanir um daginn að einhver hefur rekist inn á síðuna hjá mér eftir að hafa slegið inn leitarorðið “piparstaukar”. Tékkaði svo á því á Google og viti menn, síðan mín er í 3 sæti ef þú leitar að þessu hjá þeim :-D Og það út af því að Thelma Ýr minntist á það í commenti fyrir ári og öldum að í einhverju partýi hjá sér í Grindavík hafa horfið tannburstar, piparstaukar ofl… hehe, get nú ekki annað en hlegið að þessu… já ég veit, það þarf ekki mikið til að skemmta minni litlu sál ;)

En ég ætla að fara að koma mér í rúmið, er nýkominn heim eftir langan vinnudag og svo vinna 8 í fyrramálið… Maður er orðinn alveg vel þreyttur, góða nótt fólk

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 21:34 - 12. March, 2006 | Höfundur:

Jæja kominn tími á að maður hendi inn nokkrum línum. Nóg hefur nú drifið á daga manns síðan síðast. Jú ég fór til Eyja í afmæli til Gaua sem hann hélt á Conero. Við mættum með seinni Herjólfi á föstudagskvöld og það var ekki að spurja að því að maður var kominn í bjórinn stuttu seinna ;-) Endaði á þessu svakalega djammi sem við slúttuðum um kl 8 heima hjá Árna Óla… :-D
Svo kom laugardagurinn og fylgdi honum nokkur kíló af þynnku. Fórum í afmælið til Gaua á Conero sem var bara helvíti fínt. Kósí stemmning, pool og gott spjall við fólkið. Alltof langt síðan maður var þarna síðast. Var þarna síðast um áramótin… maður á minnst að fara þarna einu sinni í mánuði. Var nú kominn heim heldur fyrr en daginn áður sem var eiginlega bara fínt… Herjólfur daginn eftir í þynnkunni sem er nú ekki uppáhaldið. Vill nota tækifærið og þakka mínum frábæru vinum og kunningjum fyrir frábæra helgi og vonandi að maður komist sem fyrst aftur til Eyja ;)

Þessi helgi var svo tekin með rólegum föstudegi, vinna á laugardeginum & svo kíktum við Bergdís yfir til Berglindar systur hennar og Elvars í smá Catan spilerí. Ég fékk mér nokkra bjóra yfir spilinu, sem ég verð víst að taka fram að Bergdís vann, og var svo haldið niður í bæ að hitta Stebba. Fórum svo í bæinn þar sem Stebbi varð frekar skrautlegur svo ekki sé minna sagt… :-D Hitti Önnu Dúnu frænku á Hressó… alltaf gaman að hitta ættingjana á djamminu ;)

Í næstu viku verður elsku mamma mín fimmtug og ætlum við að skella okkur í bústað saman. Þetta verður öruggleg algjör snilld, enda ekki við öðru að búast þegar svona snillingar koma saman á einum stað… :-) En ég ætla að kalla þetta gott og fara að horfa á 24.
Bið að heilsa ykkur…

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 13:33 - 01. March, 2006 | Höfundur:

Þá er það komið á hreint, ég og Bergdís ætlum að skella okkur til Eyja um helgina. Nóg um að vera eins og vanalega og ekki spurning um að það verður hörkustuð. Siggi bróðir með innflutningspartý og Gaui orðinn 14 ára og ætlar hann að halda upp á það kallinn með kökum og sprelli :-D

Við semsagt komum með seinni ferð á föstudag og förum með seinni á sunnudag. Algjör lúxus að geta klárað bókunina bara á netinu. Hrós til Eimskips fyrir þá breytingu! ;) Er það annars ekki rétt skilið hjá mér að það ætli bókstaflega ALLIR að djamma þessa helgi? Loðnan að klárast og svona… getur ekki annað verið!

Allavega… sjáumst í Eyjum um helgina folks… nema Árni… of Ólöf

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment