Eldri færslur fyrir » February, 2006 «

færsla skrifuð kl. 11:32 - 23. February, 2006 | Höfundur:

Jæja þá er síðan komin aftur upp eftir að hafa legið niðri mestmegnið af gærdeginum. Það kom í ljós að þeir sem ég hýsi síðuna hjá höfðu lokað á hana vegna þess að ég var kominn yfir leyfilegt gagnamagn á vefþjóninum, sem er 3GB. Þetta stóðst engan veginn miðað við það að ég er með um 500MB af myndum og svo bara bloggið á þjóninum, og varla er það 2,5 gígabæt… þótt ég tali nú mikið hérna… :-D

En jájá, Bergdísin mín bara lasin og búin að vera það síðan á föstudaginn. Er með eitthvað afbrigði af hettusótt víst, sem er mjög merkilegt þar sem hún fór nú í sprautu þegar hún var lítil. Kom í ljós að mótefnið var ekki nógu mikið hjá henni og voru læknarnir frekar spenntir að fá út úr blóðprufunum og sjá hvort það þyrfti að kalla fólk inn í aðra sprautu sem voru sprautaðir á sama tíma og hún…

Annars er nú mest lítið um að vera hjá manni. Verður reyndar fótboltamót Byko núna um helgina þar sem við starfsmenn Vöruhúss ætlum að sjálfsögðu að mala þetta… ef ekki í fótboltanum sjálfum þá í bjórdrykkju… :-D Svo fer maður auðvitað í bæinn og gerir allt vitlaust

Svo eitt í viðbót. Er búinn að opna heimasíðu ’83 árgangsins og er hún öll að koma til. Vantar að vísu eiginlega allt á hana :-D Lookið komið og nokkrir linkar, fer í að safna linkum á heimasíður okkar ’83 manna eins og vitleysingur og þið megið endilega hjálpa. Vantar bara gestabók og myndasafnið, og ef ykkur finnst vanta meira endilega látið vita í komment ;)

En best að koma sér aftur að vinna

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 14:29 - 16. February, 2006 | Höfundur:

Nú styttist orðið allsvakalega í helgina og fjörið sem henni fylgir. Piparsveinar Íslands voru nefninlega svo sætir að bjóða okkur Bergdísi (og nokkrum öðrum sem bæst hafa í hópinn) í mat á laugardagskvöldið :-D Það er nú samt eiginlega búið að breytast í svona nokkurskonar matarveislu… Við verðum örugglega 7 – 8 manns þarna og ætla ég og Bergdís að elda hinn margrómaða kjúklingarétt auk þess sem Gísli ætlar að töfra fram einhverja steikina. Þetta verður alveg magnað án efa, rauðvín og fínerí ;) Svo eftir matinn og smá spjall ætlum við að gerast svolítið menningarleg og kíkja á kaffihús… framhaldið mun svo bara ráðast þar en ég get næstum fullyrt að það innihaldi nokkurn bjór og jafnvel gin&tónik ef maður verður í góðu skapi :-)

En að allt öðru. Ég og Gísli skelltum okkur á uppistand á Nasa í gærkvöldi. Þar komu fram allnokkrir skemmtarar, sumir fyndnir, aðrir ekki. Ágætis kvöld svosem en það sem fór mest í pirrurnar á mér var að við þurftum að standa allan tímann. Komum reyndar heldur seint, eða korter í 8, en uppistandið var auglýst klukkan 8. Við biðum hinsvegar til að verða 9 og þá steig loksins Sylvía Nótt á sviðið, en hún átti að vera kynnirinn á þessu kvöldi. Eins og mér fannst hún viðbjóðslega leiðinleg er ég eiginlega farinn að fíla hana svolítið… :-) En svo kom maðurinn sem skemmdi kvöldið, ógeðisgaurinn sem er að dansa með henni í Eurovision laginu hennar. Var í ógeðis-outfittinu úr laginu og henti Sylvíu af sviði sem kom svo bara ekkert meira við sögu þetta kvöld. Heldur sá viðbjóðsmaðurinn um að kynna eftir þetta og var alltaf ‘púað’ á hann þegar hann steig upp á svið og fólk vildi fá Sylvíu Nótt. Enginn hló að honum þegar hann reyndi að vera fyndinn og þá tók hann upp á því að rakka fólk úr salnum niður… hahaha… þvílíkur api. Það voru nokkur atriði sem stóðu uppúr en í heildina held ég að Elísabet úr Stelpunum hafi verið með besta showið. Talaði um kynlíf og barneignir af stakri snilld :’-D

Jæja ætla að kalla þetta gott, bið að heilsa ykkur (h)

PS. Langar svo að vekja athygli á því sem Sæþór skellti í gestabókina… endilega leggið leið ykkar hingað og hjálpið til við að koma Hoffman á Skelduna með því að setja þá í Nordic band nr. 1 ;)

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 00:28 - 06. February, 2006 | Höfundur:

Ég held ég hafi verið að horfa upp á mestu mistök í íslenskri sjónvarpsþáttagerð núna rétt í þessu. Kallarnir. Hahahahahahahahahahahahahahahahahaha! Þvílíka endalausa hörmungin! “Við ætlum aðeins að hressa upp á tannið á þér..” Guð minn almáttugur. Að þetta skuli hafa komist í gegn hjá stjórnendum sjónvarpsstöðvarinnar…
En nóg um það. Helgin var svona líka helvíti fín. Var rólegur á föstudaginn þar sem ég var í vinnu í gær. Tók aðeins á því í gær í afmælisfögnuði hjá Gísla Stefáns heima hjá honum og Matta… piparsveinum Íslands :-D Enduðum svo í bænum að vana og vorum við komin heim um 4 leitið sökum óhóflegrar drykkju hjá sumum :-D
Svo tóku peyjarnir sig bara til og buðu okkur í mat til sín í kvöld. Elduðu þessa dýrindis steik og var boðið upp á rauðvín og læti… já, þeir eru flottir á því piparsveinarnir ;) Svo erum við búin að ákveða það að fresta Eyjaferðinni um 2 vikur í viðbót því miður. Ætluðum að koma næstu helgi en auðvitað verður árshátíð Byko þessa helgi og ég var búinn að steingleyma því. Þannig að þið verðið að bíða aðeins lengur eftir okkur krakkar mínir… :-. Ég veit það verður erfitt en þið verðið bara að þrauka… ;)
En já… ég ætla að koma mér í háttinn…

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 16:24 - 02. February, 2006 | Höfundur:

Það er ekki við öðru að búast þegar íslenska landsliðið í handbolta er annars vegar að þeir fá mann alltaf til að hafa trú á sér til að byrja með og krapa svo duglega í buxurnar þegar lengra dregur í keppninni. Og auðvitað þurftu þeir að tapa með 3 mörkum á móti frændum okkar í Noregi og Strand með 19 helvítis mörk… hvað er málið? Þetta er alveg óþolandi… En maður gerir sig nú samt sekann um að búast alltaf við of miklu af þessu liði… svona eins og þetta ‘hljóti að ganga í þetta skiptið’
En nóg um það… helgin nálgast og ekkert nema gott um það að segja. Gísli Stefáns ætlar að halda lítið teiti á laugardaginn þar sem stráksi var nú að nálgast þrítugsaldurinn enn meir… orðinn 22 ára peyjinn ;) maður verður nú léttur þá… Verð rólegur á morgun þar sem ég fer í vinnu á laugardagsmorgun… svo er það bara Eyjar þarnæstu helgi. Siggi bróðir er víst búinn að fá íbúðina og er að flytja inn örugglega bara as I write… Ætli hann haldi ekki smá innflutningsteiti þá helgi og svo sagði Stefán mér að síðasta ballið í Höllinni í langann tíma verði þarnæstu helgi, þar sem Greifarnir koma til með að trylla lýðinn. Spurning hvort maður reyni ekki að komast með fyrri ferðinni.

Annars ætla ég að kalla þetta gott og biðja ykkur sem ekki eruð búin að skrifa í gestabókina að skrifa það… já, þessi sama gamla klisja ;) en maður er nú svolítið forvitinn um hverjir eru að skoða síðuna :-D
Chao!

PS. Heimasíða ’83 árgangsins fer að líta dagsins ljós, en þá ættum við að geta farið að skapa almennilegar umræður um þetta árgangsmót sem verður á næsta ári ;)

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , , ,  | ekkert komment