
Ég bara varð að deila með ykkur ‘nýjasta’ fjölskyldumeðlimnum á heimilinu. Þetta er hann Tumi og er hann 8 mánaða chihuahua hundur. Tumi á heimasíðu og er hana að finna hér. Hann hefur gert sig heimakominn í herberginu hjá okkur Bergdísi og er það bara gaman þar sem hann er algjör fjörkálfur
Eldri færslur fyrir » January, 2006 «
Það er nú ekki oft sem það skeður að ég sitji heima á föstudagskveldi uppi í rúmi og hafi það gott. Nei, yfirleitt er maður nú úti á lífinu í góðra vina hópi að skemmta sér og öðrum. En kvöldið í kvöld er ein af þessum fáu undantekningum. Við skötuhjúin ákváðum að taka því bara rólega í kvöld og vera heima, horfa á sjónvarpið og hanga aðeins í tölvunni… Og þar kem ég að kjarna málsins. Hvað er eiginlega málið með sjónvarpsdagskrá á Íslandi á föstudagskvöldi? Það er nákvæmlega ekkert í þessu blessaða sjónvarpi sem vert er að horfa á. Hvað varð um bíómyndirnar sem Stöð 2 var með á föstudagskvöldum? Núna er bara endursýningar á þáttum vikunna á skjá einum, einhver HÖRMUNGAR mynd á stöð 2, stöð 1 náttúrulega bara söm við sitt og sýnir beint frá Alþingi… þótt þingmenn sofi værum blundi og svo mætti lengi telja. Þetta er náttúrulega bara til háborinnar skammar og ekki mönnum bjóðandi. Þetta er kannski búið að vera svona lengi en ég allavega er fyrst að taka eftir þessu núna. Kannski vegna þess að ég horfi lítið sem ekkert á sjónvarp… og þá sérstaklega um helgar ![]()
Ég varð því miður að hætta við Eyjaferðina þessa helgi og fresta henni um 2 vikur
Já frekar súrt þar sem ég heyrði í nokkrum í Eyjum og er víst alveg hellingur að gerast þessa helgi. Afmælispartý og ég veit ekki hvað og hvað. En það þarf svo sem enga svoleiðis afsökun til að skella sér á tjúttið í Vestmannaeyjum. Maður stígur upp úr Herjólfi á föstudegi og áður en maður veit af situr maður inná Johnsen bar með félögunum að teiga einn kaldan
En svoleiðis á það líka að vera
Heyriði já! Siggi bróðir var að eignast sína fyrstu íbúð, en hann var að kaupa íbúðina af Einari Jóhanni og Erlu Ásmunds og vil ég bara óska kallinum til hamingju með hana. Lét mig einmitt vita að hann fengi hana jafnvel afhenta í næstu viku og að ég væri á leiðinni að hjálpa honum að flytja… hvernig svo sem ég fer að því
En allavega hlakka ég mikið til að koma til Eyja og sjá hann Sigurð ‘litla’ bró með sína eigin íbúð til að hugsa um og enga mömmu til að þvo af sér og þrífa… en ég hugsa að hann tækli þetta alveg kallinn
Til hamingju brósi!
Ætla að kalla þetta bara helvíti gott í kvöld og kannski fara að koma mér í háttinn. Bið að heilsa.
Jæja, nú er maður alveg búinn með innistæðuna í afsökunarbankanum… leti leti og meiri leti. En ég ætla ekki að afsaka neitt hér heldur bara halda áfram þar sem frá var horfið
Ég lofaði í síðustu færslu að henda inn myndunum frá því ég og Bergdís fórum til London og svo myndum frá jólum og áramótum, en gerði það aldrei. Er núna búinn að henda inn myndum frá því við vorum í London og býst við að myndirnar frá jólum og áramótum fylgi skammt á eftir
Annars er nú frekar lítið að frétta. Lífið gengur bara sinn vanagang hérna í Kópavoginum. Er reyndar að velta fyrir mér hvort maður eigi að skreppa til Eyja um helgina. Fer allt saman eftir vinnu… þar sem við erum nú byrjuð að safna okkur fyrir íbúð verður maður nú að næla sér í alla þá yfirvinnu sem býðst… money money money
En ætla nú ekki að hafa þetta mikið lengra. Ætla að fara að skella mér í háttinn en svona rétt í lokin langar mig til að láta vita af því að ég fór að fordæmi Svölu og henti inn gestabókinni aftur
Og af því tilefni langar mig til að biðja ykkur um eiginhandaráritun… sama hver þið eruð… ég bít engan, án þess að hann vilji það allavega
Jæja, góða nótt pípúl…
Já nú er ljúfa lífið sem jólahátíðin ber með sér liðið. Við tekur blákaldur veruleikinn, vinnan. En mikið djöfull var nú gaman í Eyjum. Það er ekki laust við að ég sé kominn með viðbjóð á Herjólfi eftir að hafa heimsótt Eyjuna fögru 3 helgar í röð. Sem betur fer benti Elena systir mér á að hún og Þórir ætluðu til Eyja yfir áramótin með Bakkaflugi, þannig að ég og Bergdís auðvitað skelltum okkur með þeim. Algjör snilld. Eitthvað sem maður á án efa eftir að notfæra sér meira í sumar… og þó… Birgir Freyr frændi er nú að læra flugmanninn og hóaði í mig í partýinu hjá Þórhalli bró fyrir áramót og sagði mér að hóa í sig ef ég ætlaði til Eyja frá og með mars. Þá útskrifast hann sem einkaflugmaður og þarf þá að safna sér flugtímum fyrir atvinnuflugmanninn… Svo hann býðst til að ’skutla’ manni til eyja ásamt einhverjum félögum sem mar myndi smala með, örugglega 5 – 6 sæta flugvél og við þyrftum bara að borga 5000 kjell fyrir vélina, sem hann leigir hjá flugskólanum…. baaaaaaara snilld
ÞÁ verður sko ENGIN afsökun fyrir því að koma ekki oftar til Eyja.
En já, annars bara lítið að frétta. Maður situr hérna uppí rúmi í lappanum á meðan Bergdís er á árshátíð með Steinunni vinkonu sinni. Ég held það sé hægt að telja það á litlaputta vinstri handar hvað þetta hefur oft gerst; Bergdís á djamminu og ég heima að nördast…
Við tókum þónokkrar myndir yfir hátíðarnar og býst ég við að henda þeim inn í kvöld. Kominn tími á viðbætur í þetta blessaða myndasafn hérna. Maður er ekki alveg sá duglegasti að halda þessari síðu við.
Jæja, ætla að fara koma mér yfir til Elvars og spila smá WoW

Gleðilegt nýtt ár fallega fólk… takk fyrir allt gamalt og gott





Síðustu komment