Eldri færslur fyrir » December, 2005 «

færsla skrifuð kl. 12:09 - 24. December, 2005 | Höfundur: einir

Jæja þá er þetta allt saman að skella á og þar sem ég og Bergdís vorum svo ‘tímanlega’ í öllu fyrir þessi blessuðu jól þurftu jólakortin að missa sig hjá okkur þetta árið. Alveg merkilegt hvað tíminn líður hratt svona rétt fyrir jól en samt er maður sallarólegur. Að því sögðu langar mig að biðja ykkur að smella á myndina hér að neðan, sem mun vera ‘jólakortið’ frá okkur til ykkar þetta árið. Þið verðið bara að fyrirgefa… Gleðileg jól og hafiði það sem allra best yfir hátíðarnar

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð:  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 12:07 - 22. December, 2005 | Höfundur: einir

Það þarf nú ekki að fræða nokkurn einasta mann um það stress og rugl sem fylgir undirbúningi jólahátíðarinnar, og þá sérstaklega hérna í Reykjavík. Guð minn góður. Ef maður ætlar í makindum sínum að skella sér í Bónus í hádegismatnum og versla sér smá í svanginn eru þar brjálaðar húsmæður á fjórhjóladrifnum búðarkerrum og skóflur til að moka ofan í. Maður er fyrir öllum og allir eru að flýta sér. Bara fyndið að sjá tvær mömmur rífast um síðasta svínahamborgarhrygginn sem var á 40% afslætti… en svona er þetta bara. Mig hlakkar ekkert smá til að fara til Eyja, fékk að vita í dag að það á að sleppa mér á morgun svo ég komist í seinni ferð Herjólfs annað kvöld. Ég var farinn að halda að ég færi ekki fyrr en á aðfangadag. Enda er ég eitt stórt :-D núna.

Versta er að ég á eftir að kaupa 2 jólagjafir. Ég skelli mér í Smáralindina eftir vinnu í kvöld og klára þetta af. Það kom nefninlega í ljós, að eins og ég og Bergdís vorum nú ánægð að hafa klárað þetta allt úti… þá gleymdum við okkur sjálfum. Hefði orðið svolítið fyndið að það hefði bara gleymst :-D

Annars ætlaði ég nú bara svona að láta vita af mér. Ég er ekki dauður ;) Og ef ég blogga ekki aftur fyrir jól vil ég bara óska ykkur öllum gleðilegra jóla og hafiði það nú sem allra allra best yfir hátíðarnar

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 16:17 - 07. December, 2005 | Höfundur: einir

Þessi Lundúnaferð var í einu orði sagt algjör-argasta-snilld. Maður er örlítið þreyttur eftir allt þetta blessaða labb… eltandi Bergdísi inn í hverja búðina á fætur annarri… Nei ég segi svona. Við vorum bæði mjög dugleg í að versla, bæði á okkur og jólagjafirnar! Ég held ég hafi aldrei á ævinni byrjað svona snemma á jólagjafainnkaupum. Við kláruðum næstum því allar jólagjafirnar og geri aðrir betur. Það þýðir bara það að ég verð að finna mér eitthvað annað til að hafa áhyggjur af fram að jólum (ekki það að ég hafi haft einhverjar áhyggjur yfir jólagjafainnkaupum síðastliðin ár, enda Vestmannaeyingur í húð og hár með mottóið “Þetta reeeeeddast” þótt komið sé fram á Þorláksmessukvöld og ekki ein gjöf komin í hús :-D ). Kannski að ég hafi áhyggjur af fríi yfir hátíðarnar, þar sem það lítur út fyrir að ég þurfi að koma upp á land og vinna milli jóla og nýárs. Reyndar þarfnast maður alveg peningsins eftir Londonferðina þar sem maður missti sig aðeins í H&M og fleiri óóóódýrum búðum. Ég og Bergdís þurfum einmitt að fara með 3 poka af fötum í Rauða Krosinn svo við komum þessu fyrir ;)
En við tekur hversdagslífið, sem er frekar súrt eftir ljúfa lífið með Þórhalli bróður og Hrund í London. Jólatörnin að byrja í vinnunni og nóg sem bíður eftir fríið góða. Og strax er ég farinn að hugsa um jólafríið (sem verður kannski ekkert af þar sem jólin og áramót hitta akkúrat á helgi… sem er ööööömurlegt!). Keypti mér einmitt ferðatölvu í London ;) Sem kemur sér mjög vel ef ég fæ frí milli jóla og nýárs, þar sem nokkrir vel valdir nördar ætla að halda jólalan… svona upp á gömlu tímana :-D
Já og svo ætla ég að slútta þessu á enn einu kítlinu, Elena systir er mikill kítlari og nýðist á litla bró… here goes

  • Núverandi föt: Kvartbuxur og háskólabolur
  • Núverandi Skap: Svona helvíti góður
  • Núverandi hár: Tussulegt
  • Núverandi Pirringur: Langar í jólafrí
  • Núverandi lykt: Between Sheets
  • Núverandi hlutur sem þú ættir að vera að gera: Vera í London
  • Núverandi skartgripir:
  • Núverandi áhyggjur: Jólafrí…
  • Núverandi löngun: Að vita hvað mig langar að verða…
  • Núverandi ósk: Að Man Utd komist ekki áfram í Meistaradeildinni
  • Núverandi farði: Mætti halda að stelpa hafi búið þennan lista til… :-P
  • Núverandi eftirsjá: Að vera ekki búinn að ákveða hvað mig langar að verða…
  • Núverandi vonbrigði: Að hafa þurft að fara frá London :-(
  • Núverandi skemmtun: Jailbreak
  • Núverandi ást: Bergdísin mín
  • Núverandi staður: Kópavogurinn
  • Núverandi bók: Er það eitthvað á brauð eða?
  • Núverandi bíómynd: Man ekkert hvað ég horfði á síðast…
  • Núverandi íþrótt: Fótbolti
  • Núverandi tónlist: Jólalög
  • Núverandi lag á heilanum: Ekkert
  • Núverandi blótsyrði: wtf
  • Núverandi MSN manneskjur: gulli svaka
  • Núverandi Desktop mynd: Lindsay Lohan áður en hún varð viðbjóðslega mjó
  • Núverandi áætlanir fyrir kvöldið: Taka til bæði í herberginu og tölvunum :-.
  • Núverandi manneskja sem ég forðast: Enginn
  • Núverandi dót á veggnum: Hillur & myndir

Magnað alveg hreint og greinilegt að þetta kítl er ekkert á leiðinni að hætta. Ég ætla að kalla þetta gott og fara að gera eitthvað af viti. Hendi inn myndum frá London í lok vikunnar ;) Chiao bella…

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , , ,  | ekkert komment