…sem er að fara til London á morgun!

…sem er að fara til London á morgun!

Hvað er betra en að skella sér í matarboð hjá fjölskyldu kærustunnar eftir djamm alla liðlanga nóttina með félögunum? Sést alveg í kílómetra radíus hvað maður aðhafðist kvöldið/nóttina áður. Ég var einmitt að koma úr einu slíku með Bergdísi eftir að hafa verið á feiknarlegu djammi með Gaua & Aroni sem létu sjá sig í borg óttans um helgina þar sem þeir eru að fara á Sigur Rósar tónleika í kvöld. Auk þeirra var ég með Gísla Stefáns, Gísla Böðvari, Jónasi og Bigga. Helvíti fínt bara og var maður kominn heim rúmlega 5 og var svo vaknað í hádeginu til að fara í þetta blessaða matarboð. Var vægast sagt helvíti tussulegur.
Svo er það bara London baby á þriðjudaginn (já, þið fáið að heyra þetta allavega einu sinni enn áður en ég fer út… og svo nokkrum sinnum eftir að ég kem heim
). Maður er kominn með nettann fiðring í magann og farinn að hlakka svolítið til. Bergdís með þetta allt skipulagt hvað skal gera áður en við förum út og liggur við byrjuð að pakka niður. Þetta kvenfólk… Hvar væri maður samt án ykkar ![]()
Jæja, ætla að taka sunnudaginn á þetta og gera barasta ekki rass í bala…
Nú eru liðnar nákvæmlega 2 vikur síðan ég bloggaði síðast og auðvitað fagna ég því með því að skella inn eins og einu bloggi eða svo. Lítið að frétta af mér hér í borg óttans nema hvað að nú fer alveg að koma að því sem annar hver íslendingur hefur beðið með mikilli eftirvæntingu… Ég og Bergdís förum til London á þriðjudaginn og komum ekki aftur fyrr en mánudaginn 5. des, flestum til mikillar ánægju
Djöfull er mann farið að hlakka til. Helgin er að renna í hlað og fékk ég þær fréttir frá Söngdísinni minni að Árni, Gaui, Aron og hugsanlega einhverjir fleiri ætli að leggja leið sína í bæinn. Ekkert nema gott um það að segja og löngu kominn tími til… látið sjá ykkur allt of sjaldan hérna… Svo má auðvitað ekki gleyma að Arndís sæta kemur auðvitað líka
En já, Elena systir kitlaði mig víst… ég fann reyndar ekki fyrir neinu en ætla nú ekki að skemma keðjuna ![]()
Hlutir sem ég ætla gera áður en ég dey:
1. Ferðast eins mikið og ég mögulega get.
2. Stofna fjölskyldu.
3. Finna út hvað mig langar að verða.
4. Flytja út á einhverjum tímapunkti
5. Finna mér framtíðarstarf sem ég er ánægður í
Hlutir sem ég get ekki gert:
1. Flogið
2. Gleymt Vestmannaeyjum
3. Verið án vinanna
4. Talað mandarín
5. Verið án internetsins
Hlutir sem ég get gert:
1. Hangið í tölvunni daginn út og inn
2. Borðað Subway í öll mál
3. Misst mig í FIFA
4. Horft á 24 & Prison Break
5. SOFIÐ
Hlutir sem heilla mig við hitt kynið:
1. Fallegt bros
2. Góður persónuleiki
3. Húmorinn verður að vera í lagi
4. Rassinn auðvitað
5. Og brjóstin ![]()
Frægt kvenfólk sem heilla mig:
1. Natalie Portman
2. Elisha Cuthbert
3. Halle Berry
4. Lacey Chabert
5. Jessica Simpson
Orð sem ég segi oft:
1. Hæ
2. What the f*ck
3. HEHE
4. Sko
5. Jeje…
Hlutir sem ég sé akkurat núna:
1. Videoflakkarann
2. Vekjaraklukku
3. Myndavél
4. Geisladiska
5. Netkort
Ætla að kalla þetta gott og koma mér í háttinn. Ætla mér að ‘kitla’ Árna Óla, Jónas (sem var einmitt að byrja að blogga!), Gullu, Ólöfu & Hjört Nistelrooy

Já, Bergdísin mín er tvítug í dag. Til hamingju með afmælið sæta. Megirðu hafa það sem aaaaaaaaaaaallra best á afmælisdaginn…
Þinn Einir
Guð minn góður er það eina sem ég get sagt núna. Ég tel mig nú kunna ágætlega á tölvur og flest sem þeim við kemur, en lítill ég ákvað að drífa mig í því að fá mér nýjan örgjörva í vélina mína sem er búin að liggja ónotuð hérna inní herbergi frá því í byrjun sumars, eða frá því að örgjörvinn sem ég keypti í hana á sínum tíma bræddi úr sér þá ekki orðinn 2 ára (Intel P4 3.0ghz… á EKKI að geta gerst…). Svo ég fór inná vaktina til að skoða ódýrustu örrana og komst að því að att.is eru ódýrastir í langflestum tilfellum, svo ég sneri mér til þeirra. Keypti þar 3ghz Intel P4 Prescott örra, sem ég hélt einmitt að vær sama gerð og ég keypti um árið nema bara nýrra version, og með þessu keypti ég mér SUPERDUPERHUGEASSCOOLER 3000 viftu því ekki ætla ég láta þetta helvíti bræða úr sér aftur.
Svo kem ég heim voða ánægður með nýja örgjörvann og viftuna og fagna ódýrri uppfærslu. Sá fagnaður var ekki langlífur, steindó um leið og ég miðaði gamla örgjörvann við þann nýja flotta. Sá nýji passaði ekki í móðurborðið. En ég lét það ekki stoppa mig í þessari ódýru uppfærslu minni á tölvunni svo ég fór inn á att.is og fann mér ódýrt og gott móðurborð sem nýju örgjörvinn passaði í. Þegar það var komið í hús henti ég mér í það að setja allt draslið saman og gekk það bara mjög vel… eða þar til ég komst að því að á nýjustu móðurborðunum eru ekki lengur höfð AGP skjákortsraufar heldur er komið í staðinn PCIExpress og þar af leiðanda passaði skjákortið mitt ekki í nýja móðurborðið. Nú hugsaði ég með mér að þetta hlyti að vera grín. Skoðaði móðurborðið vel og lengi og hef komist að því að ég þarf barasta að versla mér ENN EINN HLUTINN TIL AÐ UPPFÆRA ÞESSA BLESSUÐU TÖLVU, sem í byrjun átti að líta út einhvernveginn svona:
endaði á að hljóða svona:
Svo þetta mun enda í töluvert stærri pakka en ég ætlaði mér… Svo ætla ég einmitt að kaupa mér ferðatölvu úti í London, þannig að Bergdís er alveg hæstánægð með mig… eða ekki ![]()
En já, ætla að fara að velja mér skjákort… (ég má koma með eitt svona nördablogg á hálfsárs fresti…)
Later
Eftirfarandi gerðist í París nú á dögunum. Það gerðist í leikhúsi að manneskja sem settist í sæti sitt fann að eitthvað stóð upp úr setunni og stakkst í hana .. Þegar hún stóð upp til að athuga málið kom í ljós nál og lítill miði sem á stóð: ” Þú hefur hér með smitast af HIV” Rannsóknasetur smitsjúkdóma (Í París) hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að þetta er ekkert einstakt dæmi heldur hefur þessum tilfellum verið að fjölga jafnt og þétt. Þær nálar sem hafa fundist á þennan hátt hafa ALLAR reynst HIV jákvæðar. Auk þess sem þessar nálar finnast í leikhúsum og kvikmyndahúsum hafa þær líka verið að finna þar sem maður tekur út peningaseðlana í hraðbönkum !!! Við viljum byðja alla að sýna ítrustu varúð við þessar aðstæður. Öll almenningssæti hvar sem þau eru að finna ætti að skoða vandlega áður en sest er í þau. Þeir vilja ennfremur biðja þig að koma þessari tilkynningu áfram til allra sem þú þekkir til að koma í veg fyrir að fleiri smitist á þennan hátt.
Ég veit ekki með ykkur… en ég held að nú sé botninum náð hjá dópistum. Þau eru ekki bara að smita hvert annað af HIV með þessum ógeðisnálum sínum heldur vilja þau draga saklaust venjulegt fólk með sér í dauðann. Ég á bara ekki til eitt aukatekið orð…
Voðalega líður tíminn orðið hratt… ég sverða mér finnst ekki meira en svona 5 dagar síðan Manchester United tapaði 4 – 1 fyrir Boro í deildinni og þeir eru aftur búnir að tapa… 1 – 0 fyrir Lille í Meistaradeildinni… HEHEHE aðeins að skjóta á Rauðu Djöflana í vinahópnum
En annars er það alveg satt… tíminn flýgur. Ekki nema tæpar 4 vikur í það að ég og Bergdís verðum í London hjá Þórhalli og Hrund. Vá ég get ekki beðið… ætlum að gera öll okkar jólagjafainnkaup þar auk þess sem maður kaupir kannski ‘smá’ af fötum á sjálfan sig… ekki veitir af
Þannig að við eigum eftir að koma vel klifjuð til Íslands aftur… ![]()
Horfði á Ástarfleyið áðan. Fínasti þáttur, loksins eitthvað að fara að ske í þessu. Halli kallinn á kantinum tekur sig bara vel út á skjánum, heillar stelpurnar greinilega uppúr skónum með gítarhæfileikum sínum… og djöfull fer þessi rauðhærða í mínar allra fínustu… athyglissýkin á hæsta stigi og lætur eins og hún eigi pleisið, minnir mig á ónefnda frænku mína. Ef henni verður ekki hent frá borði í næsta þætti skal ég hundur heita! En það á víst að vera þannig í næsta þætti að stelpurnar eiga að velja 2 stráka sem eiga að yfirgefa bátinn og strákarnir að velja 2 stelpur… Og þar sem maður horfir nú á þetta á annað borð verð ég að koma með mínar tilnefningar á þeim sem ég held að munu yfirgefa fleyið í næsta þætti:
Strákarnir:
Ég hugsa að ég verði að segja að þessi svarti (er ekki kynþáttahatari btw) muni fara. Maður hefur EKKERT séð af honum í þessum þáttum og ég hafði ekki einu sinni hugmynd að hann væri í þáttunum fyrr en eina setningin sem ég hef heyrt hann segja kom út úr honum í þessum þætti, og það meikaði akkúrat ekkert sense. Hinn sem ég held að muni ganga plankann er þessi ljóshærði (ekki Halli) skuggalegi, creepy gaurinn sem er eins og ljóshærður Stulli… Vestmannaeyingar vita hvað ég meina (allavega þeir sem hafa horft á Ástarfleyið:)
Stelpurnar:
Án efa mun þessi rauðhærða fara, hún mætti ganga plankann tvisvar fyrir mér! Held að hún heiti Hafdís og tókst henni mjög vel að fara í taugarnar á mér. Hin sem ég myndi giska á er mamman í hópnum. Þrítuga konan sem ég held að sé aldursforsetinn. Fannst hún ekki alveg passa þarna inn og það sást líka eiginlega á henni.
En hvað haldið þið hin? Hverjir haldið þið að verði sendir heim í næsta þætti? Endilega komiði með ykkar spá um hverjir verða látnir taka pokann sinn. Svo getur náttlega vel verið að þetta sé bara eitthvað áhorfstrikk hjá þáttarstjórnendum til að láta fólk verða spennt og horfa pottþétt á næsta þátt… hver veit? En allavega komiði með ykkar spá
Jæja… ætla að fara að kalla þetta gott, kominn tími á svefn.
Góða nótt góðir hálsar.
Síðustu komment