…gaman að sjá þetta:

Og ekki skemmir að mínir menn unnu West Ham 2 – 0… Þetta þýðir það að maður fer upp í Höll í kvöld
…gaman að sjá þetta:

Og ekki skemmir að mínir menn unnu West Ham 2 – 0… Þetta þýðir það að maður fer upp í Höll í kvöld
Jæææææææææja, betra er seint en aldrei sagði einhver gáfumaðurinn
En já, ég, Bergdís & Ásdís skelltum okkur til Eyja um helgina þar sem Hlynsinn hélt upp á afmælið sitt. Við mættum á Eyjuna með seinni ferð Herjólfs á föstudaginn og eins og svo oft áður var Bergdís greyið eitthvað eftir sig eftir sjóferðina og þær systurnar ákváðu að vera bara heima þetta kvöld. Það stoppaði mig hins vegar ekki í því að kíkja út á fólkið og ákvað ég að skella mér heim til Arons með Stebba. Það auðvitað endaði með hörkuskralli þar sem ég og Siggi bróðir áttum dansgólfið á Lundanum… hahahaha
Fórum svo heima og enduðum þetta á vænni pizzu fyrir svefninn auk þess sem Siggi ákvað að vera svolítið fyndinn og ‘bregða’ mömmu og pabba með því að segja að það væri kviknað í húsinu… klukkan hálf 6 um morguninn… hahahaha snillingur
Þetta þjófstart á gleðina átti hins vegar eftir að hafa afleyðingar á ‘aðal’ kvöldinu… þar sem afmælið hans Hlynsa var nú á laugardagskvöldið. Byrjaði þann dag á því að skella mér til Arons þar sem þeir voru að horfa Manchester & Tottenham gera jafntefli. Við fengum okkur nokkra kalda yfir leiknum og eftir að ég komst að því að mínir menn töpuðu 0 – 2 fyrir Fulham var ekki aftur snúið… ég varð að drekkja sorgum mínum. Nei ég segi svona, en þvílík og önnur eins HÖRMUNG! Við fórum svo á Café að borða kvöldmat þar sem maður fékk sér öl með matnum og var bara orðinn reglulega mjúkur þegar við svo mættum í afmælið til Hlyns. Þar bauð kappinn upp á bollu sem varð án efa minn bani. Var þarna í dágóðan tíma og spjallaði við hina og þessa, en nokkrum glösum seinna fóru augnlokin að þyngjast og ég ákvað að rölta heim á leið, eða hljóp reyndar þar sem ég nennti ekki að labba
Þegar ég kom heim settist ég inn í eldhús til að kasta mæðinni og endaði ég þar á tæplega rúmlega 3 tíma spjalli við pabba og Ingólf bróður um allt milli himins og jarðar. Það varð til þess að það rann eiginlega af mér og ætlaði ég mér meira að segja að fara upp í Höll um 3 leitið. En komst svo að því að það var alveg TROÐIÐ á þessu balli og EKKI opið upp!? Hvað er það…? Svo ég ákvað að vera bara heima, enda komu Bergdís og Ásdís stuttu seinna.
Já svona fór um sjóferð þá… langar að þakka öllum fyrir frábæra helgi, sem reyndar hefði mátt enda upp í Höll… en svo er það Eyjar aftur næstu helgi þar sem ég og Bergdís munum fara til að vinna fyrir pabba & mömmu. Þau eru að fara að halda árshátíð Ísjakans, og hafa ákveðið að bjóða ísprinsessunum sínum til Reykjavíkur um helgina í skemmtiferð… er það nú greifaháttur…
Svo það verður bara róleg helgi framundan (reyndar verslunarmannaball uppí Höll á laugardaginn) sem verður án efa eldfljót að líða, eins og allar helgar sem maður eyðir í Eyjum. Jæja, ég ætla að kalla þetta gott…
P.S. Hvað er málið með þetta ‘mikilvægt‘ email sem maður er að fá frá ÖLLUM. MSN mun ALDREI kosta neitt (allavega verður alltaf til ókeypis útgáfa, þar sem þeirra aðal keppinautur, Yahoo, býður upp á svona þjónustu ókeypis) og hvar sjáið þið sem eruð að senda þetta út um allt eitthvað standa um þetta á MSN.com eins og stendur í mailinu…
Þá er það bara jólfurinn á morgun. Tek seinni ferðina og missi því kannski af tónleikunum hjá strákunum, en það eru víst einhver bönd að fara að halda tónleika í Vélasalnum annað kvöld. Vonandi að ég nái Memphis því mig langar svolítið að heyra nýja efnið hjá þeim. Heyrði í Hlynsanum í dag og held að hann sé bara á leiðinni til Eyja as I blog. Veit ekki alveg hvað maður gerir annað kvöld en mig grunar allavega að það innihaldi smá mjöður
Svo verður laugardagurinn tekinn með trompi þar sem lítill Hlynsalingur mun halda upp á 22 vetra áfangann. Ég efast ekki um að þetta verði magnað teiti sem mun svo enda á Sálarballi í Höllinni. Skothelt plan myndi ég segja. Ég held bara að það séu ófáir einstaklingar á leiðinni til Eyja um helgina þannig að ekki ætti að vanta fólk í Höllina, og reyndar líka af því Höllin missir bráðabirgðaleyfið sitt 1. nóvember þannig að ég býst við að sem flestir nýti sér böllin (ekki böllinn samt HEHE) sem eftir eru, en það er Sálarballið núna um helgina og svo Verslunarmannaball helgina eftir. Við Bergdís komum einmitt aftur til Eyja þá helgi en ekki til að skemmta okkur, heldur vinna fyrir minn elskulega faðir og móður þar sem þau munu halda árshátíð Ísjakans…
Annars er það bara sjónvarp í kvöld. ÁSTARFLEYIÐ fer í loftið í kvöld og verður gaman að sjá Halla skransa í nokkur fjós á kjéééntinum. HAHAHAHA
Þetta verður snilld… ég iða alveg mig hlakkar svo til að sjá þetta. En jæja, kominn tími á kvöldmat.
Bið að heilsa ykkur heima í Eyjum og sjáumst á morgun… bið reyndar alveg líka að heilsa ykkur hinum

Mikið er nú gaman að sjá stöðuna í Team Öl, deild sem við vinirnir stofnuðum á Draumalið.is…
Þessi helgi fer nú á spjöld sögunnar í mínum bókum, þar sem ég er örugglega að setja persónulegt met í fáum bjórum innbyrgt yfir heila helgi. Það hafa svo mikið sem 2 bjórar runnið ljúflega niður þessa helgi og býst ég fastlega við að þeir verði ekki fleiri… ![]()
Mamma og pabbi eru búin að vera í bænum núna frá því á fimmtudaginn og eru eitthvað að stússast í eldhúsinnréttingum og tækjum, þar sem þau eru nú að byrja á að gera upp eldhúsið á Brimhólabraut 1. Ég og Bergdís erum búin að fara tvisvar út að borða með þeim, ásamt Elenu og Þóri, og svo tvisvar í bíó með þeim á myndirnar Cinderella Man & Flightplan. Cinderella Man kom mér virkilega á óvart þar sem ég var búinn að heyra sama og ekkert um þessa mynd. Russel Crowe er rosalegur í þessari mynd og eins pirrandi leikkona og mér finnst René Zellweger vera stóð hún sig bara vel í þessari ræmu. Aftur á móti var það Flightplan sem stóðst ekki alveg mínar væntingar. Maður hafði séð hana auglýsta hvað eftir annað bæði í bíóum og í sjónvarpinu og trailerinn var bara nokkuð ‘catchy’ – ég var staðráðinn í að fara á þessa mynd í bíó. Svo einhvernveginn fannst mér, án þess að ætla að skemma þessa mynd fyrir neinum, að hún skilaði sér ekki nógu vel. Er ekki að segja að hún sé léleg, bara hefði getað verið gerð betur. Mitt álit
Svo styttist óðum í Eyjaferðina ógurlegu: Operation Hlynsatjútt er bara handan hornsins, en eins og allir með greindarvísitölu yfir frostmarki vita varð lítill akureyskur háskóla-Hlynur 22 ára þann 3. október síðastliðinn og mun fagna þeim merka áfanga næstu helgi í Eyjum. Ég býst við alveg rosalegri helgi og ætla ég mér að reyna að ná fyrri ferð á föstudeginum, s.s. kyssa nokkra rassa í vinnunni
Ég hef ákveðið að kaupa mér ferðatölvu í London! Þessar blessuðu ferðavélar eru orðnar svo helvíti öflugar. Maður getur spilað alla leiki í þeim og skjáirnir orðnir rosalegir, svo ekki sé nú minnst á hvað þetta er MIKLU fyrirferðaminna en PC tölva. Er búinn að vera að skoða svolítið af tölvum og er ekki alveg búinn að ákveða hvernig vél ég kaupi og mun örugglega bara ákveða það með Þórhalli í London… ég get ekki beðið!
En jæja, ætla að kalla þetta gott og horfa aðeins á telly’ið, fara kannski að sofa fyrr en vanalega á laugardegi og taka eins og einn sunnudag á ævinni snemma
P.S Ég vil óska Óla og Sunnu innilega til hamingju með frumburðinn, yndislega fallega stúlku sem kom í heiminn fimmtudaginn síðastliðinn. Allar mínar hamingjuóskir fá þessir nýkrýndu foreldrar sem ég veit að er hamingjusamast fólk í heimi þessa dagana
Fred Flintstone & félagar hafi spilað pool með svona ‘kúlum’…

og étið svona papriku…

og svo loksins fengið sér svona eftirrétt…

Já við skelltum okkur í sund í kvöld. Fórum eftir kvöldmat og var þetta bara fínasta fínt. Slaka á í pottunum eftir vægast sagt erfiðan dag. Skelltum okkur í Árbæjarlaugina og höfðum það gott í pottunum þar í dágóða stund, eða þangað til við vorum orðin eins og sveskjur (aðallega ég þó) og ákváðum að fara uppúr og skella okkur í ísbúðina niðrí Skeifu til að fá okkur kjöööööörís
Komst að því að það er kominn banana og mokkaís úr vél… smakkaði bananaísinn og hann er bara helvíti góður.
Rakst á skemmtilega síðu þar sem settar eru fram 10 fáránlegustu vörur framtíðarinnar… margar hverjar helvíti skondnar og verð ég nú að segja að þessi í 1. sæti sé gott skot á Apple, þar sem þeir hafa verið iðnir við að koma með nýja og nýja gerð af iPod ![]()
En jæja… löngu kominn tími á svefn hjá manni, styttist óðum í Eyjaferðina þarnæstu helgi og svo auðvitað LONDON BABY..
Jæja farinn að sofa, góða nótt.
Tíminn flýgur… það er eitt sem víst er. Enn einn sunnudagurinn runninn upp sem er kannski bara fínt því það er farið að styttast svolítið í London ferðina okkar Bergdísar
En já, Aron skellti sér í borgina um helgina og fór ég með honum, Gulla og Bjarna í pool á föstudaginn og aftur í gær. Skemmst frá því að segja að ég og Bjarni rúlluðum Aroni og Gulla upp í öllum leikjunum og fórum létt með það… meira að segja þegar Aron kom með sínar leikreglur um að það mætti ekki vanda sig þar sem hann var nú búinn að fá sér vel neðan í því
Ég veit að Aron á eftir að neita fyrir þetta, en þar sem Bjarni var svo sniðugur að taka síðasta leikinn upp á vídjókameru eigum við sönnun fyrir þessu rústi… hahaha
En já, fórum svo í bæinn og þar sem ég var svo sniðugur að týna veskinu mínu fyrir nokkru var ég ekki með skilríki og var bara happa glappa hvort maður komst inn eða ekki. Rættist ágætlega úr kvöldinu og var maður kominn heim um 4 – 5 leitið. Heilsan í dag ekki alveg búin að vera að gera sig en hún elsku Bergdís mín var svo góð að fara út í sjoppu í dag og kaupa nammi og taka spólur… l-) þannig að það verður bara legið yfir sjónvarpinu í kvöld. Hún tók Guess Who með Bernie Mac og Ashton Kutcher og Sin City, mynd sem mig hefur endalaust langað til að sjá og hef bara heyrt góða dóma um.
Jæja, þá er það bara TV, kúr & nammiát here I come
Það varð rafmagnslaust í nokkrum hverfum höfuðborgarinnar í dag og fyndið, og þó kannski ekki, að sjá hvað sumt fólk kann sig engan veginn í umferðinni þegar umferðarljósin detta út. Lenti allnokkrum sinnum í því að einhver sem hafði ekki hugmynd hvernig gatnamót virkuðu án ljósa, annaðhvort dúndraði næstum því inní hliðina á mér eða bara fraus fyrir framan mig og ég þurfti að bíða og bíða og bíða…
Eftir þessa reynslu, og margt annað reyndar sem maður hefur komið auga á hjá eldra fólki í umferðinni, er ég eiginlega á því að fólk sem er 40 ára og uppúr verði skikkað til að fara í ökuskólann og LÆRA að keyra bíl, þekkja merkin og ná því að umferðin í Reykjavík í dag er ‘örlítið’ öðruvísi en þegar þau tóku bílpróf sautjánhundruð og… já… ég man að þegar ég var að taka bílprófið fékk ég heim með mér eitthvað bóklegt próf til að undirbúa mig á diskettum hjá Gísla ökukennara. Setti það upp og lét mömmu og pabba taka prófið. Það er skemmst frá því að segja að þau féllu bæði… Ætli það sé ekki einhver þarna á Alþingi sem tæki það í mál að flytja tillögu að þessu þar?
Annars er næsta Eyjaferð ákveðin
Lítill tuttugogtveggja ára Hlynsalingur ætlar að halda uppá hve stutt er í að hann fái herbergi á Hraunbúðum og býður hann því gestum og gangandi í kaffi & kökur í Alþýðuhúsinu milli kl 15 & 17 þann 22. október nk. Gjafir eru vinsamlegast afþakkaðar en hann bendir á peningagjafir til Fuglaáhugamannafélags Íslands…
Mikið djöfull var gaman í bústaðnum. Nóg af áfengi, heitur pottur, geðveikur matur & gítar. Hvað er hægt að biðja um meira. Enda var þetta alveg skotheld ferð. Stutt lýsing á þessari ferð myndi einhvernveginn útfærast svona:
Allavega snilldar ferð og þakka ég öllum fyrir skemmtilega helgi… (við skulum ekkert minnast á enska… :-/ )
Skellti mér í það að klára nýju heimasíðuna hennar Bergdísar þegar ég kom heim úr bústaðnum og ætti hún að vera orðin góð. Smá fínpúss sem er eftir en nú er hún búin að lofa mér að vera dugleg í blogginu á nýju heimasíðunni sinni
Endilega kíkið á hana.
Og haldiði ekki að HLYNSARINN sé 22 ára í dag. Velkominn í hópinn gamli, til hamingju með afmælið… (joker)
En nú er ég farinn í háttinn…
Góða nótt
Síðustu komment