Eldri færslur fyrir » September, 2005 «

færsla skrifuð kl. 23:57 - 30. September, 2005 | Höfundur: einir

Já, það er sko rólegur föstudagur… langt síðan það hefur skeð. Sit hérna í tölvunni á meðan Bergdís liggur uppi í rúmi með einhverja skíta ælupest :-( Ekki alveg nógu gott. Ég er að fara í bústað með vinnunni á morgun svo ég ætla bara að vona að hún smiti mig ekki af þessum viðbjóði… 7-9-13. Ætlaði að hitta strákana í kvöld en þar sem Bergdís veiktist var ég ekkert að fara út. Svo er líka bara um að gera að spara sig fyrir bústaðinn :-D Förum eftir hádegi á morgun og verðum eina nótt… mar tekur gítarinn með og það verður örugglega fínasta stuð.

Svo var fyrsti Idol þátturinn sýndur í kvöld og guð minn góður, er endalaust af hálfvitum á Íslandi? Þetta er 3. sería og það er ennþá að streyma inn hálfvitar sem halda virkilega að þeir geti sungið. Ok sumir eru að djóka, en aðrir eru alveg grafalvarlegir… koma þarna inn með þvílíku væntingarnar og ætla sko að vinna þetta allt saman bara í prufunum… hahaha. Meira að segja ein frá Eyjum… :-.

Og enn einn sjónvarpsþátturinn… djöfull fer Hells Kitchen í mínar allra fínustu taugar. Þessi ógeðismaður sem er yfir þarna er viðbjóðslega leiðinlegur og rakkar fólkið svo mikið niður að það mætti halda að hann væri djöfullinn sjálfur… Fer hrikalega í mig þegar menn láta svona, eins og þeir séu yfir allt og alla hafnir og bera eeeeeenga virðingu fyrir einu né neinu.

Jæja, ætla að kalla þetta gott og fara að koma mér í háttinn.
Big day ahead ;)

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 01:12 - 28. September, 2005 | Höfundur: einir

Þá er ég búinn að henda öllu myndasafninu upp aftur… á eftir að skrifa lýsingu við hvert albúm fyrir sig reyndar og ég geri það þegar ég hef meiri tíma. Ætla að fara að koma mér í háttinn. En allavega, þarna eru 5 albúm sem ég hélt ég væri búinn að týna frá árinu 2002. Endilega kíkið á þessar skemmtilegu myndir ;) Ég er allavega farinn að sofa.

Góða nótt.

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð:  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 19:13 - 26. September, 2005 | Höfundur: einir

Jæja, þá er ég svona mestmegnis fluttur yfir á nýjan server. Ég ákvað að velja Appollo Hosting þar sem ég las mörg góð reviews um þá hjá nokkrum notendum auk þess sem þeir fengu hæstu einkunn hjá einhverju tölvublaði sem bar svona þjónustur saman. En já, þetta er búið að vera strembið, mikið upload og download og FTP’inn alveg eldglóandi (þið sem skiljið þetta ekki: lesist bara “En já, þetta er búið að vera blabla, blablabla og blabla bla og ftblabla alveg eldglóandi”) Sumt er ekki alveg í lagi og vonast ég til að laga það sem fyrst.

En hér er ég semsagt, á nýjum stað og vonandi að þetta lukkist bara sem best… annars skiptir maður bara aftur :-D . Miklu meira sem maður getur gert hérna og fullt af aukahlutum sem fylgja nýju hýsingunni, sumt vonandi eitthvað nothæft ;)

Myndirnar detta inn örugglega bara á morgun og gestabókin líka. Á þá líka von á að henda þessum eldgömlu myndum inn á morgun. En á meðan getið þið skoðað glænýja síðu sem einn ónefndur vinur minn ætlar að halda utan um en hana er að finna á http://smu.einir.com

Þangað til næst…

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð:  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 18:47 - 21. September, 2005 | Höfundur: einir

Var rétt í þessu að ljúka við að henda inn 3 myndaalbúmum, en í þeim eru myndir frá Kveðjupartýi Ísjakans, Afmæli Stebba&Sigga og kveðjupartý Hildar, og svo síðast en ekki síst myndir af Árshátíð Café María sem haldin var þarsíðustu helgi. Helvíti skemmtilegar myndir sem ég hvet ykkur til að kíkja á :-D
Svo eru það bara Eyjarnar um helgina. Ég og Bergdís förum með seinni ferð á föstudaginn, en tveir litlir fuglar hafa hvíslað því að mér að það verði bara hörkufjör í Eyjum þessa helgi. Rokktónleikar á Prófastinum á laugardagskvöldið og ég veit ekki hvað og hvað, Ensími og einhverjir fleiri. En maður er nú fyrst og fremst að fara til að hjálpa pabba gamla. Ekki lætur maður hann standa einan í því að hreinsa út úr heilli sjoppu ;)

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 23:04 - 19. September, 2005 | Höfundur: einir

Ég fékk svolítið fyndið sms í dag. Eða kannski ekki fyndið, heldur frá hverjum það var. Smsið var þess efnis að Síminn væri að bjóða viðskiptavinum sínum sem eru í áskrift og búa í Eyjum 120 fríar mínútur á dag innan kerfis Símans ef þú hringi í Vestmannaeyjum. Kannski ekki óvenjulegt sms, hefði ég fengið það frá Vit.is eða einhverju svoleiðis. Nei, ég fékk það úr bara einhverju númeri og þegar ég tékkaði á símaskrá.is kom í ljós að sá sem sendi mér þetta heitir Þórir og er verkfræðingur úr Kópavogi… wtf? Hvað er hann að láta mig vita af einhverjum tilboðum sem síminn er með í Eyjum :-D

Fór loksins að sjá Deuce Bigalow – European Gigolo. Fór með Bergdísi og Guðjóni. Fínasta mynd en þar sem mér fannst sú fyrri algjör snilld fór ég líklega með of miklar væntingar á þessa. Jújú, hún er fyndin og allt það… en mér fannst hún einhvernveginn ekki standast það að vera eftirmynd hinnar, sem að mínu mati er muuuun betri.
Heyrðu já, svo erum við Bergdís að koma til Eyja næstu helgi ;) Pabbi hringdi um daginn og bað okkur að koma og hjálpa sér að hreinsa út úr Bónusvideo, sem kallinn er víst að fara að loka. Komum með seinni ferð á föstudaginn og spurning hvort eitthvað sé að ske í Eyjum? Eða hvort mar eigi bara að taka því rólega svona einu sinni ;)
En jæja… ég er farinn að horfa á Newlyweds

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 23:50 - 16. September, 2005 | Höfundur: einir

Mögnuð mynd!
Var að skoða nokkrar flottar myndir á netinu þegar ég rakst á þessa. Hún minnti mig óneitanlega á svipað (aðeins minna reyndar :) svona skarð í hrauninu heima í Eyjum. Sandurinn er að vísu svartur heima og hraunið aðeins dekkra… en þetta minnti mig nú samt sem áður á Eyjarnar fögru ;) Hvað finnst ykkur? Vitiði hvað ég er að meina…?

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 23:59 - 15. September, 2005 | Höfundur: einir

Hmmm… eitthvað klukkæði fer nú eins og eldur í sinu um bloggheima og í þessum töluðu orðum var Andri að enda við að ‘klukka’ mig. Þetta gengur víst þannig fyrir sig að sá sem er klukkaður kemur með 5 tilgangslausar staðreyndir um sjálfan sig og klukka svo 5 aðra… enjoy:

  • Ég eyðilagði á mér lappirnar þegar ég var yngri með því að sitja alltaf í svokölluðu M-i.
  • Ég hef gaman af því að elda.
  • Ég fæddist föstudaginn 13. maí.
  • Ég er feiminn.
  • Ég elska Vestmannaeyjar og ætla pottþétt að flytja þangað aftur og ala mín börn þar upp ;)

Jæja… þannig er nú það. Þá er komið að mér að klukka 5 manns. Ég ætla að klukka Stefán Björn, Ólöfu, Halla, Arndísi Ósk & Thelmu Ýr

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð:  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 23:26 - 14. September, 2005 | Höfundur: einir

Já hvar á ég að byrja, þetta var náttúrulega bara snilldarferð. Aðeins of stutt, en skemmtileg samt sem áður ;) Vorum búin að plana þessa ferð áður en við fórum frá Eyjum eftir sumarið því það var búið að stimpla afmælið hennar Ömmu Jönu á þessa helgi löööngu áður. En það hitti einmitt svo skemmitlega á að það var ball í Höllinni á laugardeginum og svo auðvitað Árshátíð Café Maria, sem okkur Bergdísi var boðið á, þannig að laugardagurinn var alveg fullbókaður hjá okkur.

Byrjuðum á að fara í afmælið til Ömmu þar sem maður hitti milljón ættingja sem maður hafði varla hitt áður á ævinni, en það kom líka fullt af skemmtilegu fólki eins og Þórhallur bróðir og Hrund (alla leið frá London), Elena systir, Kristjana frænka, Birgir Freyr og fleiri og fleiri… Svo lá leiðin á árshátíð Café Maria sem var svona líka með spúkí sniðinu. Andri, Ásdís og Laufey sem voru í skemmtinefnd sátu í einhverjum hásætum þegar við komum og átti hver og einn að sína auðmýkt sína og hneigja sig við komuna… hahahaha… soldið fyndið ;) Þarna var mikið drukkið og farið í marga skemmtilega leiki. T.d. fórum ég, Viktor og Kári í Extreme Makeover, þar sem Sandra, Sæbjörg & Hrefna klæddu okkur upp í föt sem voru mislangt komin í því að syngja sitt allra síðasta í tískuheiminum. Hrefna var þó allavega svo sæt í sér að leyfa mér að vera í pilsi, en Viktor og Kári þurftu að koma fram á nærbuxunum og klæddir að ofan eins og verstu hór** :-D (ég er ekki að segja að ég hafi ekki verið klæddur eins og hóra, bara var flottari hóra;) ) Ég og Bergdís tókum nokkrar myndir þarna sem ég á eftir að henda inn en Slingerinn var auðvitað líka á staðnum og tók myndir af öllum sem hreyfðu á sér rassinn. En já, þetta var algjör snilld og kominn tími til að fara upp í Höll, þar sem Þórhallur, Hrund, Elena, Siggi og fleiri voru komin eftir djamm í Akóges. Þar var líka svo andskoti gaman og lifði maður alveg á áfenginu sem maður drakk á Café. Held ég hafi fengið mér 1 bjór yfir allt ballið, í boði Þórhalls bróður ;) Ég og Þórhallur misstum okkur á dansgólfinu, langt síðan ég hef skemmt mér jafn vel á dansgólfinu… enda voru þetta engir samkvæmisdansar hjá okkur :-D

Eins og ég sagði, algjör snilldarferð þrátt fyrir að vera heldur stutt. Næst tekur maður allavega fyrri Herjólf á föstudeginum, því við vorum ekki alveg að meika föstudagskvöldið þar sem margir voru vel ölvaðir á Johnsen bar… En reyndar var líka alveg höööörmulegt veður. Jæja, best að koma sér vel fyrir fyrir framan sjónvarpið og horfa á þrjá síðustu þættina af Lost (cow)

Takk allir sem ég hitti í Eyjum fyrir frábæra helgi ;)

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 23:11 - 07. September, 2005 | Höfundur: einir

…ekki á morgun heldur hinn… liggaliggalái!

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð:  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 00:21 - 05. September, 2005 | Höfundur: einir

Djöfull var gaman um helgina… Stefán Björn skellti sér hingað í borg viðbjóðs og sömuleiðis fór Gísli Stefáns ekki til Eyja svo úr varð fínasta Eyjamannadjamm ;) Við byrjuðum á því að fara í pool (ég, Bergdís og Stefán) á poolstofunni og röltum svo þaðan í bæinn. Tókum nett djamm en vorum komnir heim tiltölulega snemma, eða um 4 leitið.
Svo á laugardeginum bauð Biggi mér á landsleikinn, Íslands – Króatía, sem byrjaði kl 6. Fyrri hálfleikur var roooosalegur og í hálfleik var Ísland að vinna 1 – 0. Maður vissi svosem alveg að þetta væri eitthvað sem Króatar myndu aldrei sætta sig við, enda mættur þeir eins og hungruð ljón í seinni hálfleik og unnu 1- 3. Góður leikur samt sem áður, Króatar sýndu sínar bestu hliðar í seinni hálfleiknum og þar þekkti maður liðið sem vann Ísland 4 – 0 í Króatíu.
Eftir leikinn var svo haldið heim á leið til að gera sig kláran fyrir 2 ára afmæli Pravda sem byrjaði kl 10. Ég, Bergdís, Stefán og Svala fórum saman niðureftir í boði Svölu. Þarna var boðið upp á bollu, bjór og eitthvað meira af sulli og bara gaman að því ;) Drukkum þarna þónokkur glös, en það skrítna var að ég varð eiginlega ekkert mikið fullur… svo ég fékk mér meira og meira og meira… en ekkert gerðist. Þegar fría vínið var búið vorum ég og Stefán ekki lengi að láta okkur hverfa enda Pravda ekki alveg staður fyrir okkur. Fórum á Celtic Cross þar sem við höfðum verið kvöldið áður og líkað mjög vel, enda snilldar trúbador að spila þar. Kunni alveg ENDALAUST af lögum, spilaði og söng mjög vel. Vorum þarna heillengi, eða þangað til Gísli Stefáns kom loksins í bæinn og fórum við á Glaumbar til að hitta hann. Vorum nú ekki lengi þar heldur fórum aftur á Celtic, svo á Sólon til að hitta Bigga, þaðan fórum við svo niðrá Pizza King og fengum okkur að éta og eftir það lá leiðin heim… eitthvað um 7 leitið. Snilldar kvöld en ég hef nú sjaldan verið jafn lítið ölvaður eftir að hafa verið í teiti þar sem var frítt vín :-. Spurning hvort það hafi verið eitthvað áfengi í bollunni? :-D En já allavega takk Svala fyrir að bjóða okkur ;)
Jæja, ætla að koma mér í háttinn…

Góða nótt fólk.

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment