Eldri færslur fyrir » August, 2005 «

færsla skrifuð kl. 02:11 - 30. August, 2005 | Höfundur: einir

Við skelltum okkur á Dukes of Hazzard áðan í Álfabakka (ég, Bergdís, Ásdís og Kári). Snilldar gamanmynd sem ég mæli hiklaust með. Sean William Scott er náttúrulega bara snillingur :-D Svo auðvitað skemmir ekki að ofurkroppurinn Jessica Simpson er ávallt léttklædd í sínu hlutverki í þessari mynd ;) En já… allavega mæli með þessari mynd.
Var að skoða myndir úr kveðjupartýinu/afmælinu sem Ólöf og Sigrún héldu í Eyjum um helgina… sá margar ansi skemmtilegar myndir og greinilegt að ég missti af miklu þarna :-( En ég ætla mér að bæta það upp núna 9. september þegar við skellum okkur til Eyja í afmælið hjá Ömmu Jönu, en þá verða einmitt Vinir Vors og Blóma að spila í Höllinni, lokahóf hjá KFS og ég veit ekki hvað og hvað… ætla ekki allir að djamma þá? ;)
En já, ætla að kalla þetta gott og koma mér í háttinn…
Góða nótt

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 04:46 - 27. August, 2005 | Höfundur: einir

 

 

I am wearing ‘Boxer Briefs’ according to The Underwear Quiz

 

Og það var bara alveg hárrétt hjá þeim :-D
(shit hvað ég er einmanna)

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð:  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 01:23 - 27. August, 2005 | Höfundur: einir

OK ÉG VAR KOMINN MEÐ HEILAN HEST AF BLOGGI HÉRNA OG TÓKST AÐ VERA SVO SNJALL AÐ LOKA HELVÍTIS VAFRANUM OG ÆTLA ÞVÍ AÐ RÓA MIG NIÐUR ALLAVEGA TIL MORGUNS ÞANGAÐ TIL ÉG REYNI AFTUR
- EINIR JR!

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð:  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 02:44 - 25. August, 2005 | Höfundur: einir

Djöfull fer í mig þessi endalausa umræða sem þessar blessuðu hvalveiðar skapa útaf afskiptasemi dýraverndunarsinna. Hvað í andskotanum er svona sérstakt við þessa helvítis hvali? Þeir eru ekki í útrýmingarhættu, þeir eru fyrir neðan okkur í fæðukeðjunni og gera andskotann ekki neitt nema að éta frá okkur dýrmætan fisk (eða fæðu frá þessum dýrmæta fisk). Af hverju eru þessir dýraverndunarsinnar ekki á Indlandi að aðstoða þarlend stjórnvöld í aðgerðum gegn veiðiþjófum, sem eru í leyfisleysi að útrýma fágætri tígrisdýrategund þar. Eða í Kína þar sem pöndur eru í útrýmingarhættu. Fjölmargar þjóðir gagnrýna Ísland og fleiri lönd fyrir það að stunda hvalveiðar í vísindaskyni… Ég bara skil ekki af hverju það má veiða þorsk en ekki hrefnu? Sá á mbl.is svar Árna Mathiesen sjávarútvegsráðherra við gagnrýni utanríkisráðherra Ástralíu þar sem hann var að gagnrýna Íslendinga fyrir hvalveiðar. Gott þetta Árni! Ég stend 100% með hvalveiðum og sé ekkert að því að veiða þessi dýr þar sem nóg er af þessu í sjónum… varð að koma þessu frá mér :-)

Sá að Liverpool var ekki að gera góða hluti í Meistaradeildinni á þriðjudaginn… tapaði fyrir CSKA Sofia 0 – 1 á Anfield! Hvaða crap var það… sá reyndar ekki leikinn og mér er nokkuð sama þótt þeir séu komnir áfram, ég hafði nú allavega búist við því að þeir ynnu eða gerðu jafntefli á heimavelli… alls ekki sniðugt :-/ en já, er einmitt í stórskemmtilegum leik með nokkrum vel völdum einstaklingum á draumalid.is þar sem ég er nú ekki alveg að gera nógu góða hluti. Er einhverjum 130 stigum á eftir efsta manni sem þarf endilega að vera Aron caz… ég kenni óförum í fyrstu umferð fyrir þessa hörmung en þá fengu 2 menn í mínu liði rautt spjald… -100 stig þar takk fyrir. Og hvaða rugl er það hjá þeim að hafa leikina sem voru á þriðjudag og miðvikudag ekki með? Ég væri í góðum málum ef þeir væru teknir með ;-)

En jæja… ætla að fara að kalla þetta gott, kominn tími á smá svefn…

P.s. Það er farið að kólna í borg óttans

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 18:43 - 22. August, 2005 | Höfundur: einir

Já… bara komnar tæpar 3 vikur síðan ég bloggaði síðast. Það er hægt að kenna letinni í manni um að hluta til en ég er nú samt eiginlega löglega afsakaður þar sem ég er búinn að standa í flutningum frá Eyjum síðastliðna 1 og hálfa viku, og er eiginlega enn að. Við Bergdís vorum jú að flytja í Kópavoginn til mömmu hennar og pabba… svaka fjör. Erum búin að versla okkur nýtt rúm, nýjan skáp ásamt því að taka allsvakalega til í herberginu hennar Bergdísar þar sem miklu þurfti að pakka niður í kassa til að skapa pláss fyrir nýja íbúann :-D

Nú þarf maður að fara að setja saman rúmið og skápinn þar sem Bergdís og Ásdís eru búnar að ganga frá mestöllu draslinu úr herbeginu. Þurfum bara að henda gamla rúminu hennar Bergdísar niður til Ásdísar. Svo hugsa ég að mar taki því nú bara rólega í kvöld. Fórum í bíó í gær með Sigga bróður, skelltum okkur á Wedding Crashers sem mér fannst alveg snilldarmynd.

Svo tekur bara hið hversdagslega Reykjavíkurlíf við…

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 16:59 - 06. August, 2005 | Höfundur: einir

Þá er þessi dæmigerða dauða helgi runnin upp. Alltaf eins helgin eftir þjóðhátíð, mætti gjörsamlega heyra saumnál detta í bænum á kvöldin… kannski fyrir utan landsliðið þegar það leitar sér að partýi eftir Lundann. Annars er ég að vinna um helgina bara. Skellti mér eftir vinnu heim til Stebba í gær og þar var verið að sötra smá bjór og spila, svo voru þau að fara að horfa á spólu þegar ég og Árni ákváðum að skella okkur á smá LAN… já það er orðið langt síðan lítill Einir lanaði og ég verð bara að segja að þetta er algjör snilld svona við og við… ekki kannski eins miklar öfgar og hérna fyrir nokkrum árum… en samt algjör snilld ;)
Svo er það bara vinnan í kvöld, heyrðist samt á liðinu í gær að þau ætluðu að fá sér í glas í kvöld. Hugsa að það verði eitthvað aðeins líflegra í bænum í kvöld en var í gær. Einhver ættarmót víst, afmæli og eitthvað… maður sér til hvort maður fái sér nú ekki 1 – 2 kalda eftir vinnu, þar sem maður á nú tæpan kassa eftir af þjóðhátíðarvíninu sökum veikinda og viðbjóðs

En já, Andri er búinn að henda sínum myndum frá Þjóðhátíðinni upp og er gaman að skoða þær. Texti við hverja mynd sem er bara gaman að lesa… fyrir utan að hann lætur mig líta út fyrir að hafa alltaf verið fyrsti maðurinn úr dalnum… En endilega kíkið á myndirnar hans… auk þessara í færslunni hér að neðan, ekkert nema snilld að skoða myndir frá Þjóðhátíð.
Nú fer að styttast í að maður flytji aftur í bæinn, en ég og Bergdís gerum ráð fyrir að fara frá Eyjum 20. ágúst nk. Ekki laust við að manni langi bara að drullast aftur í skólann hér í Eyjum og klára þennan ógeðisstúdent hér… en í bænum tekur svo við að flytja á nýtt heimili, því við erum að fara að flytja heim til Bergdísar í Kópavoginn, þannig að ég þarf ekki að sofa með byssu undir koddanum eins og áður í Breiðholtinu…

En jæja, ætla að kalla þetta gott… farinn í vinnu

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 18:59 - 03. August, 2005 | Höfundur: einir

Ég var að skoða hvaðan ég væri að fá alla þessa rosalegu aðsókn á síðuna upp á síðkastið og kom í ljós að þetta er mest allt fólk sem er að leita sér að myndum til að skoða frá Þjóðhátíðinni sem var að líða. Google og Yahoo virðast einhverra hluta vegna setja mig ofarlega á lista þegar fólk slær inn t.d. “þjóðhátíð 2005 myndir” eða “eyjar 2005 myndir”, kannski vegna þess að hef minnst svolítið á Þjóðhátíðina í síðastliðnum færslum ;)

En vegna þess hve lítið ég tók af myndum hef ég ákveðið að taka saman nokkra aðila sem gerðu meira af því og benda ykkur sem hingað komið af google og yahoo á þá, en það eru (í engri sérstakri röð):

Þetta eru þær myndir sem ég veit að eru komnar á netið frá hátíðinni í ár, ef þið vitið um fleiri þá endilega hendið þeim í comment… því það virðast allir vera að leita af myndum

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 18:58 - 02. August, 2005 | Höfundur: einir

Já henni er nú lokið Þjóðhátíð Vestmannaeyja 2005. Fínasta hátíð heyrir maður frá flestum þrátt fyrir þráláta rigningu og leiðindi á laugardeginum. Ég tók mig til og náði mér í einhvern veikindaskít á þeim degi og átti ekki viðreisnar von það sem eftir leið. Kominn heim eldsnemma á laugardeginum og ætlaði að hvíla mig fyrir sunnudagskvöldið þar sem ég ætlaði nú að taka svolítið á því. Það endaði náttúrulega alveg eins, hélt engu niðri, þó aðallega ekki mat sem var engan veginn nógu gott. Það varð úr að eini dagurinn sem ég djammaði eitthvað almennilega var föstudagurinn og var hann líka alveg geeeeðveikur.

Bergdís tók nokkrar myndir sem ég er búinn að henda inní myndaalbúmið. En jæja, ég ætla að fara að horfa á Liverpool leikinn niðri á Conero. Takk fyrir alveg ágætis Þjóðhátíð ‘allir’ sem ég hitti og ég lofa því hér með að ef ég veikist aftur á Þjóðhátíð mun ég baaaara sleppa henni ;)

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment