Jæja þá er hún gengin í garð… allavega hjá flestum Eyjamönnum byrjar þetta allt saman á miðvikudeginum þar sem yfirleitt er leikur hjá ÍBV á þessum degi og metaðsókn er þar af leiðandi á Hásteinsvöllinn. Nú eru kapparnir bara í Færeyjum að keppa við B-36, sem er btw helvíti nett nafn á fótboltaliði… minnir á nafn á herþotu eða einhverju, en nóg um það. Á þessum degi byrja nú flestir að fá sér í eins og aðra tánna allavega þótt að ég og nokkrir aðrir tókum þjófstart á þetta allt saman og fórum á smá skrall í gær ![]()
En allavega… þar sem maður fer nú ekkert í tölvuna yfir þjóðhátíð ætla ég bara að óska öllum gleðilegrar þjóðhátíðar og vona ég að flest ykkar hafi haft vit á að skella ykkur til Eyja… því Þjóðhátíð í Eyjum er náttúrulega bara skíturinn… the place to be my people… en já… skemmtið ykkur öll vel og hafiði það sem best yfir hátíðina
Einir out…
Eldri færslur fyrir » July, 2005 «
Nú er allt bókstaflega komið á fullt í dalnum við undirbúning Þjóðhátíðar enda ekki nema 8 dagar í kvikindið… maður getur hreinlega ekki beðið. Þetta verður erfið vika fram að Þjóðhátíð… maður á eftir að fara í ríkið, finna á sig hárkollu úr safninu sem mamma og pabbi komu með heim frá London, koma saman einhverju lagasafni til að glamra á gítarinn ofl ofl. Andri Hugo sá allavega til þess að það bættist eitt mikilvægt lag í það blessaða safn, en hann tók sig til og pickaði upp þjóðhátíðarlagið í ár, Með þér. Það er einmitt að finna á síðunni hans. Takk fyrir það ![]()
Annars er lítið sem ekkert að frétta… maður bara bíður og bíður. Er reyndar að fara út á tuðru með strákunum í kvöld…
Það verður örugglega hörkustuð… svo smá bjór svona til að fagna hversu stutt er í Þjóðhátíð í Eyjum ![]()
Og já… haldiði að Jessý eigi bara ekki afmæli í dag. 21 árs stelpan… Til hamingju með það
Þá er þessi blessaða helgi á enda runnin og kominn tími til að starta enn einni vinnuvikunni… sem er nú bara allt í lagi. Þjóðhátíðin nálgast óðum, 10 dagar í að maður byrji herlegheitin. Eða er málið ekki að byrja á miðvikudeginum?
En aftur að helginni… á föstudaginn tókum við allan pakkann… partý, conero, nýja barinn sem var að opna, lundann og fórum þaðan í pottapartý til Guðna.. sem býr núna þar sem ég ólst upp
gaman að koma í gamla húsið aftur og þetta var snilldar partý. Svo skutlaði Olga mér og Árna heim til Árna þar sem við héldum áfram að tjútta fram undir morgun. Við tókum svo svipaðan pakka í gær nema þá voru Árni og Bixie að halda upp á afmælið sitt í Eyverjasalnum. Ég var í vinnu til að verða 11 og mætti svo stuttu eftir það í afmælið. Þar var þessi líka fína stemmningin og var skundað þaðan á Lundann þar sem var svona lala bara og ákváðum við að fara heim til Árna Óla og enduðum djammið þar einhverntíman í morgun. Ég tók nokkrar myndir í gærkvöldi og eru þær komnar inn í myndaalbúmið…
Svo er Bergdísin mín að koma með bakkaflugi á eftir… búin að vera í bænum hjá fjölskyldunni yfir helgina. Hún er víst búin að missa sig í fatakaupum á mig á útsölum hér og þar þessi elska
Svo er það bara vídjó og sukk í kvöld held ég… Vil þakka öllu þessu frábæra fólki sem ég var með um helgina fyrir geðveikt djamm… þið vitið hver þið eruð ![]()
P.S. Þetta Þjóðhátíðarlag venst bara helvíti vel! Kominn svolítill Þjóðhátíðarfílingur í mann…
Almenningur fékk loksins að hlusta á Þjóðhátíðarlagið 2005 sem þeir Hreimur og einhver gaur úr Írafár gerðu, en það kom í dag á dalurinn.is og ég verð að segja að ég misskildi textann allsvakalega og hló mig máttlausan þar sem ég hélt þá vera að syngja “Ég finn þig inní mér…” þar sem þeir eru víst að syngja “Ég finn frið inní mér..” Hahahaha
En já, lagið er komið og ég verð nú að segja að þessi 23 lög sem Þjóðhátíðarnefnd neitaði hljóta að hafa sökkað illa, því þetta er ekki að gera sig við fyrstu hlustun allavega… það er svosem svona skítsæmó… vonandi að það venjist vel bara
Hvað finnst ykkur um lagið?
Já þá er enn einn flöskudagurinn genginn í garð á eyjunni fögru. Ég sit hérna fyrir framan tölvuna að gera bókstaflega ekki neitt. Bergdís er á leiðinni upp á land að hitta fjölskylduna svo maður verður einn um helgina… spurning hvað verður gert. Árni Óli og Bixie voru að spá í að halda upp á afmælið sitt á morgun og vonandi verður eitthvað af því. Var víst strand á húsnæði síðast þegar ég vissi.
Svo er það aðalmálið hjá mér í dag, sem ég er búinn að vera að bíða eftir alla vikuna:
Videóflakkarinn sem ég verslaði mér á task.is og get ekki beðið eftir að fá… urðu víst einhver mistök hjá þeim og pöntunin gleymdist og eitthvað. Fæ þetta örugglega ekki fyrr en eftir helgi. Var samt spurning með að koma þessu í flug víst. Það væri snilld. Þarf ekki annað en að skella einum hörðum disk í þetta og maður getur hlaðið inn þáttum, bíómyndum, lögum og ljósmyndum til að spila í sjónvarpi… ekkert vandamál að tengja tölvuna við sjónvarpið lengur… Þvílík endalaus SNIIIIIIIILLD! Get hreinlega ekki beðið eftir þessu. Spurning um að Bergdísin mín nái bara í þetta fyrir mig um helgina og komi með þetta þegar hún kemur til baka, ef flugið klikkar þ.e.a.s… sem ég býst nú alveg við.
En jæja, ég er að spá í að fara að gera eitthvað úr þessum blessaða degi. Það er víst mæting hjá Bergdísi upp á flug núna klukkan hálf sex. Birti eitthvað til en mér sýnist þokan vera að hellast yfir aftur… spurning hvernig þetta fer. Vonum það besta, stelpan er orðin svo spennt að fara heim að hitta fjölskylduna
Halló halló… hvað segir liðið? Langt síðan síðast. En já, þetta blessaða tölvugrey ákvað að skíta allsvakalega upp á bak rétt áður en við fluttum til Eyja í byrjun sumarsins. Ég hélt það væri skjákortið svo ég sendi það í viðgerð og borgaði einhverja þúsundkalla fyrir að skipta um viftu og læti á því til þess að komast að því að það var í fína lagi. Aftur á móti hafði móðurborðið tekið sig til og hraunað allsvakalega í sig. Það er aftur á móti eitthvað sem ég nenni ekki að standa í og hugsa eiginlega að það sé alveg gjörsamlega brætt úr því þannig að ég fékk móðurborð hjá Ingólfi bróður, engin svaka græja en hún virkar á meðan ég kíki á annað. Kaupi mér einhverja uppfærslu vonandi fljótlega. En hverjum er ekki druuullusama
Já ég tók mig til og henti þessari blessuðu síðu aftur í gagnið, kominn tími til. Fólk farið að örvænta útum allt. Breytti um útlit í leiðinni eins og þið sjáið og fékk ég það lánað hjá þessum líka snillingnum sem rukkar ekki einu sinni fyrir það, nema þennan litla link þarna niðri vinstramegin… fólk getur valið sér lit við sitt hæfi og svona fínerí. Svo er ég búinn að henda inn nokkrum nýjum myndum í myndaalbúmið, meðal annars úr skvísusundinu þegar haldið var upp á goslokin og svo úr bústaðarferðinni alræmdu sem við fórum í yfir 17. júní… algjör snilld ![]()
En jæja, ég er að spá í að fara að kalla þetta gott og skella mér í háttinn.
Comebackið er allavega orðið opinbert… þá er bara að bíða eftir Hlynsanum?
Þangað til næst…
- Einir










Síðustu komment