Eldri færslur fyrir » March, 2005 «

færsla skrifuð kl. 20:58 - 30. March, 2005 | Höfundur:

Annars er það bara skóli vinna inn á milli auk þess að mar er að vinna næstu helgi… það verður bara fínt. Mar skemmti sér fyrir næstu mánuði í Eyjum síðustu helgi. En já, vildi bara henda einhverju stuttu hérna inn og láta vita að ég er kominn ‘heim’ heilu á höldnu ;) Ég og Bergdís vorum að elda okkur feiiiiitan pastarétt og ætlum aðeins að taka smá kríu…
Chao bella.
Ahhh… eitt enn. HVORT Á MAR AÐ VERA Í EYJUM EÐA RVK Í SUMAR? get bara engan veginn ákveðið mig…

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 16:03 - 20. March, 2005 | Höfundur:

Þessi helgi var nú bara með þeim rólegustu í manna minnum held ég. Á föstudaginn kíkti ég í pool með Þóri og Lauja þar sem skemmst er frá því að segja að ég vann að ég held 2 leiki… sem segir kannski best til í hvernig ástandi ég var í :o Nei alls ekki, fékk mér einn bjór og ætla ekki að reyna að afsaka hvað ég stóð mig hörmulega… þeir voru bara betri en ég, hefðum við kannski verið lengur þá hefði allt getað skeð því ég var að komast í gang… segjum það bara ;)

Svo í gær var ég að vinna niðrí Bónusvideo og mikið er nú leiðinlegt að þar sé ekki svona nammibar eins og í Bónusvideo heima í Eyjum… þar sem laugardagar eru nú NAMMIDAGAR :o Allir litlu krakkarnir að velja í poka… :S En þetta var ágætt. Vaktin var fljót að líða og fyrr en varði var ég kominn heim með 2 dvd tilbúinn að horfa þegar Bergdís yrði búin í vinnu. Tók Incredibles sem mig hefur alltaf langað svo til að sjá… og ekki varð ég fyrir vonbrigðum. Algjör snilldar teiknimynd eins og þeim frá Pixar einum er lagið…
Annars er maður bara kominn í sitt páskafrí og hlakkar mig ekkert smá til að fara til Eyja ;) ;) ;) Sem verður reyndar ekki fyrr en á laugardaginn því miður… vinnavinnavinna… :P Helvítis Herjólfur að fara ekki ferð á föstudaginn langa (duh :) En ég verð fram á þriðjudag og sá eða sú sem kemur ekki á djammið á laugardaginn má hundur heita. Ég heyrði í Arndísi Ósk og Söru Björg í gær og var ekkert smá gaman hjá þeim… í afmæli hjá Inga og Kristínu og ekki laust við að ég synti bara til Eyja ;) Ég vil fá loforð frá ykkur sem verðið í Eyjum þessa helgi um að djamma… staðfestið þátttöku ykkar í commentum… HEHE ;)
Jæja, ætla að kalla þetta gott… vinna eftir nokkrar mín, bið að heilsa heim í Eyjarnar fögru :*

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 16:25 - 16. March, 2005 | Höfundur:

Elsku mamma mín, til hamingju með afmælið þitt ;)
Vonandi hafðiru það sem allra best á afmælisdaginn þinn…
Þinn Einir jr.

…og það minnir mig á það… styttist í afmælið mitt :o

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð:  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 00:53 - 14. March, 2005 | Höfundur:

Mikið roooosalega var gaman um helgina… horfði á Idolið á föstudaginn hérna heima og mikið var það nú langdreginn þáttur. Hildur Vala átti án efa skilið að vinna og allt í góðu með það. Ég, Bergdís, Guðjón og Steinunn horfðum á það hérna heima ásamt Þóri og vinum hans. Svo fórum við í pool þar sem spilaðir voru nokkrir leikir ásamt því sem sötraðir voru nokkrir bjórar og spjallað. Árni Óli gerðist svo frægur að láta sjá sig í borg óttans og hélt hann uppi heiðri Vestmannaeyinga og skellti sér á Glaumbar þar sem ég hitti hann seinna um kvöldið. Snilldar kvöld sem endaði með því að ég og Árni fórum saman heim (grrrrrrr)

Svo á laugardeginum skelltum við okkur á snjóbretti… djöööööfulsins snilld ;) Ég, Árni, Grjóni & Bjöggi fórum í bláfjöll um 3 leitið og vorum til 6. Ég hef aldrei farið á bretti áður og ég verð bara að segja að þetta er eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert :D Án efa eitthvað sem ég mun gera aftur… og aftur :P Ég hef enga reynslu af svona snjóbrettum en það stoppaði Grjóna og Árna ekki í að draga mig og Bjögga nánast strax í stærstu brekkurnar… hahaha… þetta var ekkert smá gaman og gaman að segja frá því að ég vaknaði í morgun með vænan skammt af harðsperrum eftir þetta… :o Svo fórum ég og Árni heim til Bigga og Gísla Böðvars þar sem við byrjuðum að sötra bjór og spjalla við liðið… þeir voru búnir að vera fullir síðan 9 um morguninn, enda flestir frekar þreytulegir eða sofandi :D Svo skelltum ég og Árni okkur á Gaukinn ásamt Bjögga og Steingrími þar sem Mínus og Branpolice voru að spila og voru það helvíti góðir tónleikar. Djammið hélt svo áfram og hittum við Bigga og félaga á Glaumbar og var djammað langt fram á rauuuuuuuuða… ;)
Svo rakst ég á Hlynsa kaggl á emæhottornottpúnkturkomm og er kallinn bara kominn með ágætis einkunn þar. Það sést sko hverjir drekka Egils Kristal ;) Þið getið gefið honum einkunn hér

En ætla ekki að hafa þetta mikið lengra… Farinn að specca That 70′s Show ;)

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 01:46 - 09. March, 2005 | Höfundur:

Bloggstífla kemur fyrir hjá besta fólki… og greinilega mér líka… HEHE. Já lítið búið að vera að ske hjá mér. Vinna, smá veikindi, skóli & skemmtilegheit. Komst að því núna eftir sæluvikuna að þessar 19 einingar plús þessi vinna sem ég er í með skóla eru ekki alveg að fara saman. Getur vel verið að ég sé svona lélegur í að skipuleggja mig en ég allavega er búinn að segja mig úr Sögu103. Ég er ekki alveg sá sáttasti en þar sem ég hreinlega hef bara alltof mikið á minni könnu varð ég að gera eitthvað, og sagan lá beinast við. Var settur í áfangann 3 vikum of seint útaf bulli þegar FB var að meta námið mitt frá FÍV. Ekki nóg með það að þurfa að ná í skottið á kennaranum sem var 3 vikum á undan mér þá er þetta ekki alveg sá besti kennari sem ég hef haft… (vonandi að hann lesi þetta ekki HEHE) Hann er víst kallaður Gísli Súrsson og það ekki af ástæðulausu… eldgamall og kann allt sem hann er að kenna utanað og ætlast eiginlega til þess að við kunnum það líka… En ég ætla ekki að fara að telja þetta allt upp hérna… nóg að þetta pirri mig þótt ég skelli þessu ekki á ykkur líka :D

Annars er ég búinn að liggja nokkuð margar andvökunætur hérna heima… alveg brainstorming like hell. Ég þoli ekki þegar ég get ekki hætt að hugsa og það heldur fyrir mér vöku til 6 – 7 á morgnanna… og skóli klukkan 8 :S En það sem hefur verið að halda fyrir mér vöku er þetta sígilda. Hvað langar mig eiginlega til að verða? Ég veit að ég stefni að því núna að klára stúdentinn… hvernig eða hvenær svo sem það á eftir að takast… En hvað svo? Ég veit að ég ætti örugglega auðveldast með að læra eitthvað í kringum tölvur þar sem ég hef verið í kringum tölvur svona lengi, veit alveg hvernig þær virka, hef fiktað mig áfram og byggt upp alveg ágætis tölvukunnáttu. En hver segir að það sé nóg til að leggja það fyrir sig?
Þórhallur bróðir nefndi við mig fyrir 1 eða 2 árum síðan þegar ég var að ræða þetta við hann að ég ætti bara að skella mér í sjálfboðastarf eitthvert út fyrir Rauða Krossinn. Mér fannst það alls ekki góð hugmynd þá en þegar ég hugsa um þetta núna finnst þetta bara alls ekki slæm hugmynd. Svo hefur maður náttúrulega áhuga á heimasíðugerð en ég efast um að það sé eitthvað að gera sig. Meira svona hobby en vinna hugsa ég… en maður getur náttúrulega endalaust velt sér upp úr þessu :/
Svo ætlar Árninn víst að skella sér í bæinn um helgina næstu svo maður fær ekkert frí… jú var reyndar rólegur hérna síðustu helgi þar sem Steebmaðurinn kom og við tókum nokkra pool leiki og skelltum í okkur 1 – 2 köldum (eða ég gerði það… hann var að fara að keppa :)
Eeeeeeeeeeeeeen ætlaði ekki að missa mig hérna… ætla að kalla þetta gott.
Henti henni Birnu Ósk inn í linkana ;)

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment