Eldri færslur fyrir » February, 2005 «

færsla skrifuð kl. 18:33 - 26. February, 2005 | Höfundur: einir

Já þetta ætlar að verða mjög vel heppnuð helgi þar sem bæði Hlynsi og Steebman sáu sér fært að mæta í borg ótta og viðbjóðs. Komu báðir seinnipartinn í gær og var byrjað á því að horfa á Idolið heima hjá Bigga og Gísla Böðvari og sötrað á köldum öl. Helvíti fínt bara og var mikið spjallað. Svo skelltum við okkur í bæinn og fórum við á Glaumbar og svo á Gaukinn. Tókum bara rólega á því þar sem strákarnir skelltu sér á snjóbretti í hádeginu og eru þeir enn að. Þess í stað ætlum við að taka laglega á því í kvöld og er planið að kíkja aftur heim til Bigga.

Svo hef ég í mótmælaskyni af því að Hlynsi hefur ákveðið að hætta að blogga, bannað heimsóknir frá háskólanetinu á Akureyri á heimasíðuna mína og hvet ég ykkur hin að gera hið sama. Það náttlega gengur ekki að maðurinn gefist bara upp og ætlist svo til að fá að fylgjast með hjá okkur hinum án þess að gefa neitt frá sér… stöndum nú saman öll og komum í veg fyrir að Hlynsinn verði einangraðari frá okkur en hann þegar er… það er greinilegt að Akureyrið er að yfirtaka kagglinn :(
Svo bætti ég henni Hafdísi Víglunds inn á blogglistann… stelpan er komin með nýja síðu og lofar hún bara góðu ;)
Maður er alltaf að rekast á nýja og nýja bloggara… sem er bara besta mál… og ef þú ert með síðu sem er ekki á listanum hjá mér endilega láttu mig vita :P

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 15:04 - 21. February, 2005 | Höfundur: einir

Búhú… náði ekki í sofa út hópinn… ;´( Hehe… nei ég segi svona. Skráði mig í Golfherminn (með þeim félögum Stymma og Gylfa) og svo tek ég miðvikudaginn undir LAN… hugsa samt að flestir þar verði nú í að spila CS þannig að ég skelli mér bara í heimanámið eða vona að það verði einhverji sem spila heilbrigðari leiki þarna… það er vonandi ;)

Annars er Elena systir komin með bloggsíðu eins og hún hefur ætlað sér að gera síðan ég flutti hingað til Reykjavíkur… það hafðist allt saman í gær og er hún komin á fullt. Endilega kíkið á hana ;)
En ætla ekki að hafa þetta lengra í dag… spurning að henda þætti 2 af The 4400 í gang…
Hmmmm…

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 01:41 - 20. February, 2005 | Höfundur: einir

Já mar gerir ekki mikið annað en að vinna og læra nú þegar mar loksins fékk vinnu með skóla… sem er bara ágætt á meðan maður hefur tíma fyrir lærdóminn allavega. Var að byrja í Bónusvideo í Eddufelli hérna rétt fyrir ofan í dag og kláraði núna um 12 leitið. Fínasta vinna og frekar líkt Bónusvídeó í Eyjum sem pabbi er með nema aðeins stærri leika kannski :P Auk þess sem vídjóleigur hérna í Reykjavík eru frekar strangar hvað varðar að það þarf að kvitta fyrir hverri spólu og koma með skilríki ef maður hefur ekki tekið spólu áður… ja kannski skiljanlegt miðað við fólkið sem kom þarna í þessa blessuðu sjoppu :o Við erum að tala um Breiðholtið í sínu ‘fínasta’ pússi…

Svo er það sæluvika þarnæstu viku í skólanum og er það einhver voða dagskrá og þarf maður að skrá sig í 3 hópa. Mér sýnist þetta bara verða hin fínasta skemmtun því meðal þess sem boðið er upp á á þessum sæludögum er pool hópur, LAN hópur, sofa út hópur (sem btw komast bara 5 í svo mar verður að vera fljótur að skrá sig ;) ) og margt margt fleira skemmtilegt :P svo tekur vetrarfríið við fimmtudag og föstudag… fínasta vika þar á ferð.
Annars er ég að spá í að skella mér í Fifa 2005 þar sem ég nenni hreinlega (og hef ekki efni á) að fara í bæinn… Jet Black Joe að spila á Gauknum og ekki laust við að mann langi svolítið að sjá gömlu brýnin spila þar :S en það verður að bíða betri tíma. Ég er þreyttur og langar að hanga heima í tölvunni ;) Eins og ég geri ekki nóg af því… :P En allavega…
Bið að heilsa…
Heyrðu já… bætti líka Maríu Guðjóns á listann, hún er byrjuð að blogga aftur stelpan ;)

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 14:30 - 17. February, 2005 | Höfundur: einir

Enn ein vikan að líða og bara ekkert nema gott um það að segja. Mamma og pabbi eru í bænum þar sem pabbi var í uppskurði á öxlinni.. þau verða hérna allavega fram á laugardag sem er bara besta mál ;) Ég, Bergdís og mamma fórum í bíó í gær á myndina White Noise sem var nú öðruvísi en ég bjóst við en samt sem áður fínasta mynd. Gerir mikið út á bregðuatriði, sem varð til þess að allar helvítis gelgjurnar sem voru í salnum voru öskrandi hægri vinstri og vorum við svo heppin að vera með eitt gelgjutríó í næstu röð fyrir aftan og djöööööööfull fer svona helvíti í mig… Keaton (aðalleikarinn) mátti ekki drekka vatnsglas og þær voru komnar á það allra hæsta C sem ég hef á ævinni heyrt… var næstum búinn að teygja mig þarna yfir og handrota þær… en já þetta bjargaðist og fínasta mynd ;)

Annars er lítið að frétta… fór í fyrsta skiptið í vinnu á þriðjudaginn síðasta og er að fara aftur í kvöld niður á vöruhótel Eimskips… helvíti fín vinna með skóla og flottur félagsskapur. Er þarna að vinna með Stymma sem er með Thelmu frænku og Elmari. Henti einmitt link inn á bloggið hans Stymma en þar eru þeir félagar Stymmi og Tommi (sem er með Bjarný) að blogga. Fann svo þar annan link á Dramadrottningarnar, en þar eru þær Bjarný, Thelma Rós, Dagný og einhverjar vinkonur að tjá sig… alltaf gaman að finna svona nýja bloggara sem maður þekkir ;)
Ætla ekki að hafa þetta mikið lengra… vinna eftir smá.
Chao bella

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 17:39 - 13. February, 2005 | Höfundur: einir

Alltaf eru þessir blessuðu sunnudagar eins. Maður hangir heima á náttfötunum annaðhvort í tölvunni eða að horfa á spólu… gaman að því. Var bara rólegur í gær og horfði á 2 spólur með pabba sem einmitt kom í hádeginu í gær. Horfðum á Spartan með Val Kilmer sem var alveg hreint bara ágætis mynd og svo Collateral Damage með Schwarzeneggernum… fínasta mynd þar einnig. Svo var bara skellt sér í tölvuna í smá tíma og svo bara í háttinn.

Á föstudaginn hins vegar var aðeins meira fjör á manni. Við buðum Eini & Birki frændum okkar ásamt Tinnu kærustu Birkis í mat og horfðum svo á Idolið seinna um kvöldið. Algjört snilldar kvöld og skemmtu sér allir frábærlega. Skellti inn nokkrum myndum frá þessu kvöldi og eru þær komnar í myndasafnið.
Svo tekur bara enn ein skólavikan við sem verður kannski aðeins öðruvísi en vanalega þar sem maður er nú allt í einu kominn með 2 vinnur… :P Það verður svolítil breyting og verður maður að fara að skipuleggja sig betur… annað mun ekki ganga.
En allavega… horfa á Goldmember með Bergdísi og kúra smá ;)

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 15:59 - 10. February, 2005 | Höfundur: einir

Held það sé prófavikan mikla hérna í FB en kennararnir í ÖLLUM fögunum sem ég er í ákváðu að skella á prófum í þessari viku… helvíti skemmtilegt og ég hef bara engann tíma til að vera að þessu bloggeríi… eins og er allavega. Var í Word prófi í morgun sem ég hugsa að ég nái nú alveg.. :P sögu OG íslenskupróf á morgun svo ég mun eyða þessum fallega fimmtudegi í lestur misgóðra bóka… :S Heyrðu já svo fór ég í viðtal niðrá Eimskip útaf djobbi með skólanum og viti menn… þeim leist bara nokkuð vel á mig og vildu fá mig í prufu strax í kvöld og ég var svo ánægður að ég játaði auðvitað strax en komst svo að því mér til mikillar mæðu að ég á að fara í 2 próf á morgun og þurfti að hringja og tilkynna að ég kæmist ekki fyrr en á þriðjudaginn :( Algjör lúði…

Svo vil ég minna á að myndirnar sem ég og Bergdís tókum í Eyjarferðinni 28 – 30. janúar sl. eru komnar inn og eru þær í sömu möppu og myndirnar sem ég fékk frá Sindra… bara fyrir aftan… ;)

Annars bara back to readin’ :o

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 20:34 - 03. February, 2005 | Höfundur: einir

Hmmm… vika síðan ég bloggaði. Mér finnst ekki svo langt síða… tíminn er búinn að líða svo hratt :D Þar hjálpar örugglega að maður skellti sér til Eyja um síðustu helgi svona “óvænt”. Það var algjör snilld og gaman að sjá svipinn á liðinu þegar ég og Bergdís komum heim úr Herjólfi. Allavega svipurinn á pabba… hann minnti mig svolítið á svipinn sem hann setti upp þegar við krakkarnir komum til hans þar sem hann átti að eyða afmælinu sínu með mömmu hjá Þórhalli. Það var algjör snilld… ;)

En já, aftur að Eyjunum fögru. Við komum á föstudaginn með fyrri ferð og ákváðum að láta lítið fyrir okkur fara þar sem strákarnir áttu að spila á Conero seinna um kvöldið og ætluðum við bara að mæta óvænt þangað. Þegar við komum þangað ætlaði fólk ekki að trúa þessu og kallaði mig ýmsum nöfnum fyrir að hafa verið að ljúga að sér að komast ekki en þar spilaði inn í að vinnan sem ég var kominn með breyttist allsnögglega í vinnan sem ég missti, áður en ég fékk hana. Því deginum áður en ég átti að mæta til að læra á staðinn (Bónusvideo í Mjódd) hringdi eigandinn og tilkynnti mér að stelpan sem hætti og ég átti að koma í staðinn fyrir, hætti við að hætta :o Svo ég missti vinnuna áður en ég fékk hana… Og þá var ég allt í einu laus um helgina og þá tilvalið að skella sér til Eyja og koma fólkinu á óvart. Þetta var algjör snilldar helgi og stóð föstudagurinn upp úr. Húsið hans Árna ennþá sama partypleisið og bara gaman ;)
Ég fékk nokkrar myndir lánaðar hjá Sindra kallinum sem var að taka myndir heima hjá Árna Óla auk þess sem ég og Bergdís tókum nokkrar… Einhver bið er í að fá myndirnar sem ég og Bergdís tókum en myndirnar frá Sindra eru komnar í safnið :P

Svo að leiðinlegri málum sem enginn nennir að lesa svo ég hendi hingað sem enginn sér ;) Skólinn er alltaf farinn að taka meiri og meiri tíma frá manni sem er bara eðlilegt og í góðu lagi… Kennararnir farnir að henda á mann prófum hægri vinstri og íslenskukennarinn minn er að missa sig í Íslandsklukkuverkefnum. Þetta er í lagi á meðan maður getur staðið undir þessu öllu en ég er ánægður með að ég skilji stærðfræðina alveg og er ekki að dragast aftur úr þar eins og maður gerði í Eyjum, kannski spilar inní að nú fylgist maður með í tímum og lærir heima ;)

Annars ætla ég nú ekki að drepa ykkur úr leiðindum sem nenntuð að lesa þetta langt og ætla að kalla þetta gott í bili. Heyrðu jú, Gaui og Aron eru komnir í borgina og spurning hvað verður gert um helgina? :D Aníta nokkur Svennasystir verður einmitt hér um helgina líka svo bærinn verður fullur af blindfullum Vestmannaeyingum, eins og vanalega :P
Þangað til næst…
Later

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , , , ,  | ekkert komment